Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formaður Öryrkja- bandalagsins G/WUAÍO * Ahugamenn um bættar vegasamgöngur við Vopnafjörð Hreppsnefnd beiti sér fyrir vegi um Hofsárdal SEX einstaklingar í Vopnafirði, áhugamenn um bættar vegasam- göngur, hafa sent hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps áskorun um að standa fast við fyrri samþykktir um uppbyggingu heilsársvegar frá hringvegi til Vopnafjarðar. Telja þeir það einu raunhæfu leiðina til að tengjast bæði öðrum hlutum Austurlands og Norðurlandi. I bréfi sexmenninganna er á það bent að verði lagður vegur inn Hofsárdal verði hann í mestri hæð þar sem hann tengist hringvegin- um. Ennfremur styttist leiðin til Egilsstaða um 41 kílómetra miðað við núverandi veg yfír fjallgarða. Þeir vekja einnig athygli á því að upplýsingar um kostnað við jarð- göng undir Hellisheiði hafi skolast til í umræðunni að undanförnu. Ljóst sé að verði borað þurfi að tengja göngin við þjóðvegakerfið og sé þar um að ræða að minnsta kosti jafn langa leið að austanverðu og vegur um Hofsárdal inn á Há- reksstaðaleið, auk þess sem leggja þyrfti í einhvern kostnað við veg- inn Vopnafjarðarmegin við Hellis- heiði. Telja þeir að heildarkostnað- ur við jarðgöng og vegtengingar færi hátt í þrjá milljarða í stað þeirra tveggja milljarða sem mest hafi verið í umræðunni. Sátt við ófærar tengingar við þjóðvegi í 6-8 vikur á ári? „Skorum við á hreppsnefnd að hefja af krafti baráttu fyrir því að tengingu um Hofsárdal, við hring- veg, verði flýtt svo Vopnafjörður komist í nútímavegasamband við Norður- og Austurland sem allra fyrst,“ segir í bréfinu. „Teljum við að vinna við umhverfismat geti haf- ist þegar á komandi sumri, ef vilji er til. Miðað við það gæti vegur með bundnu slitlagi frá Vopnafirði inn á Háreksstaðaleið verið til- búinn 2004-2005, í stað 2010 eins og nú er áætlað. Að iokum spyrjum við: Er háttvirt hreppsnefnd sátt við að Vopnfirðingar búi við það næstu 10 árin að hafa þrjár veg- tengingar við íslenska þjóðvega- kerfið sem allar eru ófærar flestum bílum vegna aurbleytu 6-8 vikur á ári?“ Undir bréfið rita: Alexander Árnason, Baldur H. Friðriksson, Helgi J. Þórðason, Sigþór Þor- grímsson, Reynir Árnason og Víg- lundur Pálsson. N Y LITAPRENTVÉL HÁGÆÐA FILMUÚTKEYRSLA HÖNNUN OG UMBROT FLJÓT OG GÓÐ AFGREIÐSLA PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA FILMUGERÐ: • mjög hraövirk útkeyrsla • stæröir allt aö 55Q mm x 609 mm • Rastaþéttni allt aö 200lpi • upplausn allt aö 3000 dpi • útskot í A2 stæröum • útskotnar filmur geta komiö tilbúnar punchaöar • styöur PostScript Level 1 og 2. PostScript 3. PDF 1.2. TIFF 6.0, EPS og JPEG • möguleiki á útkeyrslu í slembirasta OFFSETPRENT ehf. AUÐBREKKU B • 200 KÓPAVOGUR • SÍMAR 564 6020 - 564 6021 • FAX 564 6022 Skólanemar heimsækja Alviðru Til móts við vorið Hjördís B. Ásgeirsdóttir LANDVERND rek- ur umhverfis- fræðslusetrið Al- viðru við Sogsbrú í Ölfusi, þar verður frá deginum í dag tekið á móti grunnskóla-nemum til umhverfisfræðslu eins og tíðkast hefur undan- gengin ár. Hjördís Ás- geirsdóttir er umsjónar- maður Alviðra. Hún var spurð hvers konar fræðslu grunnskóla- nemar fengju í heimsókn sinni til Alviðru. „Dagskrána, sem við bjóðum upp á nú í vor, köllum við Til móts við vorið. Hugmyndin með þessari dagskrá er að leyfa grunnskólnemum að upplifa náttúruna og njóta útiveru - eða eins og einhver sagði; Við reynum að ná til barnanna áður en höfuðið er komið of fjarri jörðinni. Við skoðum hvernig náttúran vakn- ar til lífsins á vorin, við skoðum skóginn og hvaða breytingar eiga sér stað í honum, við skoð- um mismuninn á ræktuðum skógi og upprunalegum skógi og reynum að gera okkur grein fyrir hvaða gagn bæðj land og fólk hefur af skógi. Á þessum tíma leggjum við megináherslu á skóginn en við höfum auðvitað opin augu fyrir öllu sem við sjá- um, við skoðum fjöllin, árnar, hraunið, dýralíf; fugla og smá- dýr.“ -Hvað er Alviðra búin að starfa lengi? „Fræðslusetrið var stofnað upp úr 1980 og síðari ár hefur fræðsla verið með þessum hætti m.a. Það er nýjung í því sem við erum að gera núna, að bjóða skólum að heimsækja í leiðinni fjós, fjárhús eða garðyrkjustöð - eða taka þátt í landgræðslu- verkefni og planta trjám. Með okkur í þessum verkefnum er Ferðamannafjósið á Laugabökk- um, bændur á Bíldsfelli, Garð- yrkjuskóli ríkisins og Land- græðslan.“ -Hvað stendur svona heim- sókn lengi yfir? „Þessar heimsóknir geta verið allt frá dagsheimsókn, sólar- hringsheimsókn eða jafnvel í lengri tíma. Lengri tími gefur auðvitað meira svigrúm og meira er þá hægt að gera sér til skemmtunar. Við reynum alltaf að flétta inn í dagskrána frjáls- um tímum og gera þá eitthvað skemmtilegt. Aðsóknin á Al- viðru hefur farið vaxandi - þeir sem vilja bóka sig geta gert það í síma 482-1109 og nú er líka hægt að bóka sig á Netinu; net- fang Landverndar er www.land- vernd.is.“ -Er fræðslusetrið starfandi allt árið? „Þessi dagskrá stendur til loka maí, síðan tekur við sum- ardagskrá með stutt- um námskeiðum þar sem höfðað er til al- mennings. í fyrra var m.a. á sumardagskránni plöntugrein- ing, fuglaskoðun, jarðfræði, sorphirða, kransagerð úr nátt- úralegum efnum, lífrænt líferni, farið var í jónsmessugöngu og skógargöngu um verslunar- mannahelgina og sitthvað fleira var gert. Þessi dagskrá var alla laugardaga í fyrra og eitthvað svipað verður á laugardagsdag- skránni í sumar. I september og október tökum við aftur á móti ► Hjördís B. Ásgeirsdóttir fædd- ist í Reykjavík 16. janúar 1957. Hún lauk prófi frá Garðyrkju- skóla ríkisins árið 1978 og hefur lengst af stundað garðyrkju. Nú starfar Hjördís hins vegar sem umsjónarmaður Alviðru við Sog- ið í Ölfusi, en Alviðra er um- hverfisfræðslusetur Landvernd- ar. Hjördís er gift Pétri Þorvaldssyni garðyrkjubónda og eiga þau þrjú böm. grunnskólanemum og þá hefur aðaláhersla verið lögð á plöntu- greiningu auk útivistar og þess að njóta náttúrannar.“ -Hvað með mat og annað sem fólk þarfnast? „Á Alviðra er ágætis eldhús og þar geta menn fengið að út- búa sér mat. Allir koma með mat með sér en þeir sem lengur dvelja elda gjarnan." - Hvað er húsnæðið stórt sem þið hafíð til umráða? „Þetta er stór sveitabær sem var búið í fram yfir árið 1970 og þar er búið að útbúa ágætis gistirými á efri hæð og niðri höfum við tvær góðar stofur auk snyrtiaðstöðu og fleira sem til- heyrir. Það er Árnessýsla og Landvernd sem eiga Alviðru og Öndverðarnes, sem liggur hand- an við Sogið, allt þetta svæði er notað til gönguferða og um- hverfisfræðslu auk þess sem við heimsækjum oft Þrastaskóg sem er land Ungmennafélags íslands. Þess má geta að á Al- viðra er fjós og hlaða sem til stendur að nýta meira í fræðslu- starfinu framvegis. Þar höfum við m.a. kanínur sem gestir okk- ar hafa ánægju af að hitta." - Hver borgar rekstur Al- viðru? „Alviðra er rekin fyrir frjáls framlög aðildarfélaga Land- verndar, auk þess sem þeir, sem koma til okkar, greiða 500 krón- ur hver fyrir dags- heimsókn og 1000 krónur fyrir sólar- hringsheimsókn, gjöldin sem þannig innheimtast eru um það bil þriðji hluti rekstrargjaldanna." - Hvað heimsóttu ykkur margir í fyrra? „Á annað þúsund grunnskóla- nemar heimsóttu Alviðru í fyrra auk leikskólanema og þeirra sem sóttu sumarnámskeið og bókanir núna gefa okkur tilefni til að álykta að heimsóknum fjölgi talsvert á Alviðru í ár, enda er Alviðra náttúruperla á góðum stað sem vert er að heimsækja." Skoðum hvernig nátt- úran vaknar til lífsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.