Morgunblaðið - 25.05.2000, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Grolli
Saschko Gawriloff mun flylja Fiðlukonsert Györgys Ligetis á tónleikunum.
Með lífíð í lúkunum
Konsert fyrir
hljómsveit
Hljómsveitarverkið
Toccata eftir Karólínu
Eiríksdóttur verður
frumflutt á Islandi á
tónlcikunum íkvöld.
Verkið var samið að
beiðni Orkester Nord-
en með styrk frá NOM-
US.
„Verkið er í einum
þætti sem skiptist þó í
samtengdan forleik og
aðalkafla. Eiginlega er
hér um að ræða eins
konar konsert fyrir
hljómsveit, því að allir
hljóðfærahópar hljóm-
sveitarinnar koma ein-
hvern tímann sérstak-
lega fram í sviðsljósið," segir
Karólína.
Orkester Norden frumflutti
verkið undir stjórn Toumas Ollila í
Rattvik í Svíþjóð í fyrrasumar og í
framhaldi af því á tónleikaferðalagi
m.a. í Stokkhólmi, Helsinki og Riga.
Hljómsveitin flutti verkið undir
stjórn Okko Kamu í tilefni opnunar
norrænu sendiráðanna í Philharm-
onie-salnum í Berlín sfðastliðið
haust. Toccatan er með öðrum orð-
um að verða býsna veraldarvön.
Karólina var viðstödd frumflutn-
inginn og svo aftur í Stokkhólmi og
Berlín. Flutningurinn
í kvöld leggst vel í
hana.
Orkester Norden er
sett saman einu sinni á
ári en hljómsveitina
mynda nemendur úr
tónlistarháskólum á
Norðurlöndum.
Hljómsveitin hélt tón-
leika hér á landi fyrir
tveimur árum og
Karólína komst þá að
því að hún hefur afar
hæfum hljóðfæraleik-
urum á að skipa. „Eg
heillaðist af færni
þessa unga fólks og
fannst því tilvalið að
leyfa öllum hljóðfærahópum að
njóta sín. Hljómsveitin kveikti í mér
að þesu leyti.“
Karólína er nú að hefjast handa
við að semja gítarkonsert fyrir arg-
entínskan gítarleikara, Sergio
Puccini að nafni. „Þetta kom þann-
ig til að Puccini hafði fengið gítar-
verkið mitt, Hvaðan kemur lognið, í
hendur og bað mig að skrifa fyrir
sig konsert. Hann er meira að segja
kominn á dagskrá hjá sinfón-
íuhljómsveitinni í Santa Fe í júní á
næsta ári. Þetta verður mitt næsta
verkefni."
Karólína
Eiríksdóttir
Gestur Sinfóníuhljómsveitar Islands á
síðustu áskriftartónleikum vetrarins í
Háskólabíói er fíðluvirtúósinn Saschko
Gawriloff. Qrri Páll Ormarsson fór að fínna
þennan þrautreynda Þjóðverja sem segir að
fiðlan sé líf sitt.
SASCHKO Gawriloff situr að
snæðingi í Skrúði Hótels Sögu þeg-
ar mig ber að garði. Hjá honum
stendur maður. Þeir eru að skipu-
leggja útsýnisflug yfir Reykjavík
og nágrenni. „Eg veit ekki hvernig
þetta verður á eftir, veður skipast
svo skjótt í lofti á íslandi," segir
maðurinn. „Það er allt í lagi, láttu
okkur bara hafa fallhlífar," svarar
Gawriloff að bragði, sposkur á svip.
Virtúósinn er bersýnilega vískur.
Hann er ljúfur í viðkynningu
þessi víðförli Þjóðverji, hlýr og
brosmildur. Til borðs með okkur
situr eiginkona hans sem ferðast
með bónda sínum annað veifið.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik
á Islandi og hún vildi ekki fýrir
nokkum mun missa af tækifærinu
til að sjá þetta sérstaka land. Við
höfum raunar alltof lítinn tíma til
að skoða okkur um og útsýnisflugið
leggst því vel í okkur.“
Gawriloff hlakkar líka til tónleik-
anna og telur að gaman verði að
leika með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. „Hljómsveitin kom mér í
opna skjöldu, ég bjóst satt best að
segja ekki við því að þið ættuð
svona góða hljómsveit hérna. Síðan
er fólkið svo jákvætt og almenni-
legt, en það er alls ekki sjálfsagður
hlutur, trúðu því frá manni sem
víða hefur komið.“
Gawriloff mun leika Fiðlukonsert
eftir ungverska tónskáldið György
Ligeti í kvöld, verk sem samið var
sérstaklega fyrir hann.
„Ligeti skrifaði píanótríó fjrir
kammertríó, sem ég leik með, árið
1991 og upp frá því fórum við að
velta því fyrir okkur hvort hann
ætti ekki að skrifa konsert fyrir
mig. Ligeti sló til og ári síðar var
verkið tilbúið. Ég frumflutti það
með Ensemble Modern-hljómsveit-
inni undir stjórn Peters Eötvös í
Köln í október 1992.“
Og Gawriloff sparar ekki stóru
orðin þegar hann er beðinn um að
segja álit sitt á verkinu. „Þetta er
einn besti fiðlukonsert okkar tíma,
á því leikur enginn vafi. Verk sem
á eftir að standast tímans tönn -
skipa veglegan sess í fiðlubók-
menntunum." Gawriloff hefur leikið
verkið á um eitt hundrað tónleikum
og segir það alltaf gefa sér jafn
mikið. Fyrstu þrjú árin hafði hann
einkarétt á flutningi þess en nú
hafa ýmsir aðrir fiðluleikarar tekið
það upp á sína arma, meðal ann-
arra gamall nemandi Gawriloffs,
Frank Peter Zimmermann.
En finnst honum ekki undarlegt
að aðrir menn fari höndum um
verkið?
„Alls ekki. Ég hvatti Zimmer-
mann til dæmis til að glíma við það,
það er áskorun fólgin í þessu
verki.“
Áhugi Gawriloffs á fiðlunni kom í
ljós strax á barnsaldri; faðir hans
kenndi honum fyrstu tökin á hljóð-
færið en kom honum fljótlega til
náms hjá færustu kennurum, fyrst
í Leipzig og síðan í Berlín. Gawri-
loff var aðeins sautján ára gamall
þegar hann kom fyrst fram sem
einleikari með Gewandhaus-hljóm-
sveitinni í Leipzig og lék þá fiðlu-
konsert Mendelssohns. Frá þeirri
stundu hefur glæstur ferill Gawri-
loffs verið óslitinn bæði sem kenn-
ara og einleikara.
Átján ára var hann orðinn kon-
sertmeistari Fílharmóníuhljóm-
sveitar Berlínar og síðar prófessor
við virta tónlistarskóla í Detmold
og Köln. Hann hefur leikið sem
einleikari með mörgum af fremstu
hljómsveitum heims undir stjórn
fæiustu hljómsveitarstjóra, svo
sem Sir Georg Solti, Pierre Boulez,
Peter Eötvös og Esa-Pekka Salon-
en. Efnisskrá Gawriloffs nær yfir
helstu klassísku tónverk sem skrif-
uð hafa verið fyrir fiðlu en hann
sérhæfir sig í flutningi nútímatón-
verka og kammerverka, svo sem
verkum eftir György Ligeti, Hans-
Júrgen von Bose, Mauricio Kagel,
Bruno Maderna, Wolfgang Rihm,
Isang Yun og Alfred Schnittke.
Gawriloff hefur hlotið ótal viður-
kenningar fyrir leik sinn og hljóð-
ritanir sem hann hefur gert.
Hann á erfitt með að gera upp á
milli nútímatónverka og klassíkur:
„Sem túlkandi tónlistar verð ég
að geta flutt öll þau verk sem máli
skipta í fiðlubókmenntunum, hvort
sem þau eru samin á þessari öld
eða fyrr. Ég hef mjög gaman af því
að flytja ný verk, hef frumflutt
fjöldann allan af verkum, en gæti
ekki án Beethoven og Brahms ver-
ið. Ég sinni þessu því jöfnum hönd-
um.“
Gawriloff efnir endnim og eins
til Master Class-námskeiða en er
að öðru leyti hættur kennslu. Allur
hans tími fer nú í flutning einleiks-
og kammerverka og heimurinn er
starfsvettvangur hans.
Þannig verður það áfram. I það
minnsta hefur hann ekki í hyggju
að rifa seglin. Þegar hann er spurð-
ur hvað hvetji hann til dáða eftir
alla þessa sigra ypptir hann ein-
faldlega öxlum og segir: „Fiðlan er
líf mitt!“
Kallast það ekki að vera með lífið
í lúkunum?
Verk eftir Varese
Tónleikarnir hefjast á verkinu
„Intégrales“ eftir Frakkann Edg-
ard Varese (1883-1965).
Rétt fyrir árslok 1915 fluttist
Varese til Bandaríkjanna, þá 32 ára
gamall. í viðtali við New York
Telegraph lýsti hann skoðun sinni á
nauðsyn þess að finna nýja hljóð-
gjafa. „Ég hef alltaf fundið fyrir
vöntun á nýjum hljóðmiðli sem get-
ur náð fram því sem ég vil fá fram í
verkum mínum, ég neita að sætta
mig við að nota hljóð sem þegar
hafa heyrst.“
Þegar hér var komið sögu á ferli
hans hafði Varese samið töluvert af
tónverkum og honum var mjög vel
tekið í Bandaríkjunum bæði sem
UNDANFARIÐ skólaár hafa nem-
endur Engjaskóla unnið mósaík-
listaverk í tengslum við Reykjavik
- menningarborg Evrópu árið 2000
og mun elsti nemandi skólans af-
hjúpa verkið við Engjaskóla í dag,
fimmtudag, kl. 18. Verkið er liður í
samvinnu Menningarborgar og
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur
„listamenn í skólum“, sem leitt hef-
ur til þess að listamenn úr öllum
greinum vinna með börnum í öllum
grunnskólum Reykjavíkur.
Verkið er hringlaga, um 2 metrar
í þvermál, og táknar alheiminn eða
óendanleikann. Hringnum er skipt
niður í níu hluta og sá hver ár-
gangur um einn hluta verksins, en
tónskáldi og hljómsveitarstjóra.
Hann hélt áíram að semja og verk
hans voru flutt af þekktum hljóm-
sveitum. Á árunum 1923-1925 vann
hann að samningu verksins Inté-
grales fyrir litla hljómsveit og
ásláttarhljóðfæri. Það var frumflutt
í New York árið 1925 og ári síðar
flutti Ffladelfíuhljómsveitin verkið
undir stjórn Leopolds Stokowskis.
I verkinu kom skýrt og greinilega
fram sú stefna sem Varese stefndi
að í tónsmíðum sínum. Sumum tón-
leikagestanna þótti lítið til verksins
koma en aðrir hrifust svo mjög að
Stokowski sá ástæðu til þess að
endurtaka flutninginn.
Verkið er í einum þætti sem
skiptist í þrjá hluta. Grunnhug-
mynd fyrsta hlutans heyrist í byrj-
un í skerandi tónum Es-klarínetts-
ins, þ.e. einn tónn með tveggja tóna
forslagi sem leikinn er aftur og aft-
ur. Þessi hugmynd er margendur-
tekin með stöðugt meiri ákefð.
Dempaður trompet, óbó, ódempað-
ur trompet og horn taka hugmynd-
ina upp og hún blómstrar. Éftir
sterkan hápunkt og skyndilega
þögn hefst annar hlutinn með veiku
ómstríðu hvísli tveggja piccoló-
flautna. Grunnhugmyndin er út-
færð, aðallega í formi hljóðfalls
endurtekinna tóna. Eftir sterkan,
ómstríðan hápunkt hefst síðasti
hlutinn með næstum ógreinanlegu
slagverki. Óbóið þróar hugmynd í
löngum, margendurteknum nær-
liggjandi tónum, krómatískum, sem
líkjast nánast austurlenskum
9. og 10. bekkur unnu saman einn
hlutann. Kross í miðju verksins og
viðfangsefni myndhlutanna tengj-
ast einnig 1000 ára afmæli kristni-
töku á íslandi. Unnið var að verk-
inu allt síðasta skólaár, og komu
allir nemendur Engjaskóla að því.
Sóknarnefnd Grafarvogssóknar
hefur sýnt þessari vinnu mikinn
áhuga og hefur ákveðið að gefa
skólanum skjöld með áletruðum
upplýsingum um verkið. Umsjónar-
menn með verkinu voru Guðrún
Gísladóttir myndlistarmaður, á
vegum Fræðslumiðstöðvar og
Menningarborgarinnar, og Ingi-
björg Hannesdóttir myndmenntak-
ennari.
hljómi. Hápunkti nær verkið í
sterkum ómstríðum hljómi.
Frakki með sprotann
H lj ómsvei tarstj óri kvöldsins er
Frakkinn Diego Masson. Hann
stundaði nám við tónlistarháskól-
ann í París og síðar hjá Pierre
Boulez. Að námi loknu gerðist hann
slagverksleikari í „Domaine Mus-
ieal“-flokknum. Árið 1966 stofnaði
hann hópinn „Musique Vivante"
sem helgar sig flutningi samtíma-
tónlistar, en með þeim starfar hann
enn reglulega. Eftir mikla vel-
gengni sem listrænn stjórnandi
Marseille-óperunnar hefur Masson
gert víðreist og stjórnað mörgum
helstu hljómsveitum í Evrópu, Am-
eríku og Ástralíu. Auk þess að sér-
hæfa sig í flutningi samtímatónlist-
ar hefur hann lagt sig eftir því að
vinna með unglingahljómsveitum,
s.s. Trinity College-hljómsveitinni í
Bretlandi og hljómsveit Juilliard-
skólans í New York.
Líf í borg
Mynd-
listarsýn-
ing í Odda
í TENGSLUM við menningar-
og fræðahátíðina Líf í borg sem
hefst í Háskóla íslands í dag,
hefur verið opnuð í Odda mynd-
listarsýningin Fjölskyldu-
tengsl. Á sýningunni eru kynnt
tíu verk íslenskra myndlistar-
manna með fjölskylduna og
mannleg tengsl sem viðfangs-
efni.
Verkin _eru eftir myndlistar-
mennina Ásgrím Jónsson, Nínu
Tryggvadóttur, Gunnlaug
Scheving, Jón Engilberts, Lo-
vísu Matthíasdóttur, Sigrúnu
Eldjárn, Sigurð Orlygsson,
Snon-a Arinbjarnar, Valgarð
Gunnarsson og Vigni Jóhanns-
son.
Vignir Jóhannsson, mynd-
listarmaður, hefur valið verkin
og búið þau til sýningar í nýrri
umgjörð. Myndunum fylgir
texti sem tengir þær við við-
fangsefni Borgarfjölskyldunn-
ar, en það er eitt þemanna á
menningar- og fræðahátíðinni.
Listaverk afhjúp-
að við Engjaskóla