Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
BRIDS
Arnað heilla
llmsjón (>uómuiifliir
IMll Aniarsmi
VESTUR passaði í byrj-
un, en sýnir síðan 10
punkta í fyrstu fjórum
slögunum. Það segir sína
sögu.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
* ÁD
v 1084
* K642
* ÁK52
Vestur Austur
5432 A —
v ÁK » G76532
♦ DG98 ♦ Á753
A 1076 * D98
Suður
A KG109876
¥ D9
♦ 10
* G43
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 grand Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
hjartakóng, en tekur síð-
an ásinn til að sýna tvíspil.
Svo skiptir hann yfir í tíg-
uldrottningu og fær að
eiga þann slag. Hann spil-
ar næst tígulgosa og suð-
ur trompar. Nú má vinna
spilið á tvennan hátt. Sér
lesandinn báðar leiðir?
Sagnhafi veit þá þegar
mikið um spil varnarinn-
ar. Vestur hefur sýnt of
mikið af punktum til að
geta átt laufdrottninguna,
svo það lítur úr fyrir að
austur þurfí að valda þrjá
liti: hjarta, tígul og lauf.
Og það er meira en hann
þolir. Suður spilai' öllum
trompunum nema einu. I
blindum eru þá eftir
hjartatía, tígulkóngur og
ÁK í laufi. Heima á sagn-
hafi eitt tromp og G43 í
laufi. Austur hefur á
þessu andartaki neyðst til
að fara niður á tvö lauf til
að halda í hæstu spilin í
rauðu litunum. Því er ein-
falt mál að fella drottning-
una.
Þessi leið gerir ráð fyi'ir
því að austur eigi hjartag-
osann líka. En það er
sjálfu sér ekki nauðsyn-
legt. Lokastaðan gæti allt
eins verip Kx í tígli í blind-
um og ÁK í laufi. Til að
halda í drottninguna
þriðju í laufi, verður aust-
ur að fara niður á stakan
tígulás, sem þýðir að hægt
er að spila blindum inn á
lauf og trompa út ásinn.
SKÁK
llm.sjón llrloi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Rússneski stórmeistarinn
Evgeny Najer (2572) hafði
hvítt í þessari stöðu gegn
Hollendingnum Nico Vink
(2302) á opna alþjóðlega
mótinu í Cappelle la Grande.
20. Bxe6! fxe6 21.Df3! Hótar
Df3-ffi mát og hróknum á h5.
21. RÍ6 22.exf6 Hh7 23.Hacl
Dc7 24.Bd6 Db7 25.f7+!
Hxf7 26.Dh5 og svartur
gafst upp enda óverjandi
mát.
n JT ÁRA afmæli. Sjötíu
I ÍJ og fimm ára verður
miðvikudaginn 15. mars
Erla Bjarnadóttir, Afla-
granda 40, Reykjavík. Hún
verður með heitt á könnunni
í Þjónustumiðstöðinni Afla-
granda 40, laugardaginn 18.
mars frá kl. 15.30-19.
Ljósmyndastofan Grafarvogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 18. september sl. í
Lágafellskirkju af sr. Sig-
urði Arnarssyni Inga Rósa
Gústafsdóttir og Sigurður
Fjeldsted.
Ljósmyndastofan Grafarvogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 31. desember sL í
Lágafellskirkju af sr. Jóni
Sigurði Helena D. Steinars-
dóttir og Nagib Benelmlih.
Ljósmyndastofan Grafarvogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 30. desember sl. af sr.
Sigurði Arnarssyni Lilja L.
Skúladóttir og Ríkarður
Guðmundsson.
Með morgunkaffinu
að finnast makinn
alltafjafn fallegur.
TM Roo U.S. Pal. Off. — «1 riobto reserved
O 2000 Lot Angele$ Tm«i Syndicete
Ég vil gjarnan að lög-
reglan komi og
sjúkrabíll og líka full-
trúi frá samtökum
líknarmorðingja.
Nei, Magnús minn. Þú
átt bara að segja: já,
ekki: já, já, ég skal
gera það.
Samkvæmt umsókn-
inni ertu elsti sonur
minn. Geturðu útskýrt
það nánar?
LJOÐABROT
Gullörn og bláfugl
Gekk ég úti í skógi, en komið var kvöld,
og koldimman lék sér við geislandi tjöld,
þvi sólin var að hníga í hafbláan reit,
og hljóðlega nóttin á jörðina leit.
Sólin var að hníga, en hneig ekki þó,
og hverfandi geisli þá fæddist og dó,
og ljósið var að deyja, en dauðinn kom þó ei,
og dýrðlegur var roðinn eins og kinnar á mey.
Og ljósið var að deyja, og dýrðlega brá
draumageisla á laufin með glitrandi lá.
Leit ég upp á greinar, sem blöktu í blæ
bornum yfir heiðbláan heiðbláan sæ.
Benedikt Gröndal.
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 53
STJÖRNUSPÁ
eftir Franccs llrakc
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt auðvet með að fá aðra
á þitt band og þrautseigjan
tryggir þér árangur, þegar
upp erstaðið.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú stendur frammi fyrir ör-
lagaríkri ákvörðun og þarft
því að gefa þér góðan tíma til
þess að velta fyrir þér öllum
hliðum málsins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur ekki ætlast til þess
að aðrir lesi í hug þinn. Þú
verður að tala hi-eint út svo
ekkert fari á milli mála hvað
það er sem þú vilt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) nn
Fjárhagurinn er viðfangsefni
númer eitt tvö og þrjú. Nú er
rétti tíminn til þess að gera
áætlun og kippa því í lag sem
hefur farið úrskeiðis.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Ef allt fer sem stefnir ætti
þetta að reynast þér drjúgur
dagur til þess að ganga frá
hlutum sem þér hefur ekki
unnist til fram að þessu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gamlir hlutir verða að víkja
fyrir nýjum en áður en af því
verður er nauðsynlegt að
gera fortíðina upp svo fram-
tíðin fái óskrifað blað.
Meyja „
(23. ágúst - 22. sept.) (SSL
Reyndu að skipuleggja þig
betur og þá ekki síður starfs-
umhverfi þitt. Komdu skjöl-
um í röð og reglu hvort sem
um er að ræða reikninga eða
bréfaskriftir.
Vog XTX
(23. sept. - 22. október) A A
Það eru einhver undirmál í
gangi í kringum þig. Þú gerir
réttast í því að ganga beint að
upphafsmönnum þeirra og fá
þannig málið úr sögunni.
Sþorðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Virkjaðu starfsgleði þína og
gakktu óhræddur á hólm við
ný og vandasöm verkefni.
Reyndu bara að leysa hvert
um sig áður en þú byrjar á
nýju-________________
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er einhvernveginn eins
og þú sért ekki í takt við um-
hverfi þitt. Þú þarft að athuga
þinn gang og breyta þér ef
það er það sem þarf til að ná
jafnvægi.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) mM!
Þú tekur að þér fleiri verkefni
en þú kemst yfir í einu. Þetta
veldur því að þú skilar þeim
verr unnum en hæfileikum
þínum sæmir. Söðlaðu um á
þessu sviði.
Vatnsberi
(20. jan.r - 18. febr.) Witf
Það eru einhver tilfinninga-
leg vandamál sem valda því
að þér líður eins og fiski á
þurru landi. Leitaðu hjálpar
áður en það verður of seint.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’
Lífið er til þess að njóta þess
og það á að taka við óvæntum
gjöfum þess með opnum huga
en þó eðlilegri varfærni þann-
ig að hugur og hjarta séu
samstíga.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRETTIR
Hádegisfimdiir um
landshnitakerfí
LÍSA, samtök um landupplýsingar á
íslandi fyrir alla, og Landmælingar
Islands halda hádegisfund á fimmtu-
dag um landshnitakerfí ÍSN93 og
staðbundin hnitakerfi. Fundurinn er
haldinn í tilefni af útgáfu reglugerð-
ar um viðmiðun ISN93, grunn-
stöðvanet og mælistöðvar til notkun-
ar við landmælingar og kortagerð.
Hádegisverðarfundurinn verður
haldinn á Grand Hóteli, Hvammi,
fimmtudaginn 16. mars kl. 12-14. Að
loknum hádegisverði verða flutt
fjögur stutt erindi um ÍSN93 og
staðbundin kerfi. Fyrirlesarar eru
Þórarinn Sigurðsson og Christof
Völksen hjá Landmælingum ís-
lands, Gunnar Jóhannesson hjá Ak-
ureyrarbæ og Jón Björnsson hjá
Hnitum hf. Umræðustjóri er Heiðar
Þ. Hallgrímsson hjá borgarverk-
fræðingi.
Skráning er á skrifstofu LÍSU-
samtakanna. Netfang: lisa@aknet-
.is. Nánari dagskrá: http://
www.rvk.is/lisa. Verð: 4.000 kr. fyrir
félagsmenn LÍSU-samtakanna og
6.000 kr. fyrir aðra.
APPELSINUHUÐ
Frábær árangur gegn appelsínu-
húð. Sársaukalaus meðferð.
Pantanasími 698 3600. .
EVO-STIK | EÁEVO'STIK I
ELDVARNARKITTI
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 38. útdráttur
1. flokki 1990 - 35. útdráttur
2. flokki 1990 - 34. útdráttur
2. flokki 1991 - 32. útdráttur
3. flokki 1992 - 27. útdráttur
2. flokki 1993 - 23. útdráttur
2. flokki 1994 - 20. útdráttur
3. flokki 1994 - 19. útdráttur
Koma þessi bréf tilinnlausnar 15. maí 2000.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum birt
hér í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Ibúðalánasjóður
Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 I Fax 569 6800