Morgunblaðið - 25.05.2000, Qupperneq 72
72 FI.MMTÚDAGUR 25. MAÍ 2000
MORGÚNBLAÐIÐ
BRIDS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bikarkeppni BSÍ 2000
Síðasti skráningarfrestur í bikar-
inn er föstudagur 26. maí. Dregið
verður í 1. umferð bikarsins í sumar-
bridsi á föstudagskvöld.
Kjördæmakeppni BSÍ
Kjördæmakeppnin verður haldin í
Reykjanesi við ísafjarðardjúp um
hvítasunnuhelgina. Formenn svæða-
sambandanna og skrifstofa BSÍ veita
allar nánari upplýsingar. Svæða-
stjómir eiga að skila inn nafnalistum í
síðasta lagi mánudaginn 29.maí.
HM í parasveitakeppni
Heimsmeistarmót í parasveita-
keppni verður spilað í annað sinn
5.-9.september nk. í Maastricht í
Hollandi, en þar er Ólympíumótið
einnig spilað. Mótið er öllum opið og
athygli vakin á því að sveitarfélagar
þurfa ekki að vera af sama þjóðerni.
Islendingar hafa titil að verja, en á Ól-
ympíumótinu á Rhodos 1996 sigraði
íslensk/bresk sveit skipuð Aðalsteini
Jörgensen, Birni Eysteinssyni, Jóni
Baldurssyni, Ragnari Hermannssyni,
Heather Dhondy og Liz McGowan.
Sveit Sigfiisar Þórðarsonar
bikarmeistari Suðurlands
ÚRSLITALEIKURINN í bikar-
keppni Suðurlands var spilaður 21.
maí sl. Sveit Sigfúsar Þórðarsonar
spilaði gegn sveit Þórðar Sigurðsson-
ar og sigruðu hinir fyrmefndu með
154 stigum gegn 115. Sveit Sigfúsar
Þórðarsonar er því Bikarmeistari
Suðurlands árið 2000.
I sigursveitinni spiluðu Sigfús
Þórðarson, Gunnar Þórðarson, Brynj-
ólfur Gestsson, Auðunn Hermann-
sson og Guðmundur Theodórsson. I
sveit Þórðar spiluðu, Þórður Sigurðs-
son, Gísli Þórarinsson, Sigurður Vil-
hjálmsson, Guðmundur Gunnarsson,
Júlíus Sigurjónsson og Sigurður
Hjaltason.
í undanúrslitunum sigraði sveit Sig-
íúsar Þórðarsonar sveit Garðars
Garðarssonar með 128 stigum gegn
84 og sveit Þórðar Sigurðssonar, Sel-
fossi, vann sveit Össurar Friðgeirs-
sonar, Hveragerði, með svipuðum
mun í hinum undanúrslitaleiknum.
Fjör í sumarbrids
á föstudaginn
Föstudagskvöldið 19. maí var spil-
aður Mitchell-tvímenningur með
þátttöku 20 para og urðu þessi pör
efst: (Meðalskor 216):
NS
GylfiBaldurss.-SteinbergRíkarðss. 274
Baldur Bjartmss. - Steindór Ingimundars.
249
Þórður Jörundsson-Friðrik Jónsson 244
RafnThorarensen-GuðniIngvarsson 234
AV
Harpa Fold Ingólfsd. - Guðl. Bessason 260
JóhannStefánss.-StefaníaSigurbjd. 259
Jörundur Þórðars. - Hrafnhildur Skúlad.234
Guðm. Sigursteinss - Eggert Bergsson 219
Að loknum tvímenningi var brydd-
að upp á nýjung, Monrad-sveita-
keppni, og tóku átta sveitir þátt í
henni. Spilaðar vora þijár umferðir
og varð staða efstu sveita eftirfar-
andi:
Dam'el Már Sigurðsson (Heiðar Sigmjóns-
son, Ámi Hannesson og Ormarr Snæbjöms-
son) 62 stig
Hrafnhildur Skúladóttir (Jörundur Þórðar-
son, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Aðalsteinn
Sveinsson) 58 stig
Gylfi Baldursson (Steinberg Ríkarðsson, Jón
Stefánsson,TorfiAsgeirsson) 53 stig
Sunnudagskvöldið 21. maí var spil-
aður Howell-tvímenningur. Meðal-
skor var 84 og varð þetta lokastaðan:
NS
ErlingurSverriss.-BjömFriðrikss. 109
Halldór Guðjónsson - Leifur Aðalsteinss 101
JónV. Jónmundss.-ÞorvaldurPálmas. 97
Halldóra Magnúsd. - Guðlaugur Bessason95
Spilað er öll kvöld nema laugar-
dagskvöld, alltaf byijað klukkan
19:00. Spilastaður er Þönglabakki 1,
húsnæði Bridssambandsins. AUir
eru velkomnir, lögð er áhersla á létt
og skemmtilegt andrúmsloft og
hjálpað er til við myndun para.
Fyrirtæki og nýsköpun
erlend samskipti
Fundurinn, ætlaður litlum og meðalstórum fýrirtækjum sem
hafa áhuga á erlendu samstarfi við lausnir á tæknilegum
vandamálum og nýsköpun, verður haldinn í Versölum,
Hallveigarstíg 1, þriójudaginn 30. maí kl. 8.00 tiL 9.30.
Eftir fundinn er boðið upp á viðtöL við ráðgjafa sem þekkja
umsóknarferLið i fyrirtækjaáætlunum ESB
Dagskrá:
Staður: Versatir, HaLlveigarstíg 1, kjalLara
Tfmi: Þriðjudaginn 30. mai nk. frá kL. 8.00 til 9.30
8.00 Fyrirtækjaáætlanir ESB um stuðning við hugmyndir að
nýsköpun
- Umsóknarstyrkir (stuðningur við gerð umsókna 2,1 m. kr.).
- Samstarfsverkefni (framlög til kaupa á tækniLausnum
20-140 m. kr.)
- Reynsla af þátttöku ísLendinga í umsóknum tiL ESB
Ragnheiður Héðinsdóttir, Samtök iðnaðarins,
Pétur Pétursson
Innlendur stuðningur við fyrirtæki sem sækja um
í fyrirtækjaáætlun ESB
- Fjárhagslegur stuðningur vegna umsókna (umsókna- og
ferðastyrkur 350 - 550 þús. kr.)
- Fjármögnun verkefna
- Aðstoð við gerð umsókna
Hjördís Hendriksdóttir, Rannís
Gisti Benediktsson, Nýsköpunarsjóóur atvinnulífsins
Elisabet Andrésdóttir, Aflvaki hf
9.30 Einkaviðtöl fyrirtækja við sérfræðinga á eftirfarandi
sviðum:
• Forsendur umsókna
■ Innlendur stuðningur vió umsóknir
■ Innlend ráðgjöf við umsóknir
■ Innlend fjármögnun á nýsköpunarverkefnum
Þátttaka er ókeypis, vinsamlega tilkynnið hana til
RANNÍS í síma 515 5800.
Eftirtaldir standa að fundinum:
Aflvaki hf Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
Byggðastofnun, þróunarsvið RANNIS
Hringur hf Samtök iðnaðarins
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Útflutningsráð íslands
Hörður Jónsson, ráðgjafi
ÍDAG
VELVAKAIVDI
Svarað í sima 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kjör eldri
borgara
ÉG get ekki lengur orða
bundist. Nú hef ég starfað
við og aðstoðað eldri borg-
ara þessa samfélags í sjö ár
og mér líst ekki á. Þetta er
fólkið sem lagði grunninn
að því samfélagi sem við
búum við í dag. Og hvemig
komum við fram við þau?
Margir þeirra eiga varla til
hnífs og skeiðar í dag.
Hvað er það sem við vilj-
um? Viljum við að ömmur
okkar og afar eða mömmur
okkar og pabbar þurfi að
velta fyrir sér hverri
krónu, að þau þurfi að velja
á milli þess að borða góða
máltíð eða gefa barnabörn-
um sínnum afmælis- eða
jólagjöf. Víða er ástandið
þannig hjá eldri samfélags-
mönnum okkar.
Hvað erum við að gera?
Jú, við erum að svipta þetta
fólk æru sinni. Þetta er
fólkið sem búið hefur í hag-
inn fyrir okkur hin sem
yngri erum. Þetta er fólkið
sem getur ekki farið út og
unnið sér inn aukapening
efþað vantar.
Þetta er fólkið sem verð-
ur að láta sér nægja þann
aur sem skammtaður er af
Tryggingarstofnun eða, ef
þau era lánsöm, þann aur
sem þau fá frá lífeyrissjóð-
um sem þau hafa borgað í.
Nú er það þannig að
margir af okkar eldri borg-
urum, og þá sérstaklega
konur, hafa ekki verið í
neinum lífeyrissjóðum.
Þær hafa verið bundnar yf-
ir börnum eða unnið við
láglaunastörf sem ekki
kröfðust þess að borgað
væri í neina sjóði. Þessir
einstaklingar lifa við fá-
tækramörk í dag.
Mér finnst vera skömm
að þessu. Af hverju er til
dæmis verið að taka skatta
af þeim litlu tekjum sem
þetta fólk hefur frá Tiygg-
ingastofnun, eru þessir ein-
staklingar ekki búnir að
borga sína skatta, á að
margskatta þetta fólk?
Þetta er fólkið sem við eig-
um að virða. Þetta er fólkið
sem byggði upp þjóðfélag-
ið. Þetta er fólkið sem á að
eiga áhyggjulaust ævik-
völd.
Sjúkraliði.
Tapað/fundið
Silfurtertuhnífur/-
spaði tapaðist
Silfurtertuhnífur/-spaði af
gerðinni Renæs’sance tap-
aðist íyrir um það bil tveim-
ur árum. Skaftið er allt út-
skorið og er hann merktur
með nafninu Þórdís
Björnsdóttir. Tertuhnífur-
inn/-spaðinn er ættargrip-
ur og er eigandanum afar
kær. Ef einhver kannast
við að hafa hann í fórum
sínum eða veit hvar hann er
niðurkominn, vinsamlegast
hafið samband í sima 566-
6707 eða 898-6707.
Brúnn barnaskór
fannst í Fossvogi
BRÚNN barnaskór frá
Steinari Waage númer 22
fannst í Fossvogi föstudag-
inn 19. maí sl. Upplýsingar
í síma 553-8543.
Hvítur fótbolti
tapaðist
HVÍTUR fótbolti með
rauðu Nike merki tapaðist
á leikvellinum við Engja-
smára í Kópavogi um pásk-
ana. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 554-
4754.
Kringlótt plastborð
tapaðist
HVÍTT kringlótt plastborð
hvarf úr garði við Dalaland
í Fossvogi. Ef einhver veit
hvar borðið er niðurkomið,
vinsamlegast hringið í síma
553-3065.
Grá borvélataska
tapaðist
GRÁ borvélataska datt aft-
ur úr sendibíl á leiðinni frá
Austurbrún 31 að Borgar-
túni 2. Skilvís fmnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í sima 894-
4656.
Svart peningaveski
tapaðist
SVART peningaveski tap-
aðist á Café Amsterdam
laugardagskvöldið 20. maí
sl. I veskinu voru öll skilríki
og ökuskírteini. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Berglindi í síma 692-2616.
Svartur ullarfrakki
tekinn í misgripum
SÁ sem tók í misgripum
svartan ullarfrakka úr fata-
henginu á Gauki á Stöng
síðastliðið föstudagskvöld
(19.05) er vinsamlegast
beðinn um að hafa sam-
band í síma 863-9779, hafi
hann áhuga á að koma hon-
um til rétts eiganda.
Dýrahald
Mjög vel upp aldar
læður fást gefíns
ÞRJÁR mjög vel upp aldar
læður, tveggja og hálfs
mánaða gamlar, fást gefins
á góð heimili. Upplýsingar í
síma 553-0939 eftir kl. 20.
Fress óskar
eftir heimili
2JA ára fress, mjög falleg-
ur, svartur með gul augu,
geltur, óskar eftir heimili
vegna ofnæmis á heimili.
Upplýsingar í síma 564-
0008 eftir kl. 18.
Morgunblaðið/Aðalheiður
Þessir duglegu krakkar, sem allir eiga heima á Hellu,
héldu nýlega tombólu til styrktar Rauða krossi fslands
og söfnuðu alls 6.153 kr. sem áreiðanlega eiga eftir að
koma sér vel í starfi samtakanna. Efri röð f.v. Sóldi's H.
Sigurgeirsdóttir, Bjöm Traustason, Eva Amarsdóttir,
Lóa Dagmar Smáradóttir. Neðri röð f.v.: Eva Yr Sigurð-
ardóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Guðbjörg Sandra Guð-
jónsdóttir, Anton K. Pétursson og Salka Jóhannsdóttir.
COSPER
Víkveiji skrifar...
NÚ ER sá tími ársins þegar fólk
hugai’ að umhverfi sínu. Rusl,
sem safnast hefur fyrir á lóðum yfir
veturinn, er hreinsað, garðurinn er
tekinn í gegn, gert við girðingar og
hugað að því að mála húsið að utan.
Fyrir flesta er þetta eðlilegur hluti
af því að eiga húsnæði. Víkverji er
einmitt nýbúinn að taka til í garðin-
um og hefur tínt allt rusl, talsvert út
fyrir lóðamörk.
Eins og gengur er fólk misduglegt
að taka til í kringum sig og hirða um
eignir sínar. í nágrenni Víkverja er
hús sem sker sig algerlega úr hvað
almenna umhirðu varðar. Húsið hef-
ur ekki verið málað í mörg ár, ef ekki
áratugi. Timburverk er brotið. Girð-
ingin er í algerri niðurníðslu. Garð-
urinn blasir ekki við götunni, en Vík-
verji var á gangi um hverfið fyrir
nokkram dögum og þá blasti hreint
ótrúleg sjón við augum. í garðinum
ægir saman alls kyns hlutum. Þar
era barnaleikföng innan um bfla-
varahluti og ýmislegt annað drasl.
Það sem vakti þó mesta athygli Vík-
verja var steypuhrærivélin sem
kannski bar vitni um góðan ásetning
eiganda um að hann hafi einhvern
tímann ætlað sér að laga skemmdir á
húsinu. Eins er ekki hægt að segja
annað en að húseigandinn hafi ein-
hverja þörf hjá sér til að skreyta hús-
ið því að utan á því hangir ljómandi
falleg jólasería.
Sú spurning vaknaði í huga Vík-
verja hvort borgaryfirvöld hafi ekki
einhver tæki til að skylda borgarbúa
til að taka til hjá sér og sinna eðlilegu
viðhaldi á húsum. Augljóst er að í
þessu tiltekna tilfelli hefur þessu
ekki verið sinnt og húseigandinn hef-
ur hunsað allar kröfur borgarinnar
um úrbætur, hafi þær yfirleitt verið
gerðar. Það er einnig jafnaugljóst að
hörmulegt útlit á þessu húsi hefur
áhrif á fasteignaverð á þeim húsum
sem næst því liggja. Sem betur fer
býr Víkverji ekki mjög nálægt þessu
húsi, en hann vorkennir hins vegar
nágrönnum sem þurfa að horfa upp á
steypuhrærivél og jólaséríu út um
eldhúsgluggann.
xxx
ORFINNUR Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs, sagði á kvikmyndahátíðinni í
Cannes að hann héldi að íslendingar
gerðu sér almennt ekki grein fyrir
hvað Björk Guðmundsdóttir væri
mikil stjarna í heimi kvikmynda og
tónlistar. Þetta er sjálfsagt rétt.
Björk er hreint ótrúlega vinsæl og er
án efa þekktasti íslendingur sem
uppi hefur verið til þessa. Víkverji
var nýlega á ferðalagi erlendis og
hitti þá vel menntaða konu sem er í
góðu starfi. ísland barst í tal og hún
kvaðst aðeins þekkja einn íslending
með nafni, Björk. Þetta gildir öragg-
lega um mjög marga. Björk nýtur
virðingar í tónlistarheiminum fyrir
frumlega tónlist og sérstakan flutn-
ing. Sigur hennar í Cannes fyrir leik
í kvikmyndinni „Dancer in the Dark“
vekur enn meiri athygli á henni. Lík-
legt má telja að við höfum aðeins séð
upphafið að því sem koma skal varð-
andi þessa kvikmynd því hún er enn
ekki komin í almenna dreifingu og
tónlist Bjarkar í myndinni er enn
ekki komin út.
íslendingar fyllast eðlilega stolti
yfir velgengni Bjarkar. En því má
heldur ekki gleyma að Björk hefur
lagt mikla vinnu í tónlistina og kvik-
myndina og eins og fram hefur kom-
ið hefur þetta á stundum verið erfið
og sársaukafuli vinna. Því meiri
ástæða er til að gleðjast yfir
árangrinum.