Morgunblaðið - 05.03.2000, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Yalgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra bíða mörg verkefni
Æskilegt að sparisjóð-
irnir geti breytt sér
í hlutafélög
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-og viðskiptaráðherra
leggur mikla áherslu á að verklagsreglur fjármagnsm-
arkaðarins séu skýrar og skapi trúverðugleika á mark-
aðnum. I samtali við Örnu Schram segist hún enn-
fremur leggja mikla áherslu á ábyrgð stjórnenda
fyrirtækja í þessu sambandi.
VALGERÐUR Sverrisdóttir tók
eins og kunnugt er við ráðherra-
dómi í iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu í upphafi ársins en mála-
flokkar þessara ráðuneyta hafa
mikið verið til umfjöllunar að undanförnu.
Má þar nefna umræðuna um verklagsreglur
á verðbréfamarkaði og umræðuna um Fljóts-
dalsvirkjun og álver í Reyðarfirði. Auk þess
hefur verið rætt um hagræðingu á fjár-
magnsmarkaði um nokkurt skeið og að hana
mætti m.a. ná með samruna banka, til að
mynda Landsbanka íslands hf. og Búnaðar-
banka íslands hf. annars vegar og Lands-
banka íslands og íslandsbanka hf. hins veg-
ar. Valgerður leggur áherslu á að ef farið
verði út í sameiningu banka þurfi að vera al-
gjörlega ljóst að samkeppnin minnki ekki um
of á markaðnum. Á hinn bóginn hefur hún
ekki látið í ljós neinar skoðanir á því hvaða
sameining væri æskilegri en önnur. Þegar
rætt er um sparisjóðina kveður Valgerður að
á vegum viðskiptaráðuneytisins sé starfandi
nefnd sem sé ætlað að fjalla um framtíðar-
skipan sparisjóðanna og bíður hún niður-
stöðu hennar. Hún bendir þó á í þessu sam-
bandi að hún telji æskilegt að sparisjóðirnir
eigi þess kost að breyta rekstrarformi sínu í
hlutafélag líkt og í dönsku lögunum.
í samtali við Morgunblaðið kemur fram að
mikill hluti starfsorku nýs iðnaðar- og við-
skiptaráðherra hafi farið í verðbréfamarkað-
inn, ekki síst eftir að Fjármálaeftirlitið til-
kynnti að sex fjármálafyrirtæki hefðu í
janúarmánuði gerst brotleg við ákvæði verk-
lagsreglna sinna sem banna viðskipti starfs-
manna með óskráð hlutabréf. I kjölfarið
kynnti viðskiptaráðherra í ríkisstjórn nýtt
frumvarp til laga um breytingu á lögum um
verðbréfaviðskipti, eins og kunnugt er, þar
sem styrkari stoðum er m.a. skotið undir
verklagsreglur fyrirtækja í verðbréfaþjón-
ustu. Til að mynda eru verklagsreglur varð-
andi eigin viðskipti fyrirtækja, eigenda
þeirra, starfsmanna og maka gerðar ítar-
legri. Valgerður segir í samtali við Morgun-
blaðið mikilvægt að neytendur eða viðskipta-
vinir geti treyst þeirri starfsemi sem fram
fari á fjármagnsmarkaðnum og geti trúað því
að hagsmunir þeirra sitji í fyrirrúmi en ekki
hagsmunir einstakra starfsmanna markaðar-
ins. Þess vegna m.a. þurfi að aðskilja einstök
starfssvið verðbréfafyrirtækja eins og fyrr-
nefnt frumvarp gerir ráð fyrir en þar er einn-
ig gert ráð fyrir styrkari stöðu Fjármálaeft-
irlitsins og aukinni kröfu um nám
starfsmanna fyrirtækjanna í verðbréfamiðl-
un. „Þetta held ég að sé allt saman nauðsyn-
legt og eru að vissu leyti ákveðin viðbrögð við
því sem hefur verið að gerast á verðbréfa-
markaðnum á síðustu mánuðum en þar hafa
komið upp ýmis tilvik sem eru ámælisverð.
Ég taldi mér skylt að bregðast við þeim. Eft-
irlitsaðilinn á markaðnum er Fjáimálaeftir-
litið fyrst og fremst og ég lýsi yfir fullum
stuðningi við það sem eftirlitið hefur verið að
gera og trúi því að okkur muni takast á þess-
um vetri að koma málum þannig fyrir að við
getum kinnroðalaust horft framan í heim-
inn.“
Telurðu þörf á strangari verklagsreglum
fyrir fjármálamarkaðinn en nú er verið að
vinna að?
„Reglumar liggja ekki fyrir og erfitt að
svara þessu en fram hefur komið í fjölmiðlum
að Fjármálaeftirlitið er nú að fara yfir drög
að reglum sem samtök verðbréfafyrrtækja
hafa sent stofnuninni. Ég legg hins vegar
mikla áherslu á að þessar reglur séu skýrar
og skapi trúverðugleika á markaðnum og
legg mikla áherslu á ábyrgð stjórna fjár-
málafyrirtækja í þessu sambandi."
Aðspurð segir nýr ráðherra að neytenda-
mál séu þau mál sem hún vilji leggja mesta
áherslu á á kjörtímabilinu. „Ég hef hugsað
mér að sinna neytendamálunum meira en
hefur verið gert til þessa,“ segir hún og
bendir á að þau mál fái æ meiri vægi víða er-
lendis, meðal annars innan Evrópusam-
bandsins. „Þessi málaflokkur er spennandi
en hann tengist líka samkeppnismálum, sem
er málaflokkur sem við erum að þróa hér á
landi. Ég tel að vel hafi til tekist í þeim máL
um hingað til en betur má ef duga skal. I
undirbúningi er nýtt frumvarp frá viðskipta-
ráðuneytinu um breytingu á samkeppnislög-
um og er í því gert ráð fyrir að skerpt verði á
ýmsum ákvæðum og að teknar verði upp
bannreglur í meiri mæli en áður,“ segir hún
og bendir á að með auknu frelsi í viðskiptum
geti ríkið notað samkeppnislög sem tæki til
að verja hag neytenda. „Auðvitað hefur mað-
ur ákveðnar áhyggjur af fákeppni á mark-
aðnum sem er ef til vill að einhverju leyti til
komin vegna smæðar þjóðarinnar en það er
jafnframt ástæða til þess að við verðum að
vera meira á varðbergi í þessum málum en
aðrar þjóðir."
Þarf að hagræða á markaðnum
En snúum okkur að öðrum málum. Sam-
eining banka hefur lengi verið í umræðunni,
til að mynda sameining ríkisbankanna; Bún-
aðarbanka íslands hf. og Landsbanka ís-
lands hf. Hefur þú mótað einhverja stefnu í
þessum máluml
„Ég hef eins og forveri minn, Finnur Ing-
ólfsson, látið í ljós þá skoðun að það þurfi að
hagræða í bankakerfinu. Það þurfi að minnka
vaxtamun og draga úr kostnaði á fjár-
magnsmarkaði. Við teljum að samanburður-
inn við erlenda banka sé íslensku bönkunum
frekar í óhag og þess vegna er talað um hag-
ræðingu. Það er auðvitað hægt að ná hag-
ræðingu með aðgerðum innan hvers banka
og það hefur verið gert að þó nokkru leyti.
Hins vegar hefur verið í umræðunni að það
gæti verið æskilegt og hagkvæmt að sameina
banka. Ég tel að ef út í það yrði farið þá
þyrfti að minnsta kosti að vera algjörlega
ljóst að samkeppnin minnki ekki um of á
markaðnum.
Ég hef á hinn bóginn ekki látið í ljós neinar
skoðanir á því hvaða sameining væri æski-
legri en önnur. Sú sameining sem þú minnist
á hefur verið nefnd og eins hefur verið talað
um sameiningu Landsbanka íslands og Is-
landsbanka.
Sjálfsagt er verið að velta ýmsu fyrir sér á
markaðnum en mín orka hefur meira farið í
verðbréfamarkaðinn síðan ég kom hér í ráð-
uneytið þannig að það hefur ekkert að segja
þótt ekkert sé að gerast í þessum málum
akkúrat núna. Engin formleg vinna er í gangi
í ráðuneytinu um þessar hugmyndir enda
tíminn svo sem ekkert að hlaupa frá okkur í
þessum efnum.“
Valgerður ítrekar að hún útiloki enga kosti
í þessum sameiningarmálum og bendir á að
hún hafi verið að kynna sér þessi mál síðan
hún tók við lyklavöldum í ráðuneytinu og
haldið í þeim tilgangi fundi með forsvars-
mönnum hinna ýmsu fyrirtækja.
Telur þú að Búnaðarbankinn og Lands-
bankinn fái markaðsráðandi stöðu verði þeir
sameinaðir ?
„Það er eiginlega vandséð hvernig hægt er
að sameina bankana öðruvísi en svo að um
mjög stóra einingu verði að ræða. Þetta á
bæði við um sameiningu Landsbankans og
Búnaðarbanka annars vegar og Landsbank-
ans og íslandsbanka hins vegar.“ _
Telur þú að með sameiningu BI og LI geti
tapast störf á landsbyggðinnit
„Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að
hagræðing í bankakerfinu gengur m.a. út á
að fækka útibúum og við það að fækka úti-
búum eru ákveðnar líkur á því að einhver
störf verði lögð niður. En þó tel ég að það sé
hægt að vinna þannig að málinu að fækkun
starfa verði alveg í lágmarki. Þetta geti orðið
þannig að það verði meira þróun sem eigi sér
stað frekar en að það gerist allt í einu.“
Starfsemi banka og vátrygginga-
félaga fer vel saman
Nú á LÍ hlut í Vátryggingafélagi íslands
(VÍS). Kemur til greina að bankinn selji allan
þann hlut eða telurðu eðlilegt að banki eigi
hlut í vátryggingafélagp.
„Það er ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér
að banki og vátryggingafélag séu í samstarfi.
Að mörgu leyti getur starfsemi þessara aðila
farið mjög vel saman en ég býst við að ef af
sameiningu verði í bankakerfinu sé salan á
hlut Landsbankans í Vátryggingafélaginu
eitt af því sem verður skoðað í því sambandi."
Það er þá ekki verið að tala um það nú að
LÍ selji allan sinn hlut í VIS?
„Nei, enda ekki mál sem er á mínu borði.
Þetta er frekar spurning um ákvarðanatöku í
bankanum."
Afhverju telurðu að starfsemi banka og
vátryggingafélags fari vel samarí!
„Þetta eru þjónustufyrirtæki við almenn-
ing og að því leytinu til er ákveðin hagræðing
í því að sameina vátryggingafélög og banka-
stofnanir. Hins vegar álít ég að sú hagræðing
sem menn sáu fyrir sér þegar Landsbankinn
keypti þennan stóra hlut í VÍS hafi ekki
gengið eftir sem skyldi."
Komi til þess að eignarhluti LÍ í VTS verði
seldur hefur þú einhverjar hugmyndir um
líklega kaupendur?
„Ef það verður farið út í að sameina banka
er ekki verið að tala um að selja hlut í VÍS
heldur sameina banka. Það er svo seinni tíma
mál hvort að um sölu verði að ræða eða ekki.
Sú sala á hlut LÍ í VÍS sem fór fram fyrir
áramótin tókst mjög vel og eru ekki uppi
áform um að taka frekari skref í því að svo
stöddu.“
Hvað með að aðrir bankar kaupi hlut LI í
VÍS?
„Það er ekkert sem er á döfinni.“
Telur þú að Búnaðarbankinn geti orðið
undir í samkeppninni verði af sameiningu
Landsbankans og íslandsbanka?
„Ég vil ekki tjá mig um einstaka kosti en
ítreka það sem ég hef áður sagt, að samein-
ing fyrirtækja á þessum markaði má ekki
leiða til fákeppni á honum.“
Hefurðu velt fyrir þér mögulegu samstarfi
Búnaðarbankans við Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins eða önnur fyrirtæki og stofnan-
ir?
„Nei.“
Hvað með samstarf Búnaðarbankans við
íbúðalánasjóð?
„íbúðalánasjóður er algjörlega ný stofnun
og verður að fá að þróast miðað við lög og
reglur. Það yrði þá seinni tíma mál ef það
yrði farið í að sameina hann bönkum eða ein-
hverjum banka.“
Nefnd fer yfír framtíðar-
skipan sparisjóðanna
Valgerður greinir frá því að á vegum við-
skiptaráðuneytisins sé starfandi nefnd sem
hafi það verkefni að fara yfir framtíðarskipan
sparisjóðanna hér á landi. En sú nefnd, segir
Valgerður, var sett á laggirnar ekki síst að
frumkvæði sparisjóðanna sjálfra. „Ákveðnar
breytingar hafa verið gerðar á sparisjóðafyr-
irkomulaginu í nágrannalöndum okkar og
mun nefndin m.a. skoða þá þróun í sinni
vinnu.“ Valgerður bendir á að sparisjóðirnir
séu margir hverjir mjög sterkir og mikilvæg
þjónustufyrirtæki, ekki síst við landsbyggð-
ina. Hins vegar telur hún það áhyggjuefni að
þjónusta bankastofnana við landsbyggðina
hafi farið minnkandi á undanförnum árum.
„Fyrirtæki á landsbyggðinni hafa ekki þann
aðgang að lánastofnunum sem þau höfðu áð-
ur og þetta segir mér fyrst og fremst það að
mikilvægi Byggðastofnunar er enn meira nú
heldur en nokkru sinni áður.“
En hefur þú í hyggju að stuðla að lagasetn-
ingu sem miði að því að gera sparisjóðunum
kleift að breyta sér í hlutafélög?
„Ég tel æskilegt að sparisjóðirnir eigi þess
kost að breyta rekstrarformi sínu í hlutafé-
lag líkt og í dönsku lögunum. En ég bendi á
að nefndin sem ég minntist á áðan, um fram-
tíðarskipan sparisjóðanna, er enn að störfum
og vil ég bíða niðurstöðu hennar."
Legg áherslu á heiðarleika
grasrótarhreyfínga
Hvaða álit hefur þú á þeim grasrótarhreyf-
ingum sem hafa krafist þess að Fljótsdals-
virkjun fari í lögformlegt umhverfismat?
„Mér finnst í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við
að það skapist samtök sem hafi ákveðnar
hugsjónir og berjist fyrir þeim. Ég legg hins
vegar mikla áherslu á að þær vinni heiðar-
lega og þegar ég tók við, ásamt fleiri ráð-
herrum, undirskriftasöfnunum Umhverfis-
vina svokallaðra um miðjan febrúar sl. lét ég
þau orð falla að ég bæri ákveðna virðingu
fyrir hugsjónastarfi og að ég vissi að þetta
hefði verið unnið af heiðarleika.
En eftir að forsvarsmenn Umhverfisvina
fóru til Noregs í þeim tilgangi að fá norsk
stjórnvöld til að stjórna íslandi var búið með
heiðarleikann að mínu mati. Ég lýsi megn-
ustu óánægju með framkomu þeirra sem að
Noregsferðinni stóðu þar sem hér er um al-
gjörlega íslenskt mál að ræða. íslendingar
einir geta tekið um það ákvörðun hvort
ákveðnar framkvæmdir fari í umhverfismat
eða ekki.
Þar að auki hafa þessar undirskriftasafn-
anir verið misnotaðar og því ruglað saman
hvort þeir sem þar hafa ritað nafn sitt séu að
mótmæla því að Fljótsdalsvirkjun fari ekki í
lögformlegt umhverfismat eða hvort fólk sé
yfirhöfuð með eða á móti virkjunum sem slík-
um en það er allt annað mál.
Ég hef haldið því fram að meirihluti þjóð-
arinnar væri hlynntur virkjunum og bendi á
skoðanakannanir máli mínu til stuðnings sem
sýna að 60% þjóðarinnar vilja að við nýtum
vatnsorkuna til virkjana.“
Umhverfísráðherra felldi í lok febrúar úr
gildi úrskurð skipulagsstjóra um mat á um-
hverfisáhrifum 480 þúsund tonna álvers á
Reyðarfirði. Það þýðir að nýtt mat þarf að
fara fram á fyrsta áfanga þess, 120 þúsund
tonna álveri. Setur þessi ákvörðun virkjun-
aráformin í uppnám?
„Hún kemur væntanlega til með að seinka
ákvörðun um byggingu álvers um einhverja
mánuði og sömuleiðis seinkun á byggingu
Fljótsdalsvirkjunar. En í mínum huga er það
ekkert stórmál og málið er alls ekki í upp-