Morgunblaðið - 01.06.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Slökkvi-
liðsmenn
kvaddir
MEÐ þjónustusamningi um
slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu
tekur nýtt slökkvilið til starfa á
Reykjavíkurflugvelli. Slökkvilið
flugvallarins verður hluti af hinu
nýja liði og munu flestir af hinum
sautján slökkviliðsmönnum í liði
Reykjavíkurflugvallar hverfa til
starfa hjá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins bs. Flugmálastjórn
kvaddi þessa starfsmenn sína í
gær, en slökkviliðið hefur starfað
á vellinum í 54 ár eða frá því Is-
lendingar tóku við rekstri vallar-
ins af Bretum.
■ Ráðgert að reisa/15
Morgunblaðið/Halldór Koibeins
Nálgast
merkan
áfanga í
pólferðum
NORSKU
heimskautafar-
arnir Rune
Gjeldnes og
Torry Larsen
hefja í dag,
fimmtudag, síð-
ustu göngulot-
una í ferð sinni
þvert yfir Norð-
ur-Ishafið. Þeir
áttu í gær eftir
94 km af 2.100
km langri leið
sinni og hugðust
ljúka þeirri
vegalengd á 40
til 60 klukku-
stundum.
Áfanga-
staðurinn er
Ward Hunt-eyja,
þaðan sem Ing-
þór Bjarnason
og Haraldur
Örn Ólafssson
lögðu af stað
áleiðis á norður-
Rune
Gjeldnes
Torry
Larsen
Segir sig
úr Þjóð-
leikhúsráði
JÓHANN Sigurðarson leikari
hefur vikið tímabundið sæti
sem fulltrúi leikara í Þjóðleik-
húsráði. Ástæðan er sú að fyrir-
tækið Hljóðsetning, sem Jó-
hann átti hlut í, hefur
sameinast Leikfélagi Islands
og Flugfélaginu Lofti.
Jóhann segir að hann muni
ekki gegna neinum trúnaðar-
störfum fyrir nýja fyrirtækið,
en hann ætli þó að bíða um
stund til að sjá hvort einhverjir
hagsmunaárekstrar verði
vegna þessara breytinga.
Jóhann segist hafa tilkynnt
formanni Félags íslenskra leik-
ara ákvörðun sína. Edda Heið-
rún Backman leikkona, sem er
varamaður Jóhanns, mun taka
sæti hans.
Tilkynnt var um sameiningu
fyrirtækjanna þriggja í fyrra-
dag. Jóhann er einn sextán eig-
enda nýja fyrirtækisins, sem
ber heitið Leikfélag íslands.
Ársreikningur Reykjavrkur ræddur í borgarstjórn
Hart deilt um skulda-
stöðu borgarinnar
MINNIHLUTI sjálfstæðismanna í
borgarstjórn gagmýndi skuldasöfn-
un borgarinnar harðlega við síðari
umræðu um ársreikninga Reykja-
víkurborgar í gærkvöldi. Inga Jóna
Þórðardóttir, oddviti minnihlutans,
segir að skuldaaukning borgarinnar
síðustu fimm ár nemi 11,2 milijörð-
um króna á föstu verðlagi. Borgar-
fulltrúar R-listans halda því fram að
nær væri að tala um skuldir borgar-
sjóðs eins, ekki samstæðunnar allr-
ar. Inni í samtölu skulda samstæð-
unnar séu skuldir borgarfyrirtækja,
sem séu tilkomnar vegna arðbærra
fjárfestinga.
Inga Jóna segir að horfa verði til
samstæðureikningsins ef fram eigi
að koma samanburðarhæfar tölur.
„Því miður er raunin ekki sú að
skuldir borgarinnar standi á bakvið
arðbærar fjárfestingar. Stór hluti
þeirra er vegna íbúðakaupa Félags-
bústaða, en Reykjavíkurborg seldi
þeim eignir í stórum stfl. Rekstur
Félagsbústaða er borinn upp að
miklum hluta af borgarsjóði,“ segir
hún.
Þórarinn V. Þórarinsson forstjóri Landssimans
Eðlilegt að bera saman
kennitölur úr rekstri
Litill hluti heildarskulda
vegna stórra fjárfesta
Inga Jóna segist einnig vilja vekja
athygli á því, að af heildarskuldum
borgarinnar, sem eru 28,5 milljarðar
króna, séu ekki nema 4,6 milljarðar
vegna Nesjavallavirkjunar og hálfur
milljarður vegna Reykjavíkurhafn-
ar. „Þetta eru hinir stóru aðilar sem
nefnt hefur verið að standi að arð-
bærum fjárfestingum,“ segir Inga
Jóna.
Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi R-
listans, mótmælti málflutningi
minnihlutans. Hann sagði niður-
stöðu ársreiknings Reykavíkurborg-
ar vera glæsilega. „Stefnu þeirri sem
borgarstjórn markaði við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 1999 var
fylgt eftir. Nú liggur fyrir að fjár-
hagsáætlanir hafa gengið svo vel eft-
ir að með ólíkindum er. Frávik frá
áætlun er 0,07% og það er erfitt að
sjá að hægt sé að gera betur,“ segii'
hann.
„ÞEGAR menn geta sér til um verð-
mæti Landssíma íslands er það eðli-
legasti hlutur í heimi að menn taki
kennitölur úr rekstri Símans og beri
þær saman, með tiltölulega einföld-
um þríliðuaðferðum, við verðmæti
skráðra fjarskiptafyrirtækja í
Evrópu. Út úr því koma mjög háar
tölur því Landssíminn er afar öflugt
og gott fyrirtæki. En auðvitað er það
eigandans og einkavæðingamefnd-
arinnar að leggja endanlegt mat á
hvort og með hvaða hætti Síminn
verður seldur og þá fyrir hvaða verð
hann verður boðinn til sölu.
En það breytir því ekki að það er
fjöldi manns út um allan bæ að skoða
hvernig kennitölum úr rekstri Sím-
ans ber saman við kennitölur úr
rekstri annarra félaga," segir Þórar-
inn V. Þórarinsson, forstjóri Lands-
símans. í Morgunblaðinu í gær sagði
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra að yfirlýsing Þórarins í Morg-
unblaðinu sl. þriðjudag um verðmat
Búnaðarbankans Verðbréfa á
Landssímanum hefði ekki verið
heppileg.
Hægt að fá út að verðmæti far-
simakerfisins sé 120 milljarðar
Þórarinn sagði í gær að menn
gætu með hliðstæðum hætti og Bún-
aðarbankinn-Verðbréf hefði gert
borið Landssímann saman við síma-
fyrirtækið Telia í Svíþjóð.
„Þeir voru um síðustu áramót með
400 viðskiptamenn með ADSL-teng-
inguna en Landssíminn er með 650,
sem er dæmi um hvað Síminn er
framarlega í tæknilegu tilliti," sagði
hann.
Þórarinn sagði einnig að ef menn
vildu finna virkilega háar tölur fyrir
Landssímann væri líka hægt að taka
dæmi af kaupum farsímafélagsins
Mannesman á Orange sl. haust, sem
greiddi sem svaraði til 100 þúsund
kr. á hvem einstakan viðskiptamann
í GSM-kerfinu.
„Vilji menn skemmta sér með há-
ar tölur þá fengju menn auðvitað út
úr því að verðmæti farsímakerfis
Landssímans eitt og sér á sama
mælikvarða væri 120 milljarðar. Það
segir hins vegar ekkert til um hvort
hægt væri að selja fyrir það verð,“
sagði Þórarinn og bætti við að það
væri verkefni einkavæðingarnefndar
að ákveða hvernig að sölu Landssím-
ans verður staðið, „og það hvarflar
ekki að mér að hafa opinberar skoð-
anir á því“, sagði hann.
Sjálfstæðismenn slá
ryki í augu kjósenda
Helgi segir að þrátt fyrir þennan
árangur kjósi minnihluti Sjálfstæðis-
flokksins að drepa málinu á dreif og
reyna að gera aukaatriði að aðalat-
riðum. „Slá ryki í augu kjósenda með
því að rugla saman hugtökum. Stað-
reyndin er sú að Reykjavíkurlistinn
heftn- náð tökum á rekstri borgar-
sjóðs, og það svo um munar. Skuldir
borgarsjóðs lækka um rúman hálfan
milljarð króna. Rekstrarútgjöld eru
innan við 82% af rekstrartekjum."
Helgi segir að skuldir borgarsjóðs
séu þær skuldir sem skipti skatt-
greiðendur máli, ekki skuldir fyiir-
tækja borgarinnar. Fyrirtæki borg-
arinnar standi í ýmsum arðbærum
íjárfestingum og standi undir skuld-
um með eigin tekjum.
pólinn í vetur. Takist Norðmönn-
unum að komast heilir í höfn
verða þeir fyrstu heimskautafar-
arnir í heiminum sem tekst að
ganga án utanaðkomandi stuðn-
ings þvert yfír Norður-íshafíð.
Níu leiðangrar hafa reynt hið
sama án árangurs.
Orðnir þreyttir
eftir langa ferð
Torry og Rune eru orðnir
þreyttir eftir ferðalgið enda hafa
þeir verið á ferðinni síðan um
miðan febrúar. Þeir eru fullir til-
hlökkunar yfir því að komast á
leiðarenda og segjast á heimasíðu
sinni varla geta beðið eftir því að
komast til þorpsins Resolute og
fá sér kaffi og súkkulaðiköku.
Þeir eru enda orðnir mjög matar-
litlir og spara við sig kostinn.
Á ýmsu hefur gengið í ferð
þeirra, m.a. lak bensín, ætlað á
hitunartækin, í nesti þeirra með
þeim afleiðingum að fleygja varð
talsverðum hluta birgðanna.
Skíði þeirra eru svo illan farin af
mikilli notkun að aðeins þrjú eru
heil eftir.
Þannig má annar þeirra láta
sér nægja eitt skíði. Þeir skiptast
á að renna sér á einu skíði og
gengur sá sem er á báðum skíð-
um hverju sinni á undan og
markar leiðina en hinn hoppar á
eftir. Þá hafa þeir dottið í vakir
en kippa sér ekki lengur upp við
slík skakkaföll.
ð því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari
vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi.
Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum
og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
® BÚNAÐARBANKINN
HEIMILISLÍNAN
TYaustur banld
WWW.blÍM