Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 64
HYDRUS BETA
Kr. 12.990,-
HAGAMMA
15.880,-
64 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
>
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Litla
hryllingsbúðin
EG VERÐ að biðja
lesendur velvirðingar ef
fyrirsögnin skelfir ein-
hvem þeirra. Þetta er
samt efst í huga mínum
eftir að hafa lesið frétt
Morgunblaðsins fyrir
skömmu um það að
„76,5% telji ástand raf-
magnsöryggismála
óviðunandi". Að baki
þessari frétt standa
hvorki meira né minna
en tveir háttvirtir al-
þingismenn, þannig að
það er ekki furða þótt
hárin rísi.
Mér hefur löngum
skilist, að þingmönnum
liggi mikið á að komast í sumarleyfi
um þetta leyti árs, ekki síst vegna
þess, að heima í héraði biðu mikilvæg
verkefni á borð við sauðburðinn. En
hvað eiga þeir þingmenn að gera af
sér sem ekkert eiga sauðféð og missa
þar af leiðandi af því að sjá náttúruna
lifna við á vorin? Hvað gerir Ögmund-
ur Jónasson sem ekkert hefur til að
vaka yfir á björtum vomóttum? Jú,
hann boðar til blaðamannafundai-
ásamt jafn-sauðlausum kollega sín-
um, Gísla S. Einarssyni, til þess að
kynna ofangreinda hrollvekjandi nið-
urstöðu könnunar sem þeir sjálfir
gerðu í nafni Alþingis. Þeirra vorverk
er að vekja ugg í brjóstum lands-
manna og telja þeim trú um að innan
veggja svo til alls íbúðar- og atvinnu-
húsnæðis leynist tifandi tímasprengja
rafmagnsöryggisleysis með tilheyr-
andi eld- og slysahættu.
Þar sem ég hef sinnt innflutningi
og dreifingu raflagnaefnis í aldar-
fjórðung, auk þess að hafa tekið þátt í
vinnu við lagabreytingar um raf-
magnsöryggi, get ég ekki orða bund-
ist.
Hryllingsfrétt þeirra tvímenninga
er byggð á ófaglegri og ótrúverðugri
könnun sem þeir sendu á bréfhaus og
kostnað Alþingis til 600 aðOa sem þeir
völdu sjálfir. Aðeins bárust 200 svör;
hinir 400 svöruðu ekki og ber þögn
þeirra vott um að þeim fannst könn-
unin leiðandi og ómarktæk. Þeir hafa
ekki viljað taka þátt í vinnubrögðum
sem eru til þess fallin að vekja
ástæðulausan ótta almennings, rýra
tfltrú fólks á þeim rafbúnaði sem í
boði er og fagmennsku þeirra sem að
rafmagnsmálum starfa.
Málatflbúnaður Ögmundar og
Gísla byggist á því að
þeir sjá eftir Rafmagns-
eftirliti ríkisins og þeim
vinnubrögðum sem þar
tíðkuðust. Rafrnagns-
eftirlitið var bam síns
tíma; ríkisapparat þar
sem fullorðnir menn, á
launum hjá skattgreið-
endum, fylgdust með
því að aðrir fullorðnir
menn fylgdu reglum í
starfi sínu. Þetta fyrir-
komulag veikti gæðavit-
und fagmannsins og
skapaði viðskiptavinum
Halldór falskt öryggi.
Jóhannsson Það var loks 1996 að
skynsamlegt verklag
komst á hér á landi í rafmagnsörygg-
ismálum þegar komið var á fót gæða-
kerfi fyrir rafverktaka. í því er meg-
En hætturnar leynast
ekki í nýjum raflögnum
eða vinnu fagmanna,
segir Halldór Jóhanns-
son, heldur í eldri
raflögnum sem hefur
verið illa við haldið
eða fúskað við.
ináhersla lögð á að treysta
fagmennsku verktakans, en veita að-
hald með úrtaksskoðunum á vegum
Löggildingarstofu. Abyrgð húseigenda
var einnig aukin, enda stendur það eng-
um nær en þeim sjálfum að gæta eigna
sinna. Jafhframt var raffangaprófun
Rafrnagnseftirlitsins (RER) lögð niður
eftir að ísland gerðist þátttakandi í
Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og
gagnkvæm viðurkenning þátttökuþjóð-
anna á vöru og þjónustu tekin upp. Raf-
föng eru nú framleidd samkvæmt kröf-
um og reglum EES (sbr.
CE-merkingar) og markaðseftirlit
hvers lands (þar á meðal hér á landi)
sér til þess, með aðstoð almennings og
fagmanna, að óvandaðar búnaður kom-
istekkiámarkað.
Ef þeir Ögmundur og Gísli telja að
löggiltir rafverktakar þurfi opinbera
skoðunarmenn til að anda ofan í háls-
málið á sér hlýtur það að kalla á sam-
bærilegt eftirlit með pípulagninga-
mönnum. Óhöpp af völdum heits og
kalds vatns eru mun tíðari en vegna
rafmagns. Þá er einnig deginum ljós-
ara, að bifvélavirkjar þurfa hver sinn
eftirlitsmann, því að slys af völdum
bflaðra bifreiða eru ekki fátíð.
Liðin eru fjögur ár frá því núver-
andi skipan rafmagnsöryggismála
komst á.
Ekkert bendir til þess að
raftnagnsöryggi sé áfátt heldur þvert
á móti. Það skýtur því skökku við að
þessir tveir alþingismenn skuli ham-
ast við að sá fræjum ótta og vantrúar í
huga almennings.
Ur því að þeir Ögmundur og Gísli
sýna svona mikinn áhuga á rafmagn-
söryggi væri þeim nær að styðja þá
ágætu opinberu starfsmenn og fjöl-
mörgu fagmenn, sem eru fullir vilja
og áhuga á að kenna fólki að umgang-
ast rafmagn.
Síst skal dregið úr þvi að rafmagn
getur verið mjög hættulegt og ber að
umgangast það með mikflli varúð. En
hættumar leynast ekki í nýjum raf-
lögnum eða vinnu fagmanna, heldur í
eldri raflögnum sem hefur verið illa
við haldið eða fúskað við. Til að taka á
þeim málum þarf öfluga fræðslu, og
að hvetja húseigendur tfl að gera við-
eigandi ráðstafanir og taka fag-
mennsku fram yfir fúsk. Slík vinnu-
brögð eru áhrifameiri en „opinbert
eftirlit með raforkuvirkjum."
Þú kemst allt
á þessum!
Kr. 29.980,
Eigum línuskauta fyrir alla aldurshópa og fyrir mis-
munandi aðstæður, hvort heldur til leiks eða í keppni.
Sendum í póstkröfu samdægurs.
Biðjið okkur um myndabækling.
Sumarferðir 2000
Blaðauki Morgunblaðsins laugardagirai 10. júní
Meðal eMs:
Ferðir • Undirbúningur útilegu • Rétta nestið í ferðina
Siglingar • Hestaferðir • Jöklaferðir • Bátaferðir
Gönguferðir • Sundstaðir • Söfn • Kajaksiglingar
GriUmatur • Krossgátur • Veiði • O.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 föstudaginn 2. júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111
2H*rgtmI>IabU»
AUGLÝSINGADEILD
Stmi 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
UTILIF
A KgI !
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
Rafmagnsöryggi
C0Y0TE
Höfundur er rafmagns-
verkfræðingur.