Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 57

Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 57
(frn/> JSíGÍDaQM MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN OQOS TÁM .flS fflTOAOTITMMT’g FIMMTUDAGUR 25. MAI 2000 57 ítrekuð villa í HINN 11. maí 2000 ták ég fyrir og gagn- rýndi að gefnu tilefni skoðanir þær sem Páll Bergþórsson veður- fræðingur setur fram í bók og blaðagrein um siglingar forfeðranna á N orður-Atlantshafi. Hinn 13. maí 2000 svar- ar Páll þessari gagnrýni með útúrsnúningi frá kjama málsins sem fjallar um orðið dægur og notkun þess í aigl- ingafræði til foma. í stað þess að útskýra fyr- ir lesendum Mbl. hverj- ar skoðanir hans eru á orðinu fer hann yfir í þá villu að segja að það séu 550 sjómflur á fomri sigl- ingaleið á milli Noregs og Islands og ítrekar þar með villutrú sína á þessu foma orði. Vínlandsvilia Páls er gegn- umgangandi í bók hans um landafundi í Norður-Ameríku og er áberandi í blaðagi-ein hans frá 27. aprfl 2000, en þar segir Páll þetta: „Það voru sjö dægurleiðir á skipum sögualdar- manna milli Islands og Noregs. Það sannar að menn sigldu 75-80 sjómílur í dægri í miðlungssldlyrðum." Það þarf ekki sigl- ingafræðing til að sjá skoðanavillu Páls í þessu máli því hér er vegalengdin á milli 560 sjómflur. Ég ætla að skoða málið nánar og sæki í bók hans sigl- ingahraða upp á 6,5 sjó- mílur á klukkustund. Skip sem siglir eitt dægur á 6,5 sjómflum á klukkustund, siglir 156 sjómflur á dægri eða 1092 sjómílur á sjö dægrum. Þetta verður vegalengdin á milli ís- lands og Noregs sam- kvæmt sóldægurkerf; inu eða sóleyktarkerfmu forna. í tilfelli Páls siglir skip 80 sjómflur á dægri og er ganghraði þess því 3,3 sjómílur á klukkustund sem er ekki mikill hraði á víkingaskipi hvort sem það er knörr eða langskip. Þetta er hrópleg mótsögn við þá fullyrðingu hans að skip gangi 6,5 sjómflur á klukkustund. Þessi skoðanavilla Páls verður þess valdandi að allar stað- setningar hans á skipum forfeðranna í Ameríku eru rangai- í bók hans. I grein minni frá 11. maí 2000 hélt ég Guðbrandur Jónsson V ínlandsgátu Siglingar Það þarf ekki siglinga- fræðing, segír Guðbrandur Jónsson, til þess að sjá skoðana- villu Páls í þessu máli. því fram að vegalengdin á hinni fornu siglingaleið Noregur-ísland væri 1150 sjómílur. Það er þannig fundið út að skip siglir á söguöld frá Noregi til Hjaltlands, suður fyrir Færeyjar og þaðan yfir að Eyri við Ölfusá. Þetta er dregið upp á viðurkennt siglingakort. Það er mér hulin ráð- gáta hvernig Páll Bergþórsson fær þessa vegalengd til að vera 550 sjó- mflur. Páll Bergþórsson gerir ekki grein fyrir því gagnvart lesendum Mbl. eða þeim sem eiga bók hans hvar dæg- urskipti verða í ætluðu 12 tíma dægri. Er það á milli austurs og vest- urs eða á milli norðurs og suðurs! Hér sýnist mér svo að það vanti nótt í hugarheim Páls Bergþórssonar veð- urfræðings. Á meðan svo er má ætla að heimsmynd Páls í bók hans sé hvorki meira né minna en 730 dagar í ári. Þannig verða sumir eldri en aðr- ir. Er það nema von um að um mis- skilning sé að ræða á milli manna í nútíma upplýstu samfélagi. Páli Bergþórssyni verður ekki að ósk sinni um að ég bíði með gagnrýni á bók hans „Vínlandsgáta" hin síðari eða grein hans „Vínlandsvilla", en ég lofa Páli því að fróðir menn og kenn- arar í siglingafræði eiga eftir að undrast með mér yfir miðaldavillu Páls um að dægrið geti verið 12 tímar eins og Páll heldur fram í nýrri bók sinni „Vínlandsgátan“ sem nú er að koma út á ensku og þá verður ekki hlegið á landsvísu heldur á heimsvísu að miðaldavillu Páls. Þá sjá allir í heimi hér að jörðin er flöt hjá íslensk- um veðurfræðingi á gervihnattaöld. Páll Bergþórsson á ekki að hringj^ í þá sem rita greinar í Mbl. snemma-' morguns og hafa uppi hótanir. Slíkur hroki er lítilsvirðing við alla þá sem hafa aðrar skoðanir og eru Páli ósammála um staðreyndir í siglinga- sögu íslands til forna en Páll ekki sér. Þar þarf engu að breyta eins og Páll gerir í bók sinni „Vínlandsvill- an“, sem nú er að koma út á ensku, til að ná fram ímyndaðri niðurstöðu. Bók Páls er móðgun við siglingasögu I slands til forna og er til smánar fyrir íslenska sjómenn og flugmenn sem allir nota 24 tíma í dægri til að geta ferðast yfir dægurbaug á flugvélum m og skipum. Höfundur er þyrluflugstjóri. Maestro ÞITT FE HVARSEM ÞÚ ERT Við erum í okkar arlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bílum. Við verðum á Húsavik um helgina. Nýttu tækifærið. Komdu og prófaðu bfla af bestu gerð. Húsavík Laugardaginn 27. maí kl. 10-16 Sunnudaginn 28. maí kl. 12-16 Bílaleiga Húsavíkur, Garðarsbraut 66 Allar nánari upplýsingar: Bflaleiga Húsavíkur, sími 4641888 Land Rover Discovery Land Rover Defender Land Rover Freelander BMW Compact Renault Scénic Renault Laguna Renault Mégane Break Renault Mégane Classic Hyundai Starex Hyundai Accent Hyundai Sonata RENAULT HYUnDni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.