Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÓLAFÍA BJÖRG GUÐMANNSDÓTTIR Ólafía Björg Guð- mannsdóttir fæddist í Keflavík 20. febrúar 1933. Hún lést á Vífilsstöðum 25. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmann Guð- mundsson, fiskmats- maður frá Hörgsholti í Hrunamanna- hreppi, f. 29.6. 1891, d. 31.1. 1951, o inkona hans, Ólafsdóttir, freyja, frá Eyrar- bakka, f. 10.11. 1983, d. 4.12.1976. Ólafía Björg (Lóa) giftist 21.4. 1957 Guðsteini Gíslasyni, slökkvil- iðsmanni, f. 2.1. 1932, d. 23.4. 1968. Foreldrar hans voru Gísli Einarsson, sjómaður og pípulagn- ingamaður, frá Akranesi, seinast búsettur í Keflavík, f. 24.9. 1893, d. 3.4. 1978, og eiginkona hans Halldóra Einarsdóttir, húsfreyja frá Hreðavatni í Norðurárdal, f. 12.2. 1895, d. 8.5. 1947. Börn Lóu og Guðsteins eru: 1) Örn, borholu- tæknir, f. 5.9. 1957, búsettur í Stafangri í Noregi, kvæntur Sigurbjörgu Stefáns- dóttur, lækni, f. 2.1. 1962, börn þeirra eru: Guðsteinn, Hall- dór og Egill Örn. 2) Lilja, skrifstofumað- ur, búsett í Staf- angri, f. 20.5. 1961. 3) Hilmar, trésmið- ur, f. 6.5. 1962, bú- settur í Keflavík, kvæntur Ragnheiði Kolbrúnu Valdimar- sdóttur, hárgreiðslu- meistara, f. 26.11. 1965, börn þeirra eru Tinna Björg og Grétar. Allan sinn aldur átti Lóa heima í Keflavík. Hún stundaði nám í Hús- mæðraskólanum á Isafirði. Utan heimilisins starfaði hún hjá Pósti og síma í hartnær hálfa öld, löng- um á símanum en nokkur síðustu árin á póstinum. Útför Lóu verður gerð frá Keflavíkurkirkju á morgun, föstu- daginn 2. júní, og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku systir mín. Mikið á ég eftir að sakna þín. Hvenær sem var gat ég komið til þín og fengið ráð við mínum vandamálum og farið ánægðari af þínum fundi, alltaf lagðir þú gott til allra mála með þinni rólegu framkomu en þín miklu vandamál barst þú ekki á borð fyrir aðra. Það eina sem þú sagðir var: „Ég hlýt að hafa verið svona vond manneskja í mínu fyrra lífi úr því svona mikið er lagt á mig hér á jörð.“ Við fæðingu varst þú úr mjaðma- lið sem var ekki skoðað nógu fljótt svo annar fóturinn varð styttri. Aldrei man ég eftir að þú værir bit- ur þó þú gætir ekki tekið þátt í boltaleikjum með okkur. Aðeins níu ára færð þú heilahimnubólgu og var þér ekki hugað líf um tíma. Þér hafði gengið vel að læra en allt þurrkaðist út en þá kom fram þín alkunna þolinmæði, þó ung værir. Það var byrjað upp á nýtt að læra stafina og um haustið hélstu áfram með jafnöldrum þínum þó þú værir búin að missa svona mikið niður. Þú varst svo laghent að hvort sem þú varst að sauma eða prjóna varð allt svo smekklegt hjá þér svo að unun var á að horfa. Ung fórst þú að UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. P1 I Einarsson » .'fyj■ Hk — JÆ Svernr wm útfararstjóri, | mWml Olsen sími 896 8242 1 mÁÆBP útfararstjóri. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA UPPLÝSINGAR í SÍMUM 562 7575 & 5O5O 925 HOTEL LOFTLEIÐIR Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. wm. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. vinna á símstöinni hérna og þaðan í Húsmæðraskólann á ísafirði eitt árið því að draumaprinsinn var á næsta leiti og eins gott að kunna að matbúa. Hann hét Guðsteinn og þið giftuð ykkur 1957 og eignuðust fljótlega þrjú myndarleg börn. Þið voruð búin að kaupa ykkur íbúð og bæði lögðuð þið mikið á ykkur til að endar næðu saman. Guðsteinn vann hjá Slökkviliði Keflavíkurflugvallar og til að afla meiri tekna vann hann við bílaviðgerðir hjá bróður sínum. Þá kom reiðarslagið, hann lenti í slysi og lést. Börnin svona ung, orð- in föðurlaus, en þú gafst ekki upp og fórst að vinna á símanum, en oft var þröngt í búi hjá þér þó ekki væri kvartað. Þetta voru erfið ár en strax og börnin gátu fóru þau að hjálpa til og lærðu sparsemi og ráð- deild. Strákarnir fóru í iðnnám. Örn er bifvélavirki en Hilmar smiður. Lilja var eitt ár í Bandaríkjunum en fór svo að vinna skrifstofustörf. Þú lifðir fyrir börnin þín og varst alltaf ein. Börnin flugu úr hreiðrinu, tvö settust að í Noregi en yngsta barn- ið, Hilmar, var stoð og stytta mömmu sinnar. Svo varðst þú fyrir slæmu handleggsbroti og sýndir að- dáunarverða þolinmæði. Handlegg- urinn var að verða ónýtur en þá fréttum við af lækni á Borgarspít- ala sem gerði kraftaverk í svona málum. Það gekk eftir og hann sagðist þurfa að stytta handlegginn um nokkra sentimetra. Þetta væri orðið svo slæmt en hvað með það sagðir þú, annar fóturinn er nokkr- um sentimetrum styttri, svo það jafnast á, en bakið og mjöðmin voru alltaf að plaga þig og fórst þú í að- gerð og fékkst kúlu og fyrir nokkr- um árum í aðra aðgerð. Þá var tæknin orðin svo mikil að bein var notað og loksins komin yfir sextugt með báða fætur jafnlanga. Allt ann- að líf sagðir þú þó bakið sé orðið slitið en ekki var allt eins og það átti að vera. Stanslaus þreyta og lystar- leysi. Þú varst úrskurðuð með krabbamein í lunga og aftur var barist áfram, en nú laust þú í lægra haldi og lést á Vífilsstöðum 25. maí. Elsku Lóa mín. Þrautagöngu þinni hér á jörð er lokið og veit ég að maðurinn þinn hefur tekið fagn- andi á móti þér eftir öll þessi ár. Hvíl í friði, elsku systir mín. Elín. Lóa lést eftir langa og stranga sjúkdómsraun, æðrulaus, sem henni var líkt, en þrotin að kröftum. Hetjulundin var aðdáunarverð. Það er erfitt að sjá á bak góðum vini. Ljúfar endurminningar svipta sorginni burt. Eftir stendur svipur- inn þinn, hreinn og bjartur en stundum dálítið kankvís. Foreldrar Lóu, bornir og barn- fæddir Árnesingar, fluttust til Keflavíkur um 1930. Keflavík var ört vaxand kauptún á þessum tíma. Hér búnaðist foreldrum hennar vel. Þau eignuðust þrjár dætur, hverja á sínu árinu, fyrst Sigríði, síðan Lóu og loks Elínu, en fyrir hjónabandið átti Ólafía Svein Vilbergsson, sem lést 9.9. 1991. Geta má nærri hve mikið og óvænt áfall það var fyrir Ólafíu og fjölskylduna þegar Guð- mann fórst í hinu hörmulega Glit- faxaslysi 21. janúar 1951. Hér í Keflavík ólst Lóa upp við gott atlæti á myndarheimili foreldr- anna að Vatnsnesvegi 20 þar sem gestum og gangandi var tekið opn- um örmum. Þar bundust mörg tryggða- og vináttubönd sem aldrei slitnuðu. Sérstaklega var þó áber- andi hvað systurnar þrjár voru samrýndar. Skólagangan hennar Lóu var ekki löng eins og algengt var á þessum tíma ekki síst með ungar stúlkur. Þó stundaði hún nám um eins vetrar skeið í Hús- mæðraskólanum á ísafirði en þeir dagar voru bjartir í endurminning- unum. Starfsvettvangur Lóu stóð um nærri hálfa öld hjá Pósti og síma í Keflavík, lengst af á símanum á miklum umbrotatímum í bænum. Símstöðinn eða miðstöðin eins og hún var gjarnan nefnd var áreiðan- lega líflegur vinnustaður þar sem myndarlegur stelpnaskari vann. Ekki má gleyma símstöðvarstjór- anum og náfrænda Lóu, Jóni Tó- massyni, sem sannarlega setti svip á umhverfi sitt, oft með glettni og spaugi. Ekki er ofmælt að Lóa naut mikilla vinsælda hjá viðskiptavin- um og ekki síður starfsfélögum sem nú sjá á bak traustum og góðum vini. Hjónaband Lóu og Guðsteins var traust og hamingjuríkt. Þau eign- uðust þrjú mannvænleg börn og fimm tápmikil barnabörn, augast- eina Lóu. Allt lék í lyndi þegar Guð- steinn lést af slysförum aðeins 36 ára gamall. Þá stóð Lóa ein uppi með börnin, sex, sjö og tíu ára göm- ul. Henni var ekki lagið að gefast upp. Þrátt fyrir kröpp kjör kom hún barnahópnum upp til góðs þroska. Alla ævi bar Lóa þungan kross. I fæðingu fór hún úr mjaðmalið sem greindist ekki fyrr en sex mánuðum síðar. Annar fóturinn varð því styttri og hún gekk hölt alla sína ævi. Því miður fékk hún enga bót á þessum meinum sem versnuðu því lengra sem leið. Auðvitað dró þetta mátt úr henni. Samt skilaði hún dagsverki sínu með sóma. Vinátta okkar Lóu hófst fyrir rúmum 40 árum. Þá var hún nýgift Guðsteini og ég að stíga mín fyrstu spor inn í fjölskyldu hennar. Sú vin- átta er mér dýrmæt sem ég þakka af alhug við leiðarlok. Lóa var kona hæglát og jafnvel hlédræg. Þessir eðliskostir nýttust henni vel í andstreymi lífsins. Hún vissi að eigi má sköpum renna. Hún kvaddi með reisn, sátt við Guð og menn. Blessuð sé minning hennar. Vilhjálmur Þórhallsson. • Fleiri minningargreinar um Ólafíu Björgu Guðmundsdóttur bíða birtingar ogmunu birtast 1 blaðinu næstu daga. MARJO KAARINA KRISTINSSON + Marjo Kaarina Kristinsson f. Raitto, verkfræðing- ur, fæddist í Turku í Finnlandi 17. desem- ber 1951. Hún lést að heimili sínu á Ak- ureyri 22. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Pentti Kalervo Raittio, múrari í Turku, f. 13. júní 1921, d. 25. júlí 1999 og kona hans Raili Kaarina Raittio, f. Laiho 28. júlí 1930, ritari í Turku. Börn þeirra hjóna voru Marjo, sem hér er kvödd og Atso Kalervo Raittio, f. 19.júlí 1954, framkvæmdastjóri í Turku. Marjo giftist 24. júlí 1976 eftir- lifandi eiginmanni sfnum Gisla Jóni Kristinssyni, arkitekt, f. 26. nóvember 1950. Foreldrar hans eru hjónin Margrét Jakobsdóttir , kenn- ari og Kristinn Gíslason, kennari. Marjo og Gísli eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Katri Jónína, f. 12. október 1976, há- skólanemi. 2) Jens Kristinn, f. 24. nóv- ember 1978, há- skólanemi. 3) Jón Benedikt, f. 31. júlí 1983, nemi. Maijo lauk prófi í trefjaverkfræði frá Tækniháskólanum í Helsinki 1980. Hún starfaði sem verk- fræðingur um árabil, lengst af við verksmiðjur SÍS á Akureyri. XJtför Marjo fer fram frá Ak- ureyrarkirkju föstudaginn 2. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. SOLSTEINAR vlö Nýbýlaveg, Kúpavogl Simi 564 4566 Nú er skarð fyrir skildi hjá skauta- íþróttamönnum á íslandi. Maijo Kristinsson, einn af máttarstólpum skautaíþróttarinnar, er horfin hér úr heimi. Marjo kom fyrst til starfa sem einn af fararstjórum í keppnisferð íshokkídeildar til Reykjavíkm- þar sem hún fylgdi öðrum syni sínum. Skömmu síðar var hún komin á fullt í H Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 Httttt ttittt rr ttt stjórnum félagsins og má segja að hún hafi ein byggt upp listhlaupsdeild félagsins. Þar var hún á stundum allt í senn þjálfari, formaður og gjaldkeri. Maijo starfaði með öllum deildum fé- lagsins og hafði áhuga á öllu því sem stuðlað gat að vexti þess og viðgengi. Maijo kom inn í aðalstjórn SA á að- alfundi vorið 1994 sem meðstjóm- andi. Þá var hún jafnframt formaður listhlaupsdeildar félagsins. Marjo gerðist gjaldkeri félagsins vorið 1995 en í raun tók hún að sér launalaust framkvæmdastjórastarf hjá félaginu sem hún gegndi af mikilli trúfesti og alúð. Það var því eðlilegt að stjórn fé- lagsins leitaði tii Marjo þegar vantaði framkvæmdastjóra fyrir hinni nýju Skautahöll Akureyringa. Maijo sat stofnfund Skautasam- bands íslands árið 1995 og var kjörin í stjórn listhlaupsdeildar sambands- ins vorið 1996. Þar átti hún stóran þátt í að skapa nýrri íþrótt þær leik- reglur sem nauðsynlegar eru. Skautasambandið og starfsemi þess voru Maijo alltaf mjög hugleikin. Aðstaða skautaíþróttarinnar á Ak- ureyri hefur tekið stakkaskiptum nú á síðustu misserum með tilkomu Skautahallarinnar og er hlutur Maijo þar stór. Hún ásamt eiginmanni sín- um, Gísla, átti stóran þátt í að koma þessu glæsilega mannvirki á laggfrn- ar. Skautafélag Akureyrar þakkar íyrir að hafa átt þess kost að njóta samvista og starfskrafta Marjo. Gísli, Katri, Jens og Jón, megi góður Guð styðja og styrkja ykkur á þessum erf- iðu tímum. Stjórn Skautafélags Akureyrar. • Fleiri minningargreinar um Marjo Kristinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 669 1116, eða á net- fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.