Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 “9------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Guðbjörg Arn- órsdóttir fæddist á ísafirði 6. desem- ber 1937. Hún lést á heimili sínu í Skóla- gerði 64, Kópavogi 7. mars siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristjana Gísladóttir, f. 4.7. »1900, d. 13.10. 1970, og Arnór Magnús- son, f. 17.10. 1897, d. 12.2. 1986, skipstjóri á fsafirði. Systkini Stellu eru: Þorlákur, f. 1923; Jóhanna, f. 1925; Bjarni, f. 1926, d. 1927; Hilmar, f. 1928; Magnús, f. 1929; Jónatan, f. 1934; Július, f. 1936. Stella giftist árið 1969 Þórarni G. Jakobssyni, f. 10.8. 1938, frá Siglufirði. Foreldrar hans eru Þóra Amaha Guðmundsdóttir, f. 22.9. 1907, og Benedikt Jakob Jóhannesson, f. 17.10. 1902, d. 5.9. 1982. Börn Stellu og Þórar- ins eru: 1) Hilmar Ægir, f. 1958, - Ikvæntur Elínu Birnu Guðmun- dsdóttur, f. 1952. Börn þeirra Mig langar að minnast elskulegrar tengdamóður minnar í nokkrum orð- um. Það eru liðin tuttugu ár frá því að ég kynntist þér fyrst, þá sem „Stellu á Stelluróló“. Þú og hinar rólókonurnar tókuð okkur vel þegar við komum að „aðstoða" við að passa krakkana á róló. Síðan var það fyrir rúmum tólf árum að við Már, yngsti sonur þinn, fórum að vera saman og Sfeér var strax vel tekið af allri fjöl- skyldunni. Heima í Skólagerðinu var oft fjölmennt og þú á þönum við að láta öllum líða vel og til dæmis eldað- ir þú stundum þrjá mismunandi rétti í kvöldmatinn til að gera öllum til hæfis. Fljótlega fékk ég síðan að fá að fljóta með í „sveitina“ en það var sumarbústaðurinn sem var annað heimili ykkar Þórarins. Þar höfðuð þið búið ykkur einstaklega fallegt heimili og skjól sem þið fóruð til næstum hverja einustu helgi. Alla páska höfum við öll fjölskyldan síðan hist uppi í bústað og átt góðar stund- ir saman. Þannig leið þér best, um- vafin fjölskyldunni. Þegar Rakel dóttir okkar fæddist reyndist þú kkur ótrúlega vel. Ég var í námi og ú varst alltaf boðin og búin til að að- stoða. Oftsinnis minnist ég þess að þú hafir tekið þér frí úr vinnu til að passa fyrir okkur. Einnig fór Rakel oft með ykkur Þórarni upp í sumar- bústað, þar undi hún sér vel og vafði ykkur um fingur sér. Snemma fór Rakel að vera á róló hjá þér rétt eins og hin bamabömin. Hlýju þína og þolinmæði sá maður vel þegar maður kom upp á róló og þar vora öll börnin kvödd daglega með kossi. Létt fas og hár og hvellur hlátur koma einnig í hugann þegar ég minnist þín. Fíflagangurinn og stríðnin í sonum þínum vakti alltaf mikla kátínu hjá þér og þú varst svo .^pndanlega stolt af þeim öllum. Tvisvar fómm við fjölskyldan saman til Kanaríeyja og áttum þar ógleym- anlegar stundir saman. Það er lýs- andi fyrir ykkur Þórarin að hver ein- asti dagur hófst á morgunverði hjá ykkur. Dýrmæt er minningin um það þegar þú hélst Amóri Má, syni okk- ar, undir skím núna íyrir þremur mánuðum. Þú varst ánægð með nafnið sem við völdum honum og ég veit að það var þér mikilvægt að þú passaðir hann nokkram sinnum. Þið Þórarinn vorað samheldin og sam- f^ka og hann reyndist þér í veikind- unum sem alger stoð og stytta. Elsku Stella mín, þetta er bara brot af þeim góðu minningum sem ég á um þig. Hvíl í friði og takk fyrir allt. Ester Gunnsteinsdóttir. Elskuleg tengdamóðir mín og Sftella amma er látin. Okkur langar Halla Rósenkranz, f. 1974, dóttir Birnu, faðir hennar Guðmundur Hall- dórsson, f. 1951, Hilmar Þórarinn f. 1976, móðir hans er Ásdís Gissurardótt- ir, f. 1958, Stella Rósenkranz, f. 1983, og Arnar, f. 1987. 2) Jakob, f. 1961, kvæntur Svandísi fvarsdóttur, f. 1966. Barn þeirra Guðrún Agata, f. 1996. 3) Þórarinn, f. 1967, sambýliskona hans er Helen Viggósdóttir, f. 1963. Börn þeirra Kristjana Björg, f. 1990, og Hjálmar, f. 1991. 4) Már, f. 1971, sambýliskona hans er Est- er Gunnsteinsdóttir, f. 1971. Börn þeirra eru Rakel, f. 1994, og Arnór Már, f. 1999. Stella starfaði við gæsluvelli Kópavogs um margra ára skeið. Utför Stellu fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. að kveðja hana með nokkram orðum. Andlát hennar kom ekki á óvart en erfitt er að kveðja. Síðustu mánuði hafði hún barist hetjulega við illvígan sjúkdóm, en hún var búin þeim einstöku eigin- leikum sem duga best þegar mest á reynir, bjartsýni, léttri lund, og styrk til að takast á við erfiðar aðstæður með bros á vör. Fjölskyldan var Stellu allt og urð- um við þess ríkulega aðnjótandi. Bamabömin vora hennar líf og yndi og tók hún virkan þátt í gleði þeirra ogsorg. Okkur var alltaf tekið opnum örm- um hjá Stellu ömmu og ætíð var hún boðin og búin að gæta mín, Agötu. Þú kenndir mér fyrsta lagið mitt og óteljandi lög eftir það, ég lærði hjá þér að söngurinn er gleði. Það var svo gott að gista uppi í sumarbústað hjá ykkur afa, heimsóknimar í Skólagerði vora ánægjustundir og að fá þig í heimsókn var eitt af því skemmtilegasta sem ég vissi. Þetta vora allt góðar gleðistundir fyrir okkur og minningin um þig á alltaf eftir að lifa í hjarta okkar. Guð geymi þig. Núleggégaugunaftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mínverivömínótt Æ, virzt mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson,) Elsku Þórarinn, megi Guð styrkja þigogvarðveita. Ástarþakkir fyrir allt sem þú varst okkur elsku Stella. Þínar Svandís og Agata. Elsku amma mín. Minningabrotin era svo mörg og hver minning er dýrmæt perla. Ég kynntist þér þegar ég var fjög- urra ára. Þá byrjuðu mamma mín og elsti sonur þinn, Hilmar, að vera saman. Þú og afi tókuð mér strax sem einni af fjölskyldunni og hafið alltaf tíð verið mér svo góð. Þegar ég var sex ára hóf ég skóla- göngu í Kársnesskóla. Mamma og pabbi unnu lengi þannig að eftir hvern skóladag gekk ég til þín á Stelluróló þar sem ég „hjálpaði" þér að passa börnin þangað til róló var lokað. Eftir róló gengum við svo út í kjörbúð þar sem við keyptum okkur eitthvað gott í svanginn og svo geng- um við heim í Skólagerðið og þar dvaldi ég þangað til mamma var búin að vinna. Þú varst svo barngóð að ég hef ekki vitað annað eins. Öll börn löðuðust að þér. Þú varst svo söng- elsk og kunnir öll barnalögin. Ég á svo margar góðar minningar um þig úr sumarbústaðnum. Stund- um fór ég með mömmu og pabba í heimsókn til ykkar þangað og stund- um fór ég með ykkur afa. Það var alltaf svo notalegt í sumarbústaðn- um. Spilað, farið í göngutúra, á vél- sleða, í sund, horft á sjónvarpið og svo auðvitað fíflast og mikið hlegið. Ég gleymi aldrei hlátrinum þínum, þú skelltir svo hátt og skemmtilega upp úr. I bæði skiptin sem stórfjölskyldan hefur farið saman til Kanarí höfum við öll skemmt okkur svo vel og þar áttum við saman yndislegar stundir sem ég mun aldrei gleyma. í bæði skiptin naut ég þess að fá að vera í íbúð hjá ykkur afa. Oft á kvöldin þeg- ar afi var farinn að sofa sátum við tvær í stofunni og spjölluðum saman um heima og geima. Þessar stundir geymi ég í hjarta mínu. Elsku amma mín. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Megi algóður Guð varðveita þig. Far þúífriði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Elsku afi. Guð blessi þig og styrki á þessum erfiðu tímum. Haila Rósenkranz. Amma Stella er farin. Ósann- gjamt. Ég eignaðist auka ömmu þegar ég var lítill og hún er mér mik- ils virði í lífinu. I minningunni era hamingjudagar á róló þar sem amma Stella var dýrk- uð og dáð og gleðistundir í Skóla- gerðinu þegar ég fékk að fara heim með henni í hádeginu. Góð kona sem ég mun aldrei gleyma er horfin. Ég kveð hana með djúpri virðingu og þökk fyrir allt og allt. Guð styrki afa Þórarin og alla fjölskylduna. Orri. Elsku amma. Við söknum þín mik- ið. Þú varst alltaf svo góð við okkur og vildir alltaf leika við okkur. Alltaf þegar þú passaðir okkur þá last þú fyrir okkur skemmtilegar bækur og söngst mikið. Þú kenndir okkur mörg lög og bænir. Það var alltaf gaman í sumarbústaðnum með ykk- ur afa og líka á „Stelluróló" hjá þér. Við vitum að núna ert þú hjá guði og líður vel. Leiddumínalitluhendi ljúfi Jesúþérégsendi bæn frá mínu bijósti sjáðu bh'ði Jesú að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu, halt’ mér fast í spori þínu. Að ég fari aldrei frá þér, alltaf Jesú vertu hjá mér. Þín Kristjana Björg, IQálmar og Rakel. í dag er til moldar borin elskuleg systir mín, Guðbjörg eða Stella eins og hún var alltaf kölluð. Hún and- aðist í faðmi elskulegs eiginmanns 7. mars sl. Stella var hrókur alls fagn- aðar í vinahópi og söngelsk mjög. Hún unni mjög fjölskyldu sinni, tengdadætram og bamabörnum og sóttu þau mikið til hennar og Þórar- ins bæði heim og eins í sumarbústað þeirra, sem Þórarinn reisti í landi Úthlíðar í Biskupstungum. Þangað var farið um hveija helgi og dvalist í sumarleyfum, meðan heilsa og kraft- ar entust. Það var mikið áfall þegar Stella greindist með þann sjúkdóm sem dró hana til dauða. Hún vann ásamt heimilisstörfum hjá Kópavogsbæ á leikvelli (Holtsvelli) í rúm þrjátíu ár og voru öll böra hænd að henni því hún var barngóð með afbrigðum og börnin kölluðu leikvöllinn Stelluróló og gekk hann alltaf undir því nafni. Ég var á þrettánda ári þegar Stella fæddist og ég man alltaf hvað ég var ánægð þegar ljósa sagði okk- ur að nú væri loksins komin stelpa. Elsku Stella mín. Við Kristinn kveðjum þig með söknuði og þökkum Guði að þú þurftir ekki að líða meira. Elsku Þórarinn. Við biðjum Guð að styrkja þig og fjölskyldu þína í ykkar miklu sorg. Laus við krankleik og kvöl, en svo köld og svo fól, þú sefur nú róleg í rúminu hvíta. Enginæðarslögtíð, engin andvarpan stríð þig ónaða lengur né svefninum slíta. (Hannes Hafstein.) Þín systir Jóhanna. Mig langar með nokkram fátæk- legum orðum að minnast frænku minnar, hennar Stellu. Stella var bamgóð, glaðleg og hláturmild kona sem gott og gaman var að tala við. Strax frá því ég var lítil var ég mikið á „Stellu-róló“ og kom þangað nær daglega í þau ár sem mamma vann þar með Stellu. Á fyrstu áram mínum í Kársnesskóla lék ég mér oft með Þórami og Má, og var þá tíður gestur í Skólagerðinu. Þangað var gott að koma. Það var reyndar alltaf gott að koma þar sem Stella var því hún var svo glaðlynd. Þegar ég hugsa til hennar núna sé ég hana fyr- ir mér sitja inni í eldhúsi hjá ömmu og afa á Suðurbrautinni, skellihlæj- andi þannig að ekki sá í brúnu fal- legu augun hennar. Þegar ég bjó hjá ömmu og afa á Suðurbrautinni, árin ’88-’90, var það ósjaldan að Stella kom og við þrjár skelltum okkur saman í heita pott- inn. Þessar minningar era mér dýr- mætar og mun ég varðveita þær í hjarta mínu ásamt öðram minning- um mínum af Stellu. Elsku Þórarinn og fjölskylda, megi guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Jóhanna Kristín. Stella var alltaf svo falleg og ein- staklega góð. Nú hefur hún yfirgefið okkur og er komin til himna, í faðm foreldra sinna. Guð blessi hana og megi allir englar vaka yfir henni. Minningarnar um yndislega konu munu lifa og búa í brjósti okkar um alla tíð. Hún kom oft í heimsókn til okkar þegar við bjuggum á ísafirði og for- eldrar hennar vora á lífi. Við áttum skemmtilega tíma saman og það er margs að minnast. Hún var mikil bamagæla alla tíð og öll börn löðuð- ust að henni. Hún gaf sér líka alltaf góðan tíma til tala við þau, enda hafði hún alveg sérstakt lag á því. Stella var alltaf svo létt og kát. Það var gaman að koma í fallega sumarbústaðinn hennar og Þórarins í Skyggnisskógi. Þar var alltaf tekið vel á móti okkur og ekkert til sparað í mat og drykk. Stella var húsmóðir- in og ber húsið þess merki hve smekkleg hún var. Þegar við heim- sóttum þau í bústaðinn sl. haust var húrf orðin veik, en hún lét það ekki slá sig út af laginu, hélt reisn sinni allt til enda. Kæri Þórarinn, synir og aðrir aðstandendur, megi guð gefa ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Þóra og Jónatan. Elsku Stella frænka. Það er sárt að kveðja þig svona fljótt - yngsta systir hans pabba kveður fyrst. Ég veit að þín er sárt saknað af mörg- um, sérstaklega barnabörnunum þínum, sem ég veit að þú hefðir viljað fá að njóta lengur. Þú hafðir yndi af bömum, enda mörg börn búin að vera hjá Stellu á róló. Þegar ég var barn og unglingur leit á þig sem stóra systur mína enda varst þú í foreldrahúsum á ísafirði þegar ég steig mín fyrstu spor. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín og Þórarins í Kópavoginn. Það vora forréttindi að eiga þig sem trúnaðarvin þegar ég fluttist til Reykjavíkur. Þú gafst þér alltaf tíma til að hlusta á vangaveltur unglings- áranna. Þegar ég átti mitt fyrsta bam varstu mín stoð og stytta og eins og mamma mín hér fyrir sunn- an. Ég held að þú hafir verið lík mömmu þinni, Kristjönu, sem var frábær amma. Ég veit að hún og afi taka vel á móti þér Stella mín. Elsku Þórarinn, Hilmar, Jakob, GUÐBJORG (STELLA) ARNÓRSDÓTTIR Þórarinn, Már, tengdadætur og bai'naböm, guð gefi ykkur styrk til að takast á við sorgina. Kristjana (Kiddý). Kallið er koraið, kominernústundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimirkveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margterhéraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Helen Viggósdóttir. I dag kveðjum við elskulega frænku og móðursystur, Stellu. Við kynntumst henni fyrir alvöru þegar við fluttum í Kópavog. Þegar við fór- um að vinna í Kársneskjöri var heim- ili þeirra Þórarins okkur opið á hvaða tíma sem var og fundum við, að við voram alltaf velkomnar, þann- ig að okkur fannst þetta annað heim- ili okkar. Það var mikið hlegið og gert að gamni sínu í eldhúskróknum í Skóla- gerði, pijónað og saumað frameftir öllu kvöldi. Það vora ánægjulegar stundir. Okkur setti hljóðar þegar við fréttum um veikindi þín, og von- uðum að vel hefði tekist, en svo var ekki. Við kveðjum þig með söknuði og biðjum algóðan Guð að styrkja Þórarin, syni og tengdadætur og fjölskyldur þeirra. Hver minning dýrmæt perla aðliðnumlífsinsdegi. Hinjjúfuoggóðukynni afalhugþakkahér. Þinnkærleikuríverki var gjöf, sem gleymist eigi. Oggæfavarþaðöllum, sem fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Amdís Kristjana og María. Úti á Kársnesi í Kópavogi er gæsluvöllur. Eitthvað heitir nú þessi völlur í opinberum plöggum og símaskrá, en í almennu tali þeirra sem njóta, er þetta einfaldlega Stellu-róló. Þar hafa margir vesturbæingar úr Kópavogi átt sín fyrstu spor út í lífið og það hafa verið góð spor. Það er mikið um að vera á róló. Lítil stelpa dettur og hljóðar mik- inn, hvort sem nú er af skelfmgu við fallið eða af sársauka. „Æ, æ, æ, hver var að meiða sig?“ hver kann- ast ekki við hlýjuna hennar Stellu. Tveir litlir strákar takast á um gröfuna í sandkassanum, annar fær sand í augun í átökunum og sátta- semjarinn Stella stillir til friðar, þvær og þurrkar og snýtir, um leið og hún veitir fyrstu kennslu í sið- fræði sandkassans. Og fyrr en varir skiptast menn á gröfu og vörabíl og allt fellur í ljúfa löð. Já, sumir eru uppalendur af guðs náð. Lítill snáði grætur við hliðið, hann getur ekki með nokkra móti skilist við hana ömmu sína. En faðmurinn hennar Stellu veitir skjól og öryggi og smám saman sefast hinn sárasti grátur. Já Stella huggar, fagnar, brosir og hlustar á ótal ævintýri. Svona er lífið á róló. í sólskini og sunnanvindi að sumri. Regni og stormi að hausti. Frosti og snjó vetr- arins, að ógleymdum yndislegum vordögum í Kópavogi. Og þarna stóð hún Stella vaktina allan ái'sins hring og gætti krakkanna okkar. Auðvitað var hún ekki ein á „rólónum", en lengst af stýrði hún og mótaði allt það starf, sem þar var unnið. Pers- ónulega þakka ég henni fyrir alla syni mína og sonarson, og þau börn sem hafa verið hér til heimilis um lengri eða skemmri tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.