Morgunblaðið - 06.04.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ari Edwald segir aukinn kostnað vegna aukins fæðingar-
orlofs óháðan skuldbindingum Atvinnuleysistryggingasjóðs
> .
Anesrur Kostnaour um
2,5 milljarðar króna
HÆKKA þyrfti tryggingagjald, sem
fyrirtæld greiða, um 0,85% ef laun-
þegum yrðu greidd 80% af launum í
fæðingarorlofi eins og lagafrumvarp
ríkisstjómarflokkanna um aukin
réttindi tií fæðingarorlofs gerir ráð
fyrir. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
að árlegur kostnaður vegna aukinna
réttinda í fæðingarorlofi sé kringum
2,5 milljarðar króna sem dreifist á
alla launagreiðendur, einkafyrir-
tæki, sveitarfélög og hið opinbera.
Tekin var saman skýrsla á vegum
Samtaka atvinnulífsins og Alþýðu-
sambands Islands um mat á kostnaði
við aukinn rétt foreldra til foreldra-
og fæðingarorlofs. Þar kemur m.a.
fram að kostnaður við nýjan mánuð í
fæðingarorlofí karla sé helmingi
hærri en við fæðingarorlof kvenna.
Myndi nýr mánuður í fæðingarorlofi
feðra hækka tryggingagjald um tæp
0,2% af stofni en fæðingarorlofsmán-
uður mæðra kostar 0,11%.
Ari Edwald segir að með nýjum
reglum sé ekki verið að létta skuld-
bindingum af atvinnuh'finu á sviði at-
vínnuleysisstrygginga. „Kostnaður
fellur alltaf til þegar fólki er lofað
nýjum réttindum sém kosta peninga
0g í því sambandi skiptir ekki máli úr
Morgunblaðið/Jim Smart
Sól í Sóltúni
hvaða vasa þeir fjármunir koma,“
sagði Ari en lagði jafnframt áherslu
á að ekki mætti skilja orð hans svo að
atvinnurekendur legðust gegn öllum
breytingum á fæðingarorlofi. Það
rétta væri að atvihnurekendur hefðu
ásamt ASÍ átt frumkvæði að umræð-
um um bætta stöðu barnafólks á
vinnumarkaðnum, sem meðal annars
hafi að markmiði að jafna rétt starfs-
manna á einkamarkaði og hjá hinu
opinbera. Á aðalfundi VSI í maí 1998
hefði því verið lýst yfir að atvinnu-
rekendur myndu verða tilbúnir til að
standa að breytingum í tengslum við
þá kjarasamninga sem nú standa yf-
ir, með fyrirvara um að samkomulag
næðist um fjármögnun og fyrir-
komulag. Að sjálfsögðu væri hér um
að ræða gríðarlegt átak í fjölskyldu-
og jafnréttismálum en það væri al-
gjört lykilatriði að ræða þegsar
breytingar á grundvelli þess kostn-
aðar sem af þeim hlytist.
Þrengir svignim
atvinnulífsihs
„Það er líka niikilyægt að menn
geri sér grein fyrir' því að þetta
þrengir svigrúrn atvinnulífsins til ”að
taka á sig aðrar kostnaðarhækkanir.
Kostnaðurinn samsvarar 0,85%
launahækkun og það er sú hækkun
sem breytingin felur í sér fyi'ir fyrir-
tækin þegar upp er staðið." Ari sagði
það skoðun SÁ að rétt væri að safnað
yrði fjármunum í Atvinnuleysis-
tryggingasjóð þegar atvinnuleysi
væri lítið og samtökin því lagst gegn
því á undanförmum misserum að
lækka framlag til sjóðsins. Þannig
myndi hann hafa sveiflujöfnunar-
áhrif ef atvinnleysi eykst. „Ef menn
snúa baki við þeirri hugsun getur
komið til þess að hækka þurfi álögur
þegar atvinnuleysi vex með þreng-
ingum í efnahagslífinu og það yrði
væntanlega til þess að auka enn á
kreppuna á þeim tíma.“
Þá benti Ari á að kostnaður félli
einnig á fyrirtækin vegna þeirrar
hugmyndar frumvarpsins að foreldr-
ar fái 13 vikna launalaust orlof sem
taka má áður en bam nær 8 ára
aldri. „Lengri fjarvera starfsfólks,
hvort sem er í fæðingarorlofi eða
launalausu foreldraorlofi skapar
þrýsting á vinnumarkaðinn og leiðir
til aukins kostnaðar. Ekki síst þegar
umframeftirspum er eftir vinnuafli
eins og nú er. Atvinnulífíð finnur fyr-
ir því að foreldrar fá hvort um sig
leyfi til ólaunaðra fjarvista af vinnu-
markaðnum í 13 vikur hvort.“
LÓAN hefur Iöngum verið kölluð vorboði og þótt
standa sig vel í því hlutverki sínu. Annar vorboði,
sem orðið hefur öllu færri skáldum yrkisefni, er
biðröðin í bflaþvottastöðina. Svona var umhorfs í
Sóltúni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar
leið um.
Fæðingnrorlofsréttindi
í dag: Verður samkvæmt væntanlegu lagafrumvarpi:
1 mánuöur fyrir konur 2 vikur fyrír karia 5 mánuöir skiptanlegirmHli foreldra 3 mánuður fyrir konur 3 mánuöur fyrir karla (í áföngum) 3 mánuðir sameiginlegir
Oriof tekiö á 6 mánuöi fyrir starfsmenn á almennum vinnumarköi, en 12 mánuði fyriropjnbera starfsmenn Oriof tekið á 18 mánuöum
Heimavinnandi konur og kartar fá 33.157kr. i fæðingastyrk 80% heildariauna (meðaltal síöustu 12 mán.) greidd Fólk 125-49% starfi fær aldrei lægri greiðslu en 54.021 kr. Fólk í 50-100% starfi fær aldrei lægri greiðslu en 74.867 kr.
Engar greiöslur fyrir heimavinnandi karta V Greiddar 33.157 kr. fyrir heimavinnandi konur og þá som em í minna en 25% starfi Greiddar 54.021 kr. fyrir þá sem eru í 25-49% starfi Greiddar 74.867 kr. fyrir þá sem eru í 50-100% starfi
Greitt f lífeyrissjóð af fæðingaroriofsgreiöslum Starfstengd róttindi ávinnast áfram i oriofi
Opinberir starfsmenn fá laun og lifeyrisgreiðslur 13 vikna launalaust foreldraorlof þat til bam verður 8 ára Komi I meðgöngu tryggð greiðsla í leyfi ef ekki verður komið við breytingum á vmnuskilyrðum eða vinnutima.
Frumvarpi um fæðingarorlof hugs-
anlega dreift á Alþingi á morgun
Meiri sveigjan-
leiki með aukn-
um réttindum
AUKINN réttur karla til fæð-
ingarorlofs, sem lagafmmvarp
ríkisstjómarflokanna gerir ráð
fyrir, kemur til framkvæmda í
þremur áföngum. í dag njóta
karlar tveggja vikna fæðingaror-
lofs en í ársbyrjun 2003 verða
þeir komnir með þriggja mánaða
rétt auk hinna sameiginlegu
þriggja mánaða sem skipta má
milli foreldra. Verið er að leggja
lokahönd á frágang frumvarpsins
og er hugsanlegt að því verði
dreift á Alþingi á morgun.
Verði framvarpið samþykkt á
þessu þingi koma ákvæði þess til
framkvæmda í byrjun næsta árs.
Þá munu karlar öðlast rétt til
eins mánaðar fæðingarorlofs. I
ársbyrjun 2002 verða mánuðirnir
orðnir tveir og síðan þrír frá 1.
janúar 2003. Frá þeim tíma hafa
foreldrar hvort um sig þar með
þriggja mánaða fæðingarorlof.
Um leið og lögin taka gildi um
næstu áramót geta foreldrar hins
vegar skipt á milli sín þremur
mánuðum og karlar geta þar með
lengt orlof sitt meira frá því sem
verið hefur ef foreldrum sýnist
svo. Gæti þá faðir til dæmis tekið
alls fjóra mánuði og konan þrjá.
Orlof lengist um þrjá mánuði fyr-
ir hvert barn sem fæðist umfram
eitt og geta foreldrar skipt því að
vild en í dag hefur sú framleng-
ing eingöngu verið fyrir móður-
ina.
Heimavinnandi karlar fá með
nýju lögunum einnig rétt á fæð-
ingarstyrk. Nemur hann 33.157
orlofi miðað við fullt nám.
Greiðslur fyrir námsmenn og
heimavinnandi koma úr rílris-
sjóði en aðrar greiðslur vegna
fæðingarorlofs úr nýjum sjóði,
Fæðingarorlofssjóði sem stofn-
aður verður þegar lögin hafa ver-
ið samþykkt. Er ætlunin að hefja
á þessu ári söfnun í þann sjóð
með hlutdeild í tryggingagjald-
inu.
Fæðingarorlof skipulagt
fyrir fæðingu barns
Gert er ráð fyrir að foreldrar
skipuleggi fyrir fæðingu hvemig
þeir muni haga töku íæðingar-
orlofs og hafi um það samráð við
atvinnuveitanda. Nýja kerfíð
gerir ráð fyrir talsverðum sveigj-
anleika en það ber að taka á 18
mánaða tímabili í stað sex mán-
aða áður á almennum markaði og
12 mánaða hjá hinu opinbera. Er
þannig gert ráð fyrir að fólk sem
gegnt hefur fullu starfi geti ef til
vill samið um að vinna hálft starf
og hluti orlofs eða það allt tekið á
þann hátt.
Einstæðar mæður fá með nýja
kerfiniksex mánaða fæðingaror-
lof ein^. og þær njóta í dag en
þær fá ekki hlutdeild í þremur
sameiginlegu mánuðunum með
föður barnsins.
Hægt verður að taka þrettán
mánaða launalaust foreldraorlof
sem lögin gera ráð fyrir að hvort
foreldri um sig fái. Er þá gert
rýð fyrir að samið sé um það við
’ yinnuveitanda en þetta orlof má
krónum á mánuði og er saæi " ' taka þar til barn verður 8 ára
styrkur og heimavihnandi’ klihuf, ^gamalt. Gildir það vegna barna
fá í dag. Þessi réttindi karlahpa,. -» sem fæðst hafa frá 1. janúar 1998
aukast einnig í prepum. og geta foreldrar samið um slíkt
Námsmenn fá eins' og. áður orlof þegar eftir samþykkt laga-
greiddar 74.867 kr. í fæðingar- frumvarpsins.
fermingargjof
Lögbann sett á ekringla.is
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
hefur lagt lögbann við því að Gagn-
virk miðlun hf. noti lénið ekringla.is
fyrir verslunarmiðstöð á veraldar-
vefnum. Húsfélagið Kringlan, Kringl-
unni 8-12, lagði fram lögbanns-
kröfuna og lagði fram 20 milljóna
króna tryggingu vegna lögbannsins.
Auk þess að mega ekki skrá lénið
er Gagnvirkri miðlun gert að afskrá
hjá Intís öll lén sem tengjast
ekringla.is.
I lögbannsúrskurði vísar sýslu-
maðúr til 1. mgr. 24. gr. laga nr. 31/
1990 um kyrrsetningu, lögbann ofl.,
en þar segir meðal annars: „Lögbann
má leggja við byrjaðri eða yfirvofandi
athöfn einstaklings eða fyrirsvars-
manns félags eða stofnunar ef gerð-
arbeiðandi sannar eða gerir sennilegt
að athöfnin bijóti eða muni bijóta
gegn lögvörðum rétti hans...“
Undrandi á úrskurðinum
Ágúst Ólafsson framkvæmda-
stjóri Gagnvirkrar miðlunar segist
undrandi á úrskurðinum. „Við mun-
um að sjálfsögðu hlíta honum og höf-
um hætt notkun á ekringla.is. Þar af
leiðandi getum við ekkert gert í
markaðssetningu á meðan mála-
reksturinn stendur yfir. Húsfélagið
Kringlan þarf að höfða mál til stað-
festingar lögbanninu og lögmenn
okkar hafa óskað eftii' flýtimeðferð á
því.“segirÁgúst. 'VG
Ágúst segist þess, fúllviss atl úr-
skurðinum verði hnekkt. „Það er
fjarri því að netverslunarmiðstöð
ógni á nokkurn hátt starfsemi Hús-
félagsins Kringlunnar. Starfsemi
fyrirtækjanna er alls óskyld,“ segir
hann. Hann segir líklegt að lögbann-
ið byggi á mistökum, sem verði leið-
rétt fyrir héraðsdómi.
Ágúst segir að orðið kringla sé
orðið viðurkennt og notað í íslensku
máli sem heiti á verslunarmiðstöð.
„Þess vegna getur enginn átt einka-
rétt á því orði. Nokkur skráð vöra-
merki hafa endinguna „kringlan“,
svo sem Sjónvarpskringlan, Borgar-
kringlan, Netkringlan og Heims-
kringlan. Ekki er vitað til þess að
Húsfélagið Kringlan hafi gert at-
hugasemd við þau fyrirtækjaheiti.
Svo er auðvitað spuming hvort íbúar
og fyrirtæki við Rringluna í Reykja-
vík þurfi ekki að fá sér nýtt heimilis-
fáng,“ segir Ágúst.
Fjárhagslegt tjón
Að sögn Ágústs verður Gagnvirk
miðlun að öllum líkindum fyrir fjár-
hagslegu tjóni vegna lögbannsins.
„Við höfum lagt mikla peninga í
markaðssetningu og auglýsingar, en
hugsanlega getum við ekkert aðhafst
frekar fram að næstu mánaðamót-
um, þótt vinna við vefhönnun og
samskipti við fyrirtæki haldi áfram,“
segir hann, „þess vegna getur farið
svo, ef við vinnum málið, að við eig-
um fjárhagslega kröfu á Húsfélagið
Kringluna vegna þessa tjóns.“