Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 29 LISTIR Einstakur árangur LEIKLIST Leikdcild UMFS Dagr e n n i ngar. D r a ii t a r t u n g a í L ii n d a r r e y kj a d a I ÍSLANDSKLUKKAN Eftir Halldór Kiljan Laxness. Leiksljóri: Halla Margrét Jóhannesdóttir. Laugardagur 11. mars ÞAÐ er ekki í lítið ráðist fyrir lítið og fámennt leikfélag til sveita að sviðsetja Islandsklukkuna án þess að slá af kröfum um fjölda leikenda eða umbúnað sýningar. Það fylgir sögunni að undirbúningur sýningar- innar hafi staðið i nærri heilt ár og að henni standi réttur helmingur íbúa Lundarreykjadals eða um 40 manns. A sviðinu standa þegar flest er 19 leikendur. Allt þetta skyldi hafa í huga þegar fullyrt skal að sýningin er af þeim gæðaflokki að gæti sómt sér í byggðarlagi af hvaða stærð sem er; frábær frammistaða leikenda, leikstjóra og allra sem að sýningunni standa lögðust á eitt við að gera frumsýninguna í hinu litla félagsheimili Brautartungu sl. laug- ardagskvöld að eftirminnilegum menningarviðburði. Væri hægt að setja á langar tölur um gildi slíks menningarstarfs fyrir íbúa til sjávar og sveita og þá ekki síður hins að miklum metnaði fylgir oftast nær góður árangur. Sú leikgerð Islandsklukkunnar sem hér er sýnd er hin hefðbundna Þjóðleikhúsleikgerð sem gengið hefur í gegnum ýmsar styttingar og breytingar. Er þar farið fremur hratt yfir sögu og stærstur hlutinn tekinn úr fyrstu bókinni, Islands- klukkunni, en stuttir kaflar teknir úr Hinu ljósa mani og Eldi í Kaupin- hafn. Er það að vonum þar sem reynt er að gera söguþræðinum sæmileg skil og komast allt til enda en ýmislegt liggur hjá fyrir bragðið. Þannig verður seinni hluti sýningar- innar ekki jafnheillegur og sá fyrri en það kemur þó ekki verulega að sök. Leikstjórinn Halla Margrét hefur af mikilli hugvitsemi fundið sýning- unni skemmtilega umgjörð í sal fé- lagsheimilisins Brautartungu. Er áhorfendum stillt upp skáhallt um salinn og hvorutveggja leikið fyrir enda hans og meðfram langhlið. Þetta kemur vel út og langhliðin er nýtt til hins ýtrasta með göngupalli sem á stundum nýtist sem baðstofa og á veggnum eru gluggar og bóka- hilla sem draga má fyrir eftir því sem þörf krefur. Aldeilis fram- úrskarandi lausn sem er jafneinföld og hún er snjöll. Atriðið þar sem Jón Hreggviðsson og nafni hans Mart- einsson fara á fyllirí og leggjast á gluggana í Kaupmannahöfn var t.d. alveg sérlega skemmtileg hugmynd. Búningar eru einnig vel unnir og gervi góð. Einnig verður að hrósa fyi’ir vandaða og eigulega leikskrá. Halla Margrét hefur náð einstak- lega góðum tökum á leikendum og tekist að samræma leikstíl svo aðdá- unarvert er. Hófstilltur og tilfinn- inganæmur leikur Hildar Jósteins- dóttur í hlutverki Snæfríðar hlýtur að vekja sérstaka athygli, hún hefur góðan skilning á hlutverkinu og lék af óvenjulegri tilfinningu, bak við lága röddina mátti sífellt skynja vaxandi hann þessarar ógæfusömu konu. Sigurður Halldórsson var sannfærandi Jón Hreggviðsson og lék á sömu hófstilltu nótunum en þetta hlutverk býður einmitt upp á hið gagnstæða og að úr því verði eins konar Skugga-Sveinn í höndum viðvaninga. Varð Jón hér að eftir- minnilegum leiksoppi æðri vald- hafa, sem guggnar þó aldrei enda aldrei í vafa um hvar hann hefur sjálfan sig. Öllu þessu hélt Sigurður til skila. Meðal þeirra leikenda sem einnig eiga hrós skilið fyrir frammistöðu sína eru Þór Þórsteinsson í hlut- verki Assessors Arnae, Ólafur Jó- hannesson í hlutverki séra Sigurðar dómkirkjuprests og Jón Gíslason fyrir túlkun sína á á þeim Eydalín lögmanni og Jóni Grinvicensis. Arni Ingvarsson var eftirminnilegur Jón Marteinsson. Það má teljast merki- legur árangur leikstjórans að takast að skapa svo skýrar persónur með leikendum sýningarinnar, ekki síst þeirra sem hafa fleiri en eitt hlut- verk með höndum. Má þar nefna Gísla Einarsson sem var jafngóður sem Magnús í Bræðratungu og sem Von Úffelen. Ailir leikendur virtust hafa mjög skýra mynd af þeirri sýn- ingu sem þeir höfðu með höndum og lögðust greinilega á eitt um að koma henni sem best til skila. Yfir sýning- unni er sérstakt yfirbragð einlægni sem gæðir hana mjög sterkum og sannfærandi krafti og bætir marg- falt upp eðlilega hnökra sem ávallt hljóta að finnast í svo mannmargri áhugamannasýningu. Hér hefur tekist svo vel til sem hugsast getur og væri vel að þessi sýning sæist af sem flestum. Er það vel ferðarinnar virði að aka í Braut- artungu til að njóta íslandsklukk- unnar í flutningi íbúa Lundar- reykjadals. Hávar Sigurjónsson Grand VHara hefur margt fram yfir aðra jeppa í sínum verðflokki Það fyrsta sem þú tekur eftir þegar þú Grand Vitara er grii sest inn í Grand Vitara eru vel bólstruð eykur styrk hans ve sætin og hve góðan bakstuðning þau að hækka hann ef | veita. Fjórhjóladrifið stóreykur notagildi hann jafn auðveldu bílsins en háa og lága drifið gerir hann gengni og venjuleg að ekta hálendisbíl. svipuðu verðil Grand Vitara - Þægilegi jeppinn TEGUND: VERÐ: GR.VITARA3 dyra 1.789.000 KR. GR. VITARA 2,0 L 2.199.000 KR. GR. VITARA 2,5 LV6 2.449.000 KR. Sjálfskipting 150.000 KR. SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 482 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegl 17, sími 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavfk: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bflasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00. 567 2277 NÝJA BÍLAHÖLLIN Funahöfða 1, www.notadirbilar.is Opel Astra Club Wagon, árg. 2000, ek. 6 þ.km.. vinr, 5 o. álfelgur. Verð kr. 1.490 þús. Kýr bíll. Peugeol 20B 1400, ek. 0 km„ græna r-r. þjófav., sami. Verfl 1.240 þús. Toyola Corolla STW, árg. 98, ek. oz wm„ 5g„ h, samL d-blár. Verö 1.090 þús. ssk, 7-manna. 4-h. Ver01.950 þús. , ek. 40 þ.km„ 5g.. álíelgur. Verð1.B30 þús, áhv. lán 1.440 þús. Suzuki Baleoo STW 4x4, árg. 99, ek. n o.km„ silfur. 5 g„ saml, abs. Verð kr. 1.450 þús. flenault Clio BN 1200, árg. 9?, ek. 23 kkm„ rauður. 5 g., 5 d. Verð 850 bús. lilbolsbíll vikunnar. Renault Twingo, árg. 95, ekinn 82 þ.km„ græna 3 d„ 5 g, s+v dekk, skoðaður Ol.Verð 500 bús., lílboövikunnar 450. bús. Okkur vanlar vanan sölumann, 25 ára eða eldri, iraustan, snvítileoan ðb reglusaman. Uppl. á staðnum eftir kl. 17. Framiarstarf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.