Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 51

Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 51 ar beggja, við leituðum ráða og stuðnings hjá honum á erfiðum tím- um og á öðrum stundum sóttum við eftir þekkingu hans, gamansemi og vináttu. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst honum og við munum sakna hans. Fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjui’. Þóra Bjömsdóttir og Þómnn Bjarnadóttir. „Dagurinn þegar ég duftið sezt í undirdjúp eiverunnar“ ( H. St.) Dag- urinn sá er upprunninn í lífi sr. Heimis Steinssonar, mun fyrr en skyldi frá okkur skoðað sem enn lif- um hér í heimi og söknum hans. Hann hafði miklu að miðla, bjó að skörpum gáfum og miklu atgervi, fjölþættri menntun og þekkingu, jós úr brunni fornrar visku og nýrrar, þekkti vel blæbrigði mannkyns- og þjóðarsögu, hræringar hugsjóna og hugmyndastrauma og einkum litrof- ið marglita er stafar frá djásnum kristinna trúarverðmæta. „Guð minn, Guð minn./ Manstu fyrsta sólskinsmorguninn í húsi þínu?/ Bærinn var í svefniý vordögg í stráum/sólin að rísa/yfir fjalli þínu.“ Svo hefst Kveðja, eitt merkra ljóða sr. Heimis er birtist í ljóðabók hans Haustregni. Það lýsir tilfinn- ingu hans og skynjun árla dags á helgum degi er fýrsta messan hans er framundan í Seyðisfjarðarkirkju. „Manstu hvernig sólstöfum skaut inn um gluggana/ofan af tindum fjalls þíns/ hvernig fjaðurmagnaðir kólfar þeirra/stóðu tindrandi í kirkjubekkjunum?" spyr hann og þykir sem Guð sé kominn sjálfur í geislaflóðinu „Manstu hvernig ég kraup/ og þú varst um alla kirkjuna/ og í mér/ fullum tilhlökkunar/ og áhyggju?" Sr. Heimir hefur þá hugs- að um Guð en líka móður sína Arn- þrúði Ingólfsdóttur sem kvödd var í kirkjunni tveimur árum fyrr og hafði verið honum ráðgjafinn besti og jafnframt þakkað það að Steinn Stef- ánsson skólastjóri faðir hans skyldi stjórna kirkjukórnum og leika á or- gel kirkjunnar. Hann hefur horft yfir uppvaxtarár sín á bernskuheimilinu í Tungu vestan við kirkjuna, þakkað hollu áhrifin þaðan, samskiptin góðu við foreldra og systkini. Sr. Heimir hafði numið íslensk fræði og fornleifafræði áðm- en hann sneri sér að guðfræði. Hann vildi leita uppruna og róta og fann til þess að dýpst væri seilst í þeirri fræði- grein. Það fóru af honum sögur í guðfræðideild Háskólans fyrir yfir- burðahæfni og námsárangur þegar ég kom þangað til náms nokkrum ár- um eftir að hann útskrifaðist. Mér þótti sem sr. Heimir væri mér þá þegar viðkomandi þar sem bernsku- spor okkar beggja höfðu legið á Seyðisfirði. Við hittumst þó fyrst við útför föðurafa míns Jóns Sigfinn- ssonar. Ég hreifst af minningarorð- um sr. Heimis sem kynntu mér ýmsa þætti í lífshlaupi og skapgerð afa míns sem ég hafði ekki fyrr gefið gaum enda þekktust þeir vel og höfðu skipst á ljóðabréfum. Sr. Heimir þekkti líka vel til fólksins míns kæra á Strandbergi er hafði fylgt föður hans í stjórnmála- og verkalýðsbaráttunni á Seyðisfirði. Sr. Heimir hafði þá nýverið tekið að sér að koma á fót og stýra Lýðhá- skólanum í Skálholti er miklu skipti fyrir enduireisn Skálholts og gekk að því verki af einurð og eldmóði. Er ég gerðist kennari vetrarlangt við Lýðháskólann urðum við sr. Heimir miklir mátar og sálufélagar. Kynnin við hann voru lærdómsrík og vinátta okkar dýrmæt. Traust for- ysta hans veitti nemendum skólans öryggi og tiltrú og efldi þeim sjálfs- traust. Heimir var frábær kennari. Hann hafði hljómsterka rödd og var afar hnitmiðaður og skýr í framsetningu og oft glettinn og gamansamur. Rök íslensks máls urðu ljós í meðferð hans og meginstraumar mannkyns- og íslandssögu greinilegir og dansk- an heillandi og latínan líka. Og hann dró glöggt fram kjarnaatriði í hugs- anakerfum merkustu heimspekinga. Umfjöllun um samtímaviðburði á laugardagsmorgnum sem við Arnór Karisson raungreinakennari stóðum fyrir ásamt sr. Heimi varð líkt og spennandi sjónvarpsefni. Tíðindi er- lendis frá og innanlands voru krufin og rædd. Listir og menningarmál voru einnig tekin fyrir og fyrirlesar- ar komu í heimsókn og fjölluðu um aðskiljanlegustu efni. Listsýningar voru sóttar og söfn í höfuðborginni og leikhúsverk og fundað með leik- stjórum og leikurum eftir sýningar. Kvöldvökur fóru fram í Lýðháskól- anum með fjörlegum leikþáttum og flesta þeiira hafði Heimir samið. Leikritið „Hreppstjórinn á Hraun- hamri“ eftir Loft Guðmundsson var einnig æft um veturinn og sýnt í Ara- tungu við mikla hrifningu. En jafn- framt því að standa saman að kennslunni nutum við Heimir þess að ígrunda og ræða guðfræðileg efni og samfélagsmál. Hann hafði þá ný- lega staðið í harðri orrahríð og rit- deilu á dagblaðssíðum um „spírit- isma“ og verið þar bæði skeleggur og orðhvatur. Hann taldi hillingar og hrævarlog hæpinn grunn að trúar- sannfæringu, vildi að horft væri raunsætt á dauðans ógn og voða og svara leitað í þeirri hreinu trú, sem ekkert tekur gilt nema hjálpræðis- verk frelsarans, krossfóm hans og upprisusigur. En þó leyfði hann sér að efast um réttmæti svara sinna og viðbragða og spyr í ljóði: „Var það ef til vill rangt? Hef ég unnið voðaverk? Var það glæpsamlegt athæfi að stugga við þeim öllum sem reikuðu eftir svefngenglagötunni?“ Hann fann jafnframt til þess hve trú og efi togast mjög á ef einarðlega er skoð- að og spurt. „Skelfdur til dauða feta ég einstigi efans,“ segir hann á ein- um stað. „Hengiflug trúar eru mér á aðra hönd, afneitunar á hina.“ Dóra Erla Þórhallsdóttir, glaðvær og glæsileg eiginkona sr. Heimis, var honum jafnan uppörvunin helsta og endui-nýjaði lífsþrek hans enda segir hann er hann ljóðar til hennar: „Fjöl- ært blóm rennur ást mín úr grasi á nýju vori.“ Og bömin þeirra, Þór- hallur sem þá var rétt kominn á unglingsár og Amþrúður enn barn- ung, voru honum stöðugir gleði- gjafar og þakkarefni. Vígsluprédik- un mína samdi ég í Skálholti enda þótti mér gott að vinna þar. Og eftir að ég hóf prestsþjónustu fyrst á Suð- ureyri en síðar í Hafnarfirði fylgdist sr. Heimir grannt með viðfangsefn- um mínum og verkum og veitti holl ráð og leiðbeiningar. Hann gaf okkur Þórhildi saman fagurt sumarkvöld í Skálholtskirkju og varð síðar einn af vígsluvottum hennar þegar hún tók prestsvígslu. Sr. Heimir var þá orðinn prestur á Þingvöllum og þjóðgarðsvörður og vakti athygli á þýðingu Þingvalla sem þjóðarhelgidóms og ritaði dag- blaðspistla „Austan um heiði“ þar sem trú og þjóðmál mnnu saman. Hann var einstakur leiðsögumaður um þjóðarhelgidóminn, lýsti kenni- leitum og umhverfi af listfengi og dró fram leiftrandi sögumyndir. Hann tók á móti erlendum þjóðhöfðingjum og tignargestum og sagði þeim jafnt og íslensku alþýðufólki frá kristni- töku þjóðarinnar og lýsti því að jarð- arflekar og meginlönd greindust að á Þingvöllum svo þai’ væri hvað hent- ugast að brúa bil milli Gamla- og Nýja heimsins og gjánna milli aust- urs og vestur. Hann fræddi Gorbat- sjov og Reagan um þessi sannindi og páfann líka sem hann ávarpaði á lat- ínu. Sr. Heimir átti spámannlega sýn og sannfæringu. Hann boðaði rót- tækan kristindóm sem einkenndist af sterkum andstæðum, synd og náð, glötun og hjálpræði, krossfórn og upprisu og þráði að eldi yrði varpað á jörðu, ekki þeim sem brýst fram í eldgosum heldur himneskum eldi Guðs anda sem hreinsaði sálir og endurfæddi heim. Hann bauð sig fram til að vera í forystu fyrir stríð- andi kirkju þjóðar er skerpti sjálfs- mynd sína og skilgreindi glöggt stöðu sína í siðgæðis- og trúarefnum og liti á sjálfa sig sem kristniboðsak- ur þar sem prédikað yrði og boðað til afturhvarfs og vakningar. Og við- horfa hans hefur gætt sem virkra áhrifa og undirstraums í kirkjunni þó forystuhlutverkið yrði annarra. Sr. Heimir hafði iðulega flutt áheyi-ileg erindi í útvarp um hugðar- efni sín. Er hann gerðist útvarps- stjóri hefur hann vænst þess að geta eflt menningarhlutverk Ríkisút- varpsins og tryggt að sá áhrifaríki fjölmiðill yrði áfram sameign þjóðar og flytti sem fyrr traustan fróðleik og áreiðanleg tíðindi og kristin sjón- armið ættu þar greiðan aðgang og farvegi nú er merk aldamót og kristnihátíðarár væru framundan. Sú viðleitni varð honum þó erfiðari en skyldi sökum andstreymis mark- aðshyggju og ólgustrauma en ein- beitt viðstaða hans hefur þó bægt frá varanlegu tjóni og háska. Sr. Heimir sneri aftur til Þjóðar- helgidómsins og þjónaði þar við hei- lagt altari Þingvallakirkju og fann hjarta landsins slá í sköpunarun- drum. „Hvilíkur morgunn: Botnssúl- ur stíga fram úr skrúðhúsi tungl- skinsnæturinnar klæddai’ hvítum messuserk albúnar til helgrar þjón- ustu.“ Svo hafði hann ort um Súlum- ar og fjöllin glæstu er umlykja Vell- ina og lýst þeim sem kirkjugestum er koma til messu. Hann fann landið helgast af návist Guðs anda og skynjaði nánd hans í lífríki og eigin brjósti sem einingaraflið handan svipulla fyrirbrigða og lífsmynda í stundarheimi. „Eg er “ Undir þvi nafni hafði Guð opinberast Móse forðum og sú Guðsopinberun varð sr. Heimi stöðugt umhugsunarefni og jafnframt vera Jesú Krists og sjálfs- mynd hans sem kemur fram í orðum hans er hefjast á „Ég er“ og vísa til sjálfsbirtingar Guðs. „Ég er góði hirðirinn... Ég er dyr sauðanna... Ég er ljós heimsins... Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið." Og orð Jesú: „Verið í mér, þá verð ég í yður,“ sem gefa til kynna að fylgjendur hans eignist hlutdeild í veru hans og sjálfsmynd, gerðu fyrrgreind orð frelsarans að fagnaðarerindi. Vegna SJÁNÆSTUSÍÐU Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. t Okkar ástkæri eiginmaður, sonur og afi, BERGMANN BJARNASON, Reitarvegi 4, Stykkishólmi, sem lést miðvikudaginn 17. maí, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju föstu- daginn 26. maí kl. 14.00. Hjálmdís Jónsdóttir, Kristín Davíðsdóttir, Berglind Bergmannsdóttir. t Okkar kæra, ÞÓRUNN KOLFINNA ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis í Lönguhlíð 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstu- daginn 26. maí kl. 13.30. Ólafur Ögmundsson, Þórunn K. Helgadóttir, Katla Ólafsdóttir og aðrir ættingjar. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR MAGNÚS SIGURJÓNSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 26. maí kl. 15.00. Sigríður Rósmundsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristinn Hlíðar Kristinsson, Sigurjón Hjörtur Sigurðsson, Theodór Sigurðsson, Ragnhildur G. Júiíusdóttir, Guðrún Sæmundsson, barnaböm og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi KRISTJÁN JÓHANNES EINARSSON húsasmíðameistari, áður til heimilis í Skipasundi 60, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstu- daginn 26. maí kl. 13.30.. Erna Margrét Kristjánsdóttir, Símon Ágúst Sigurðsson, Ómar Árni Kristjánsson, Anna Björg Kristbjörnsdóttir, Sólveig Kristjánsdóttir, Sigþór Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LAUFEY SIGURÐARDÓTTIR frá Torfufelli, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er góðfúslega bent á Kvenfélagið Hlíf til styrktar barnadeild FSA. Jón R. Björgvinsson, Elsa H. Óskarsdóttir, Sigrún Björgvinsdóttir, Valgarður Baldvinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Sendum öllum hugheilar þakkir, sem sýndu hlýhug og veittu okkur stuðning við andlát og útför ZOPHONÍASAR STEFÁNSSONAR, Mýrum. Einnig sendum við læknum og starfsfólki Sjúkrahússins á Egilsstöðum innilegar þakkir fyrir góða aðhlynningu. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Einarsdóttir, Ásrún Zophonfasdóttir, Einar Zophoniasson, Jónína Zophoníasdóttir, Ólöf Zophoníasdóttir og fjölskyldur. 4„ “i'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.