Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 18
18 FIMMTIJDAGIJR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HORPU
TILBOÐ
Gæða innimátning
GLJÁSTIG
10
Ódýrtl
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á 4 lítra dós
1.990kr.
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BJEJARUND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REVKJAVfiK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFBA 44, REVKJAVfiK.
Sími 567 4400
MáLRIKBAIVERSLtRIB
AKUREYRI
Hús við Helgamagrastræti 10 á Akureyri byggð án leyfís
Vilja að byggingarnar
verði fjarlægðar
BYGGINGANEFND Akureyrar
synjaði á fundi sínum í gær húseig-
anda að Helgamagrastræti 10 á
Akureyri um stöðuleyfi fyrir hús-
byggingum sem byggðar hafa verið
á lóðinni án leyfis. Jafnframt sam-
þykkti bygginganefnd samhljóða
að eigandinn skyldi fjarlægja þær
byggingar sem ekki hefur fengist
leyfi fyrir á lóðinni, samtals um
100 fermetrar að stærð.
Knútur Karlsson formaður
bygginganefndar sagði að til
greina kæmi að húseigandinn fengi
stöðuleyfi fyrir hluta umræddra
bygginga, um 40 fermetra steypt-
um sólskála, svo framarlega sem
lögð yrðu fram viðeigandi gögn.
Um 60 fermetra þurfi hins vegar
að fjarlægja fyrir 15. júní nk. Sam-
þykkt bygginganefndar á eftir að
fara til afgreiðslu í bæjarstjóm.
Knútur sagði að þær byggingar
sem um ræðir hafi verið byggðar
fyiir tíð núverandi bygginganefnd-
ar en þó allar án leyfis. Hann sagði
þetta mál hafa verið í gangi nokk-
uð lengi en málsmeðferðin dregist.
Töluverð óánægja hefur verið
með þetta mál meðal íbúa í ná-
grenninu og m.a. verið kvartað yfir
Morgunblaðið/Kristján
Húseiganda að Helgamagrastræti 10 hefur verið synjað um stöðuleyfi
fyrir húsbyggingum sem byggðar hafa verið á lóðinni án leyfis og er
honum gert að fjarlægja þær fyrir 15. júní í sumar.
því við bæjaryfirvöld að ráðist hafi
verið í framkvæmdir án bygginga-
leyfis og að ekki hafi heldur verið
greidd af þeim gjörningi bygginga-
leyfisgjöld og í kjölfarið fasteigna-
gjöld.
Hita- og vatnsveita Akureyrar og
Rafveita Akureyrar sameinast
Ráðinn yfirmaður sam-
einaðs orkufyrirtækis
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef-
ur samþykkt tillögu stjórnar veitu-
stofnana um að Franz Árnason
framkvæmdastjóri Hita- og vatns-
veitu Akureyrar verði yfirmaður
sameinaðs orkufyrirtækis Akur-
eyrarbæjar frá og með 1. ágúst nk.
Fyrr í vetur samþykkti bæjar-
stjórn tillögu stjórnar veitustofn-
ana að sameina Hita- og vatns-
veitu Akureyrar og Rafveitu
Akureyrar. Jafnframt er til skoð-
unar sá möguleiki að flytja höfuð-
stöðvar Rafmagnsveitna ríkisins,
Rarik, frá Reykjavík til Akureyrar
og að sameina Rarik orkufyrir-
tækjum Akureyrarbæjar. Viðræð-
ur við ríkisvaldið standa yfir en
niðurstaða liggur ekki fyrir.
Franz Árnason var ráðinn hita-
veitustjóri árið 1987 og árið 1990
tók hann einnig við stjórn Vatns-
veitunnar. Hita- og vatnsveita
voru svo formlega sameinaðar árið
1993.
Rekstur Hita- og vatnsveitu Ak-
ureyrar og Rafveitu Akureyrar
gekk vel á síðasta ári og betur en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Sam-
kvæmt ársreikningi Hita- og
vatnsveitu fyrir síðasta ár kemur
fram að tekjur veitunnar námu alls
um 655 milljónum króna og hagn-
aður ársins var rúmar 86 milljónir
króna. Tekjur Rafveitu Akureyrar
á sama tímabili námu 488,5 millj-
ónum króna og hagnaður ársins
nam rúmum 24 milljónum króna.
Staða deildarstjóra
hjá Ríkisútvarpinu
á Akureyri
Fimm
umsókn-
ir bárust
FIMM umsóknir bárust um
starf deildarstjóra Ríkisút-
varpsins á Akureyri en um-
sóknarfrestur rann út í vik-
unni.
Umsækjendur eru Björn
Sigmundsson, Finnur Magnús
Gunnlaugsson, Gísli Gunn-
laugsson, Gísli Sigurgeirsson
og Sigurður Þór Salvarsson.
Umsóknirnar fara fyrir út-
varpsráð næsta þriðjudag.
Arnar Páll Hauksson, nú-
verandi deildarstjóri, lætur af
störfum í sumar en hann hefur
starfað hjá Rúvak í um átta ár.
Bygginganefnd vill að Landsbankinn ljúki byggingu
húsnæðisins á Strandgötu 1 á þessu ári.
Ovíst hvort af frekari
framkvæmdum verður
BYGGINGANEFND Akureyrar
samþykkti á fundi sínum nýlega að
beina þeim tilmælum til Lands-
banka Islands að byggður verði nú
þegar lokaáfangi hússins í Strand-
götu 1. I bókun bygginganefndar
kemur fram að málið sé litið alvar-
legum augum og mælist nefndin til
við Landsbankann að lokið verði
við byggingu hússins á þessu ári
ella muni nefndin leggja til að end-
urskoðað verði deiliskipulag og
byggingaskilmálar fyrir lóðina
Strandgötu 1.
Sigurður Sigurgeirsson, útibús-
stjóri Landsbankans á Akureyri,
sagði alls óvíst hvort byggt yrði
við húsnæði bankans eins og til
stóð. „Þessi framkvæmd var ekki
sett inn á okkar fjárfestingarverk-
efni fyrir þetta ár og það er ekki
fyrirsjáanlegt að við förum að
byggja undir okkar starfsemi. Það
er mikið að breytast í okkar um-
hverfi og kannski þess vegna eru
menn rólegri í fjárfestingum. Það
er hins vegar ekki þar með sagt að
húsið verði ekki byggt og við mun-
um skoða þann mögleika að gera
það í samstarfi við einhverja aðra
aðila,“ sagði Sigurður.
Landsbankinn hafði samið um
bílastæði í bílakjallara sem verið
er að byggja í tengslum við
nýbyggingu í Strandgötu 3, á
næstu lóð og ekki verður um nein-
ar breytingar þar að ræða að sögn
Sigurðar. Hins vegar var hug-
myndin að tengja bílakjallarann
við húsnæði Landsbankans en af
því verður ekki úr því sem komið
er.
Bygginganefnd vísar í bókun
sinni til tveggja funda, frá 1998 og
1999, sem haldnir voru um lúkn-
ingu byggingar á lóðinni. Þar hafi
því verið lýst yfir af hálfu fulltrúa
Landsbankans að ráðist yrði nú í
framkvæmdir við að Ijúka bygg-
ingu hússins, sem staðið hefur
ófullgert í áratugi. Einnig kemur
fram að starfsmenn Akureyrar-
bæjar hafi á þessum fundum lagt
þunga áherslu á nauðsyn þess að
lokaáfangi hússins yrði byggður
samhliða uppbyggingu á lóðinni
Strandgötu 3.
Ástæður þess séu augljósar að
mati nefndarinnar en um er ræða
byggingar í hjarta bæjarins þar
sem aðstæður allar eru þröngar og
viðkvæmar auk þess sem óþægindi
og kostnaður hlýst af upprifnu um-
hverfi á miðbæjarsvæði. Mjög
óhagkvæmt verði fyrir alla aðila að
hefjast handa við byggingu húss-
ins löngu eftir að framkvæmdum
við Strandgötu 3 og umhverfi þess
lýkur.