Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
AKUREYRI
Leiðarþing í Háskólanum á Akureyri um dyggðir og lesti Islendinga
Vinnusemi og sjálfsbjargarvið-
leitni helstu aldamótadyggðir
Vinnusemi, dugnaður og sjálfsbjargar-
viðleitni eru helstu aldamótadyggðir Islend-
inga ef marka má könnun sem gerð
hefur verið.
Morgunblaðið/Kristján
Sigríður Halldórsdóttir prófessor við Háskólann á Akureyri gerði grein
fyrir könnun sinni á helstu dyggðum og löstum Islendinga við aldamót á
leiðarþingi sem efnt var til í háskólanum á dögunum. Fremst situr Krist-
ján Kristjánsson prófessor sem gerði grein fyrir helstu kenningum um
dyggðir og lesti.
SIGRÍÐUR Halldórsdóttir, prófess-
or við Háskólann á Akureyri, kynnti
niðurstöðumar á leiðarþingi sem
haldið var vegna undirbúnings að
ráðstefnu um framtíðartrú sem hald-
in verður næsta sumar. Þingið var
haldið í húsakynnum Háskólans á Ak-
ureyri um helgina.
Auk Sigríðar stóðu þau Kristján
Kristjánsson, prófessor við Háskól-
ann á Akureyri, og sr. Sigríður Guð-
marsdóttir að gerð könnunarinnar,
en Sigriður HaUdórsdóttir vann úr
henni og tók saman. Leitað var til um
70 kvenna og karla og fólk beðið að
gera nokkurs konar þjóðargreiningu
um helstu dyggðir og lesti íslendinga
við aldamót.
Vinnusemi, dugnaður og
sjálfsbjargarviðleitni voru þær
dyggðir sem flestir nefndu í fari þjóð-
arinnar og gjarnan nefnt að íslend-
ingar væru duglegir því það væri
þeim dýrmætt að bjarga sér sjálfír.
Þessar dyggðir eru grundvöllur hinn-
ar efnalegu velferðar, en geta einnig
haft neikvæð áhrif á fjölskyldulíf og
mannleg samskipti. íslendingar búa
yfír ríku sjálfstrausti og eru ósmeykir
að takast á við stór verkefni. „íslend-
ingar eru duglegir og vinnusamir,
gjaman áhlaupamenn sem fram-
kvæma það sem þeim dettur í hug án
þess að hafa mörg orð um það,“ sagði
Sigríður og vitnaði í einn grein-
andann. Reyndar væri slíkt nauðsyn-
legt í fámennu samfélagi þar sem
hver einstaklingur þyrfti oft að vinna
verk sem meðal fjölmennari þjóða
TRILLUR
• Léttu þér vinnuna
• Gerðu langar vega-
lengdir stuttar og
þungar vörur léttar
• Sterk plastgrind og
öflug hjól með legum
SOCO trillur
- liprar og léttar -
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
væri skipt á fleiri hendur. Sú dyggð
sem næst kom í röðinni var bjartsýni,
áræði og þrautseigja, en það er ríkt í
fari þjóðarinnar að telja sér alla vegi
færa. Þótt illa gangi um hríð er ís-
lendingum ekki eiginlegt að gefast
upp, heldur er hugsunarhátturinn um
að betur gangi næst ríkjandi. Án
þessara eiginleika landsmanna væri
landið sennilega mannlaust um alda-
mót vegna harðbýlis. Þrautseigja og
sterk sjálfsbjargarhvöt sem auð-
kennt hafa íslenska þjóð þykir enn rík
meðal landsmanna.
Islendingar eru framsæknir og
standa öðrum þjóðum fyllilega á
sporði á fjölmörgum sviðum mennt-
unar, tækni og vísinda og skara jafn-
vel framúr þótt fámennir séu, en fróð-
leiksfýsn og framsækni voru að mati
þátttakenda í þriðja sæti yfir dyggðir
landsmanna. Þótt íslendingar geti
ekki gengið í takt og séu að mörgu
leyti agalausir þá eru þeir skapandi
og aðlagast hratt nýjum hugmyndum
og aðstæðum. Fróðleiksfysn gerir að
verkum að íslendingar eru opnir fyrir
nýjungum og eiga auðvelt með að til-
einka sér nýja tækni og lífsstfl. Þekk-
ingarþorsta og vilja til að menntast
fylgir að almennt eru landsmenn vel
upplýstir, jákvæðir og víðsýnir.
Réttlætiskennd, hjálpsemi og sam-
kennd eru ríkur þáttur í fari Islendinga
og sér þess víða stað. Þessir eiginleikar
voru oft neíhdir í könnuninni og reynd-
ar nefndu sumir að aðaldyggð íslensku
þjóðarinnar væri samhygðin sem
greinilega kæmi fram þegar á bjátaði.
Þá sagði Sigríður að nefnt hefði verið í
greiningunni að löng hefði væri fyrir
því meðal þjóðarinnar að hlæja að vald-
höfúm og öllum uppskafningshætti
vegna nálægðarinnar, íslendingar
væru ófeimnir við yfirvöld og sýndu á
stundum höfðingjadirfsku.
í fimmta sæti yfir helstu dyggðir
AKUREYRARBÆR og TölvuM-
yndir hafa undirritað samninga um
kaup og innleiðingu á hugbúnaðar-
lausnum. Um er að ræða fagkerfi
fyrir leikskóla og sérhæfða lausn
fyrir félagssvið Akureyrarbæjar.
Leikskólakerfið hefur verið sett
upp á 25 leikskóladeildum á Akur-
eyri. Markmiðið er að upplýsingar
um leikskólaböm verði aðgengilegar
fyrir fagfólk og foreldra, skilningur
á þörfum barnanna aukist og við-
brögð við frávikum verði skjótari.
Innra starf leikskólans verður
íslendinga var ræktarsemi við tung-
una, menninguna, landið og fólkið.
Nefndu margir sterk ættartengsl,
ættfræðiáhuga og vilja til að þekl$ja
uppruna sinn en allt _þetta skipti Is-
lendinga miklu máli. Ast á fósturjörð-
inni og tungunni væru líka dyggðir
sem margir meta mikils í fari þjóðar-
innar.
Friðsemi, æðruleysi og umburðar-
lyndi voru einnig nefndar meðal mik-
ilvægustu dyggða landsmanna, það
væri okkur ákaflega fjarlægt að grípa
til vopna og æðruleysið einkenndi
hina íslensku þjóð. íslendingar hefðu
tilhneigingu til að taka lífinu eins og
það kemur, þeir lifa við óblíða náttúru
og stöðuga ógn vegna yfirvofandi
náttúruhamfara.
Heiðarleiki, hreinskiptni og lög-
hlýðni voru þær dyggðir sem lentu í
sjöunda sæti yftr helstu dyggðir lands-
manna nú um stundir. Það viðhorf væri
almennt ríkjandi að ekki skuli blekkja
náungann eða hafa af honum fé með
óheiðarlegum hætti. Blikur þóttu þó á
lofti í þessum efnum og nefnt að það
yrði æ almennara viðhorf að ekkert
væri að því að hafa fé af hinu opinbera,
svo sem með drætti undan skatti.
Aukin mannúð og virðing íyrir
mannréttindum eru dyggðir sem
sumum þykja hafa vaxið í fari þjóðar-
innar á öldinni og nefnt að þeir sem
undir högg hafa átt að sækja njóti nú
markvissara því hægt verður að
sinna hverju barni betur, gerð for-
eldraskýrslna verður markvissari og
foreldrar geta fylgst betur með
stöðu barnanna.
í leikskólakerfinu eru t.d. grunnar
að líkams- og hreyfiþroskamati,
mati á vitsmunaþroska og félags-
þroska. Auk þess eru í kerfinu um-
sóknareyðublöð og vistunarsamn-
ingar, foreldraskýrslur, skýrsla til
Hagstofu og upplýsingar til sveitar-
félaga, auk bóka-, söngva- og upp-
skriftasafns. Kerfið geymir einnig
betra atlætis en fyrr á tíðum, þegar
fólki, t.d. öldruðum og öryrkjum, var
sýnd lítilsvirðing og það jafnvel beitt
harðræði.
fslendingar eru sjálfstæðir
og félagslyndir
Sjálfstæði, metnaður og stolt eru
einkennandi í fari Islendinga og með-
al dyggða sem þjóðina prýða og
nefndar voru, að sögn Sigríðar, var að
Islendingar leggðu sig jafnan fram
við nám og störf í útlöndum og ykju
þannig á hróður þjóðarinnar í al-
þjóðasamfélaginu. Almennt væni Is-
lendingar stoltir af þjóðemi sínu,
landi, tungu og menningararfi og
færu yfirleitt vel með það.
Félagslyndi, gestrisni og gaman-
semi þykja einnig einkenna lands-
menn og gæti skýrst af því að hver og
einn einstaklingur telur sig nokkurs
virði. Að margra áliti eru íslendingar
gestrisnir og góðir heim að sækja, eru
glaðbeittir og gamansamir, hafa hæfi-
leika til að sjá hið spaugilega í sjálfum
sér, aðstæðum og mótbyr.
Vinnuþrælkun skuggahlið
vinnuseminnar
Þegar Sigríður hafði gert grein fyr-
ir helstu dyggðum Islendinga við
aldamót sneri hún sér að löstunum,
en helsti löstur íslendinga á þessum
tímamótum þykir vera vinnuþrælkun
lög og reglugerðir. Samhliða samn-
ingi þessum hafa TölvuMyndir gefið
Háskólanum á Akureyri eintak af
kerfinu og hefur Sigríður Síta Pét-
ursdóttir veitt kerfinu viðtöku.
A Félagssviði Akureyrarbæjar er
gríðarlega umfangsmikil starfsemi.
Verkefni sviðsins eru m.a. ráðgjafar-
þjónusta við einstaklinga, t.d. í skól-
um, umsjón með málefnum fatlaðra,
og of mikið lífsgæðakapphlaup, en
skuggahlið vinnuseminnar er að
landsmönnum hættir til að vinna of
mikið og þeir eiga auðvelt með að
týna sér í lífsgæðakapphlaupinu.
Oraunsæi, eyðslusemi og óhóf voru
einnig nefnd en flestir ættu auðvelt
með að eyða um efni fram og nefnt
var að sögnin að spara gæti hreinlega
glatast úr málinu héldi áfram sem
horfði. Þá vai' nýjungagimi, rót- og
agaleysi einnig neíht sem löstur á
þjóðinni, en margh- væru svo mótt-
tækilegir íyrir nýjum hugmyndum að
þær væru á stundum gleyptar hráai'.
Hvað rótleysið varðar var eilíft ráp
um landið nefnt, tregða manna til að
binda sig við einn landshluta væri
óútskýranleg öðru vísi en sem erfða-
bundinn fiðringur. Ráp hvað varðar
hugmyndafræði og í siðferðilegum
efnum væri líka mikið. Þeir sem
skiptu um stefnu í grundvallaratrið-
um með vissu millibili væra taldh' í
takt við tímann.
Kæruleysi er hin myrka
hlið æðruleysisins
Forræðishyggja, óhófleg með-
virkni og skortur á tilhtssemi og kurt-
eisi eru á meðal lasta íslendinga, þeh'
blönduðu sér stundum óhóflega í má-
lefni náungans og áhugi á slúðri væri
helst til mikill. Þá voru á meðal lasta
nefndir blind höfðingahollusta, laus-
læti og guðleysi, en blind hollusta
gagnvart misvitrum ættarhöfðingj-
um eða pólitískum höfðingjum getur
kynt undh' öðrum löstum eins og
skammsýni í stjómarfari og misbeit-
ingu valds á ýmsum sviðum hins ís-
lenskaþjóðlífs.
Kæruleysi, fyrirhyggju- og dóm-
greindarleysi vora og nefnd sem lest-
ir í fari þjóðarinnar, en þannig birtist
hin myrka hlið æðruleysisins og vh'ð-
ist fara vaxandi í firringu og hraða
nútímans. Þá nefndu menn ólög-
hlýðni og skort á orðheldni sem löst,
en mörgum fannst orðheldni á undan-
haldi í íslensku þjóðlífi. Fordómar,
ójafnvægi í tengslum kynjanna og
nánasarháttur í samfélagi þjóðarinn-
ai' voru líka nefnd meðal lasta. Þá
kom fram að þótt Islendingar væru
sjálfstæðir, metnaðarfullir og stoltir
hefðu þessir eiginleikar líka myrkar
hliðar eða eigingirni, framagirni, öf-
undsýki, virðingarleysi og hroka. Is-
lendingar geta verið glaðir á góðri
stund, en skuggahlið þess er skemmt-
ana- og vímufíkn sem nefnt var sem
einn af löstum þjóðarinnar, skemmt-
anafíkn og kröfur um hnökralausa til-
veru væru afleiðing ósjálfstæðis og
einmanaleika sem hlytust af trúleysi
og slöku fjölskylduheilbrigði.
heilsugæsla og búsetuúrræði, auk
íþrótta- og tómstundamála, menn-
ingai'- og skólamála. Hlutverk fé-
lagsmálakerfisins er að halda utan
um hluta af þessari starfsemi í fag-
legu og fjárhagslegu tilliti.
Hjá TölvuMyndum starfa um 180
manns, á Akureyri starfa nú 11 tölv-
unar- og kerfisfræðingar auk sjávar-
útvegsfræðings og skrifstofustjóra.
Leikskólakerfi sett upp í 25 leik-
skóladeildum á Akureyri
Upplýsingar um
leikskólabörnin verði
aðgengilegar
Morgunblaðið/Kristján
Samningar TölvuMynda og Akureyrarbæjar undirritaðir. F.v. Garðar
Már Birgisson frá TöIvuMyndum, Harpa Agústsdóttir, Guðrún Sigurð-
ardóttir, Gunnar Gislason og Karl Guðmundsson frá Akureyrarbæ.
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is
i