Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 4
i
4 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VTKAN 27/2 -4/3
► TUGIR manna leituðu
tveggja barna sem lentu-
undir snjóhengju við bæinn
Austurhlíð í Biskupstung-
um á mánudag. Frænd-
systkinin, Níels Magnús
Magnússon og Melkorka
Rut Bjarnadóttir, fundust
heil á húfi, en þá höfðu þau
verið grafin í fönn á
tveggja til þriggja metra
dýpi í um tvær klukku-
stundir.
► UM 200 af rúmlega
560 sjúkraliðum sem starfa
hjá Ríkisspítölunum og
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
sögðu upp störfum fyrir
mánaðamótin febrúar/
mars með þriggja mánaða
fyrirvara og taka upp-
sagnimar því gildi 1. júní
nk. hafi þær ekki verið
dregnar til baka fyrir þann
tima. Uppsagnirnar má
rekja til óánægju með
kjarasamninga.
► VERÐ á olíu til fiski-
skipa hefur á einu ári
hækkað um 66%, farið úr
12,28 krónum á lítrann í
20,44 krónur, eftir 4,1%
hækkun á verði gasolíu til
fiskiskipa í vikunni. Olíu-
kostnaður útgerðarinnar
eykst við þetta um 200
milljónir króna og miðað
við ársgrundvöll hefur ol-
íukostnaður útgerðarinnar
þvf hækkað úr um þremur
milljörðum króna í fimm.
► MEIRA en 500 millj-
óna króna tap varð á
rekstri söluskrifstofu Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
anna hf. í Rússlandi á síð-
asta ári og verður
skrifstofunni Iokað. Tapið
hefur þegar verið afskrif-
að að fullu.
Hekla byrjar að gjósa
GOS hófst í eldfjallinu Heklu kl. 18.17
á laugardagskvöld í síðustu viku og
var mestur krafturinn í gosinu fyrstu
tvo klukkutímana eftir að það hófst en
síðan fór það dvínandi. Fyrstu táknin
um væntanlegt gos í eldfjallinu komu
fram um kl. 17 á laugardeginum á
jarðskjálftamælum Raunvísindastofn-
unar Háskóla íslands. Hálftíma áður
en það hófst var tilkynnt í Ríkisút-
varpinu að það kæmi innan 20-30 mín-
útna og gekk það eftir. Steig gosmökk-
urinn í allt að 45 þúsund feta hæð.
Fimmtán hundruð
manns í Þrengslum
FIMMTAN hundruð manns sátu föst í
bílum sínum næturlangt í Þrengslum
aðfaranótt mánudags en fólkið hafði
verið á ferð um Suðurland til þess að
berja eldgosið í Heklu augum. Síðdeg-
is á sunnudag brast hins vegar á hið
versta veður í Þrengslunum með þeim
afleiðingum að bílar festust þar hund-
ruðum saman. Björgunarsveitir að-
stoðuðu við að flytja mannskapinn úr
bflunum til byggða og er talið að þetta
hafi verið einhver umfangsmesta
björgunaraðgerð sem farið hefur fram
hér á landi. Bflarnir sem skilja þurfti
eftir í Þrengslunum skiptu hundruð-
Engin samkeppni
lengur í áætlunarflugi
ÍSLANDSFLUG hefur leigt Flugfé-
lagi íslands báðar ATR-flugvélar fé-
lagsins frá og með 1. aprfl og mun
hætta áætlunarflugi á þeim flugleiðum
innanlands þar sem félagið hefur átt í
samkeppni við Flugfélag íslands. Það
er á flugleiðunum milli Reykjavíkur,
Akureyrar, Egilsstaða og Vestmanna-
eyja. Við það verður engin samkeppni
lengur í áætlunarflugi innanlands.
Pinochet sleppt
AUGUSTO Pinochet, fyrrverandi ein-
ræðisherra Chile, hélt á fimmtudag til
heimalands síns eftir að Jack Straw,
innanríkisráðherra Berlands, ákvað
að leys ahann úr haldi á þeirri for-
sendu að hann væri ekki fær um að
verja sig fyrir rétti sökum heilsu-
brests. Hann hafði þá verið í rúma 16
mánuði í stofufangelsi vegna fram-
salsbeiðnar spánsks dómara. And-
stæðingar Pinochets lýstu ákvörðun
Straws sem „afbökun á réttlætinu" en
stuðingsmenn hans í Chile fögnuðu
honum sem hetju er hann lenti í
Santiago eftir sólarhrings ferðalag.
Um 3000 manns höfðu safnazt saman
inni í borginni til að fagna honum en
skammt þar frá efndu um 1500 manns,
mannréttindasamtök og fólk, sem
missti sína nánustu í 17 ára valdatíð
Pinochets, til mótmæla. Um 60 mál
hafa verið höfðuð á hendur Pinochet í
Chile og sumir telja hugsanlegt að sú
friðhelgi, sem hann veitti sér í raun
sjálfur, verði afnumin. Fjölmiðlar í
Evrópu sögðu ávinningin af máli Pin-
ochets þann, að fyrrverandi einræðis-
herrar gætu ekki lengur notið lífsins
lystisemda í Evrópu án þess að eiga á
hættu að vera dregnir fyrir dóm.
Flóð í Mósambík
ERLEND ríki hafa heitið aukinni að-
stoð við nauðstadda í Mósambík, en
talið er að allt að ein milljón manna
hafi misst heimili sitt í flóðum, sem
lagt hafa stóran hluta flatlendis lands-
ins á kaf. Óttazt er, að enn einn felli-
bylurinn, Gloria, gangi yfír landið og
auki enn á hörmungamar. Bandarík-
in, Bretland og önnur ríki Evrópu-
sambandsins hafa heitið stóraukinni
aðstoð við hjálparstarfið í Mósambík
en hingað til hefur það að mestu mætt
á Suður-Afríku. Rauði kross Islands,
Þróunarsamvinnustofnun og fleiri ís-
lenzkir aðilar hafa lagt hjálparstarf-
inu lið.
► RÚSSNESKI herinn
náði síðasta höfuðvigi að-
skilnaðarsinnaðra skæru-
liða í Tsjetsjníu, bænum
Shatoi, á sitt vald á þriðju-
dag. Rússar segjast hafa
náð yfirráðum yfir öllu
héraðinu en skæruliðamir
segjast staðráðnir í að
halda skæruhemaðinum
áfram. Um 20 rússneskir
hermenn féllu í launsátri
nærri Grosní á föstudag.
► GEORGE W. Bush
vann sannfærandi sigur á
keppinaut sínum, John
McCain, í forkosningum og
á kjörfundum repúblikana
í þremur ríkjum á þriðju-
dag. A1 Gore varaforseti
sigraði Bill Bradley, helzta
keppinaut sinn um út-
nefningu sem forsetaefni
demókrata, ömgglega í
Washington-ríki.
► JÖRG Haider sagði á
mánudagskvöld af sér
flokksformennsku í Frels-
isfiokknum í Austurríki.
Ráðamenn hinna ESB-
ríkjanna 14 sögðu afsögn-
ina ekki breyta neinu um
pólitískar refsiaðgerðir
sem þau beita Austurríki
vegua stjómarþátttöku
Frelsisflokksins.
► HELMUT Kohl, fyrr-
verandi kanzlari Þýzka-
lands, hefur boðizt til að
útvega flokki si'num,
Kristilegum demókrötum,
sex milljónir marka, um
220 miljj. kr., til að mæta
sektum sem flokknum
verður væntanlega gert að
greiða vegna ólöglegra
fjárframlaga sem Kohl hef-
ur viðurkennt að hafa tek-
ið við á síðustu valdaárum
sínum.
FRETTIR
Rætt um endurreisn bæja á málþingi í Háskdlanum
Þáttaskil í umræðu
um skipulagsmál
Á MÁLÞINGI Háskóla Islands og
Reykjavíkurborgar um endurreisn
bæja, sem haldið var í samvinnu við
Samtök um betri byggð á föstudag,
kom m.a. fram að aukinn skilningur
væri á mikilvægi þéttrar byggðar,
og að óhófleg útbreiðsla dreifðrar
byggðar væri ekki endilega æskileg.
Samgöngumál voru einnig ofarlega
á baugi og m.a. sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri að ekki
væri stöðugt hægt að halda áfram
að greiða götu einkabflsins hér á
höfuðborgarsvæðinu.
Páll Skúlason, rektor Háskóla ís-
lands, setti málþingið sem fór fram í
Odda. Sagði hann m.a. í ávarpi sínu
að umræða um þróun höfuðborgar-
svæðisins hefði kannski verið of
tæknileg, á kostnað siðfræðilegrar
umræðu. Mikilvægt væri nefnflega
að huga að því hvernig við vildum
búa áður en við byrjuðum að byggja.
Pétur H. Ármannsson, bygging-
arlistadeild Kjarvalsstaða, rakti ís-
lenska bæjarhefð í sögulegu ljósi í
erindi sínu á málþinginu og kom
m.a. fram í máli hans að 20. öldin
gæti vart talist gullöld borganna.
Mikil áhersla hefði verið lögð á
dreifbýlisþróun hér á Islandi en
minna hefði verið gert í skipulag-
smálum bæja og borga þar til á allra
síðustu árum, og raunar hefði af-
staða manna gagnvart þéttbýlinu
gjarnan verið heldur neikvæð. Taldi
Fundurinn í Odda var vel sóttur.
Morgunblaðið/Ásdís
hann hins vegar að ein af fáum raun-
hæfum aðgerðum sem grípa mætti
til í byggðamálum, eins og málum
væri nú háttað, væri að mynda einn
stóran þéttbýliskjarna á lands-
byggðinni sem mótvægi við höfuð-
borgina Reykjavík.
Þétt byggð skapar grundvöll
fyrir félagsleg samskipti
Skipulagning byggðar í anda
módernisma, sem tröllreið hinum
Morgunblaðið/Kristján
Kertaljós í heitum potti
ÞAÐ fór vel um gesti í sem brugðu
sér í heita pottinn í sundlauginni á
Þelamörk f fyrrakvöld. Gríðarlegt
fannfergi er norðanlands um þess-
ar mundir og stöðugt hefur bæst
við en eins og sjá má á myndinni
hafa myndast heljarinnar göng að
pottinum og eins konar hellir yfir
honum. Starfsmenn sundlaugarinn-
ar höfðu kveikt á kertum í pottin-
um svo gestirnir gætu séð handa
sinna skii.
ú falsað málverk?
Sláandi samantekt um
falsanir á málverkum
íslenskra listamanna
og margt fleira
forvitnilegt í nýjasta
hefti Tímarits
Máls og menningar.
Mál og mennlng
malogmenning.is
nn
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500
vestræna heimi eftir miðja öldina,
fékk heldur slæma útreið á málþing-
inu en Jórunn Ragnarsdóttir, arki-
tekt í Karlsruhe í Þýskalandi,
nefndi sem dæmi um þess háttar
byggð hluta af Breiðholtshverfi, Ár-
bæ og Háaleitisbraut hér í Reykja-
vík. Sagði hún að á áttunda áratugn-
um hefðu menn aftur farið að gera
sér grein fyrir mikilvægi hinna
hefðbundnu evrópsku borga, og að
hin þétta byggð þeirra skapaði
grundvöll fyrir félagslegum sam-
skiptum.
Nýlegar tillögur um þróun
breskra borga á næstu 25 árum bar
á góma í máli Bjarna Reynarssonar,
skipulagsfræðings á þróunarsviði
Reykjavíkurborgar, en þar er m.a.
stefnt að því að takmarka óhóflega
útbreiðslu úthverfa. Sagði Bjami að
það væri einmitt hluti af skipulags-
vanda Reykjavíkurborgar hversu
ný íbúðahverfi væru sífellt lengra og
lengra í burtu frá miðborgarkjarn-
anum sem aftur yki síðan á bílaum-
ferð og mengun henni samfara.
Bjöm Ólafsson, arkitekt í París í
Frakklandi, varpaði í erindi sínu
nokkm ljósi á hvernig ólíkum að-
ferðum hefði verið beitt til að móta
borgarkjarna í Frakklandi en Þor-
valdur S. Þorvaldsson, skipulags-
stjóri Reykjavíkur, rakti að síðustu
starf Borgarskipulags. Gerði hann
einnig grein fyrir þeirri endurskipu-
lagningu aðalskipulags Reykjavík-
urborgar sem nú er í gangi, sem og
gerð svæðaskipulags fyrir höfuð-
borgarsvæðið allt. Er stefnt að því
að ljúka þessari vinnu á árinu, að
sögn Þorvaldar.
Enginn flokkur með stefnu í
málefnum bæja og borga
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri átti lokaorðin í gær og
vakti hún m.a. athygli á að stjórn-
völd landsins legðu alla áherslu á
byggðastefnu en „bæjarstefna"
kæmi hins vegar aðeins fram sem
óvænt afleiðing af byggðastefnu.
Benti hún á að enginn stjórnmála-
flokkanna hefði sérstaka stefnu í
málum er vörðuðu bæi og borgir.
Ingibjörg taldi hins vegar að
ákveðin þáttaskil ættu sér stað í um-
ræðu um skipulagsmál, menn
horfðu nú öðrum augum á mikilvægi
lands, verndun umhverfisgæða,
mikilvægi blandaðrar byggðar og
hlutverk einkabílsins.
Sagði hún engum blöðum um það
að fletta að ekkert lægi fólki eins
þungt á hjarta og bflaumferðin og
umferðarhraðinn, auk slysa og
mengunar sem tengjast bílaumferð.
Enn værum við að vísu ekki reiðu-
búin til að færa fórnir í þágu þeirrar
áþjánar, sem bflafjöldinn óneitan-
lega ylli, en Ingibjörg sagði ljóst að
við gætum ekki stöðugt haldið
áfram að greiða götu einkabílsins.
Óhjákvæmilegt væri að leggja aukið
fé til almenningssamgangna.