Morgunblaðið - 06.04.2000, Síða 28
YDDA/S(A
28 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-mátuleg máltíð hvenær sem er!
vETŒfmtft?
NEYTENDUR
Lyfja og heilsu apótekin orðin 14 talsins
Morgunblaðið/Jim Smart
Á morgun, föstudag, mun Lyf og heilsa opna þrjú ný apótek á höfuðborgarsvæðinu.
Sama verð um land allt
A morgun munu þrjú ný apótek bætast í keðjuna Lyf og heilsa en
apótekin verða þá 14 talsins ásamt einu útibúi með lyfsöluheimild.
Stefna keðjunnar er að bjóða sama verð um land allt.
„Um áramótin keypti Lyf og heilsa
Háaleitisapótek, Fjarðarkaups-
apótek og Iðunnarapótek í Domus
Medica,“ segir Karl Wernersson,
framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu.
„Þessi apótek verða opnuð á morg-
un, 7. apríl, í nýrri mynd og fá þá ný
heiti. Háaleitisapótek verður Lyf
og heilsa, Austurveri, Fjarðar-
kaupsapótek verður Lyf og heilsa,
Fjarðarkaupum, og Iðunnarapótek
verður Lyf og heilsa, Domus
Medica.
Apótekin fá breytt útlit og verða í
anda Lyfja og heilsu þar sem fyrst
og fremst verður lögð áhersla á
meira vöruúrval, aðgengilegar og
þægilegar verslanir og góða þjón-
ustu.
Það er stefna keðjunnar að bjóða,
hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu
eða annars staðar, upp á sama verð-
ið. Höfuðborgarsvæðið er ekki að
niðurgreiða verðið heldur erum við
með hagstæða samninga við flutn-
ingsaðila og birgja," segir Karl.
Opnunartími lengdur
„Við ætlum að halda áfram að
veita þá þjónustu í Austurveri að
hafa opið allan sólarhringinn. Hins
vegar höfum við líka ákveðið að
bjóða aukna þjónustu í Domus
Medica. Þar verður opið til kl. 22 á
kvöldin alla virka daga og milli kl.
11 og 13 á laugardögum og sunnu-
dögum. Þetta er gert í samvinnu við
Bamalæknaþjónustuna, sem einnig
er í húsinu, þannig að opnunartimi
okkar verður samræmdur þeirra.
Nú erum við komin í þá stærð
sem keðja að geta gert hagkvæmari
innkaup og stefnum að því að bjóða
enn lægra verð en áður bæði á lyfj-
um og annarri vöru.
Við munum byrja á því að lækka
verð á ákveðnum vörum eins og
bleium og hreinlætisvörum. Við
höfum verið að vinna að því að
lækka lyfjaverð hægt og og bítandi
og höldum því áfram,“ segir Karl.
Vöruúrval þrefaldað
„Vöruúrval verður þrefaldað úr
88 hillumetrum í 215 hillumetra í
Lyfjum og heilsu, Austurveri, og
Lyfjum og heilsu, Domus Medica.
Verslanir okkar eru misstórar og
þeim skipt upp í burðareiningar,
meðalstórar einingar og litlar ein-
ingar. Þetta fer eftir húsnæði og
viðskiptum á hverjum stað. Lyf og
heilsa, Austurveri, og Lyf og heilsa,
Domus Medica, eru dæmi um þess-
ar burðareiningar og þar verður
vöruúrvalið meira.
Við erum að stórauka vöruúrvalið
og munum einnig setja vörur fram
sem voru bakvið áður til þess að
gera viðskiptavinum kleift að nálg-
ast vöruna og skoða hana í róleg-
heitum. Meðal annars verður lögð
meiri áhersla á snyrtivörur og út-
litstengdar vörur. Ég hef trú á því
að sala og þjónusta á snyrtivörum
sé að færast í ríkara mæli inn í
apótekin.
Lyf og heilsa er stærsta verslun-
arkeðja landsins á lyfja- og heilsu-
markaði. Áætluð markaðshlutdeild
hennar á lyfja- og heilsumarkaði er
um 30%. Lyf og heilsa var stofnað
1. mars í fyrra og við fórum á mark-
aðinn í september með nýtt nafn.
Þá rákum við 11 apótek, tvö á Suð-
urlandi, tvö á Akureyri og sjö í
Reykjavík og nú eru sem sagt að
bætast þrjú í safnið, tvö í Reykjavík
og eitt í Hafnarfirði. Að auki er eitt
útibú með lyfsöluheimild í Þorláks-
höfn. Hluthafahópurinn eru fyrri
eigendur þessara apóteka sem
komu fyrst inn í keðjuna.
Keðjan stefnir að því að vera al-
menningshlutafélag og fara á mark-
að innan tveggja ára,“ segir Karl.
Brauð frá Nýbrauði verða komin í allar verslanir Baugs
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Einar Viðarsson bakari við brauðin sem munu fást í verslunum Hag-
kaups, Nýkaups, Bónuss og 10-11.
Boða 11-
15% lækkun
á brauðum
Frá og með næsta mánudegi verða
til sölu brauð frá fyrirtækinu
Nýbrauði í verslunum Nýkaups,
Hagkaups, Bónuss og 10-11 en
einkasölusamningur við Mylluna
rann út þann 1. aprílsíðastl iðinn.
Að sögn Lárusar Óskarssonar,
framkvæmdastjóra Aðfanga, náð-
ust hagstæðir samningar við for-
svarsmenn hjá Nýbrauði sem skil-
ar sér í 11-15% verðlækkun á
brauði til viðskiptavina strax á
mánudag.
Hann segist fagna því að nýr að-
ili sé kominn inn á þennan markað
sem hafi verið orðinn einsleitur
eftir að Myllan keypti Samsölu-
bakaríið.
Til að byrja með verða til sölu
þijár til fjórar brauðtegundir frá
Nýbrauði sem eru sambærilegar
því brauði sem neytendur þekkja.
Bónusbrauð verður einnig á boð-
stólum og brauð í Góð kaup-vöru-
línunni.
Lárus segir að það velti síðan á
viðbrögðum neytenda hver þróun-
in verður. „Ef þessum brauðum
verður vel tekið munu efiaust
fleiri tegundir brauða bætast við
með timanum. Ég er þess fullviss
að aukin samkeppni á þessum
markaði mun skila sér í betra
verði, auknu framboði og ferskari
vöru til neytenda.
Á næstu vikum mun til dæmis
Hagkaup auka úrvalið enn frekar
og bjóða brauð og kökur frá litlum
bakaríum."