Morgunblaðið - 05.03.2000, Síða 64
heim að dyrum
i PÓSTURINN
VlÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
Á HEIMSMÆUKVARÐA
SAP
r
<Q>
NÝHERJI
S: 569 7700
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RImJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTII
SUNNUDAGUR 5. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
1,8 milljónir farþega fóru um mu
stærstu flugvelli Islands 1999
5.000 far-
þegar á dag
SAMTALS fóru 1.822.494 farþegar
um níu stærstu áaetlunarflugvelli ís-
lands árið 1999 og er skiptingin
þannig, að tæplega 480 þúsund flugu
innanlands, en rúmlega 1,3 milljónir
í millilandaflugi, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Flugmála-
stjórn. Þetta svarar til þess, að 1.371
farþegi hafi flogið innanlands og
3.681 í millilandaflugi dag hvem allt
árið um kring að meðaltali, eða rúm-
y lega fimm þúsund manns.
A síðasta ári fjölgaði farþegum í
innanlandsflugi um þrjá af hundraði
frá 1998 og um sjö af hundraði í milli-
landaflugi.
Fjölgunin í innanlandsflugi nemur
liðlega 15.500 farþegum, sem jafn-
gildir 311 ferðum með fullsetnum 50
sæta flugvélum. 1998 fjölgaði innan-
landsfarþegum um 21.000.
Á Homafirði varð aukningin mest
í farþegaflugi, 12% eða 2.100 farþeg-
ar. Á Egilsstöðum var aukningin 9%
eða 6.000 farþegar, á Akureyri 7%
o«»jða 13.200 farþegar, í Vestmanna-
eyjum 6% eða 5.300 farþegar og á
Sauðárkróki og í Reykjavík 3%, eða
400 farþegar á fyrri staðnum og
12.300 á þeim síðari. Á Húsavík
fækkaði farþegum hins vegar um
28% eða 2.100 farþega og um 4% á
ísafirði eða 2.100 farþega. Hefur far-
þegum í innanlandsflugi fjölgað jafnt
og þétt í sex ár, segir í tilkynning-
unni.
7% aukning á
Keflavíkurflugvelli
Farþegum í millilandaflugi fjölg-
aði um 92.000 á þeim fjóram flugvöll-
um á íslandi sem teljast alþjóðlegir.
Það er sambærilegt við 614 flugferð-
ir með fullsetnum 150 sæta þotum.
Aukningin var 7% á Keflavíkur-
flugvelli en rúmlega 1,3 milljónir far-
þega fóra um hann á árinu. Alls fóra
tæplega 30.000 farþegar um hina
flugvellina þrjá. 22.300 fóru um
Reykjavíkurflugvöll og er það 1%
aukning. Aukning var 71% á Egils-
stöðum og fóra tæplega þúsund
millilandafarþegar um flugvöllinn
þar. Mest fjölgaði farþegum hins
vegar á flugvellinum á Akureyri. Um
þann flugvöll fóra rúmlega 5.000
millilandafarþegar, sem er 127%
aukning milli ára.
Áningarfarþegar á Keflavíkur-
flugvelli vora 358.215 í fyrra eða 27%
af heildarfarþegafjölda. Það er
fækkun um 9.000 farþega milli ára
eða rúmlega 2%. Flestir áningarfar-
þegar fóra um Keflavíkurflugvöll
1971, eða um 375.000, að því er segir
í tilkynningu Flugmálastjómar.
Morgunblaðið/Ásdís
Snjóskaflar og ófærð engin hindrun
ÞAÐ er hinn mesti óþarfi að láta
snjóskafla og ófærð sfðustu vikna
hindra sig í að komast leiðar sinnar
og verður að teljast aðdáunarvert
hvemig sumir halda sínu striki
hvað sem á dynur.
Þetta farartæki er örugglega
ekki verra en hvað annað á götum
Reykjavíkur nú, en undanfamar
vikur hafa þær margar hverjar
frekar minnt á gamla árfarvegi en
borgarstræti. Hjólið dugði að
minnsta kosti þessari konu sem
ferðast af miklum dugnaði, hlaðin
pinklum, eftir Miklubrautinni.
Landspítali, há-
skólasjúkrahús
Stöður fimm
yfirmanna
v auglýstar
STÖÐUR fimm yfirmanna Land-
spítala, háskólasjúkrahúss era í dag
auglýstar lausar til umsóknar í
Morgunblaðinu og er gert ráð fyrir
að þeir, sem verði ráðnir, hefji störf
1. maí. Auglýstar era stöður fram-
kvæmdastjóra fjárreiðna og upplýs-
inga, framkvæmdastjóra tækni og
eigna, framkvæmdastjóra kennslu
og fræða, framkvæmdastjóra lækn-
inga/lækningaforstjóra og fram-
kvæmdastjóra hjúkranar/hjúkran-
arforstjóra.
Landspítali, háskólasjúkrahús
verður til við sameiningu Ríkisspít-
^ ala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þar
starfa um 5.000 manns, rúm era tæp-
lega 1.500, að dagrúmum meðtöld-
um, auk slysa-, bráðamóttöku- og
göngudeilda. Umsóknarfrestur er til
27. mars.
Þú smellir og seðillinn er greiddur
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Hrogna-
vinnsla hafin
VINNSLA á loðnuhrognum er
hafin hjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar hf. Guðrún Þorkelsdóttir
kom inn til Eskifjarðar í gær-
morgun með fullfermi. Hór er
Orri Jóhannsson stýrimaður við
lestarlúguna barmafulla af loðnu.
Magnús Bjarnason framkvæmda-
stjóri segir stefnt á að framleiða
um 200 til 300 tonn af hrognum á
vertíðinni, en ekkert var framleitt
af þeim í fyrra.
Sótti vélar-
vana veiðiskip
DRÁTTARBÁTURINN Bjarni lóðs
frá Hornafirði tók vélarvana bát, Jó-
hann Gíslason, í tog á föstudags-
morgun 70-80 sjómílur suður af
landinu. Var Jóhann að koma frá
Ghana í Afríku þar sem hann hefur
verið við botnfiskveiðar frá 1996.
Landhelgisgæslan hefur fylgst
með ferðum Jóhanns Gíslasonar frá
því á fimmtudag en þá töldu skip-
verjar að þeim mundi ekki duga olía
til að ná til hafnar á íslandi á sigl-
ingunni frá Ghana. Til stóð í upphafi
að Bjarni lóðs færi með olíu til móts
við Jóhann en allt bendir til að
óhreinindi í olíunni, sem eftir var
um borð í skipinu, hafi verið það
mikil að olíusíur hafí stíflast með
þeim afleiðingum að skipið hafi orð-
ið vélarvana.
Bjami lóðs kom að Jóhanni á
fjórða tímanum á föstudagsmorgun
og gekk vel að koma taug í hann og
var gert ráð fyrir því að hann kæmi
til hafnar með veiðiskipið í eftir-
dragi um miðjan dag í gær. Mun
þetta vera lengsti aðstoðarleiðangur
dráttarbátsins af þessu tagi.
Safnað fyrir Músambík
Tvær milljónir
á sólarhring
ALMENNINGUR og deildir
Rauða krossins hafa bragðist
skjótt við hjálparbeiðni vegna
flóðanna í Mósambík og síðdegis á
föstudag eða á einum sólarhring
hafði safnast nærri tveimur millj-
ónum króna. Alþjóða Rauða
krossinn hefur aftur sent neyðar-
kall vegna flóðanna, en um
100.000 manns bíða þess að vera
bjargað úr vatnselgnum.
Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins veitti á föstudag eina milljón
króna til hjálparstarfsins, Akur-
eyrardeild 200.000 krónur og
deildirnar á Isafirði og í Kjós til-
kynntu um 100.000 króna framlag
hvor. Fjöldi einstaklinga hefur
samtals gefið á þriðja hundrað
þúsund krónur.
Hægt er að gefa til hjálpar-
starfsins með gíróseðlum sem
liggja frammi í bönkum og spari-
sjóðum, leggja inn á bankareikn-
ing númer 12 í SPRON á Seltjarn-
arnesi eða fara inn á vef Rauða
kross íslands - www.redeross.is -
og láta greiðslufæra af korti.
Einnig getur fólk hringt í Rauða
krossinn í síma 570 4000.