Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.03.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Yalgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra bíða mörg verkefni Æskilegt að sparisjóð- irnir geti breytt sér í hlutafélög Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-og viðskiptaráðherra leggur mikla áherslu á að verklagsreglur fjármagnsm- arkaðarins séu skýrar og skapi trúverðugleika á mark- aðnum. I samtali við Örnu Schram segist hún enn- fremur leggja mikla áherslu á ábyrgð stjórnenda fyrirtækja í þessu sambandi. VALGERÐUR Sverrisdóttir tók eins og kunnugt er við ráðherra- dómi í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu í upphafi ársins en mála- flokkar þessara ráðuneyta hafa mikið verið til umfjöllunar að undanförnu. Má þar nefna umræðuna um verklagsreglur á verðbréfamarkaði og umræðuna um Fljóts- dalsvirkjun og álver í Reyðarfirði. Auk þess hefur verið rætt um hagræðingu á fjár- magnsmarkaði um nokkurt skeið og að hana mætti m.a. ná með samruna banka, til að mynda Landsbanka íslands hf. og Búnaðar- banka íslands hf. annars vegar og Lands- banka íslands og íslandsbanka hf. hins veg- ar. Valgerður leggur áherslu á að ef farið verði út í sameiningu banka þurfi að vera al- gjörlega ljóst að samkeppnin minnki ekki um of á markaðnum. Á hinn bóginn hefur hún ekki látið í ljós neinar skoðanir á því hvaða sameining væri æskilegri en önnur. Þegar rætt er um sparisjóðina kveður Valgerður að á vegum viðskiptaráðuneytisins sé starfandi nefnd sem sé ætlað að fjalla um framtíðar- skipan sparisjóðanna og bíður hún niður- stöðu hennar. Hún bendir þó á í þessu sam- bandi að hún telji æskilegt að sparisjóðirnir eigi þess kost að breyta rekstrarformi sínu í hlutafélag líkt og í dönsku lögunum. í samtali við Morgunblaðið kemur fram að mikill hluti starfsorku nýs iðnaðar- og við- skiptaráðherra hafi farið í verðbréfamarkað- inn, ekki síst eftir að Fjármálaeftirlitið til- kynnti að sex fjármálafyrirtæki hefðu í janúarmánuði gerst brotleg við ákvæði verk- lagsreglna sinna sem banna viðskipti starfs- manna með óskráð hlutabréf. I kjölfarið kynnti viðskiptaráðherra í ríkisstjórn nýtt frumvarp til laga um breytingu á lögum um verðbréfaviðskipti, eins og kunnugt er, þar sem styrkari stoðum er m.a. skotið undir verklagsreglur fyrirtækja í verðbréfaþjón- ustu. Til að mynda eru verklagsreglur varð- andi eigin viðskipti fyrirtækja, eigenda þeirra, starfsmanna og maka gerðar ítar- legri. Valgerður segir í samtali við Morgun- blaðið mikilvægt að neytendur eða viðskipta- vinir geti treyst þeirri starfsemi sem fram fari á fjármagnsmarkaðnum og geti trúað því að hagsmunir þeirra sitji í fyrirrúmi en ekki hagsmunir einstakra starfsmanna markaðar- ins. Þess vegna m.a. þurfi að aðskilja einstök starfssvið verðbréfafyrirtækja eins og fyrr- nefnt frumvarp gerir ráð fyrir en þar er einn- ig gert ráð fyrir styrkari stöðu Fjármálaeft- irlitsins og aukinni kröfu um nám starfsmanna fyrirtækjanna í verðbréfamiðl- un. „Þetta held ég að sé allt saman nauðsyn- legt og eru að vissu leyti ákveðin viðbrögð við því sem hefur verið að gerast á verðbréfa- markaðnum á síðustu mánuðum en þar hafa komið upp ýmis tilvik sem eru ámælisverð. Ég taldi mér skylt að bregðast við þeim. Eft- irlitsaðilinn á markaðnum er Fjáimálaeftir- litið fyrst og fremst og ég lýsi yfir fullum stuðningi við það sem eftirlitið hefur verið að gera og trúi því að okkur muni takast á þess- um vetri að koma málum þannig fyrir að við getum kinnroðalaust horft framan í heim- inn.“ Telurðu þörf á strangari verklagsreglum fyrir fjármálamarkaðinn en nú er verið að vinna að? „Reglumar liggja ekki fyrir og erfitt að svara þessu en fram hefur komið í fjölmiðlum að Fjármálaeftirlitið er nú að fara yfir drög að reglum sem samtök verðbréfafyrrtækja hafa sent stofnuninni. Ég legg hins vegar mikla áherslu á að þessar reglur séu skýrar og skapi trúverðugleika á markaðnum og legg mikla áherslu á ábyrgð stjórna fjár- málafyrirtækja í þessu sambandi." Aðspurð segir nýr ráðherra að neytenda- mál séu þau mál sem hún vilji leggja mesta áherslu á á kjörtímabilinu. „Ég hef hugsað mér að sinna neytendamálunum meira en hefur verið gert til þessa,“ segir hún og bendir á að þau mál fái æ meiri vægi víða er- lendis, meðal annars innan Evrópusam- bandsins. „Þessi málaflokkur er spennandi en hann tengist líka samkeppnismálum, sem er málaflokkur sem við erum að þróa hér á landi. Ég tel að vel hafi til tekist í þeim máL um hingað til en betur má ef duga skal. I undirbúningi er nýtt frumvarp frá viðskipta- ráðuneytinu um breytingu á samkeppnislög- um og er í því gert ráð fyrir að skerpt verði á ýmsum ákvæðum og að teknar verði upp bannreglur í meiri mæli en áður,“ segir hún og bendir á að með auknu frelsi í viðskiptum geti ríkið notað samkeppnislög sem tæki til að verja hag neytenda. „Auðvitað hefur mað- ur ákveðnar áhyggjur af fákeppni á mark- aðnum sem er ef til vill að einhverju leyti til komin vegna smæðar þjóðarinnar en það er jafnframt ástæða til þess að við verðum að vera meira á varðbergi í þessum málum en aðrar þjóðir." Þarf að hagræða á markaðnum En snúum okkur að öðrum málum. Sam- eining banka hefur lengi verið í umræðunni, til að mynda sameining ríkisbankanna; Bún- aðarbanka íslands hf. og Landsbanka ís- lands hf. Hefur þú mótað einhverja stefnu í þessum máluml „Ég hef eins og forveri minn, Finnur Ing- ólfsson, látið í ljós þá skoðun að það þurfi að hagræða í bankakerfinu. Það þurfi að minnka vaxtamun og draga úr kostnaði á fjár- magnsmarkaði. Við teljum að samanburður- inn við erlenda banka sé íslensku bönkunum frekar í óhag og þess vegna er talað um hag- ræðingu. Það er auðvitað hægt að ná hag- ræðingu með aðgerðum innan hvers banka og það hefur verið gert að þó nokkru leyti. Hins vegar hefur verið í umræðunni að það gæti verið æskilegt og hagkvæmt að sameina banka. Ég tel að ef út í það yrði farið þá þyrfti að minnsta kosti að vera algjörlega ljóst að samkeppnin minnki ekki um of á markaðnum. Ég hef á hinn bóginn ekki látið í ljós neinar skoðanir á því hvaða sameining væri æski- legri en önnur. Sú sameining sem þú minnist á hefur verið nefnd og eins hefur verið talað um sameiningu Landsbanka íslands og Is- landsbanka. Sjálfsagt er verið að velta ýmsu fyrir sér á markaðnum en mín orka hefur meira farið í verðbréfamarkaðinn síðan ég kom hér í ráð- uneytið þannig að það hefur ekkert að segja þótt ekkert sé að gerast í þessum málum akkúrat núna. Engin formleg vinna er í gangi í ráðuneytinu um þessar hugmyndir enda tíminn svo sem ekkert að hlaupa frá okkur í þessum efnum.“ Valgerður ítrekar að hún útiloki enga kosti í þessum sameiningarmálum og bendir á að hún hafi verið að kynna sér þessi mál síðan hún tók við lyklavöldum í ráðuneytinu og haldið í þeim tilgangi fundi með forsvars- mönnum hinna ýmsu fyrirtækja. Telur þú að Búnaðarbankinn og Lands- bankinn fái markaðsráðandi stöðu verði þeir sameinaðir ? „Það er eiginlega vandséð hvernig hægt er að sameina bankana öðruvísi en svo að um mjög stóra einingu verði að ræða. Þetta á bæði við um sameiningu Landsbankans og Búnaðarbanka annars vegar og Landsbank- ans og íslandsbanka hins vegar.“ _ Telur þú að með sameiningu BI og LI geti tapast störf á landsbyggðinnit „Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að hagræðing í bankakerfinu gengur m.a. út á að fækka útibúum og við það að fækka úti- búum eru ákveðnar líkur á því að einhver störf verði lögð niður. En þó tel ég að það sé hægt að vinna þannig að málinu að fækkun starfa verði alveg í lágmarki. Þetta geti orðið þannig að það verði meira þróun sem eigi sér stað frekar en að það gerist allt í einu.“ Starfsemi banka og vátrygginga- félaga fer vel saman Nú á LÍ hlut í Vátryggingafélagi íslands (VÍS). Kemur til greina að bankinn selji allan þann hlut eða telurðu eðlilegt að banki eigi hlut í vátryggingafélagp. „Það er ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér að banki og vátryggingafélag séu í samstarfi. Að mörgu leyti getur starfsemi þessara aðila farið mjög vel saman en ég býst við að ef af sameiningu verði í bankakerfinu sé salan á hlut Landsbankans í Vátryggingafélaginu eitt af því sem verður skoðað í því sambandi." Það er þá ekki verið að tala um það nú að LÍ selji allan sinn hlut í VIS? „Nei, enda ekki mál sem er á mínu borði. Þetta er frekar spurning um ákvarðanatöku í bankanum." Afhverju telurðu að starfsemi banka og vátryggingafélags fari vel samarí! „Þetta eru þjónustufyrirtæki við almenn- ing og að því leytinu til er ákveðin hagræðing í því að sameina vátryggingafélög og banka- stofnanir. Hins vegar álít ég að sú hagræðing sem menn sáu fyrir sér þegar Landsbankinn keypti þennan stóra hlut í VÍS hafi ekki gengið eftir sem skyldi." Komi til þess að eignarhluti LÍ í VTS verði seldur hefur þú einhverjar hugmyndir um líklega kaupendur? „Ef það verður farið út í að sameina banka er ekki verið að tala um að selja hlut í VÍS heldur sameina banka. Það er svo seinni tíma mál hvort að um sölu verði að ræða eða ekki. Sú sala á hlut LÍ í VÍS sem fór fram fyrir áramótin tókst mjög vel og eru ekki uppi áform um að taka frekari skref í því að svo stöddu.“ Hvað með að aðrir bankar kaupi hlut LI í VÍS? „Það er ekkert sem er á döfinni.“ Telur þú að Búnaðarbankinn geti orðið undir í samkeppninni verði af sameiningu Landsbankans og íslandsbanka? „Ég vil ekki tjá mig um einstaka kosti en ítreka það sem ég hef áður sagt, að samein- ing fyrirtækja á þessum markaði má ekki leiða til fákeppni á honum.“ Hefurðu velt fyrir þér mögulegu samstarfi Búnaðarbankans við Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins eða önnur fyrirtæki og stofnan- ir? „Nei.“ Hvað með samstarf Búnaðarbankans við íbúðalánasjóð? „íbúðalánasjóður er algjörlega ný stofnun og verður að fá að þróast miðað við lög og reglur. Það yrði þá seinni tíma mál ef það yrði farið í að sameina hann bönkum eða ein- hverjum banka.“ Nefnd fer yfír framtíðar- skipan sparisjóðanna Valgerður greinir frá því að á vegum við- skiptaráðuneytisins sé starfandi nefnd sem hafi það verkefni að fara yfir framtíðarskipan sparisjóðanna hér á landi. En sú nefnd, segir Valgerður, var sett á laggirnar ekki síst að frumkvæði sparisjóðanna sjálfra. „Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á sparisjóðafyr- irkomulaginu í nágrannalöndum okkar og mun nefndin m.a. skoða þá þróun í sinni vinnu.“ Valgerður bendir á að sparisjóðirnir séu margir hverjir mjög sterkir og mikilvæg þjónustufyrirtæki, ekki síst við landsbyggð- ina. Hins vegar telur hún það áhyggjuefni að þjónusta bankastofnana við landsbyggðina hafi farið minnkandi á undanförnum árum. „Fyrirtæki á landsbyggðinni hafa ekki þann aðgang að lánastofnunum sem þau höfðu áð- ur og þetta segir mér fyrst og fremst það að mikilvægi Byggðastofnunar er enn meira nú heldur en nokkru sinni áður.“ En hefur þú í hyggju að stuðla að lagasetn- ingu sem miði að því að gera sparisjóðunum kleift að breyta sér í hlutafélög? „Ég tel æskilegt að sparisjóðirnir eigi þess kost að breyta rekstrarformi sínu í hlutafé- lag líkt og í dönsku lögunum. En ég bendi á að nefndin sem ég minntist á áðan, um fram- tíðarskipan sparisjóðanna, er enn að störfum og vil ég bíða niðurstöðu hennar." Legg áherslu á heiðarleika grasrótarhreyfínga Hvaða álit hefur þú á þeim grasrótarhreyf- ingum sem hafa krafist þess að Fljótsdals- virkjun fari í lögformlegt umhverfismat? „Mér finnst í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við að það skapist samtök sem hafi ákveðnar hugsjónir og berjist fyrir þeim. Ég legg hins vegar mikla áherslu á að þær vinni heiðar- lega og þegar ég tók við, ásamt fleiri ráð- herrum, undirskriftasöfnunum Umhverfis- vina svokallaðra um miðjan febrúar sl. lét ég þau orð falla að ég bæri ákveðna virðingu fyrir hugsjónastarfi og að ég vissi að þetta hefði verið unnið af heiðarleika. En eftir að forsvarsmenn Umhverfisvina fóru til Noregs í þeim tilgangi að fá norsk stjórnvöld til að stjórna íslandi var búið með heiðarleikann að mínu mati. Ég lýsi megn- ustu óánægju með framkomu þeirra sem að Noregsferðinni stóðu þar sem hér er um al- gjörlega íslenskt mál að ræða. íslendingar einir geta tekið um það ákvörðun hvort ákveðnar framkvæmdir fari í umhverfismat eða ekki. Þar að auki hafa þessar undirskriftasafn- anir verið misnotaðar og því ruglað saman hvort þeir sem þar hafa ritað nafn sitt séu að mótmæla því að Fljótsdalsvirkjun fari ekki í lögformlegt umhverfismat eða hvort fólk sé yfirhöfuð með eða á móti virkjunum sem slík- um en það er allt annað mál. Ég hef haldið því fram að meirihluti þjóð- arinnar væri hlynntur virkjunum og bendi á skoðanakannanir máli mínu til stuðnings sem sýna að 60% þjóðarinnar vilja að við nýtum vatnsorkuna til virkjana.“ Umhverfísráðherra felldi í lok febrúar úr gildi úrskurð skipulagsstjóra um mat á um- hverfisáhrifum 480 þúsund tonna álvers á Reyðarfirði. Það þýðir að nýtt mat þarf að fara fram á fyrsta áfanga þess, 120 þúsund tonna álveri. Setur þessi ákvörðun virkjun- aráformin í uppnám? „Hún kemur væntanlega til með að seinka ákvörðun um byggingu álvers um einhverja mánuði og sömuleiðis seinkun á byggingu Fljótsdalsvirkjunar. En í mínum huga er það ekkert stórmál og málið er alls ekki í upp-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.