Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verðkönnun Samkeppnisstofnunar á skoviðgerðum á höfuðborgarsvæðinu
Allt að 380%
verðmunur milli
skóvinnustofa
Það munar allt að 380% á þjónustu skóvinrmstofa á
höfuðborgarsvæðinu. í nýlegri könnun Samkeppn-
isstofnunar kemur fram að Skóvinnustofa Halldórs
í Efstalandi, er í öllum tilvikum með lægsta verðið.
Þann 29. mars síðastliðinn kann-
aði Samkeppnisstofnun verð á
nokkrum algengum þjónustulið-
um hjá níu skóvinnustofum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Könnunin leiðir í ljós að veru-
legur verðmunur er á milli skó-
vinnustofa á þeim þjónustuliðum
sem könnunin náði til eða frá 42%
við að setja gúmmísóla og hæla
undir kvenskó upp í 380% verð-
mun á minnstu viðgerð sem gerð
er á skóvinnustofu.
Að sögn Kristínar Færseth,
deildarstjóra hjá Samkeppnis-
stofnun, var Skóvinnustofa Hall-
dórs í Efstalandi 26, í öllum tilvik-
um með lægsta verðið á þeim
þjónustuliðum sem eru í könnun-
inni.
Meðalverð-
breyting 12-24%
Hún bendir á að í júní árið 1997
hafi verið gerð svipuð könnun hjá
skóvinnustofum og meðalverð-
breyting á nokkrum þjónustulið-
um á tímabilinu júní 1997 til mars
2000 sé frá 12-24%.
Hún segir að á ofangreindu
Morgunblaðið/Kristinn
Verðkönnuná Karl HBap mannas cór Kvenskór
skóviðgerðum Verö í krónum LEÐUR GÚMMI’ Hæ/ar LEÐUR GÚMMÍ 1 ÝMISLEGT
83 8 8l 8 Sólar og hælar Sólar Sólar og hælar Sólar Víkka lága skó If
Skóstofan 3.220 2.320 2.430 1.900 1.160 2.900 2.250 1.980 1.570 960 740 480
Skóvinnustofa Hafþórs 3.250 2.550 2.660 1.830 1.130 2.890 2.290 2.360 1.710 940 600 320
Skóvinnustofa HaJIdórs 1.950 1.490 1.790 1.290 790 1.790 1.190 1.690 1.090 690 390 100
Skóvinnust. Halldórs Guðbjörnsson 3.100 2.300 2.500 1.700 900 2.700 2.000 2.200 1.500 800 500 300
Skóvinnust. Harðar Steinssonar RergstaðastreetQQJlvlk 3.200 2.400 2.500 1.800 1.000 2.900 2.250 2.200 1.600 950 600 450
Skóvinnustofa Sigurbjöms 3.350 2.600 2.750 2.000 1.000 3.000 2.300 2.400 1.800 950 600 450
Skóvinnustofa Skóarinn Revkiavikurveoi 68. Hafnarfj, . 2.750 1.950 2.350 1.850 990 2.490 1.890 2.150 1.750 890 450 350
Skóvinnustofa Þráinn skóari Grettisoata 3, Kringlunni 8-12, Rvík 2.850 2.190 2.480 1.780 950 2.680 1.980 2.180 1.690 900 590 350
1 950 1 490 1.790 1.290 790 1.790 1.190 1 690 1 090 690 390 . 100
3.350 2.600 2.750 2.000 1.160 3.000.2.30Q .2.400 1.800 960. 740 „48Q 380%
Mismunur á lægsta og hæsta verði 72% 74% -54%555L 4Z%— 68% m. 42%, 65% .39%.. 3Q%
Verðbr. á nokkrum
þjónustuliðum hjá
skóvinnustofum
frá júní 1997 - mars 2000
Karlmannaskór Sólar og hælar, leður Hælar 13% 12%
Kvenskór
Sólar og hælar, leður 14%
Hælar 21%
Ýmisiegt
Víkka lága skó 24%
Minnsta viðgerð 17%
tímabili hafi vísitala neysluverðs
hækkað um 9,2% og launavísital-
an um 20,5%.
I könnuninni er í flestum tilfell-
um gefið upp viðmiðunarverð fyr-
ir einstakar viðgerðir þar sem í
skóviðgerðum er erfitt að gefa
upp fast verð fyrir viðgerð þar
sem mismikil vinna getur verið
við þær.
Hún leggur áherslu á að Sam-
keppnisstofnun leggi hvorki mat á
gæði vinnu né efnis.
Nú getur húð þín verið frábærlega frískleg og lýtalaus ásýndum
í hvaða Ijósi sem er - hvort heldur dagsbirtu eða rafljósum.
Leyndardómurinn felst í þessum nýja andlitsfarða sem í eru sérstök
litarefni er laga sig að birtunni og stýra þekjuhæfni farðans.
Tregsmitandi efnablandan veitir húðinni nauðsynlega
vernd og þægilega áferð daglangt.
Með hverjum keyptum farða frá Estée Lauder
fylgir „Take it Away" nýi farðahreinsirinn
sem fjarlægir bæði augn- og andlitsfarða.
Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í
Snyrtistofunni Hrund í dag fimmtudag
frá kl. 13-18.
K
.HRUND
;Verslun &
nyrtistofa
Grænatún 1, Kóp.
sími 554 4025.
Nýtt
Hita- og
kælipúði
Hafinn er
innflutning-
ur á kirsu-
berjapúðum
frá Leka-
pharm. Hér
er um að
ræða hita-
púða gegn
vöðvaeymslum. Púðinn er klædd-
ur með 100% bómull og inniheldur
kirsuberjakjarna en þeir búa yfir
eiginleikum til að halda og miðla
varma og kuida. Hægt er að hita
púðann í örbylgjuofni eða í bakar-
ofni og kæla í frysti. Púðinn er
seldur í apótekum en dreifíng er í
höndum HBK.
Bætiefni
Hafin er
sala á
dönsku
bætiefni frá
Lekapharm.
í fréttatil-
kynningu
segir að um
sé að ræða
náttúrulegt
C-vítamín
sem unnið
er úr berj-
um rósar-
innar Rosa
Canina en þau eru af mörgum
talin vatnslosandi. Þar segir
ennfremur að þetta sé fæðubót-
arkúr sem samanstandi af hvít-
lauk, gingko biloba og rósaberj-
um. Dreifing er í höndum HBK.
Allt að 40%
afsláttur af hljóm-
flutningstækjum
í dag, fimmtudag, hefst útsala á
hljómflutningstækjum hjá BT-
verslununum.
„Það fara öll hljómflutningstæki
á útsölu hjá okkur,“ segir Guð-
mundur Magnason, markaðsstjóri
BT. „Þetta eru merki eins og
Thomson, Panasonie, Sony og
Daewoo. Prósentulækkunin er mis-
munandi eftir hljómflutningstækj-
um eða allt frá 15% upp í 40%. Sem
dæmi má nefna að hljómflutnings-
tæki sem kostuðu áður fimmtán
þúsund kosta 8.900 krónur og tæki
sem kostuðu 39 þúsund kosta 29
þúsund," segir Guðmundur.
Ástæðu útsölunnar segir hann
meðal annars vera þá að krakkar á
fermingaraldrinum, sem eru einn
aðalmarkhópur fyrirtækisins, séu
einfaldlega ekki spenntir fyrir
hljómflutningstækjunum lengur.
„Það átti enginn von á að þessi þró-
un yrði svona hröð.
Við erum aðallega að selja MD3-
spilara, sem spila tónlist sem hægt
er að sækja á Netinu, geislaskrif-
ara og hátalara í tölvur. Þetta er
það sem krakkarnir vilja í dag og
ólíklegt að þeir verði meðal við-
skiptavina sem kaupa tækin á út-
sölu hjá okkur.“
Græjurnar ganga ekki út
Morgunblaðið/Júlíus
Krakkar á fermingaraldri virðast ekki eins spenntir fyrir hljómflutn-
ingstælyum og áður. Núna vilja þeir MD3-spilara og hátalara í tölvur.