Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 6

Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 6
6 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ BAKSVIÐ ERLENT ystu Prímakovs sem verður 71 árs í október. Það eina sem gæti komið í veg fyrir þetta er persónulegur metnað- ur Zjúganovs sem lítur eins stórt á sig og leiðtogar frjálslyndu flokk- anna. Nokki'ir rússnesku fjölmiðl- anna telja að valdhafarnir í Kreml geti einnig hindrað þetta með því að veita Zjúganov fjárhagslegan stuðning gegn því skilyrði að hann ■ hætti ekki við framboðið. Stuðningsmenn Pútíns of sigurvissir? Þriðji möguleikinn er einfaldur; þeir sem treysta ekki Pútín (eða telja að hann geti sigrað auðveld- lega án stuðnings þeirra) eða kommúnistum gætu sniðgengið kosningarnar án þess að stjórn- málamennirnir hvetji þá til þess. Slík staða hefur oft komið upp í Rússlandi. Til að mynda var kjör- sóknin aðeins 34% í héraðsstjóra- kosningum í Sankti Pétursborg árið 1996. Þorri þehra sem kusu ekki taldi að Anatolí Sobtsjak borgar- stjóri (sem lést 19. febrúar) myndi vinna stórsigur á keppinaut sínum, Vladímír Jakovlev. Borgarstjórinn beið hins vegar ósigur vegna þess að stuðningsmenn Jakovlevs flykktust á kjörstaði en margir fylgismanna Sobtsjaks sátu heima. Þetta kann einnig að gerast í kosningunum 26. mars því hugsan- legt er að margir þeirra sem telja öruggt ac). Pútín fari með sigur af hólmi ákveði að ganga ekki að kjör- borði, eins og þeir sem vilja ekki að hann nái kjöri. Og verði kjörsóknin aðeins um 45% verður Pútín ekki forseti næstu fjögur árin og yrði það mjög áhrifamikill endir á skjót- um frama hans í rússneskum stjómmálum. Lítið má út af bera Pútín hefur nú aðeins þrjár vikur til sannfæra alla stuðningsmenn sína um nauðsyn þess að þeir greiði honum atkvæði og tryggja að kjör- sóknin verði yfir 50%. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að kjörsóknin verði um það bil 52%, þannig að Ijóst er að lítið má útaf bera. Hver er Pútín? í nýlegri skoðanakönnun sögðust um 70% aðspurðra telja að enginn vafi léki á því að Pútín færi með sig- ur af hólmi í kosningunum 26. mars. I sömu könnun sögðust 53% styðja Pútín en fram kom einnig að kjós- endurnir vita lítið um stefnu hans. Um 49% aðspurðra sögðust t.a.m. ekki vita hver framvindan yrði í efnahagsmálum undir stjórn Pútíns og 47% vissu ekki hvemig samskipti hans yrðu við Vestur- lönd. 43% sögðust ekkert vita um viðhorf hans til mannréttinda og lýðræðis. Margt bendir til þess að margir Rússar vilji jafnvel ekki vita hver Pútín er í raun og veru og styðji hann aðeins vegna þess að þeir telji hann sterkan leiðtoga. Stefnuskráin ekki birt „til að komast hjá gagnrýni“ Pútín hefur ekki reynt að eyða þessari óvissu og sagði t.a.m. á kosningafundi nýlega að hann hygðist ekki birta stefnuskrá sína í efnahagsmálum fyrr en nokkram dögum fyrir kosningarnar. „Hvers vegna?“ spurði einn fundarmann- anna og Pútín svaraði þá hrein- skilnislega: „Til að komast hjá gagnrýni.“ Pútín tekur nokkra áhættu með því að beita þessari aðferð. Óvissan um stefnu hans í mikilvægum mál- um gæti orðið til þess að margir þeirra, sem hafa stutt hann, ákveði að kjósa hann ekki og sitja heima. Nokkrir stjómmálaskýrendur telja hins vegar að þessi aðferð geti reynst árangursrík í kosningunum og segja að með því að ræða sem minnst um stefnu sína geti hann komist hjá því að styggja kjósend- ur. Höfundur er ritsljóri tímarits í Sankti Pétursborg. Vladnnír Pútín, starfandi forseti Rússlands, heilsar verkamönnum í oliuvinnslustöð í Súrgút í vesturhluta Síberíu þegar hann var þar í heimsókn á föstudag. Pútín sagði verkamönnunum að hann hygðist ekki gefa nein „óraunhæf loforð" í kosningabaráttunni. Lítil kj ör sókn gæti orðið Piítín að falli ALKUNNA er að Vladímír Pútín, starfandi forseti Rússlands, er lík- legastur til að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum 26. mars. Allir vita einnig að enginn hinna frambjóðendanna getur gert sér raunhæfar vonir um að ná kjöri. Við þekkjum öll veiku forsetaefnin - en minna er vitað um hættuleg- ustu óvini Pútíns sem gætu jafnvel orðið honum að falli. Líkumar á sigri Pútíns eru ekki eins miklar og margir halda því nýl- eg skoðanakönnun leiddi í ljós að hann stendur frammi fyrir mjög hættulegum andstæðingum - þeim sem ætla ekki að mæta á kjörstað. Rúm 40% kjósenda hafa efasemdir um Pútfn Fylgi Pútins er enn mjög mikið, eða um 53-58%, og aðeins 15% kjós- endanna styðja helsta keppinaut hans, Gennadí Zjúganov, leiðtoga kommúnista. Þeim, sem íhuga nú að snúa baki við Pútín og svokölluðum „umbótum" hans (vegna þess að þær sjást hvergi), fer hins vegar fjölgandi. Ef marka má skoðana- kannanir hafa rúmlega 40% kjós- endanna efasemdir um að Pútín sé rétti maðurinn í forsetastólinn. Þeir telja hins vegar að enginn annar sé fær um að taka við stjómartaumun- um. Þeir sem telja að enginn fram- bjóðendanna sé nógu góður kostur geta einfaldlega sniðgengið kosn- ingamar. Ennfremur má benda á að fyrir forsetakosningamar árið 1996 reyndi Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti forseti Sovétríkjanna, að út- enginn frambjóðendanna sé nógu góður kostur. Gangi Föðurlands- flokkur Júrís Lúzhkovs, borgar- stjóra Moskvu, til liðs við þá kynnu hartnær 18 milljónir kjósenda að sitja heima. Það yrði Pútín að falli því um fimm milljónir atkvæða myndi þá vanta til að kosningamar yrðu gildar. Það kann hins vegar að setja strik í reikninginn að lítill einhugur er meðal leiðtoga frjálsljmdu flokk- anna og þeir telja sig allir efni í mik- inn þjóðarleiðtoga. Margir telja mjög ólíklegt að Javlínskí falli frá þeirri ákvörðun sinni að taka þátt í kosningunum. Prímakov gæti staðið uppi sem sigurvegari í öðru lagi gæti Zjúganov dregið sig í hlé viku fyrir kosningarnar þannig að stuðningsmenn hans yrðu að sniðganga þær. Hann gæti þá ekki gefið kost á sér í næstu kosningum ef kjörsóknin verður of lítil en það ætti ekki að vera vanda- mál þar sem sigurlíkur hans era nánast engar og hann veit það sjálf- ur. Verði kosningarnar lýstar ógild- ar þarf að kjósa aftur í júlí og eini maðurinn sem er talinn geta farið með sigur af hólmi er Jevgení Prímakov, sem naut stuðnings kommúnista í dúmunni, neðri deild þingsins, þegar hann var skipaður forsætisráðherra. Flestir af for- ystumönnum kommúnista álíta þetta ákjósanlega niðurstöðu, enda yrði hún að öllum líkindum til þess að þeir kæmust í stjórn undir for- Líkumar á að Vladímír Pútín nái kjöri í komandi forsetakosningum í Rússlandi eru ekki eins miklar og margir halda, að mati Alexanders Malkevich, sem segir að verði kjörsóknin minni en 50% verði kosn- ingarnar lýstar ógildar og Pútín geti þá ekki boðið sig fram að nýju. skýra fyrir kjósendum að þeir sem vildu hvorki kjósa Borís Jeltsín né Zjúganov gætu greitt atkvæði „gegn öllum frambjóðendunum". Þessari hugmynd Gorbatsjovs var hafnað en margir Rússar íhuga nú þann möguleika að greiða at- kvæði gegn öllum forsetaefnunum vegna þess að þeir treysta þeim ekki. Gæti ekki boðið sig fram aftur Vandi Pútíns felst í þvf að ef kjör- sóknin verður minni en 50% verða kosningamar lýstar ógildar og einnig ef prósenta þeirra sem greiða atkvæði „gegn öllum“ er hærri en kjörfylgi frambjóðend- anna. Þetta er þó aðeins ein hlið vandans því stærsta vandamálið er að verði kosningamar lýstar ógild- ar getur enginn frambjóðendanna boðið sig fram aftur. Þannig að ákveði rúmlega 50% kjósendanna að sniðganga kosning- arnar verða Vladímír Pútín, Genna- dí Zjúganov og Grígorí Javlínskí, leiðtogi Jabloko-flokksins, ekki í framboði í næstu forsetakosning- um. Þá yrði kosið á milli manna eins Jevgenís Prímakovs og Vladímírs Zhírínovskís sem verða ekki í fram- boði 26. mars. Sniðganga fijálslyndu flokkarnir kosningamar? Rússneskir fjölmiðlar eru þegar farnir að velta fyrir sér ýmsum möguleikum í þessu sambandi. í fyrsta lagi er talið hugsanlegt að leiðtogar frjálslyndu flokkanna (Jabloko og Sambands hægriafl- anna) hvetji stuðningsmenn sína til að sniðganga kosningarnar þar sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.