Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR15. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hágæðahótel rís á miðjum Rangárvöllum Hellu. Morgunblaðið. VERIÐ er að leggja síðustu hönd á innréttingar nýs hótels í landi Hjarðarbrekku á Rangárvöllum en aðeins er um tæpt ár síðan smíði þess hófst. Pað eru athafnamenn- irnir Sigurbjöm Bárðarson og Axel Ómarsson sem saman ætla að reka þarna 21 herbergis hótel í hæsta gæðaflokki. Hótelið, sem er um 1000 fermetr- ar, er allt hið glæsilegasta á að líta, byggt í grófum bjálkahúsastíl. Að sögn þeirra félaga sáu þeir þessa húsagerð mjög víða í Kanada og Bandaríkjunum á ferðum sínum fyrir nokkrum árum við markaðs- setningu íslenska hestsins. „Við kolféllum fyrir þessum sveitaset- ursstíl sem varð okkur síðan inn- blástur til þessa ævintýris sem hér er að hefjast. Við byrjuðum á að reisa sjö herbergja álmu ásamt tveggja hæða þjónusturými, en ákváðum síðan í haust að fara strax út í aðra fjórtán herbergja álniu í beinu framhaldi, þannig að salir og gestamóttaka eru í miðjunni. Húsið er smíðað sem venjulegt grindar- hús, en ytra byrði siðan klætt með sérinnfluttum sédrusviði sem gefur þettá fallega bjálkaútlit," útskýra þeir félagar. Það er sérstaklega vandað til allra innréttinga á Hótel Rangá, all- ir bolir í stoðum og svalir eru úr gegnheilum viði, gólfin eru lögð gegnheilum harðviði eða leirflísum og húsgögn eru sérhönnuð og -smíðuð fyrir staðinn. Pá er stiginn á milli hæða úr sérstaklega völdum trjábolum úr gegnheilum sedrusviði og furu, þar sem drumbamir fá að njóta sín í sínu náttúrulega formi. Herbergi í lúxusflokki Herbergin era mjög rúmgóð, fal- lega innréttuð með sérhönnuðum húsgögnum, sjónvarpi, hljómflutn- ingstækjum og baðherbergi með stórj-i setlaug. Auk þess er hægt að ganga út í garðinn úr flestum her- bergjanna og njóta útsýnisins, ann- að hvort úr heitu pottunum, sem þar era staðsettir eða af stéttinni þar sem fyrirhugað er að bera fram veitingar þegar vel viðrar. „Það era fjögur herbergi sem kalla má „svít- ur“, sem verða enn betur búin og era mun stærri en hin,“ segir Axel, en hann gegnir stöðu framkvæmda- stjóra fyrirtækisins. Aðspurðir segjast þeir félagar vera áð byggja upp og markaðs- setja þessa þjónustu í kringum kröfuþarða ferðamenn, sérstaklega úr hóþi erlendra hesta- og veiði- manna. ,A-uk þess munum við leggja áherslu á að geta tekið að okkur alls konar fundi og ráðstefn- ur, én aðstöðu til þess teljúm við mjög góða hér. Það er 50-60 manna salur á neðri hæð, sem ætlaður er til morgun- og hádegisverðar og á efri hæð er annar álíka stór salur í baðstofustíl, þar sem við komum til með að framreiða kvöldverð. Þar er einnig bjálkabar og rúmgóð kon- íaksstofa með tvennar svalir, þaðan sem útsýnið er frábært annars veg- ar til austurs með Eystri-Rangá í Morgunblaðið/Aðalheiður Sigurbjöm Bárðarson og Axel Ómarsson fyrir utan hið nýja „Hótel Rangá“, en þeir félagar hafa grætt upp svartan sandinn sem var allsráðandi í umhverf- inu, þannig að nú blasa við gest- um grænar grundir allt í kring. forgranni og hins vegar til norðurs þar sem sjálf Hekla gnæfir yfir.“ 15-20 störf skapast Margir iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum að byggingu og innréttingu hússins, sem stefnt er að því að opna í næsta mánuði. Að sögn þeirra félaga koma til með að skapast uml5-20 störf á hótelinu, sem svo sannarlega er þörf fyrir þegar samdráttur er fyrirséður í öðrum greinum á svæðinu. Metdag- ur hjá pólför- unum N ORÐURPÓLSF ARARNIR komust 6,1 km á mánudag, sem er lengsta dagleið þeirra frá upphafi leið- angursins, sem hófst 10. mars. Frostið var mikið sem fyrr eða 40 stig. Alls hafa þeir því gengið 18,8 km á fjórum dögum, eða tæpa 5 km á dag að meðaltali. Áður en þeir iögðu af stað frá ís- landi sagði Ingþór Bjarnason í sam- tali við Morgunblaðið, að miðað við þær erflðu aðstæður sem pólfarar þyrftu jafnan að glima við fyrstu 10 til 14 dagana mætti una vel við að komast 5 til 7 km á dag. í ljósi þess má glöggt sjá hversu vel pólförun- um miðar á ferð sinni. í samtali við bakvarðasveit sína í gær sagði Haraldur Örn Ólafsson að gott veður hefði verið á mánu- dag og færið ágætt á köflum. „Gærdagurinn [mánudagur] byrjaði mjög vel og í fyrsta skipti í ferðinni skein sólin allan daginn, þótt hún væri mjög lágt á lofti," sagði Haraldur þegar hann hringdi úr Iridium-gervihnattasímanum. „Sólin rétt gægðist, yfir fjöllin en er mjög lengi að færast eftir sjóndeild- arhringnum. Við vorum á nýfrosnu svæði fyrripart dagsins, nánast eins og á skautasvelli, þakið þunnu snjó- lagi sem gerði það að verkum að sleðamir runnu nyög vel. Alltaf er þó mikið um fshrauka og -hröngl í Morgunblaðið/Ámi Sæberg Pólförunum sækist ferðin vel og þeir eru að nálgast 20 km markið, sem telst góður árangur. Myndin var tekin í æfingaferð á Langjökli. kringum þessi svæði, en þessi ný- frosnu svæði eru mjög góð. Eftir um tveggja kiukkustunda gang komum við að eldri ís, sem er mjög þykkur og hefur veðrast og gúlpast með tímanum. Þar fór að ganga hægar, en við gálum þó dregið hvor sinn sleðann þangað til í lokin þeg- ar við þurftum að hjálpast að við sleðadráttinn." Samkvæmt upplýsingum pólfar- anna hafa þeir aðlagast aðstæðum ágætlega og eru farnir að sofa vel um nætur. Hvítabirni hafa þeir enn ekki hitt og verða líkurnar á því æ minni eftir því sem norðar dregur. Snjómokstur og hálkueyðing Kostnaður allt að 98 milljónir BÓKFÆRÐUR kostnaður vegna snjómoksturs og hálkueyðingar í höfuðborginni frá áramótum til 13. mars, er um 93 milljónir króna, sam- kvæmt yfirliti frá gatnamálastjóra, sem lagt var fram í borgarráði. Bent er á að launakostnaður sé ekki innifalinn í upphæðinni, reikn- ingar vegna saltkaupa og reikningar vegna kaupa á heitu vatni hafi ekki borist þannig að raunkostnaður sé sennilega um 96 til 98 milljónir. Uppfyllti ekki gæðastaðal V egagerðarinnar Fram kemur að Vegagerðin greiddi á síðasta ári tæpar 32 millj- ónir vegna snjómoksturs á þjóðveg- um innan borgarmarkanna og að Vegagerðin hafi gert athugasemdir við framkvæmd snjómoksturs og hálkueyðingar hjá borginni og bent á að hún uppfyllti ekki þann gæðastað- al sem Vegagerðin setti sér á fjöl- fömustu þjóðvegum í nágrenni borg- arinnar. Þá segir, „Þetta er vissulega rétt en í samningi við Vegagerðina er gert ráð fyrir að ástandi þjóðvega innan borgarmarka sé haldið í svip- uðu horfi og öðrum hlutum aðalga- tnakerfisins, sem staðið hefur verið við, og er kostnaðarhlutdeild Vega- gerðaiinnar við það miðuð. Búast má við mjög hertum kröfum Vegagerð- arinnar hvað varðar gæði snjó- moksturs og er unnið að endurskoð- un samnings við þá þar að lútandi." Fram kemur að miklar skemmdir hafi orðið á grasi og gróðri næst göt- um, kantsteinar hafi brotnað, um- ferðarskilti, pollar og grindverk skemmst. Knattspyrnufélagið Fram leitar til borgarráðs Félagið skuldar um 110 milljónir AÐALSTJÓRN Knattspyrnufélags- isns Fram hefur leitað til borgarráðs um heimild til að selja fasteignir fé- lagsins við Safamýri 28. Fram kem- ur að tilgangur sölunnar sé að lækka skuldir félagsins, sem nema um 110 milljónum króna, og lækka rekstrar- kostnað hjó deildum félagsins. í erindinu til borgarróðs er bent á að starfsemi félagsins sé rekin á tveimur stöðum og að fyrirhugað sé að flytja alla starfsemina yfir í íþróttahúsið og lækka sameiginlegan kostnað. Tekið er fram að hugleið- ingar um flutning félagsins af svæð- inu séu ekki tímabærar á þessu stigi en komi til þess yrði það gert í sam- ráði við borgarráð. Jafnframt segir að væntanlegir kaupendur að félags- heimilinu muni ekki fá nein fyrirheit af hálfu félagsins um frekari aðstöðu á íþróttasvæði Fram við Safamýri. Borgarráð vísaði erindinu til um- sagnar borgarlögmanns og fram- kvæmdastjóra íþrótta- og tómstund- aráðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.