Morgunblaðið - 05.03.2000, Qupperneq 28
.28 SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
vashhugi
A L H L I Ð A
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
( Fjárhagsbókhald
( Sölukerfi
(Viðskiptamanna
kerfi
i Birgðakerfi
( Tilboðskerfi
I Verkefna- og
pantanakerfi
( Launakerfi
I Tollakerfi
Gieraugnasalan
Laugavegi 65.
Faxafeni 8
alla daga 1 2-19
I f-
s §
VwHiP
'WXísöF*
Silfur er litur auranna sem
nóg er af í tækniheiminum
um þessar mundir.
Tölvuumhverfið þarf ekki að vera gerilsneytt og leiðinlegt.
Þessi víraði drengur gekk um með
PC-tölvu, sem tengd var við lítinn
skjá fyrir öðru auganu, og til að
missa ekki af neinu i öllum erlinum
var hann einnig tengdur síma.
Það þurfti að taka fram sérstaklega að þetta væru PC-
tölvur, svo litlar og handhægar eru þær orðnar.
Ekki var óalgengt að efnt væri
til happdrættis af ýmsu tagi, til
að laða að gesti, eins og á bás
tölvublaðsins Chip.
vél og einnig er hægt að tengja þær
lyklaborði.
Lófatölvur hafa þegar haslað sér
völl, öfugt við skjátölvumar, og voru
kynntar af mörgum framleiðendum
á CeBIT. Það sem virðist ætla að
verða dragbítur á að þær nái sömu
markaðshlutdeild og farsímar er
einfaldlega að enn er ekki mögulegt
að nota þær í venjuleg símtöl. Ann-
ars eru útgáfumar jafnmargar og
ævintýrin í 1001 nótt. Nýjustu lófa-
tölvurnar frá Handspring, Visor,
em fullkomnari hinum íyrri, með
öflugri batteríum og geta tengst
Netinu í gegnum Springboard. Not-
endur geta tengt lófatölvuna við
Springboard (modules) á borð við
MP3-spilara, símboða, módem,
tölvuleiki og jafnvel GPS-staðsetn-
ingartæki um gervihnött.
Með heiminn í vasanum
Margir muna eflaust eftir því þeg-
ar James Bond og Dr. Christmas
Jones, hinn íðilfagri kjarnorkueðlis-
fræðingur voru fost neðanjarðar og
kjarnorkusprenging var yfirvofandi.
Þá notuðu þau HP Jomada lófatölvu
til að bjarga sér. Það er iýsandi fyrir
markaðssetningu Microsoft, að
reyna að koma þeim skilaboðum
áleiðis, að það megi reiða sig á lófa-
tölvur fyrirtækisins, en hingað til
hefur stýrikerfið ekki þótt nógu
áreiðanlegt. Nýja Jomada lófatöiv-
an gæti breytt ýmsu um það. Á með-
al þess sem hún hefur upp á að bjóða
er tölvupóstur, upplýsingadagbók
og innbyggður MP3-spilari í stereó.
Hún vegur aðeins 250 grömm og
hentar vel á ferðalögum.
Nýja tölvan frá Psion, Psion
Revo, er léttari, aðeins 200 grömm,
Sumir segja að Netið sé af hinu illa og þessir árar virðast skjóta stoðum
undir þá kenningu.
og passar í brjóstvasa. Engu að síð-
ur er hún með lyklaborði. Hægt er
að komast á Netið, opna tölvupóst
og SMS, og boðið er upp á nýjung
sem felst í því að hægt er að sam-
hæfa símanúmerabókina við þá sem
er í nýjustu farsímum helstu síma-
fyrirtækja. Svona fer tæknin hring
eftir hring á CeBIT. Það sem öllu
skiptir er að samhæfa þau tæki sem
eru á markaðnum og opna þeim leið
inn á gáttir Netsins. Þá um leið er
heimurinn farinn að rúmast í vasan-
um.
Stuðst við lithimnu augans
Þegar upplýsingar verða aðgengi-
legar einkum á Netinu verður yfir-
leitt til þörf fyrir vernd hinna sömu
upplýsinga fyrir öðrum. Snjallkort
eru hugsuð sem svar við þessu.
Þetta eru plastkort sem líta út eins
og krítarkort. Þau eru með inn-
byggðan minniskubb sem virkar
eins og tölva og þar er hægt að
geyma upplýsingar og forrit. Nú
þegar er rúmlega milljarður Snjall-
korta í notkun í heiminum og eru
sérfræðingar á því að eftirspurn eigi
eftir að aukast til muna enda sé m.a.
hægt að nota þau til að geyma sér-
fræðiupplýsingar í heilbrigðisgeir-
anum og sem aðgangskort í lestir.
Nýlega tilkynnti ORGA Card
Systems að það hefði náð samningi
við í Bretlandi sem heimilaði við-
skiptavinum Midland Bank að nota
farsíma í bankaviðskiptum sínum.
Með snjallkorti í farsíma frá Motor-
ola geta viðskiptavinir bankans
skoðað stöðuna á reikningum sínum,
millifært, borgað reikninga og keypt
bensín á næstu bensínstöð. Það seg-
ir sig sjálft að það þarf að gæta auk-
ins öryggis, ef ske kynni að síman-
um yrði stolið. Kynnt er kerfi á
CeBIT sem upprunalega var þróað
af hernum og felur í sér að not-
andinn er greindur eftir sérkennum,
hvort sem það eru augu, rödd,
fingraför, andlitsdrættir eða líkams-
hreyfingar. Þar sem ekki er hægt að
falsa líkama notandans er engin þörf
á lykilorðum eða aðgangskortum.
Mörg fyrirtæki nýta sér þetta
kerfi. SAGEM frá Frakklandi hefur
á boðstólum farsíma með fingrafara-
skanna. Þá kemur upp úr dúrnum að
verið er að gera tilraunir með að
styðjast við lithimnu augans í
Evrópu og Bandaríkjunum. Þá er
tekin mynd af lithimnunni þegar nýr
viðskiptavinur bætist við. Eftir það
þarf hann aldrei að segja til nafns
eða sýna skilríki þegar hann verslar,
aðeins láta skanna í sér lithimnuna,
sem er einstæðasta líffæri manns-
líkamans. Öfugt við rödd og fingra-
för breytist lithimnan ekki eftir því
sem aldurinn færist yfir og öryggið
er augljóst.
Með sjónvarp í gleraugunum
Það getur verið gott að hafa
margmiðlunargleraugu með sér á
ferðalögum ásamt þráðlausu mót-
tökutæki. Þegar manni fer að leiðast
sessunauturinn er ráð að setja upp
gleraugun, sem eru á við sólgler-
augu að stærð, og horfa á útsending-
ar úr sjónvarpinu eða myndban-
dstækinu heima í stofu. í nýrri gerð
gleraugnanna Eye-Tec FMD-700
frá Olympus sem kynnt voru á
CeBIT er einnig hægt að tengja þau
við PC-tölvuna eða önnur leikjatæki
og spila tölvuleiki. Þá er hægt að
skoða sýnishorn af PC Eye-Trek
Margmiðlunargleraugu bjóða
upp á ýmsa möguleika, m.a. í
flugvélum.
gleraugunum á sýningunni, sem
ekki eru komin á markað, en í þeim
er hægt að fást við ritvinnslu og
vafra um Netið.
Ekki er mikið að gerast á sjón-
varpsmarkaðnum enn sem komið er,
miðað við aðra miðla, og í raun beðið
eftir nýrri tækni. Þunnir skjáir hafa
þó verið að hasla sér völl, en eru enn
of dýrir fyrir almennan markað.
Framleiðendur hafa heitið úrbótum
á því á næstu árum. Hvað varðar
gagnvirkan gagnaflutning úr og í
sjónvarp var kynnt tækni á CeBIT
sem gerir það mögulegt, en hraðinn
er enn sem komið er ekki meiri en í
seinvirku mótaldi. Vel má ímynda
sér að slík sjónvörp gætu haslað sér
völl ef þau yrðu á aðgengilegu verði,
enda gerði það áhorfendum heima í
stofu kleift að taka þátt í sjónvarps-
þáttum og jafnvel stunda viðskipti á
Netinu í tengslum við dagskrána.
Skurðaðgerð á milli heimsálfa
Ótal fleiri uppfinningar mann-
skepnunnar eru kynntar á CeBIT
eins og þrívíddarprentari sem getur
prentað prufuafsteypur úr plasti
eftir teikningum, t.d. af kappakst-
ursbílum, og vonir eru bundnar við
að geti orðið í almannaeigu innan tíu
ára og prentað út af Netinu. Þá má
nefna tækni sem gerir skurðlækni
kleift að framkvæma flóknar skurð-
aðgerð annars staðar á hnettinum.
Með handahreyfingum sínum stýrir
hann handahreyfingum vélmennis á
skurðstofunni sjálfri.
En blaðamaður er bara mennsk-
ur. Ekki verður hjá því komist að
hann verði svolítið þreyttur eftir að
hafa lagt fleiri kíiómetra að baki í
lokuðum skóm og slitnum frakka,
með troðfulla poka af fréttatilkynn-
ingum, myndum og öðrum varningi,
stautandi við þýskuna og grúskandi
óupplýstur í upplýsingatækni fram-
tíðarinnar. Hann veit að hann er
ekki beinlínis broddborgari í útópíu
Bill Gates. En þetta er veröld sem
heillar. Og hvað sem öðru líður - nú
bíður maður bara eftir að leikföngin
komi í búðirnar.