Morgunblaðið - 25.05.2000, Side 84
ffgmiHiifetfr
i i TraustÆm
! íslenskam
Kz múrvörurf
Síðan 1972 |> i| Leitið tilbaða! ■■ Steiiipryðf
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF S691181, FÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Leggja um
1,5 millj-
arða í und-
irbúning
REYÐARÁL hf. og eigendur þess,
Hydro Aluminium og fimm íslensk-
ir fjárfestar, ætla að verja 300-400
milljónum á næstu 20 mánuðum til
að undirbúa og kanna hagkvæmni
þess að byggja álver í Reyðarfirði.
Landsvirkjun reiknar með að verja
1.100 milljónum til undirbúnings
byggingar Kárahnúkavirkjunar,
þar af 300 milljónir á þessu ári.
Formleg ákvörðun um hvort ráðist
verður í þessar framkvæmdir, sem
áætlað er að kosti samtals 180-200
milljarða, verður þó ekki tekin fyrr
en í upphafi árs 2002.
Jon-Harald Nilsen, forstjóri
, ^piálmdeildar Hydro Aluminium,
segir að fyrirtækið ætli sér að
verja umtalsverðum fjármunum og
tíma í að kanna hagkvæmni þess að
reisa álver í Reyðarfirði.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að til skoð-
unar sé að stofna sérstakt hlutafé-
lag um byggingu og rekstur Kára-
hnúkavirkjunar.
Kárahnúkavirkjun ásamt Fljóts-
dalsvirkjun myndi kosta um 90
milljarða, sem fælu í sér meira en
tvöföldun á skuldum Landsvirkjun-
•*%r, en þær eru nú um 60 milljarðar.
■ Mikilvægt/42
Morgunblaðið/Ómar
Hrossaeigandi dæmdur til að greiða skaðabætur eftir að bfll ók á hest
Bótaskyldur vegna gá-
leysis við gæslu hesta
EIGANDI hests var dæmdur í gær í
Héraðsdómi Reykjavíkur til að
greiða ökumanni bifreiðar, sem ók á
hross hans, skaðabætur fyrir tjónið
sem ákeyrslan olli á bifreið öku-
mannsins. Áður hafði tjónanefnd
vátryggingafélaga komist að þeirri
niðurstöðu að bæta ætti hrossið úr
ábyrgðatryggingu bifreiðarinnar, en
úrskurðarnefnd í vátryggingamálum
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að eiganda hestsins bæri að
bæta tjónið á bifreiðinni.
Héraðsdómur staðfesti þessa
ákvörðun úrskurðamefndar og
dæmdi eiganda hestsins til að greiða
veiganda bflsins 800.000 krónur í bæt-
' ur og 220.000 krónur í málskostnað.
Eigandi bflsins sagðist fyrir dómi
hafa ekið bifreið sinni snemma morg-
uns í byrjun febrúar sl. suður
Hvammsveg í Ölfusi og tekið stefn-
una á Suðurlandsveg. Þá hefði hestur
skyndilega stokkið inn á veginn og í
veg fyrir bílinn. Hesturinn hefði
samstundis lent á hægra framhorni
bflsins og borist með honum nokkra
vegalengd, en atvikið hefði svo
skyndilega átt sér stað að ekki hefði
gefist ráðrúm til að hemla eða sveigja
til hliðar. Bifeiðin stórskemmdist við
ákeyrsluna og varð óökufær.
Taldi ökumann keyra
of hratt miðað við aðstæður
Lögmaður eiganda bifreiðarinnar,
Jón Höskuldsson hdl., reisti kröfu
stefnanda á því að eigandi hestsins
væri skaðabótaskyldur vegna gá-
leysis við gæslu hrossins, sem hefði
sloppið úr vörslu og valdið tjóninu á
bifreiðinni. Með þessu gáleysi hefði
eigandi hestsins brotið gegn banni
við lausagöngu stórgripa í Ölfusi,
sem verið hefði í gildi frá árinu 1991.
Fyrir hönd eiganda hestsins hafn-
aði lögmaður hans, Páll A. Pálsson
hrl., að hann bæri ábyrgð á tjóninu.
Orsök tjónsins mætti rekja til þess að
ökumaður hefði ekið of hratt miðað
við aðstæður í hálku og myrkri á
sveitavegi og jafnframt hefði bifreið-
in verið illa búin til vetraraksturs.
Þá sagði eigandi hestsins að girð-
ing á landi hans hefði verið traust og
hefði átt að halda hrossum. Hann
hefði einnig gert ráðstafanir til þess
að eftirlit væri með hrossunum, en
hann býr sjálfur í öðru sveitarfélagi.
Girðingin léleg
og lá víða niðri
í niðurstöðu dómsins segir að við
vettvangsskoðun hafi komið í ljós að
á milli jarðar stefnda og aðliggjandi
jarðar sé girðingu áfátt og sam-
kvæmt framburði vitnis hafði það áð-
ur gerst að hross gengju á milli jarð-
anna. Sagði vitnið, sem býr á jörðinni
við hliðina, girðinguna mjög slæma
og liggja víða niðri og af hófförum að
dæma hefðuhrossin farið út um opið
hlið í landi hans og síðan um annað
opið hlið upp á Suðurlandsveg.
„Af þessu má ætla að lítið hafi
hindrað hross stefnda út á þjóðveg-
inn þá leið sem þau fóru í þetta sinn.
Fallist verður því á að stefndi hafi
ekki sýnt næga aðgæslu hrossa sinna
umrætt sinn enda getur stefndi ekki
reiknað með og treyst því að hlið á
öðrum landareignum en hans séu
höfð lokuð,“ segir í niðurstöðu dóms-
ins.
Jafnframt komst Héraðsdómur að
þeirri niðurstöðu að ökumaðurinn
hefði ekki átt möguleika á að varast
að hrossið yrði fyrir bifreið hans, og
byggðiþá niðurstöðu m.a. á fram-
burði annars ökumanns sem sagði að
erfitt hefði verið að varast hrossin
sem þarna hefðu hlaupið laus.
FUNDI í kjaradeilu verkalýðsfélaga
starfsmanna í fiskimjölsverksmiðj-
um á Norður- og Austurlandi og
Samtaka atvinnulífsins var slitið í
gærkvöld. Að sögn Þóris Einarsson-
ar ríkissáttasemjara bar mikið á
milli og hefur nýr fundur ekki verið
boðaður, en verkfall hefur staðið yfir
hjá starfsmönnum fiskimjölsverk-
smiðja frá 16. maí.
Þórir sagðist ætla að hafa sam-
band við viðsemjendurna á morgun
og reyna að meta þá hvenær nýr
fundur yrði boðaður.
Signý Jóhannesdóttir, formaður
verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði,
sagði að viðræðunum hefði þokað lít-
ið áfram. „Þeir fundir sem við höfum
átt frá því verkfall skall á hafa ósköp
lítið fært okkur nær lausn mála,“
Samvinna
í Vestur-
bænum
MENN hafa oft farið langt á sam-
vinnunni og þeim mun fyrr sem
menn læra að vinna saman þeim
mun betra.
Það er augljóst að krakkarnir
á leikskólanum Sæborg í Vestur-
bænum hafa tamið sér góða sam-
vinnu.
Stelpan heldur um staukinn og
strákurinn, einbeittur á svip,
blæs af öllum lífs og sálar kröft-
um og þannig myndast hinar
föngulegustu sápukúlur. Sagan
segir að samvinnan hafi skilað
það góðum árangri að sápukúl-
urnar hafi sést svífa langleiðina
upp í Breiðholt.
sagði Signý. „Viðsemjendur okkar
hafa boðið okkur að færa vaktabón-
usinn inn í grunnlaunin en hvort sem
það er gert eða tímakaupið hækkað
þá eru þeir að bjóða of lítið.“
Signý sagði mikilvægt að komast
að hinum raunverulegu viðsemjend-
um. „Það er greinilega launalögga
þarna á ferðinni á vegum Samtaka
atvinnulífsins, sem ekki ætlar að
hleypa okkur að hinum raunveru-
legu viðsemjendum. Ég held að ef
við kæmumst að hinum raunveru-
legu viðsemjendum okkar, SR-hópn-
um eða eigendum fiskimjölsverk-
smiðja á Austurlandi, þá myndum
við hugsanlega ná samningi.“
Signý sagði að ekki hefði komið til
neinna átaka vegna löndunar skipa í
verksmiðjur sem væru í verkfalli.
Slitnaði upp úr
hjá bræðslunum