Morgunblaðið - 06.04.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2000 51
ráðist í þetta verk sem samstarfs-
verkefni Skipulagsins og Reykjavík-
ur, jafnframt var ákveðið að þríhym-
inganetið skyldi einnig ná til
nágrannasveitarfélaganna, eða frá
Kollafirði í norðri, Vífilsfelli í austri
og að Helgafelli og Straumsvflc í
suðri. Jafnframt komum við okkur
saman um ákveðið kortblaðakerfi,
sem byggðist á stærðinni 60x80 cm
fyrir öll kort af mælikvarðanum
1:500, 1:1000 og 1:2000, og er þetta
blaðskiptakerfi enn við lýði. Saman
hönnuðum við netið, og sá Haukur
síðan um merkingu stöðvanna, en
undirritaður um mælingu og útreikn-
inga. Verki þessu, sem myndaði
traustan grundvöll undir alla korta-
gerð á höfuðborgarsvæðinu eftir
þetta, lauk nokkru áður en Haukur
lét af störfum hjá Reykjavík, árið
1954. Þá stofnaði hann sína eigin
verkfræðistofu, Forverk, sem m.a.
sérhæfði sig í landmælingum og
kortagerð. Brátt festi hann kaup á
mjög vönduðu kortagerðartæki til að
gera hæðarlínukort eftir loftmynd-
um, en nokkrar ríkisstofnanir höfðu
þá nýlega lagt fram fé til að kaupa
mjög vandaða ljósmyndavél, sem var
sérhönnuð til að taka myndir úr lofti.
Var Ágúst Böðvarsson, sem þá var
starfsmaður Vegagerðarinnar, feng-
inn til að annast myndatökuna, en
síðar annaðist Agúst Guðmundsson í
mörg ár þetta vandasama verk. Nú
hófst algjörlega nýr þáttur í korta-
gerðarsögu landsins. Fyrst var hafist
handa við að mynda land Reykjavík-
ur og nágrannasveitarfélaganna, en
síðan lét Haukur Forverk teikna
vönduð kort af þessum svæðum, eftir
því sem þörf krafði, bæði til afnota
við skipulagsáætlanir og hverskonar
verklegar framkvæmdir. Síðar var
ráðist í myndatöku og kortagerð af
kaupstöðum landsins og öðrum
skipulagsskyldum þéttbýlisstöðum,
eftir því sem fjárhagur og tími leyfði.
Þar sem undirritaður gegndi störfum
skipulagsstjóra á þessum árum, og
átti því mikil og margvísleg viðskipti
við Hauk, er mér Ijúft að votta, að
aldrei bar neinn skugga á það sam-
starf. Allir samningar, hvort sem þeir
voru munnlegir eða skriflegir, stóðu
eins og stafur á bók. Ekki má gleyma
þeim víðfeðmu landsvæðum, sem
þóttu áhugaverð vegna hugsanlegra
virkjunarframkvæmda, og sem For-
verk kortlagði. Kortin sem Danir
höfðu gert af landinu á árunum 1900-
1937, voru flest í mælikvarðanum
1:100000 og með aðeins 20 metra
hæðarlínum. Þau voru að sjálfsögðu
ágæt sem gróf yfirlitskort, en dugðu
skammt til afnota við tæknilegar
áætlanir. Auk þegar taldra upp-
drátta, gerði Forverk fjölda sérkorta
af ýmsum öðrum landsvæðum, sem
þóttu sérlega áhugaverð vegna sum-
arbústaðabyggðar, eða einstakra
náttúrufyrirbrigða og jarðfræði.
Ótalin eru öll þau kort sem Forverk
hefur teiknað í áranna rás, en bara
þau kort sem hann teiknaði fyrir
Skipulag rflrisins og höfuðborgar-
svæðið, sem mér er kunnugt um,
skiptu hundruðum. Haukur hefur því
sannarlega skipað sér virðulegan
sess í kortagerðarsögu Islands, sem
alger brautryðjandi í nútímalegri
kortagerð, auk þess sem afköst hans
hafa verið með ólflrindum. En Hauk-
ur stóð ekki einn í þessum stórræð-
um, því Forverk hafði jafnan á að
skipa traustum samstarfsmönnum.
Þá má síst gleyma þeim trausta
lífsförunaut, sem hann eignaðist
strax á Danmerkurárum sínum, og
sem fæddi honum þrjú mannvænleg
böm, sem öll bera foreldrum sínum
fagurt vitni. Eiginkona hans, Jytte
0strup, stóð við hlið Hauks í gegnum
þykkt og þunnt, og átti hún veruleg-
an þátt í velgengni hans í hvívetna.
Hún sýndi líka dæmafáan dugnað og
ósérplægni hin síðustu ár Hauks,
þegar heilsu hans var farið að hraka.
Við Lis sendum þér, Jytte, hlýjar
samúðarkveðjur og óskum þér og
þínum alls velfamaðar í bráð og
lengd.
Zóphónías Pálsson.
Kristján Haukur Pjetursson mæl-
ingaverkfræðingur lést 26. mars síð-
astliðinn, 83 ára að aldri, eftir erfið
veikindi síðustu mánuðina. Haukur
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík vorið 1936 og hélt
að því búnu til Kaupmannahafnar og
hóf nám í mælingaverkfræði við Den
kgl. Veterinær- og Landhajskole og
lauk þar námi vorið 1941. Að námi
loknu réðst Haukur til starfa hjá
mælingastofnun O. Budtz í Kaup-
mannahöfn. Verkefni stofnunarinnar
vom fjölþætt, almennar landmæling-
ar, kortagerð, úrvinnsla deiliskipu-
lags ásamt tilheyrandi landskiptum
og skráningu landeigna. Á árunum
1943-1946 var Haukur við nám og
störf hjá Geodætisk Institut í Kaup-
mannahöfn, og var þá um tíma árið
1946 við mælingar á Grænlandi og
stjómaði þar mælingaflokki.
Árið 1947 flytur Haukur heim til
Islands, eftir rúmlega áratugar dvöl í
Danmörku, ásamt ungri eiginkonu
sinni, Jytte Lis 0strup íþróttakenn-
ara, en þau gengu í hjónaband í
Kaupmannahöfn 2. október 1943.
Það hafa sjálfsagt verið ungu hjónun-
um mikil viðbrigði að setjast að hér á
klakanum, þótt lífið í Danmörku hafi
ekki verið alltaf auðvelt á árum seinni
heimsstyijaldarinnar. En Haukur
hafði líka kynnst Danmörku fyrir-
stríðsáranna og aðlagaðist fljótt að-
stæðum þar og eignaðist þar góða
vini og kunningja, sem hann mat ætíð
mikils.
Við heimkomuna til Islands 1947
tók Haukur við starfi deildarverk-
fræðings hjá bæjarverkfræðingi í
Reykjavík. Veitti þar forstöðu mæl-
ingadeild, sem var þá ný deild hjá
embætti bæjarverkfræðings. Verk-
efni deildarinnar vom að mestu leyti
þau sömu og Haukur hafði unnið við í
Danmörku að loknu námi þar, að
undanskilinni skráningu lands, sem
samkvæmt lögum heyrði undir
embætti lóðarskrárritara í Reykja-
vík. Á þessum ámm vom þríhym-
inga- og hæðarmælikerfi Reykjavík-
ur útvíkkuð og endurmæld og er enn
í dag unnið á þeim gmnni, sem þá var
lagður. Þá stóð Haukur fyrir hönnun
svonefnds staðgreinikerfís, sem má
segja að hafi verið landupplýsinga-
kerfi þeirra tíma, áður en tölvuöld
rann upp. Staðgreinirinn þjónar enn
hlutverki sínu og er hluti af landupp-
lýsingakerfi Reykjavíkurborgar.
Haukur hafði til að bera ríka hæfi-
leika til að skipuleggja og hafa fast
form á hlutunum og þess naut vel í
starfi hans fyrir mælingadeildina.
Á stríðsámnum og ámnum þar
eftir urðu örar framfarir í gerð korta
eftir loftmyndum. Þessi nýja tækni
vakti áhuga Hauks og hóf hann að
kynna sér þessa hluti. m.a. í Sviss og
Bandaríkjunum. Fékk hann til liðs
við sig nokkra vini sína og kunningja
og árið 1956 er fyrirtækið Forverk
hf. stofnað og var tilgangur þess gerð
korta eftir loftmyndum. Jafnframt
veitti fyrirtækið almenna þjónustu
við sveitarfélög á sviði mælinga og
byggingaverkfræði. Haukur veitti
Forverki forstöðu í hartnær 40 ár,
eða allt til ársins 1994. Árið 1981 var
kortagerðarhlutinn seldur. Á þeim
tíma hafði Forverk unnið að gerð
grannkorta vegna skipulagsvinnu
fyrir flest bæjarfélög hér á landi,
ásamt yfirgripsmikilli kortagerð
vegna virkjanaframkvæmda á há-
lendinu, á stundum í samkeppni við
erlend kortagerðarfyrirtæki. Hér
var um mikilvægt brautryðjanda-
starf að ræða, og hefur vafalaust
margvíslegt hagræði leitt af því, að
kleift skyldi að fá þessi kort unnin
hér á landi. Haukur var félagslyndur
maður og átti mörg áhugamál utan
daglegra starfa. Hann tók virkan
þátt í félagsstarfi Félags íslenskra
bifreiðaeigenda um langt ái-abil og
var kjörinn heiðursfélagi þess. Þá var
hann formaður Félags ráðgjafa verk-
fræðinga og í stjórn Verkfræðingafé-
lags Islands. Skógrækt og upp-
græðsla landsins var honum milrið
hjartans mál. Hann og fjölskylda
hans eiga sér unaðsreit við Úlfarsá
undir Úlfarsfelli í Mosfellsbæ. Þar
hófu þau hjónin fyrir liðlega fimmtíu
ámm að gróðursetja trjáplöntur á 8
ha landspildu og gáfu henni nafnið
Stóriskógur. Síðan hefur árlega verið
gróðursett og trén hafa vaxið og
dafnað og nú er þar gróskumikill
skógur, þar sem áður blöstu við berir
melar ogmóar.
Eg vil nú að leiðarlokum þakka
Hauki fyrir góð kynni og lærdóms-
ríkt samstarf um áratuga skeið. Við
Unnur sendum Jytte og fjölskyldu
hennar okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Sigurhjörtur Pálmason.
+
HALLDÓR HALLDÓRSSON
prófessor,
Skógarbæ,
Árskógum 2,
Reykjavík,
lést aðfaranótt miðvikudagsins 5. apríl.
Hildigunnur Halldórsdóttir, Gylfi ísaksson,
Elísabet Halldórsdóttir,
Halldór Halldórsson, Ingibjörg G. Tómasdóttir.
Guðfinna Guðmundsdóttir,
Stefán Guðmundsson,
Unnur Guðmundsdóttir.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
HINRIK RAGNARSSON
vörubílstjóri,
Kleppsvegi 62,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
7. apríl kl. 13.30.
Edda Hinriksdóttir, Bragi Ásgeirsson,
Ragnar Hinriksson, Helga Claessen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær bróðir minn,
ALBERT GUÐMANNSSON,
frá Snæringsstöðum,
Mánagötu 8,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 4. apríl.
Guðrún Guðmannsdóttir.
+
Systir mín,
NANNA SVEINSDÓTTIR,
Kleppsvegi 64,
Reykjavík,
lést mánudaginn 3. apríl.
Jóhanna Sveinsdóttir.
+
Móðir mín,
GUÐNÝ LOVÍSA MEIGEL,
Port St. Lucie,
Flórída,
er látin.
Bálför hefur farið fram.
Kristín Stefánsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vesturbergi 142,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstu-
daginn 7. apríl kl. 13.30.
Guðrún Ragnarsdóttir,
Ragnhildur Ragnarsdóttir, Birgir Þórisson,
Hrafnkell Birgisson, Brynhildur Birgisdóttir,
Anna Rakel Róbertsdóttir, Davíð Garðarsson,
Garðar Davíðsson.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR EINARSSON,
Laugardælum,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar-
daginn 8. apríl klukkan 13.30
Klara Guðbrandsdóttir,
Guðbrandur Einarsson, Birna Borg Sigurgeirsdóttir,
Katrín Einarsdóttir, Geir Jónsson,
Einar Smári Einarsson,
Ægir Einarsson, Steinunn Þorsteinsdóttir,
Sigurður Einarsson, Gíslína Jensdóttir,
Sverrir Einarsson, Sigrún Helga Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SVERRIS SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
rafmagnsverkfræðings,
Háaleitisbraut 111,
Reykjavík.
Hjördís Unnur Guðlaugsdóttir,
Kristín Sverrisdóttir, Steinar Harðarson,
Sverrir Jóhann Sverrisson, Inga Rut Hlöðversdóttir,
Pia Rakel Sverrisdóttir,
Guðlaugur Erlingsson, Jarþrúður Ólafsdóttir,
Helga Erlingsdóttir, Kristmundur Hákonarson,
barnabörn og barnabarnabarn.