Morgunblaðið - 05.03.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARS 2000 51
ÍDAG
BRIDS
Unisjón Guðmunilur
I’áll Ariiarson
ÞRAUT dagsins er á opnu
borði. Suður spilar fimm
tígla eftir að austur hefur
sagt hjarta:
Norður
* KD53
» -
* D63
* AG10973
Vestur Au^tur
* G10972 * A86
y K3 y ÁD10964
♦ 1083 ♦ 4
+ KD4 * 852
Suður
* 4
» Q8752
* AKG972
* 6
Útspii vesturs er
hjartakóngur og spurn-
ingin er: Getur suður
fengið ellefu slagi með
bestu vörn?
Frumgreining á spilinu
leiðir í ljós að sagnhafi
getur tekið níu slagi á
tromp með því að stinga
þrjú hjörtu í borði. Lauf-
ásinn er tíundi slagurinn,
það er ekki víst að slagur
fáist á spaða. Ef byrjað er
á því að spila spaða mun
austur drepa og trompa
út. Og þá fækkar tromp-
slögunum um einn.
En er hægt að nýta
laufið á einhvern hátt?
Vissulega er hægt að
fríspila litinn með því að
trompa tvisvar heima, en
hvernig á að komast inn í
borð til að njóta uppsker-
unnar?
Lausn: Blindur er ekki
alveg innkomulaus, þegar
grannt er skoðað. Sagn-
hafi trompar fyrsta hjart-
að og spilar spaðakóng.
Austur drepur og trompar
út (annars fást 11 slagir
með víxltrompun). Nú
tekur sagnhafi laufás og
trompar lauf með sjöu.
Hann trompar hjarta og
annað lauf með níu. Tekur
síðan eitt hátromp og
dregur fram tromptvist-
inn, sem hann hefur gætt
þess að geyma. Vestur
neyðist til að taka slaginn
og á ekkert nema spaða til
að spila. Spaðadrottningin
reynist því vera innkoman
á frílaufin.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103 Rvík
Arnaö heilla
GULLBRÚÐKAUP og 75 ÁRA afmæli. í dag, sunnu-
daginn 5. mars, eiga gullbrúðkaup hjónin Guðbjörg
Björgvinsdóttir og Sigurvaldi Guðmundsson. Einnig á
Sigurvaldi 75 ára afmæli í dag. Þau eru ásamt fjölskyldu
sinni stödd á hótel Radisson SAS Falconer í Kaup-
mannahöfn.
SKÁK
Umsjón llelgi Áss
Grétarsson
HEIMURINN OG ÉG
Þess minnist ég, að mér og þessum heimi
kom misjafnlega saman fyrr á dögum.
Og beggja mál var blandið seyrnum keimi,
þvi báðir vissu margt af annars högum.
Svo henti lítið atvik einu sinni,
sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti:
að ljóshært barn, sem lék í návist minni,
var leitt á brott með vofveiflegum hætti.
Það hafði veikum veitt mér blessun sína
og von, sem gerði fátækt mína ríka.
Og þetta barn, sem átti ástúð mína,
var einnig heimsins barn - og von hans líka.
Steinn Steinarr.
A ÁRA afmæli. Á
UU morgun, mánudag-
inn 6. mars, verður sextug-
ur Haukur Hjaltason
framkvæmdastjóri, Stiga-
hlíð 60, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Þórdís Jóns-
dóttir, fjármúlastjóri. Þau
hjónin verða að heiman á
afmælisdaginn. Hinn 31.
mars bjóða þau ættingj-
um, vinum og samferða-
mönnum til gleðskapar í
veislusal Ferðafélags ís-
lands, Mörkinni 6, Reykja-
vík. Þeim sem vildu gleðja
afmælisbarnið með blóm-
um eða gjöfum veittu
mesta gleði með framlagi
til Barnaspítala Hringsins
Rann.sjóður Nr. 517- 14-
603333 kt. 590793-2059.
Hvftur á leik.
ÞESSI staða kom upp á
milli D. Zazzi (2095) frá
Frakklandi og Lothar
Schnitzspan (2301) frá
Þýskalandi á opna alþjóð-
lega mótinu í Cappelle la
Grande í Frakklandi.
20.Rc6+! bxc6 21.Dxa6 Re7
21...cxb5 22.Dxb5+ Ka8
23.Hc6 er einnig unnið á
hvítt. 22.Ha3! cxb5 23.Db6+
og svartur gafst upp enda er
hann óverjandi mát í tveim-
ur leikjum.
UOÐABROT
ORÐABÓKIN
Að bregða í brún
Þetta orðatiltæki er al-
kunna í máli okkar þegar
frá fornöld, svo sem lesa
má um í Mergi málsins
eftir Jón G. Friðjónsson
prófessor. Einhverjum
bregður í brún merkir,
að e-m hnykkir við, e-r
hrekkur við óvænt atvik.
Honum brá í brún, þegar
hann sá ákæruna. -
Henni brá í brún, þegar
hún fann ekki lyklana.
Elztu dæmi frá síðari
öldum eru frá seinni
hluta 17. aldar: Mér
bregður í brún; það brá
mörgum í brún. Sagn-
orðið er ópersónulegt og
fylgir því ævinlega þágu-
fall, svo sem tilgreind
dæmi sýna. Þess vegna
var ekki undarlegt, þótt
mér brygði í brún og það
meira en lítið, þegar ég
las eftirfarandi máls-
grein á Netinu 17. janúar
sl.: „Margan brá í brún
þegar AOL hafði hest-
húsað Time Warner.“ Já,
þannig var ritað í frá-
sögn um samruna
tveggja risafyrirtækja.
Ég á ekki von á öðru en
þeim öðrum, sem lásu
þessa frétt, hafi einnig
brugðið í brún. Góður
málfræðingur, sem ég
sagði frá þessu orðalagi,
gat helzt látið sér detta í
hug, að hér kæmi fram
fælni eða hræðsla þess,
sem ritaði, við svonefnda
þágufallssýki, sbr. þegar
sagt er: honum langar,
honum vantar í stað hins
upprunalega og rétta:
hann langar, hann vantar.
Ekki er þessi skýring
óhugsanleg, en fyrir
bragðið hefur ritarinn
fallið jafnvel í enn verri
pytt en þágufallssýkin er.
- J.A.J
Hef opnað stofu að nýju!
STJÖItNUSPA
eftir Frances llrakc
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hvergi hræddur við
að segja álit þitt á mönnum
og málefnum. Því er oft fal-
ast eftir rödd þinni.
Hrútur
(21.mars-19. apríl)
Það er líklegt að það beri
árangur að eiga orðaskipti
við þá, sem starfa að svipuð-
um málum og þú. Mundu
bara að hlusta jafnt og þú tal-
ar.
Ráðgjöf fyrir alkóhólista í bata, aðstandendur
og uppkomin börn.
Ásta Kristrún Ólafsdóttir BA CCDP.
Síðumúla 33,
Viðtalspantanir í sími 588 9929.
i
Hef opnað lækningastofu:
Lækning, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Tímapantanir eru í síma 533 3131
mánudaga - föstudaga frá kl. 9.00-17.00
Hjörtur G. Gíslason,
skurðlæknir Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Sérgrein: Almennar skurðlækningar og meltingarfæraskurðlækningar
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að horfa fram hjá
þeim, sem sækjast eftir at-
hygli þinni til þess eins að
vekja athygli á sjálfum sér.
Þú losnar þá fljótlega við þá.
Tvíburar .
(21. maí-20. júní) “AA
Betur sjá augu en auga svo
þú skalt umfram allt koma á
fundi til að leggja á ráðin.
Eftir á verður miklu auðveld-
ara fyrir þig að hefjast handa.
Krabbi ^
(21. júní-22. júlí)
Það getur verið erfitt að
hemja tilfinningarnar, þegar
rödd hjartans hljómar sterkt.
Leyfðu henni að njóta sín, en
hafðu höfuðið með í ráðum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Það er margt sem vaninn
bindur við okkur. Seztu nú
niður og farðu í gegn um mál-
in. Breyttu svo því, sem þig
langar til þess að breyta. Það
bjargar þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) vOSL
Það eru alls konar hlutir sem
skjóta upp kollinum og setja
allar áætlanir úr skorðum.
Reyndu að taka þessu með
jafnaðargeði og haltu þínu
striki.
Vog
(23. sept. - 22. október) 4U A
Láttu ekki vini og vanda-
menn sitja á hakanum, þótt
margt spennandi sé að ger-
ast. Þegar allt kemur til alls
eru það þeir sem eru þinn
bakhjarl.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ástandið er nokkuð eldfimt
svo þú skalt umfram allt var-
ast öll upphlaup. Reyndu að
sigla á milli skers og báru
meðan óveðrið gengur yfir.
Hef opnað lækn ingastofu:
Lækning, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Tímapantanir eru í síma 533 3131
mánudaga-föstudaga frá kl. 9.00-17.00
Georg Steinþórsson,
æðaskurðlæknir Sjúkrahúsi Reykjavikur.
Sérgrein: Æðaskurðlækningar og almennar skurðlækningar
Námskeið
Sjálístielddng - Sjáltsönyggi
Sálfræðistöðin
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
_______Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Innritun og nánari upplýsingar í símum
Sálfræðistöðvarinnar 562 3075 og 552 1110 frá kl. 11-12
Mánudagsspjall
Á morgun
í hverfinu
Grafarvogi
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) #0
Leyfðu sköpunargáfu þinni
að fá útrás og vertu hvergi
hræddur við að sýna þínum
nánustu afraksturinn. Haltu
svo upp á hlutina.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) MF
Reyndu að spá eitthvað fram
í tímann. Þótt það sé erfitt, þá
kann reynslan oft að hjálpa.
En auðvitað er það nútíminn,
sem við glímum við.
Vatnsberi f .
(20. jan.r-18. febr.)
Þú þarft að koma skoðunum
þínum á framfæri við ijöld-
ann. Til þess eru ágætar leið-
ir í fjölmiðlum og þú hefur
meira fram að færa en marg-
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) >%■*•
Ekki láta sjálfsvorkunnina ná
tökum á þér. Hristu af þér
slenið, brettu upp ermamar
og gakktu djarfur á vit nýrra
ævintýra. Þau bíða handan
hornsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindafegra staðreynda.
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða með viðtalstíma í hverfum borgarinnar
næstu mánudaga.
Á morgun verða
Katrin Fjeldsted alþingismaður og
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
í Grafarvogi, Hverafold 1-3,
kl. 17.15-19.15.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga
til að ræða málin og skiptast á skoðunum við
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og láttu
þínar skoðanir heyrast.
Næsti mánudagsspjallfundur:
Mánudagur 13. mars
kl. 17.15-19.15 í Breiðholti, Álfabakka 14a.
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna I Reykjavik
www.xd.is
sími 515 1700
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN