Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 59

Morgunblaðið - 25.05.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000 59 Austurbæj arskólinn NÚ á 70 ára afmæli Austurbæj ar skólans minnist ég veru minnar þar frá bjnjun, 7 ára gömul árið 1988. Kennari okkar var Stefán Jónsson og bekk- urinn E-bekkur. Stefán minn, sögðum við og enginn var honum fremri né betri í okkar augum. Allar vísurnar eftir hann sem hann kenndi okkur, t.d. Guttavísurn- ar; ekki var laust við maður væri svolítið montinn að eiga Stefán. Sögurnar hans voru í miklu uppáhaldi og eignaðist ég fljótt t.d. Skóladaga og Vini vorsins. Einhvern veginn fannst mér alltaf Stefán vera Hjalti litli, en sögurnar um Hjalta litla las hann í útvarpið fyrir mörgum árum, með sinni minnisstæðu rödd, svolítið hvellri, en sem hljómaði sér- lega fallega. Ólatur var Stefán að fara með okkur í leiki í frí- mínútum. Austurbæj arskól- inn var og er mjög fullkominn skóla- bygging. T.d. bíósal- urinn þar sem við vorum í söng hjá Jó-. hanni Tryggvasyni. Þar voru haldnar leiksýningar, t.d. í sambandi við jólin. Söngleikur var einu sinni æfður og sýndur og hét hann Arstíð- irnar. Ekki veit ég eftir hvern en smá vísuparti man ég eftir sem var svona: Lundabaggi, lungu og svið, lifrarpylsa og blóð- mör. Kennslueldhús var stórt og full- komið. Fengum við stelpurnar „matreiðslu" í tvo vetur en hvað Skólaminningar Austurbæjarskólinn var og er, segir Hallfríður Georgsdóttir, mjög full- komin skólabygging. strákarnir fengu í staðinn veit ég ekki. Sér teiknistofa var og kennari okkar listakonan Valgerður Briem. Tímarnir hjá henni voru aldrei nógu langir. Einnig var sérstök náttúrufræði- stofa sem Jón kennari frá Flatey sá um. Leikfimisalurinn var mjög full- kominn á þessum tíma. Unnur kenndi okkur stelpunum og sat hún oft við píanóið og spilaði „Öxar við ána“ á meðan við gengum í röð um salinn. Stundum kallaði hún: Gangið Hallfríður Georgsdóttir E-bekkur Stefáns Jónssonar. Efsta röð frá vinstri: Guðjón, Tómas, Árni, Aðalsteinn, Björn, Gunnar, Rafn og Karl. Næstefsta röð frá vinstri: Inga, Málfríður, Svanborg, Sigríður Marta, Pálína, Sjöfn, Sigríður, Aðalheiður, Bergþóra, Anna og Halla. Næstneðsta röð frá vinstri: Hulda, Ingibjörg, Kristín, Hrafnhildur, Jenný, Unnur og Ingunn. Neðsta röð frá vinstri: Rafn, Jón, Magnús, Ingvar og Örn. A myndina vantar Unni Bjamadóttur. 70 ára ekki eins og skessur stelpur, gangið eins og ég! Sundlaugin er minnisstæð, heit og góð. Jón Ingi og Vignir kenndu sund. Vignir var með langt bambus- prik og potaði í okkur ef við gerðum ekki rétt. Ljósastofa var í skólanum sem skólahjúkrunarkonan sá um. Þeir sem þóttu ekki nógu hraustlegir fóru í Ijósaböð. Má vera að allir hafi farið í ýós einhvem tímann. Ekki má gleyma lýsinu sem var í könnu uppí glugga. Við stóðum í röð við kennaraborðið og Stefán hellti sopa uppí okkur. Einhverja vetur fengu allir 1 pela af mjólk. Oft voru stútarnir brotnir; þá þurfti að gæta þess að skera sig ekki þegar sopið var á. Skólastjóraíbúð var í skólanum þar sem Sigurður Thorlacius bjó með sína fjölskyldu. Eftir lát Sig- urðar tók Arnfinnur Jónsson við. Þarna voru tveir öðlingsmenn. Húsvarðaríbúð var í kjallara og man ég eftir Lúter Hróbjartssyni sem þar bjó. Svo voru gangaverðir, t.d. Valgeir sem hringdi bjöllunni vinstra megin sem var okkar inn- gangur. Gott bókasafn var líka í skólanum. Athyglisvert er hve mörg skáld og rithöfundar kenndu við skólann fyrir utan Stefán; Gunnar M. Magn- ús, Sigurður Helgason, Margrét Jónsdóttir, Jón Þórðarson o.fl. o.fl. Margt er ótalið sem vert væri að rifja upp, en læt hér staðar numið. Kveðja til bekkjarsystkina í E- bekknum hans Stefáns Jónssonar, Höfundur er húsmóðir {Mosfellsbæ og fyrrverandi nemandi f Austur- bæjarskólanum. Ármúla 40 ■ Simar 553 5320 / 568 8860 www.mbl l.is apotek bar • grill Austurstræti 16 Stmi: 5757 900 A A A 4 4* r r Yið höfum v i sumar f rá kl. 10.00 - 21.00 á fímmtudögum! /(l'IAfltAA Þ fl R 5 E M yil J fl R T fl Ð S L fE R UPPLÝSINGASÍMI S88 7788 SKRIFSTOFUSÍMI 568 9200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.