Morgunblaðið - 06.04.2000, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ljósmynd/ Halldór Sveinbjömsson
Þau eru í aðalhlutverkum: Tinna Gunnarsdóttir (Oddi ígulker), Þröstur
Ólafsson (Loki kræklingur), Finnur Magnússon (E.K.), Gísli Samúelsson
(Már) og Júiíanna Emisdóttir (Krossafrænka).
Fuglinn í fjörunni
á Hnífsdal
LITLI leikklúbburinn á ísafirði
fmmsýnir barnaleikritið Fuglinn í
fjörinni eftir David Wood í félags-
heimilinu í Hnífsdal, á morgun,
föstudag, kl. 19. Leikritið er í þýð-
ingu Guðjóns Ólafssonar og fjallar
á skoplegan hátt um þá vá sem rusl
og mengun er fyrir lífríkið allt á
jörðinni. Sagan gerist á einum sól-
arhring og lýsir li'fl E.K. (Einbúakr-
abbi) og Loka kræklingi. Þeir búa í
fjörupolli við Isafjarðardjúp. Þenn-
an sólarhring er gestkvæmt hjá
þeim félögum, E.K. til mikillar
mæðu því honum er illa við ókunn-
uga. Meðal gestanna em Oddi íg-
ulker og frænka hans Krossa
krossfiskur. Einnig lítur Már við.
Fleiri gestir koma við sögu því
Brákin mikla og hennar hyski kem-
ur á vetvang. Hún kemur úr stóm
skipi sem rakst á annað skip úti á
Djúpinu. Olían þekur brátt sjóinn
og ætlar að drepa allt lífrflti í fjöm
söguhefjanna.
Að sýningunni koma allt að 30
manns á öllum aldri.
Leikstjóri er Elfar Logi Hannes-
son. Þorbjörg Sigurðardóttir,
ásamt leikstjóramum, hannar
sviðsmyndina og búningana. Tónl-
istin er samin af Kristni Níelssyni.
Næstu sýningar verða sunnudag-
inn og miðvikudaginn 12. aprfl,
báðar kl. 19.
Miðasalan er opin alla sýningar-
daga í Edinborgarhúsinu á ísafirði
frákl.16-18.
Listasafn Árnesinga
434 andlit
sólar
„SÓL sól skín á mig“ heitir sýning á
verkum nemenda Sólvallaskóla á
Selfossi, sem ætla að leggja undir sig
Listasafn Arnesinga í vikunni næstu
á undan Dymbilviku og verður form-
leg opnun í dag, föstudag, kl. 15. Sól-
in með andlitunum 434 er stærsta
verkið, það er samsett úr litlum ein-
ingum. Hver nemandi fékk 8 x8 cm
tréflögu, skreytti hana að eigin vild,
og setti mynd af sér á. I öðrum hóp-
verkefnum, einkum frá yngri deild-
unum, er unnið út frá náttúrunni á
fjölbreytilegan máta.
Að auki er að flnna á sýningunni
fjölda einstaklingsverka úr margvís-
legum verkum svo sem pappír, tré,
gleri, textílum og málmi.
Undirbúningur hefur staðið frá
áramótum og öllum nemendum skól-
ans verið gefinn kostur á að taka þátt
í verkinu. List- og verkgreinakenn-
arar skólans, þau Hilmar Björgyins-
son, Guðný Ingvarsdóttir, Ásdís
Guðjónsdóttir, Ragna Bjömsdóttir,
Jónella Sigurjónsdóttir og Kristín
Stefánsdóttir eru umsjónarmenn
sýningarinnar.
Við opnunina syngur skólakór Sól-
vallaskóla undir stjórn Elínar Gunn-
laugsdóttur og veitingar verða fram
bomar af heimilisfræðinemum.
Sýningin verður opin tvær helgar
8. og 9. og 15. ogl6. apríl frá 13-18.
Vikan þar á milli er nýtt fyrir skóla-
hópa eftir samkomulagi við safn-
stjóra og fimmtudag og föstudag er
opið frá 14-17.
Ein af smámyndunum sem Viveka Sjögren hefúr mál-
að innblásin af Tímanum og vatninu.
Ljósmyrid/Ulf Borin
Viveka Sjögren, Bergsteinn Ásbjömsson og tveir synir þeirra, Týr Óskar og Lo Ásbjöm. f
forgrunni em nokkur verka Bergsteins á sýningunni í Galleri Nácken.
Lagt út
TIMINN og vatnið er yfirskrift sam-
sýningar hjónanna Bergsteins Ás-
bjömssonar og Viveku Sjögren sem
nýlokið er í Galleri Nácken í Hudiks-
vall í Svíþjóð, en þar sýndi hún mál-
verk og hann bronsstyttur.
Bergsteinn hefur verið búsettur í
Svíþjóð í 23 ár. „Á sínum tíma var
þetta nú bara ævintýri - að komast
út og skoða heiminn. Framan af
hugsaði ég mér alltaf að flytja heim
„á næsta ári“ en svo kynntist ég
sænskri konu, Viveku, og nú eigum
við saman þijú börn, svo þetta hefur
dregist,“ segir hann. Honum hefur
af Tímanum og vatninu
líkað vel vistin í Svíaríki, þar sem
þau hjónin em nú bæði í þjónustu
listagyðjunnar. Hún málar akrýl- og
vatnslitamyndir, skrifar og mynd-
skreytir bamabækur og hann leggur
aðallega stund á skúlptúr.
Með stóra vinnu-
stofu heima
„Myndlistin var lengi vel aðeins
áhugamál hjá mér,“ segir Berg-
steinn, „það var ekki íyrr en um 1986
sem ég sneri mér óskiptur að henni.
Ég byijaði í teikningu og málun en
fór svo fljótlega að kynna mér betur
grafík, skúlptúr og keramik og
komst að því að skúlptúrinn hentaði
mér best.“
Heima hjá sér, í bænum Delsbo í
miðri Svíþjóð, em þau með stóra
vinnustofu og vinna þar náið saman.
,Að undanfömu höfum við oftast
verið með tvær til þrjár sýningar á
ári, við tvö saman eða með fleiri lista-
mönnum,“ segir hann.
En hvernig skyldi tilvísunin í
Stein Steinarr vera til komin?
„Steinn Steinarr hefur verið með
mér allan tímann, frá því ég var
krakki á íslandi. Hann var án efa það
íslenskra ljóðskálda sem mér þótti
skemmtilegast að lesa,“ segir Berg-
steinn. Hann segir ljóð Steins vera
sér ótæmandi uppsprettu og Tíminn
og vatnið séu í alveg sérstöku upp-
áhaldi. „Litirnir og dýptin í því sem
hann skrifar em svo ótrúleg. Það er
svo skrautlegt og svo mikið sem
hægt er að vinna út frá því.“
AÐALFUNDUR
Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn
í hátíðarsal Verkmenntaskólans á Akureyri
laugardaginn 15. apríl n.k. og hefst kl 10.00.
DAGSKRÁ
1. Fundarsetning
2. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins
3. Skýrsla stjórnar
4. Skýrsla kaupfélagsstjóra
Reikningar félagsins
Umsögn endurskoðenda
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva ofl.
5. Afgreiðsla reikninga og tillagna félagsstjórnar
Lögð fram tillaga stjórnar um frestun fundar vegna
stefnumótunarvinnu fyrir samvinnufélagið KEA
6. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA
7. Erindi deilda
8. Þóknun stjórnar og endurskoðenda
9. Kosningar
10. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félags-
samþykktum.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga