Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 23 Annað mengunarslys í Rúmeníu Mengun berst í Tisza á ný gangast undir alþjóðlega umhverf- isverndarsamninga til að hindra megi frekari mengunarslys og Gis- ela Altmann, umhverfisráðherra Þýskalands, hefur lýst yfir áhyggj- um af menguninni og bauðst til að veita Rúmenum fjárhagslega og tæknilega aðstoð við að bæta um- hverfisvarnir. Þá skoraði Branis- lav Blazic, umhverfisráðherra Serbíu, á þjóðir heims að „refsa“ Rúmenum. Stjórn Rúmeníu hefur beðið Evrópusambandið um 3,77 milljón- ir evra, um 270 milljónir króna, til að geta fylgst með menguninni í ánni og Romica Tomescu, um- hverfisráðherra landsins, hefur hótað að loka námum sem fylgja ekki reglum um umhverfisvarnir. Pólitískar einangrunaraðgerðir ESB gegn Austurríki Reuters Stíflan við Novat í Norður-Rúmeníu sem brast eftir miklar rigningar með þeim afleiðingum að aur blandaður þungmálmum hefur flætt í ána Tisza. Búkarest, Búdapest. AP, AFP. FAST er lagt að Rúmenum að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir frekari mengunarslys eftir að mengað vatn barst úr rúmenskri námu í Tisza, þverá Dónár, í annað sinn á rúmum mánuði. Um 20.000 tonn af aur, blönduð- um þungmálmum, bárust í ána á föstudag eftir að stífla við rúm- enska sink- og blýnámu brast vegna úrhellis. Rúmum mánuði áð- ur höfðu 100.000 rúmmetrar af blásýrumenguðu vatni og þung- málmar borist í ána úr gullnámu. Ungversk yfirvöld hafa hvatt til að Rúmenar verði knúnir til að Lagalegar varnarað- gerðir ræddar á þingi Brussei, Vín. Daily Telegraph, AFP. ÞINGMENN á austurríska þinginu hófu í gær að ræða lagalegar að- gerðir sem austurrísk stjórnvöld gætu gripið til í því skyni að fá því framgengt að dregið yrði úr hinum pólitísku refsiaðgerðum sem hin Evrópusambandsríkin fjórtán beita Austurríki vegna stjórnarþátttöku hins umdeilda Frelsisflokks. En þingmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkanna greindi á um leiðir að þessu marki. Stjórn- arflokkarnir tveir stóðu saman að einni þingsályktunartillögu og stjórnarandstaðan að annarri, en báðar ganga út á að gerð verði könnun á þeim möguleikum sem austurríska ríkið hefði til að grípa til lögfræðilegra ráðstafana til að mæta refsiaðgerðum ESB-ríkjanna. Samkvæmt tillögu þingmanna stjórnarflokkanna, hins íhaldssama Þjóðarflokks og Frelsisflokksins, er lögmæti ESB-aðgerðanna dregið í efa og kveðið á um að ríkisstjórninni skyldi falið að sækja rétt Austurrík- is að alþjóða- og Evrópulögum. I tillögu sem þingmenn austur- ríska Jafnaðarmannaflokksins lögðu fram er einnig kveðið á um að ríkisstjórninni skyldi falið að „stíga öll viðeigandi lagaleg skref á evrópskum og alþjóðlegum vett- vangi (...) sé ljóst að réttur hafi ver- ið brotinn á Austurríki." Árangurslaus fundur með Guterres Wolfgang Schússel, kanzlari og leiðtogi Þjóðarflokksins, kom á mánudag aftur heim til Vínar eftir árangurslausa bónför til Brussel. „Ekkert hefur breytzt," sagði An- tonio Guterres, forsætisráðherra Portúgals sem þetta misserið gegn- ir formennsku í ráðherraráði ESB, eftir fund þeirra Schússels. Hann neitaði meira að segja að ræða við gestinn frá Vín um hugsanlegar leiðir út úr ástandinu. Og Louis Michel, utanríkisráðherra Belgíu, hvatti til þess í blaðaviðtali að enn yrði hert á aðgerðunum gegn Aust- urríki, með það að markmiði að steypa stjórninni þar. Sagði Michel stjórnarþátttöku Frelsisflokks Jörgs Haiders „hættulegt for- dæmi“. Schússel, sem hélt til Brussel til móts við Guterres þar sem sá síðar- nefndi hafði vísvitandi sleppt Vín úr heimsóknarúnti sínum til höfuð- borga aðildarríkjanna í aðdraganda aukaleiðtogafundar sambandsins sem haldinn verður í Lissabon síðar í mánuðinum, lýsti því yfir að hin pólitíska einangrun sem hin ESB- ríkin hefðu sett Austurríki í væri „ýkt, óréttlát og hefði öfug áhrif'. Sagði hann aðgerðir ESB „fljót- færnisleg viðbrögð sem brytu í bága við Amsterdam-sáttmálann". Brotið væri á réttindum Austurríkis sem aðildarríkis. Bera með sér „hættulegt mein” „Austurrískir námsmenn eru núna útilokaðir frá nemendaskipta- áætlunum. í öðrum tilvikum eru [austurrískirj listamenn sniðgengn- ir,“ sagði Schússel. Ofbauð honum sérstaklega dæmi sem hann heyrði af leigubílafyrirtæki í Brussel, sem neitaði að þjónusta nokkurn Aust- urríkismann vegna þess „hættulega rneins" sem þeir væru álitnir bera með sér. í Daily Telegraph er greint frá Reuters Ákvörðun Jeb Bush mótmælt fyrir utan þinghúsið í Tallahassee í Flórída. Martin Luther King III, Kendrick Meek og Jesse Jackson eru fyrir miðju. því, að á mánudag hafi hópur þekktra austurrískra gyðinga, þar á meðal „nazistaveiðarinn" Simon Wiesenthal og útgáfujöfurinn Weid- enfeld lávarður, skorað á Evrópu- sambandið að slaka á aðgerðunum gegn Austurríki. Aðstandendur yf- irlýsingarinnar segja að Austurríki verðskuldi ekki að vera úthýst með þessum hætti úr „evrópsKU þjóða- fjölskyldunni“. Rangur „pöstkassi“ London. Reuters. ÞEIR sem póstlögðu bréf sín í lystigarði einum í Yorkshire á Englandi eiga á hættu að viðtak- anda berist bréfin aldrei. Komið hefur í ljós að margir settu bréf sín í rauðan kassa í garðinum í þeirri trú að þar væri um póstkassa að ræða. Raunin var hins vegar sú að kassinn var ætlaður fyrir hundaskít, en slík- ir kassar eru venjulega grænii'. „Liturinn fær fólk til halda að hér sé um póstkassa að ræða,“ sagði bæjarstjórnarmaðurinn Geoff Richardson. Jeb Bush líkt við Hussein og Milosevic Miami. AFP. JEB Bush, ríkisstjóra Flórída og bróður George Bush, forsetaframbjóðanda repúblikana, var nýlega líkt við þá Saddam Hussein Iraksforseta og Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu. En sú ákvörðun ríkisstjórans að minnihlutahópar eigi ekki lengur rétt á ákveðnu prós- cntuhlutfalli starfa hjá ríkinu eða séu ákveðinn hluti há- skólanema hefur mætt andstöðu hjá minnihlutahópura. Daryl Jones, einn öldungadeildarþingmanna Flórída sem er svartur, líkti Bush við þá Milosevic og Hussein í byijun vikunnar þegar hann tilkynnti ríkisstjóranum bréfleiðis að svartir löggjafar myndu ekki mæta til fundar við Bush til að ræða þá ákvörðun hans að ógilda lagagreinina. En hún hefur tryggt minnihlutahópum ákveðið hlutfall ríkisstarfa og aðgang að ríkisháskólum frájivf á áttunda áratugnum. Ákvörðun Bush felur í sér að Flórída er fyrst ríkja Bandaríkjanna til að ógilda lagaákvæðið af fúsum og fijálsum vilja, en áður hefur þremur öðrum ríkjum ver- ið fyrirskipað að afnema ákvæðið. Að mati Bush er lagaákvæðið gamaldags og ekki lengur viðeigandi. Ríkisháskólum beri þess í stað að tryggja að þeir sem sýni bestan námsárangur njóti háskólanáms án tillits til kynþáttar. Andstæðingar ríkisstjórans telja hins vegar enn fulla þörf á lagaákvæðinu til að tryggja minnihluta- hópum aukinn aðgang að bandaríska menntakerfinu. 10.000 manns inótmæltu ákvörðun Bush fyrir utan þinghúsið í Tallahassee í Flórída 7. mars sl. og voru mannréttindaleiðtogar á borð við Jesse Jackson og Martin Luther King III í hópi þeirra sem þar mótmæltu ákvörðun ríkisstjórans. dlvöru þrívíddarhönnun. Kennt er á 3D Studio Max sem er eitt öflugasta þrívíddarfbrritið á markaðinum í dag og læra nemendur m.a. að vinna með líkanagerð, efnisáferðir, myndsetnirtgu og hreyfimyndagerð fyrir sjónvarp og filmur. Námskeiðið er 120 klst. eða 180 kennslustundir. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá 18 - 22 og á laugardögum frá 13:15 - 17:15. Næsta nám- skeið byrjar 21. mars og lýkur 3. júní. StefAii R. Porsson Ég frétti hjá vini mínum að NTV væri að kenna á 3D studio MAX. Þar sem ég er tækniteiknari og notkun þrívíddarforrita fer vaxandi á teiknistofum, nýtist þetta nám mjög vel í mínu starfi og frekara námi. Það er vel staðiðað kennslu og eru námsgögn og öll aðstaða til fyrirmyrtdar. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði fyrir alla sem hafa áhuga á Þrívíddarvinnu. Upplýsingdr og ivmritxm í sínuun 544 4500 Og 555 4980 ntv Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfiröi - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hlfðasmári 9 - 200 Kópavogi - Slmi: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Haimasiða: www.ntv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.