Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sfmaskrá 2000 gefin út í 220 þúsund eintökum
011 litprentuð o g áfram
í tveimur þynnri bindum
Morgunblaðið/Ásdís
Anton Örn Kaernested, Þórarinn V. Þórarinsson og Ólafur Þ. Stephensen kynntu símaskrá 2000 í gær.
BYRJAÐ er að dreifa Símaskrá
fyrir árið 2000 en upplag síma-
skrárinnar er að þessu sinni um
220 þúsund eintök. Símaskránni
verður dreift á bensínstöðvum
Skeljungs, skrifstofum vöruflutn-
ingamiðstöðvarinnar Flytjanda og
í öllum þjónustumiðstöðvum
Landssímans og lýstu aðstandend-
ur Landssímans þeirri von á blaða-
mannafundi í gær að þetta yrði til
þess að símaskráin kæmist hratt
og örugglega í hendur viðskipta-
vina.
Eins og í fyrra skiptist skráin í
tvö bindi, annars vegar símanúmer
á höfuðborgarsvæðinu og hins veg-
ar á landsbyggðinni, en hún er
prentuð á mun þynnri og vandaðri
pappír en áður og eru bæði bindin
að þessu sinni þynnri en höfuð-
borgarbindið eitt í fyrra. Jafn-
framt er símaskráin nú öll
litprentuð og sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, forstjóri Landssím-
ans, að menn hefðu metið það svo
að þannig væru upplýsingarnar
aðgengilegri fyrir viðskiptavininn
og bókin skemmtilegri aflestrar.
Er mönnum t.d. gegn greiðslu
boðinn sá möguleiki að láta upp-
lýsingar um sig í símaskráni vera
með öðrum lit en hefðbundinn er
og sagði Anton Örn Kærnested,
ritstjóri Símaskrár 2000, að marg-
ir atvinnurekendur eða iðnaðar-
menn hefðu nýtt sér þennan kost.
stafa upplýsinga-
númerum símaskrár fækkað
„Við förum nýja leið til að dreifa
skránni núna,“ sagði Þórarinn á
fundinum í gær. Hann sagði að
dreifingin hefði verið boðin út að
þessu sinni og voru það fyrirtækin
Flytjandi og Skeljungur sem urðu
hlutskörpust í útboðinu. Símaskrá-
in verður þó sem fyrr einnig fáan-
leg á afgreiðslustöðvum og þjón-
ustumiðstöðvum Landssímans um
land allt, auk þess sem henni verð-
ur dreift sérstaklega til stærri við-
skiptavina Landssímans.
Þórarinn gerði einnig grein fyrir
þeirri breytingu sem orðið hefur á
nokkrum upplýsinganúmerum
símaskrár. Rakti hann að Alþingi
hefði markað þá stefnu á síðasta
ári að draga úr notkun þriggja
stafa símanúmera, og það væri
gert með því að ákveða mjög hátt
árlegt gjald, eina milljón krónur,
sem þarf að greiða fyrir hvert
þriggja stafa númer.
„Það var mat okkar Landssíma-
manna að það væri fullkomlega
ábyrgðarlaus meðferð á fjármun-
um að halda úti þeim fjölda
þriggja stafa númera sem við vor-
um með áður,“ sagði Þórarinn.
„Því kynnum við núna til sögunnar
nýja númeraseríu fyrir bilanir og
fyrir hluta af þeim upplýsingaveit-
um sem við höfum verið með. Þau
númer sem hins vegar reynir mest
á hjá símnotendum eru þó óbreytt,
þ.e. 118 og 112 og raunar einnig
gamla klukkan, hún er áfram
óbreytt, 155.“
Kvaðst Þórarinn vona að þetta
kæmi ekki að sök. Þau númer, sem
nú yrði breytt, væru ekki í jafn-
mikilli notkun og símnotendur
gætu nálgast upplýsingar um nýju
númerin í símaskránni.
Hvetja fólk til að skila
g'ömlu símaskránni
Þórarinn tók fram að lögð væri
áhersla á umhverfíssjónarmið við
vinnslu símaskrárinnar, m.a. með
því að nota einungis vistvænan
pappír. Liður í þessu væri einnig
að hvetja fólk til að skila notuðum
símaskrám. Kom fram í máli Ólafs
Þ. Stephensen, forstöðumanns
upplýsinga- og kynningarmála
Símans, að í fyrra hefði um þriðj-
ungi símaskráa verið skilað. Stefnt
væri hins vegar að því að koma
þessu hlutfalli upp í um 50%.
Loks sagði Anton Örn aðspurð-
ur að menn gerðu ekki ráð fyrir
því að verulega drægi úr notkun
MENNINGAR- og fræðahátíðin
Líf í borg hefst í kvöld í Aðal-
byggingu Háskóla Islands, en há-
tíðin, sem er framlag Háskólans til
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000, mun standa fram
á sunnudag. Boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá í þá fjóra daga
sem hátíðin stendur yfir og gefst al-
menningi m.a. kostur á að sitja um
100 fyrirlestra, fara í vettvangsferð-
ir um borgina eða hlýða á tónleika.
„Menntun og fræðsla er orðin
snar þáttur í lífi fólks og með þess-
ari hátíð er Háskólinn að reyna að
svala þessari forvitnis- og fræðslu-
þörf,“ sagði Magnús Diðrik Bald-
ursson, sem situr í verkefnisstjórn
Opins háskóla. „Við vonum náttúr-
lega að það komi sem flestir, en
hafa ber í huga að þetta er allt
saman tilraun - þetta hefur ekki
verið gert áður.“
Páll Skúlason rektor setur hátíð-
ina klukkan átta í kvöld með ávarpi.
Eftir það hefst ljóðadagskrá og
verður hún í umsjá Ástráðs Ey-
steinssonar, prófessors í bók-
menntafræði, og ræðir hann við
Matthías Johannessen skáld um
Reykjavíkurljóð hans, en auk þess
sem þeir velta þessu efni fyrir sér
prentaðrar útgáfu símaskrár þó að
æ fleiri fletti nú upp í símaskránni
á Netinu. Þessar tvennar útgáfur
símaskrárinnar ynnu í raun saman
að því að uppfylla þarfir viðskipta-
vina.
Að þessu sinni prýðir kápu
símaskrár höfuðborgarsvæðisins
myndin Kvöld í Reykjavík eftir
Asgrím Jónsson og kápu lands-
byggðarskrárinnar prýðir annað
verk Asgríms, Hekla. Ný símaskrá
tekur gildi 31. maí.
les Matthías nokkur ljóð sín um
Reykjavík. Laust fyrir klukkan níu
verða tilkynnt úrslit í samkeppni
um sönglag við kvæði Jónasar Hall-
grímssonar, „Vísindin efla alla dáð,“
og mun Háskólakórinn flytja verð-
launalagið. Magnús Diðrik sagði að
það væri síðan von manna að lagið
myndi öðlast sess sem sérstakt há-
skólalag. Klukkan rúmlega níu mun
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri flytja ávarp og slíta athöfn-
inni.
Magnús Diðrik sagði að um það
leyti sem dagskránni lyki í Aðal-
byggingunni myndi dagskrá stúd-
FÉLAGSMENN í Rafiðnaðarsam-
bandi Islands, sem starfa hjá ríkinu
og Reykjavíkurborg, hafa samþykkt
nýja kjarasamninga.
Rafiðnaðaimenn sem starfa hjá
ríkinu greiddu atkvæði um nýjan
samning í gær. Á kjörskrá voru 113
og tók 81 þátt í kosningunni. 47 eða
Forsætis-
ráðherra í
opinberri
heimsókn í
Lettlandi
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og frú Ástríður Thorarensen komu
til Riga í gærkvöldi og verða í opin-
berri heimsókn í Lettlandi fram á
laugardag.
Davíð mun í dag eiga fund með
forsætisráðherra Lettlands, Andris
Berzins, sem tók við embætti fyrr í
mánuðinum.
Að loknum fundi munu þeir
leggja blómsveig á frelsisminnis-
merkið áður en haldið er til lettn-
eska þingsins Saeima. Þar mun I
Jánis Straume þingforseti taka á
móti honum.
Forsætisráðherra mun einnig
heimsækja borgarstjórn Riga í dag
og íslensku ræðismannaskrifstof-
una auk þess að fara í skoðunarferð
um hina gömlu miðborg Riga.
------------------
Lögregla i
fundar með
tónleika-
höldurum
LÖGREGLAN í Reykjavík fundar j
með forsvarsmönnum tónleika með |
Elton John, sem haldnir verða á |
Laugardalsvelli 1. júní nk., ásamt
leyfishöfum vínveitingaleyfisins,
þ.e.a.s. Knattspyrnusambandi ís-
lands.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn segir að lögreglan
hafi átt gott samstarf við þá aðila
sem koma að tónleikahaldinu og
þeim sé kunnugt um þau atriði
sem lögreglan leggur áherslu á.
Þau snúa einkum að hvernig staðið L
er að öryggisþáttum, t.a.m. fjölda
gæsluliða og skipulagningu á
svæðinu.
EkkiShefur verið ákveðið hvar
hafa mégi vín um hönd á svæðinu
og Karl Steinar segir að lögreglan
muni gera kröfu um ákveðinn
fjölda gæsluliða.
enta í svokölluðu listatjaldi, sem
reist hefur verið í skeifunni fyrir
framan Aðalbygginguna, hefjast.
Haukur Agnarsson, frá stúdenta-
ráði, sagði að í kvöld yrði Túbuleik-
ai-afélag efnafræðinema með tón-
leika og einnig djasstríó og sagði
hann að tónleikarnir myndu standa r
eitthvað fram eftir kvöldi.
Haukur sagði að auk þess að
vera með sérdagskrá í tjaldinu alla
hátíðardagana yrðu stúdentar með
veitingasölu þar og að boðið yrði
upp á mat og drykk fyrir gesti og
gangandi.
58% samþykktu samninginn, 33 eða
41% sögðu nei og eitt atkvæði var
ógilt.
I fyi’radag fór fram atkvæða-
greiðsla um kjarasamning RSÍ og L
Reykjavíkurborgar greiddu 68,5%
atkvæði. 43 eða 73% samþykktu |
samninginn en 17 eða 27% sögðu nei. *
STUPfNTSG'A
NóbcLdcáMið./ j j ?' \ y
HAIXDÓR ; rprc
LAXNÉSS ™
m
Sjálfstætt fólk f
Gerou Sjáfstætt fólk
bókcildarinnar, i stúcléntsgjof
eðci önnnr roeistáraverk
Níöbelsskáldsins.
VAKA-HELGAFELL
Siðumulo 6 • Simi sso iooo
Menningar- og fræðahátíðin Líf í borg hefst í kvöld
Nýtt háskólalag valið
Samningar RSÍ við ríki
og borg samþykktir