Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 21 Stjórn Skeljungs hf. boðar stefnubreytingu á aðalfundi félagsins „Akveðið olíufélag hefur árum saman spilað á kerfið“ BENEDIKT Jóhannesson, stjórnar- formaður Skeljungs hf., sagði í ræðu sinni á aðalfundi félagsins í gær að fé- lagið ætti í stríði við hið opinbera, sem með óeðlilegum hætti hefði af- skipti af flutningi olíu um landið. Af- leiðingin væri sú að ákveðið olíufélag hefði árum saman getað spilað á kerfið sér til hagsbóta. „Þessi mismunun þrífst í skjóli stjómmálamanna og er því auðvitað pólitísk,“ sagði Benedikt og bætti því við að málið væri arfur þess tíma þegar stjórnmálamenn vildu um alla hluti sýsla, sínum gæðingum til hags- bóta. ,Á undanförnum árum hafa stjórn- endur Skeljungs beitt sér fyrir því að fá flutningsjöfnun á olíuvörum fellda niður enda felur hún í raun í sér nið- urgreiðslu Skeljungs hf. á flutnings- kostnaði samkeppnisaðila um tugi milljóna króna á ári hverju. Eftir að hafa beðið árangurslaust eftir við- brögðum stjórnvalda við kvörtunum félagsins varð það niðurstaða stjóm- enda Skeljungs að skjóta málinu til Eftirhtsstofnunar EFTA. Þótt nið- urstaða Eftirlitsstofnunar liggi enn ekki fyi-ir hefur málskotið þó þegar skilað þeim árangri að stjóm Flutn- ingsjöfnunarsjóðs oh'uvara hefur skyndilega séð sér fært að lækka taxta sjóðsins um tugi prósenta," sagði Benedikt. Meirihluti stjómar þverskallast við að fara eftir dómi í máli hans kom fram að það hefði vakið furðu Skeljungsmanna hversu barátta fyrir leiðréttingu á sam- keppnisstöðu félagsins hefði mætt litlum skilningi hjá forstjóra Sam- keppnisstofnunar, sem gegnir stöðu stjómarformanns Flutningsjöfnun- arsjóðs. „Skeljungi tókst að fá stjórn sjóðsins til þess síðastliðið vor að samþykkja Akureyri sem innflutn- ingshöfn. Meirihluti stjómarinnar afturkallaði þá ákvörðun þegar hann gerði sér grein fyrir þeim áhrifum sem breytingin hafði á taxta sjóðs- ins.“ Sagði Benedikt að þrátt fyrir að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði dæmt afturköllun sjóðsins ólögmæta, í máli Skeljungs gegn forstjóra Sam- keppnisstofnunar fyrir hönd Flutn- ingsjöfnunarsjóðs, þá þverskallaðist meirihluti stjórnarinnar, undir for- ystu forstjóra Samkeppnisstofnunar, við að færa taxta sjóðsins til sam- ræmis við dóminn. Félagid greidir ekki fé til stjórnmálaflokka Benedikt kynnti á aðalfundinum nýjar viðskiptareglur Skeljungs, sem samþykktar hafa verið af stjórn fé- lagsins. Reglumar fela meðal annars í sér lýsingu á markmiðum félagsins, settar em starfs- og siðareglur og kveðið er á um samfélagslegar skuld- bindingar félagsins. Fyrirmyndin að viðskiptareglum Skeljungs hf. er sótt til Shell-samsteypunnar sem er í senn samstarfsaðili og hluthafi í Skeljungi hf. Shell-samsteypan vinn- ur eftir ámóta reglum um allan heim, að sögn Benedikts. „Reglumar endurspegla það grundvallarviðhorf að starfsemi fé- lagsins og samskiptin við viðskipta- vini eiga að grundvallast á heiðar- leika, ráðvendni og virðingu fyrir umhverfinu," sagði Benedikt. Að hans mati er um stefnubreyt- ingu að ræða í ákvæðum reglnanna um stjómmálastarfsemi, en þar kem- ur fram að Skeljungur hf. vinni að viðskiptamarkmiðum sínum eftir ábyrgum og lögmætum leiðum. Fé- lagið greiði ekki fé til stjórnmála- flokka, stjórnmálasamtaka eða full- trúa þeirra og hafi ekki afskipti af flokkspólitísku starfi. Skeljungur áskilji sér hins vegar rétt til að láta í ljósi afstöðu sína til málefna sem hafa bein áhrif á félagið, starfsmenn þess, viðskiptavini eða hluthafa. Félagið leggist ekki gegn því að einstaka starfsmenn taki þátt í samfélagsleg- um verkefnum, t.d. með því að bjóða sig fram til opinberra embætta, svo lengi sem slíkt teljist viðeigandi í ljósi ríkjandi aðstæðna á hverjum tíma. „Þama er um stefnubreytingu að ræða því að Skeljungur hefur hingað til stutt stjórnmálaflokka hér á landi með fjárframlögum líkt og flest önn- ur stórfyrirtæki. Sá stuðningur hefur ekki verið takmarkaður við ákveðinn flokk eða flokka heldur hefur félagið með þessu viljað styðja við stjórn- málalíf í landinu. Stuðningurinn hef- ur aldrei verið háðm- neinum skilyrð- um af hálfu félagsins," sagði Benedikt. Hann sagði ennfremur að rétt væri að staldra við og íhuga með hvaða hætti ætti að fjármagna stjórnmála- starfsemi hér á landi. Vitað væri að framlög einstaklinga hrykkju skammt og það væri ekki geðfelld hugsun að starfsemin væri öll greidd af ríkinu, enda auðvelt að sjá að slíkt gæti boðið hættu heim. Ekki kæmi hins vegar á óvart þó fleiri fyrirtæki fylgdu á eftir Skeljungi og settu reglur sem þessar. Miklar vonir bundnar við tilraunir með vetni Fram kom í máli Benedikts að von- ir hefðu staðið til þess í upphafi árs- ins 1999 að mikið eldsneyti yrði selt til útgerðarinnar. Þær vonir hafi hins vegar brugðist vegna slakrar loðnu- göngu. Hins vegar hefði mikil sókn í nóta- og flotrollsveiðum skilað mun meiri sölu í skipagasolíu en árið á undan. Einnig kom fram í ræðu Benedikts að sala eldsneytis til verktaka og flutningaaðila hefði gengið vel og samningar félagsins við Flugleiðir hf. hefðu aukið sölu á eldsneyti á innan- landsmarkaði svo um munar. „Þá tók Skeljungur virkan þátt í undirbúningi sem leiddi til stofnunar Islenskrar nýorku ehf., sem nú und- irbýr tilraunir með vetni sem fram- tíðarorkugjafa á íslandi," sagði Samruni Volvo og Scania og Alcan og Pechiney stöðvaður Kaupmannahöfn. Morgunbladið. MARIO Monti, sem fer með sam- keppnismál í framkvæmdastjóm Evrópusambandsins, ESB, til- kynnti í gær að stjórnin legðist gegn kaupum Volvo á Scania og eins að þar sem stjórnin hefði lagst gegn samruna álfyrirtækjanna kanadíska Alcan og franska Pechiney hefðu þau fyrirtæki hætt við samruna. Hins vegar lagði framkvæmdastjórnin blessun sína yfir sammna Alcan og svissneska Alusuisse sem rekur álverið í Straumsvík. Ákvörðun sína byggir framkvæmdastjórnin á aðstæðum á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, ekki aðeins í ESB-löndunum. Það þótti nokkurn veginn ljóst fyrirfram að kaup Volvo á Scania fengjust ekki samþykkt. Málið hef- ur verið fréttaefni í Svíþjóð undan- famai' vikur og vitað er að Göran Persson forsætisráðherra hefur beitt sér í málinu. Verkalýðsfélögin, sem málið varðar taka ákvörðunina óstinnt upp þar sem því er kviðið að verksmiðjum verði lokað ef sammninn fáist ekki samþykktur. í niðurstöðu Montis segir að Volvo hafi skilað tillögum til úrbóta 21. febrúar, sem var lokafrestur til athugasemda, en þær tillögur dugi ekki til. Volvo hafi komið með nýjar tillögur 7. mars en bæði hafi frest- urinn þá verið liðinn og fram- kvæmdastjórnin því ekki getað tek- ið þær til greina en þær virðist heldur ekki breyta grundvallarfor- sendunum sem framkvæmdastjórn- in fetti fingur út í. Frestur fram- kvæmdastjórnarinnar til að fjalla um málið rann út í gær, honum er ekki hægt að breyta, segir í frétta- tilkynningu Montis og því ekki hægt að kanna málið frekar. Forsendur framkvæmdastjórnar- innar fyrir neituninni eru að sam- mni fyrirtækjanna dragi úr sam- keppni á einstökum sviðum í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og á írlandi, þar sem mark- aðshlutdeild fyrirtækjanna tveggja sé á bilinu 50-90 prósent. Þarna hafi fyrirtækin verið stærstu fram- leiðendur og keppinautar á sviði véla-, vömbíla- og langferðabíla- framleiðslu. Viðbrögðin í Svíþjóð í gær vom mjög hörð. Ymsir talsmenn aðila vinnumarkaðarins bentu á að það væri alvarlegt vandamál fyrir Svía að framkvæmdastjórnin einblíndi á markaði einstakra landa en ekki á Evrópu í heild. Þetta gæti þýtt við- varandi erfiðleika fyrir sænsk fyr- irtæki, sem væm stór á heima- markaði, þótt þau væra lítil á evrópska markaðnum í heild. Alcan hættir við samruna við Pechiney Síðastliðið sumar lýsti Alcan því yfir að það hygðist stofna til þríein- ingar við Pechiney og Alusuisse en þó þannig að þótt niðurstaðan ætti að verða sammni fyrirtækjanna þriggja í APA sem ætti að verða annað stærsta álfyrirtæki í heimi, þá yrði hin tæknilega framkvæmd þannig að Alcan rynni saman við hvort fyrirtæki um sig. APA átti að verða næststærsta álfyrirtæki í heimi, næst á eftir Aluminium Company of America, Alcoa og verða alvarlegur keppinautur þess. Alcoa framleiðir 3,8 milljónir tonna af áli á ári, en framleiðsla APA átti að verða rúmar 2,5 milljónir tonna. Það varð fljótlega ljóst að í sam- keppnislegu tilliti mætti ganga út frá því sem vísu að framkvæmda- stjórn ESB myndi ekki samþykkja samruna Alcan og Pechiney þar sem sá sammni drægi alvarlega úr samkeppni í framleiðslu áldósa. Þegar það lá Ijóst fyrir að svo yrði ákvað Alcan í gær að hætta við samrunann við Pechiney. Morgunblaðiö/Ámi Sæberg Við upphaf aðalfundar Skeljungs hf., sem haldinn var á Grand hótel í gær. F.v. Kristinn Björnsson forstjóri, Benedikt Jóhannesson sljórnarformaður og Einar Sveinsson, sem var fundarstjóri á aðalfundinum. Benedikt. Hann sagði miklar vænt- ingar vera bundnar við það þróunar- verkefni og að grannt yrði fylgst með framvindu þess bæði hérlendis og er- lendis. Skeljungur seldi alls 914 milljónir lítra af fljótandi eldsneyti á íslenska olíumarkaðnum í fyrra. „Þetta er 3,4% aukning á heildarsölu frá árinu 1998 þegar heildarsalan var 884 milljónir lítra,“ sagði Benedikt. Sala á öðmm vöram en fljótandi eldsneyti nam alls 2.100 milljónum króna á síð- asta ári, sem er um 18% aukning í krónum talið frá árinu áður. Skeljungur og Orkuveita Reykjavíkur gætu runnið saman „Áætlanir félagsins um hagnað af reglulegri starfsemi á yfirstandandi ári gera ráð fyrir að hann geti orðið svipaðui' og á árinu 1999, sem var af- bragðs gott ár,“ sagði Benedikt. Hann sagði að meðal þess sem sjálf- sagt væri að kanna væri hvort hægt sé að reka Select-verslanir án tengsla við bensínstöðvar. Einnig hefði félag- ið reynslu af innflutningi á margs konar vöram, til dæmis til iðnaðar. „Þar era eflaust fleiri tækifæri. Ætti félagið að líta á möguleika sem kunna að skapast þegar einkavæðing á inn- lendum orkufyrirtækjum hefst? Það kann að virðast fjarstæðukennt við fyrstu sýn, en gætu Skeljungur og Orkuveita Reykjavíkur rannið sam- an í framtíðinni, svo dæmi sé nefnt?“ Vonir bundnar við verðlækkanir á bensíni á næstunni Kristinn Bjömsson, forstjóri Skeljungs, kynnti í ræðu sinni tölur um hækkanir á bensínverði frá jan- úar 1999 til mars 2000. Þær sýna að bensínverð á íslandi hefur hækkað á tímabilinu um 28%, en heimsmark- aðsverð um 173%. „Vonir eru þó bundnar við að hámarkmu sé náð og verð fari lækkandi á næstu mánuðum og misseram," sagði Kristinn. Samþykkt var einróma á aðalfund- inum að greiddur yrði 15% arður af hlutafé til hluthafa, sem nemur sam- tals um 112 milljónum króna. Engar breytingar urðu á skipan stjórnar fé- lagsins. Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn miðvikudaginn 22. mars 2000 á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3, og hefst fundurinn kl. 14.00. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 18, 4. hæð, frá og með 20. mars, fram að hádegifundardags. Stjórn Olíufélagsins hf. Olíuféiagið hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.