Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 18

Morgunblaðið - 05.03.2000, Side 18
18 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Einar Bragi tekur við menningarverðlaununum úr hendi Sveins Einars- sonar, formanns Sænsk-islenska menningarsjóðsins. Einari Braga afhent sænsk-íslensku menningarverðlaunin færðu Islendingum í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins ár- ið áður. Skyldi fénu varið til að efla samskipti þjóðanna á sviði menn- ingarmála, menntunar, lista og vís- inda og ýmsum öðrum sviðum fé- lagslegra samskipta. Sérstök undirbúningsnefnd lagði til að stofnaður yrði formlegur sjóður og að arði af stofnfé skyldi árlega varið í samræmi við markm- ið sjóðsins. Hefur verið auglýst ár- lega eftir umsækjendum um styrki úr sjóðnum í báðum löndunum. Eitt árið voru umsækjendur á Qórða hundrað en 16 styrkir veittir. Eink- um hafa verið veittir ferðastyrkir til einstaklinga og hópa, sem og verkefnastyrkir. I ár hafa borist um 150 umsóknir og verður styrkjum úthlutað úr sjóðnum síðar í þessum mánuði. Þjóðirnar færðar nær hvor annarri menningarlega Jafnframt hefur stjórn sjóðsins beint fjármunum í nokkur stærri verkefni, t.d. að undirbúa útkomu sænsk-íslenskrar orðabókar, efl- ingu sænskukennslu í íslenskum skólum og til útgáfu bókar um fs- lendinga í Svíþjóð og samskipti þjóðanna. Á síðastliðnu ári var ákveðið að einnig skyldu veitt sérstök menn- ingarverðlaun einstaklingi sem með störfum sínum hefði unnið að því að færa þjóðirnar hvora nær annarri menningarlega. Það ár hlaut verðlaunin sænski rithöfun- durinn Inge Knutsson, sem á síðari árum hefur öðrum fremur stuðlað að því að gera íslenskar bók- menntir kunnar í Svíþjóð. EINARI Braga rithöfundi voru af- hent sænsk-íslensku menningar- verðlaunin við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu á föstudag. Á fundi sinum í desember sl. ákvað stjórn sjóðsins aðverðlaunin skyldu í ár falla í skaut íslendingi sem með verkum sínum hefur stuðl- að að því að færa íslendingum meiri þekkingu á sænskum bók- menntum og í þessu tilviki um leið heimsbókmenntunum. Islendingur- inn sem hér um ræðir er Einar Bragi, sem hefur þýtt öll leikrit sænska skáldjöfursins Augusts Strindbergs á íslensku. Verðlaunin eru að upphæð 25 þúsund sænskar krónur eða sem svarar um 210 þús- undum íslenskra króna. í fréttatilkynningu kemur fram að Sænsk-íslenski menningarsjóð- urinn var stofnaður árið 1995 í kjölfar peningagjafar sem Svíar M-2000 Sunnudagur 5. mars. Ráðhús Reykjavíkur. Kl. 15. Iðnó kl. 16. Listahátið þroska- heftra - Sljörnur himinsins Ævintýra- Ak - klúbburinn stend- ur að Listahátíð þroskaheftra sem opnuð 7 verður með málverka- ^ og handverkssýningu. Söngur, dans, spuni og upp- lestur úr frumsömdum verk- um tekur svo við í Iðnó. Miða- verð kr. 250. SAM STILLINGAR MYNDLIST II a f n a r b o r g MÁLVERK PÉTURGAUTUR Opið alla daga frá 12-18. Lokað þriðjudaga. Til 20. mars. Aðgangur 300 krónur í allt húsið. ÞAÐ er mikill hraði og vinnu- gleði í málaranum Pétri Gauti, og skýtur þó skökku við að viðfangs- efni hans er það sem menn nefna kyrralíf eða uppstillingar, en í þessu tilviki væri kannski réttara að nota nafnið samstillingar eða sam stillingar. Einfaldlega vegna þess að gerandinn stillir í þessu til- viki saman hlutum á grunnflöt, sí- fellt sömu hlutunum í ýmsum til- brigðum, en stílfærir í mun ríkari mæli en gerist í hefðbundnum kyrralífsmyndum. Sömu formunum bregður stöðugt fyrir svo skoð- andinn er að lokum farinn að fá það á tilfinninguna að listamaður- inn kunni þetta utanað, þurfi síður að styðjast við hlutgert myndefni né yfirhöfuð hafa neitt fyrir fram- an sig annað en málaratrönurnar og léreftið. Myndefnið er þá öllu frekar huglægs eðlis en hlutvakið, og einhvern veginn lítur svo út sem sem sú uppvakta nánd og víxlverk- un sem hlutir geta almennt haft á gerendurna sé minna til staðar en sértæk ímynduð og skálduð form. Þetta er nú einungis útlistun á þeim áhrifum sem skrifari varð fyrir við skoðun sýningarinnar, en hefur minna með gæðamat að gera og satt að segja er þetta sterkasta framlag Péturs til þessa, í öllu falli af þeim sem hafa borið fyrir mín augu. Kom strax fram í myndinni í stigaganginum, Uppstilling í tunglskini (2), sem er einungis í svart-hvítu og er í senn einföld og sterk, formin afar vel staðsett á grunnflötinn. Hef ekki í annan tíma séð jafn einföld og sterk verk frá hendi listamannsins sem áður- nefnt og nokkur fleiri, nefni hér helst; Ávextir (10), sem er afar lit- ræn og efniskennd, Uppstilling á gulum dúk (17), sem er líkast til átakamesta verkið á sýningunni, Eldhúsuppstilling (28), sem er í senn litræn efniskennd og vel mál- uð. En það voru þó tvær litlar myndir í kaffistofunni er tóku hug minn allan; Uppstilling á köflóttum dúk (39) og „Natura Morta“ (47). í öllum þessum myndum finnst mér að fram komi bestu eiginleikar Péturs sem málara, og hann geng- ur þar hreinna til verka, af meiri ró og einlægni en í flestum öðrum myndum á sýningunni, jafnvel svo að stundum getur hugurinn eitt augnablik hvarflað til meistara Chardins. En því er ekki að neita að taumlaus málaragleðin virðist oftar en ekki vera ráðandi aflið í vinnuferlinu og að meira sé hugsað um að koma hlutunum frá sér en ganga hreint og markvisst til leiks, hafna öllum málamiðlunum. Þannig er auðséð að liturinn í sumum myndunum er vart þornaður og því síður fernisinn. Að auk er því ekki að neita, að oftar en eðlilegt má telja bregður fyrir ónákvæmum vinnubrögðum einhvers staðar í lit eða myndbyggingunni sem raskar annars vel upp byggðri heild, eins og eitthvert óþol sé á ferð. Hér er mikið málað blautt í blautt og er auðséð að Pétur ræður við tæknina er best lætur en víkur stundum einhvers staðar í ferlinu af leið. Eitt er mjög áberandi á sýning- unni og þá einkum í salnum uppi, sem er að áherslur lýsingarinnar magna stórlega upp stemmninguna í myndunum, jafnvel í þá veru að erfitt er að átta sig á hvað er mynd og hvað bein innsetning birtugja- fans, þannig að maður er alls ekki viss hvernig þessar myndir taki sig út í náttúrubirtu - veltir því fram og aftur fyrir sér. En á heildina lit- ið má listamaðurinn vel við una... Bragi Ásgeirsson Styrkir til atvinnuleikhópa MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur, að fengnum tillögum frá framkvæmdastjórn Leiklistarráðs, úthlutað framlögum af fjárlagaliðn- um Starfsemi atvinnuleikhópa árið 2000, sem hér segir: Hafnarfjarð- arleikhúsið Hermóður og Háðvör - 10 millj. kr. til starfssamnings. Leikfélag íslands í Iðnó - 4 millj. kr. til starfssamnings. Möguleik- húsið - 2,5 millj. kr. til uppsetning- ar leikverks að vali hópsins af verkefnalista. Á mörkunum - 2,5 millj. kr. til leiklistarhátíðar sjáif- stæðu leikhúsanna. Kaffíleikhúsið - 1.5 millj. kr. til einleikjaárs. Bandamenn - 1,5 millj. kr. til upp- setningar Eddu 2000. Drauma- smiðjan - 1,5 millj. kr. til uppsetn- ingar leikverks að vali hópsins af verkefnalista. Norðanljós - 1 millj. kr. til uppsetningar Skækjurnar ganga fyrstar inn í guðsríki. Sögu- svuntan - 500 þús. kr. til uppsetn- ingar á Loðinbarði heitir hann. Alls bárust umsóknir frá 37 aðil- um til 48 verkefna. Til úthlutunar voru samtals 25 millj. kr. í úthlutunarnefnd Leiklistarráðs sátu Magnús Ragnarsson, Krist- björg Keld og Ragnheiður Tryggvadóttir. HflMH Daníel ■BiijÍIS—IjlÍBlBB Námskeið hjá Yoga Studio í mars Jóga gegn kvíða meö Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 7. mars - þri. og fim. kl. 20.00 4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Yoga - breyttur lífsstíll með Daníel Bergmann hefst 6. mars - mán. og mið. kl. 20.00 4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá, sem eru að taka sín fyrstu skref í jóga. Námskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vilja læra eitthvað nýtt til að vinna gegn spennu. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Á námskeiðum hjá Yoga Studio eru eftirfarandi þættir teknir fyrir: ★ jógaleikfimi (asana) ★ öndun ★ slökun ★ mataræði og lífsstill ★ andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Jóga gegn kvíða er yfirgripsmeira heldur en Yoga - breyttur lífsstill. Frír aðgangur að opnum jógatimum og saunu fylgir námskeiðunum. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.yogastudio.is YOGA STUDIO VtSA Yoga - Sauna Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560. (3 HALUR OG SPRUND ehf. halur@yogastudio.is BIOTONE nuddvörur, Oshadhi 100% hágæöa ilm- kjarnaolíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks, nuddplaköt, slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl. ^«B»«HMHI|lllll|nilIll)||||| IIHH Steinrunninn tölvunotandi GESTURá vörusýningu, sem haldin var á vegum stjórnar fjár- festingamála í Bangkok í Taí- landi, tyllir sér hér áhugasam- ur við hlið skúlptúrs af tölvunotanda sem unnin hef- ur verið í fullri stærð. Um 800 fyr- irtæki víðsveg- ar að úr heim- inum kynntu tækninýjungar sínar á sýning- unni, sem er liður í tilraun Taílands til að koma fótum undir hagkerfi landsins á ný eftir kreppu sl. þriggja ára. Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.