Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 31
Þessar jeppabreyting-
ar voru greinilega að
færast í aukana og ég
naut þess að þekkja
marga í bíladellunni.
Við fengum því fljót-
lega næg verkefni við
að breyta jeppum fyrir
aðra, einnig að smíða
hluti.
arla, fólk sem vildi komast á jökla
og Jón segir að í upphafi hafi það
að mestu verið raunin. Pá var mik-
ið að gera og kannski ekki síst á
kvöldin og um helgar, en þannig
endurspeglaðist að Jón og félagar
hans voru að þjónusta áhugamál
fólks. Það leitaði til hans þegar það
átti sjálft frí. En hann segir að
fljótlega hafi það breyst og það
verulega. „í dag eiga fyrirtæki og
stofnanir 75% af veltunni hjá okk-
ur. Stórir viðskiptavinir í gegnum
tíðina hafa verið t.d. Rarik,
Landsvirkjun, Síminn, Lögreglan,
sjúkrabílar bílar björgunarsveita
og skólabílar að ég nefni ekki
marga aðila sem eru í ferðaþjón-
ustu.“
Þú nefndir veltuna, hver er velt-
an hjá svona fyrirtæki og hvað er
þetta umfangsmikið? Hefur þú t.d.
tölu yfír þá híla sem þú hefur
breytt eða hvað þú breytir mörgum
á ári?
„Veltan er svona innanhússmál,
við getum sagt að hún hafi aukist
seinni árin. Varðandi umfangið þá
nefndi ég áðan að ,ég hefði breytt
nærri 300 Econoline-bílum, en
lengra nær minni mitt og yfirsýn
ekki. Eg hef ekki tölu yfir þetta.
Umfangið er það, að ég byrjaði
einn og fékk fljótlega félaga, bæði
vegna mikilla anna og ekki síst
vegna þess að ég axlarbrotnaði í
vélsleðaslysi um árið og gat ekki
sinnt verkefnunum sjálfur. Eg réð
þá til mín pípulagningarmann sem
ég útskrifaði í smíðinni. Hann er nú
hættur hjá mér og starfar sjálf-
stætt og er mjög fær, en starfs-
mönnum fjölgaði jafnt og þétt
næstu árin. Síðustu árin hafa starf-
að hjá mér að jafnaði 10-11 manns.
Þeir verða ekki fleiri í bili, því
plássið okkar stendur ekki undir
fleiri starfsmönnum þótt verkefna-
staðan gæfi í sjálfu sér tilefni til
þess að fjölga. Við erum fyrir löngu
búnir að sprengja utan af okkur
þetta húsnæði hér í Vagnhöfðan-
um.“
Er þá stutt í að þið fíytjið í
stærra húsnæði einhvers staðar?
„Við getum orðað það þannig að
við höfum gert okkur ljósa grein
fyrir því að þörfin á flutningum sé
fyrir hendi og það má vissulega
fara að líta í kring um sig. Hins
vegar er ekkert farið í gang og
málið ekki komið á það stig að
neinar ákvarðanir liggi fyrir. Ég
held að það sé t.d. mikilvægt að
bíða átekta og sjá hvernig ástandið
verður í þjóðfélaginu á næstu mis-
serum, t.d. með tilliti til kjarasamn-
inga og hvort friður verður á vinn-
umarkaðinum eða ekki.
Annars er það merkilegt hvað
fer í gegnum hugann þegar maður
stendur frammi fyrir svona vanga-
veltum, að stækka við sig eða ekki.
Ég geri mér grein fyrir því að við
eigum fárra kosta völ í stöðunni, en
þessi staða rifjar upp hvernig við
félagarnir litum á þessi mál á árum
áður. Þegar við vorum t.d. tveir eða
þrír í litlum skúr í Súðarvoginum
höfðum við það bara helv. gott. Þá
var svipuð staða komin upp, verk-
efnin virtust óendanleg, en við
spurðum okkur, hvað viljum við
blása okkur mikið út? Við létum
það eftir okkur að stækka verulega
og útkoman er sú að það er svo
mikið að gera að það er með herkj-
um að maður kemst í fárra daga
frí. Það var lengi svo slæmt að ég
gat ekkert farið. Ég er t.d. með
mikla veiðidellu og komst aldrei
frá. Þess vegna var það mikill feng-
ur að fá Gunnar bróður minn til
starfa í fyrirtækið. Nú kemst mað-
ur frá af og til. Hins vegar asnaðist
ég til að smita Gunnar af veiðidell-
Það getur kostað frá 100 þúsund upp í 3 milljónir að fá jeppa breytt.
unni, fór með hann í Víðidalsá þar
sem hann veiddi sinn Maríulax, og
síðan er hann orðinn verri af dell-
unni en ég. En við stundum bara
veiðiskapinn, gallinn er bara sá að
við getum ekki gert það saman.“
Bjart framundan
Jón Hólm segir að bjart sé fram-
undan hjá fyrirtæki þeirra bræðra,
enda sé ekkert lát á bílainnflutn-
ingi landsmanna. Verkefni séu næg
og auk þess sé mikil aukning í sölu
og smíði á varahlutum. „Það er
aldrei dauð stund á renniverkstæð-
inu og það hefur einnig færst í vöxt
að við smíðum í vinnuvélar. Þar
fyrir utan erum við hér að vinna
við það sem við höfum gaman af og
höfum orðið mikla þekkingu og
reynslu á okkar sviði. Við þurfum
einungis að hafa víðara til veggja,
þá er ekkert lengur til að kvarta út
af.“
Spánarsól á spottprís
Madrid
a i • -ii og áfram til
Alicante, pilbao,
Valencia og Malaga
fyrir aðeins
32.500,
/
I tilefni af nýgerðum samstarfssamningi Flugleiða og spænska flugfélagsins
Iberia bjóðum við vikulegar ferðir til Madrid fyrir aðeins 32.500 kr.*
báðar leiðir. Þaðan gefst fólki kostur á að fljúga til hinna vinsælu
sólarstaða Alicante, Malaga, Bilbao ogValencia á Suðaustur-Spáni en
heildarverðið er óbreytt, aðeins 32.500 kr.* báðar leiðir með viðkomu
í Madrid. Flogið er beint með Flugleiðum til Madrid og þaðan með
Iberia til Alicante, Malaga, Bilbao ogValencia.
Ferðatímabil er frá 12. júní til 28. ágúst.
Lágmarksdvöl er 7 dagar; hámarksdvöl er 11 vikur.
Börn, 2ja—11 ára, fa 25% afslátt.
Börgn, yngri en 2ja ára, greiða 10% af fargjaldi.
Takmarkað sætaframboð
Hafíð samband við söluskrifstofur okkar
eða pantið strax á vefhum: www.icelandair.is
* Innifalið: Jlug búðar leiðir
ogflugvallarskattar.
Flugleiðir auglýsa verðið,
sem neytandinn greiðir,
verð með Jlugvallarsköttum.
lCHLANDAlR