Morgunblaðið - 25.05.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 29
ERLENT
Dómstóll sagður svipta
Pinochet þinghelgi
Santiago. AP, AFP.
FJÖLMIÐLAR í Chile sögðu í
gær að dómstóll í Santiago hefði
samþykkt að svipta Augusto Pin-
ochet, fyrrverandi einræðisherra,
þinghelgi til að hægt yrði að sækja
hann til saka fyrir mannréttinda-
brot sem framin voru á valdatíma
hans. Dómstóllinn neitaði þó að
staðfesta þetta og sagði að úr-
skurðurinn yrði gerður opinber
innan hálfs mánaðar. Verði Pin-
ochet sviptur þinghelgi getur hann
áfrýjað úrskurðinum til hæstarétt-
ar Chile.
Utvarpsstöðvar og ríkissjón-
varpið í Chile höfðu eftir heimild-
armönnum sínum að dómarar
áfrýjunarréttar í Santiago hefðu
samþykkt með tólf atkvæðum
gegn tíu í fyrradag að svipta Pin-
ochet þinghelgi. Ríkisstjórnin
kvaðst ekki hafa fengið úrskurð
réttarins og vildi ekkert segja um
málið að svo stöddu.
„Ákvörðun hefur verið tekin,“
sagði Ruben Ballesteros, forseti
áfrýjunarréttarins. „Urskurðurinn
verður tilkynntur eftir að hann
hefur verið skjalfærður og undir-
ritaður af öllum dómurunum, eftir
eina til tvær vikur.“
Fregnir hermdu að dómstóllinn
hefði klofnað þegar atkvæði voru
greidd um hvort verða ætti við
beiðni Pinochets um að málinu
yrði vísað frá vegna vanheilsu
hans. Ellefu dómarar voru hlynnt-
ir frávísun og jafnmargir á móti.
Atkvæðagreiðslan átti að fara
fram í gær en henni var flýtt um
einn dag, líklega til að koma í veg
fyrir fjölmenn mótmæli stuðnings-
manna og andstæðinga Pinochets
við dómhúsið.
Áfrýjunarrétturinn úrskurðaði
hvort svipta bæri Pinochet þeirri
friðhelgi sem hann hefur notið sem
öldungadeildarþingmaður. Hann
hafði tryggt sér sæti í öldunga-
deildinni til lífstíðar áður en hann
lét af embætti forseta árið 1990
eftir að hafa verið við vold í
sautján ár.
108 kærur
Verði Pinochet sviptur þinghelg-
inni verður hann sóttur til saka
fyrir mannréttindabrot sem framin
voru eftir blóðugt valdarán hersins
árið 1973. 3.190 manns voru
drepnir eða hurfu á valdatíma
hershöfðingjans, samkvæmt opin-
berri skýrslu sem stjórn landsins
hefur gefið út.
Dómstóllinn byggði úrskurð
sinn á röksemdum lögfræðinga
Pinochets og mannréttindasam-
taka og fjölskyldna fórnarlamb-
anna, auk skýrslu frá dómaranum
Juan Guzman, sem fer með 108
kærur á hendur einræðisherranum
fyrrverandi.
Guzman valdi eitt mál, „dauða-
lestina" svokölluðu, til að rök-
styðja beiðni sína um að Pinochet
yrði sviptur þinghelgi. Málið snýst
um nokkra herforingja sem ferð-
uðust með lestum til nokkurra
AP
Stuðningsmaður Augustos Pin-
ochets heldur á mynd af einræð-
isherranum fyrrverandi við
dómhús í Santiago og mótmælir
beiðni um að hann verði sviptur
þinghelgi og sóttur til saka fyrir
mannréttindabrot.
borga skömmu eftir valdaránið,
drógu pólitíska fanga út úr fang-
elsum og tóku þá af lífi.
Vitað er með vissu að 75 fangar
voru drepnir með þessum hætti en
Guzman lagði mesta áherslu á mál
19 fanga sem er enn saknað og
lýsti því sem „yfírstandandi mann-
ráni“.
Hægrisinnaðir stuðningsmenn
Pinochet höfnuðu þessari afstöðu
dómarans. „Þetta er fáránlegur
brandari," sagði Pablo Longueira,
leiðtogi Óháða lýðræðissam-
bandsins og dyggur stuðningsmað-
ur Pinoehets. „Við vitum öll að
þessir menn eru allir látnir."
Forsetinn óttast
ekki valdarán
Ricardo Lagos, forseti Chile,
sem var um skeið í fangelsi á
valdatíma Pinochets, vildi ekkert
segja í gær um fréttir fjölmiðlanna
um úrskurð áfrýjunarréttarins.
Forsetinn hafði lofað að sjá til
þess að úrskurðurinn yrði virtur
og hvatt „öll öfl í landinu“ til að
reyna ekki að beita dómstólinn
þrýstingi.
Áður hafði Ricardo Izurieta yfir-
hershöfðingi látið þau orð falla að
úrskurður um að Pinochet yrði
sviptur þinghelgi „myndi ekki vera
viðunandi fyrir okkur“. Andstæð-
ingar Pinochets og mannréttinda-
hreyfíngar gagnrýndu þessi um-
mæli og lýstu þeim sem tilraun af
hálfu hersins til að hafa áhrif á
niðurstöðu dómstólsins.
Lagos sagði enga ástæðu til að
óttast að herinn tæki völdin í sínar
hendur ef Pinochet yrði sviptur
þinghelgi þegar forsetinn var
spurður á dögunum hvort hætta
væri á valdaráni. „Við búum í lýð-
ræðislandi. Allir munu virða það
sem dómstólarnir ákveða. Við höf-
um ekkert að óttast."
Yfirmenn landhersins lýstu því
yfir á föstudag að hann myndi
virða stjórnarskrá landsins. Jorge
Arancibia, yfirmaður sjóhersins,
var einnig sagður hafa lýst því yfir
á sunnudag að virða bæri úrskurð
dómstólsins.
Hægrimenn virða úrskurðinn
Hægrisinnaðir þingmenn sem
styðja Pinochet tóku í sama streng
í gær. „Ef þetta er rétt lítum við
auðvitað á úrskurðinn sem mistök,
óréttláta niðurstöðu, en við ætlum
samt að virða hann,“ sagði einn
stuðningsmanna Pinochets á þing-
inu, íhaldsmaðurinn Alberto Card-
emil.
Luis Cortes, fyrrverandi hers-
höfðingi og náinn bandamaður
Pinochets, varði einræðisherrann
fyrrverandi eftir að hafa hitt hann
í síðasta mánuði. „Hann sagði við
mig: „Segðu öllum að ég hafi
aldrei fyrirskipað morð eða pynt-
ingar á nokkrum manni.“
Pinochet er 84 ára og sneri aftur
til Chile í febrúar eftir að hafa
verið í haldi í London í 16 mánuði
meðan fjallað var um beiðni
spænsks dómara um að hann yrði
framseldur til Spánar til að hægt
yrði að sækja hann til saka fyrir
mannréttindabrot. Bretar leystu
hann úr haldi eftir að breskir
læknar komust að þeirri niður-
stöðu að hann væri ekki fær um að
verja sig fyrir rétti vegna heilsu-
brests og andlegrar hrörnunar.
Læknar Pinochets í Chile studdu
þá niðurstöðu.
afsiáttur
Apctekið
lipurð og lægra verð
Apótekið Suðurströnd
Suðurströnd 2
170 Seltjarnarnesi
Sfmi: 561 4600
Apótekið Smáratorgi
Smáratorgi I
200 Kópavogi
Sfmi: 564 5600
Apótekið Spönginni
Spönginni 13
112 Reykjavlk
Sími: 577 3500
Apótekið Skeifunni
I Hagkaup Skeifunni 15
108 Reykjavík
Sfmi: 563 5115
Apótekið Akureyri
í Hagkaup Furuvöllum 17
600 Akureyri
Sími: 461 3920
Apótekið Kringlunni
í Nýkaup Kringlunni 8-12
103 Reykjavík
sfmi: 568 1600
Hafnarfjarðar Apótek
Fjarðargötu 13-15
220 Hafnarfirði
Sfmi: 565 5550
Apótekið Iðufelli
Iðufelli 14
I 11 Reykjavlk
Sfmi: 577 2600
Apótekið Smiðjuvegi
Smiðjuvegi 2
200 Kópavogi
Slmi: 577 3600
Apótekið Mosfellsbæ
í Nýkaup Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
Sími: 566 7123
Lífeyrisþegar
100% afsláttur af öllum
lyfseðilsskyldum lyfjum!
Vegna góðra undirtekta
framlengjum við tilboðið
til laugardagsins 27.maí.
Þú einfaldlega kemur með
lyfseðilinn íApótekið og
við tökum vel á móti þér.
\00%
■'■* ■-. ■■>