Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Geymsluhús byggt fyrir safnið á Eyrarbakka HÉRAÐSNEFND Ámessýslu hefur boðið út byggingu geymsluhúsnæðis við Byggða- safn Árnesinga. Búið er að út- hluta safninu lóð á Eyrarbakka þar sem meginhluti safnsins er til húsa. Lýður Pálsson safnvörður seg- ir að geymslumál Byggðasafns Árnesinga hafi til margra ára verið í óviðunandi horfi. Safn- gripir hafi verið geymdir á ýms- um stöðum í húsakynnum sem ckki hafi verið gerð sem geymsl- ur fyrir þjóðminjar. Auk þess hafi verið nauðsynlegt að flytja safngripi úr einni geymslunni þegar taka þurfti geymsluhús- næðið undir aðra starfsemi. Hætt sé við að slíkir flutningar fari ekki vel með gripi. Lýður segist hafa grun um að ástand geymslumála hjá Byggða- safni Árnesinga sé því miður ekki einsdæmi fyrir byggðasöfn á landsbyggðinni. Hann segist hins vegar vera mjög ánægður með að Héraðsnefnd Árnesinga hafi þann metnað að koma þessum málum í gott lag. Þess séu fá dæmi að byggðar séu sérstakar geymslur yfir safngripi því víðast hvar sé farin sú leið að finna hús- næði undir gripina í gömlu og mishentugu húsnæði. Nýja byggingin verður 280 fer- metrar og er áætlaður kostnaður við framkvæmdir 15-20 milljón- ir. Auk geymslu verða skrifstofur í húsinu og aðstaða til viðgerða og skráningar. Lýður segir að því sé kannski eðlilegra að tala um þjónustuhús safnsins frekar en geymslu. Ekki er enn ljóst hvort rfkið tekur að einhverju leyti þátt í kostnaði við bygginguna. Sumarstarf Byggðasafns Ár- nesinga er þessar vikurnar að hefjast, en safnið verður opið alla daga kl. 10-18 í sumar. Safnið er staðsett í Húsinu á Eyrarbakka, sem er að stofni til byggt árið 1765. Þar var um áratugaskeið helsta verslun á Suðurlandi á meðan Eyrarbakki átti sitt blómaskeið á 19. öldinni. Það var kallað „Húsið“, sennilega vegna þess að stærstan hluta 19. aldar var það eina timburhúsið á Eyr- arbakka. Um tíma bjó Guðmund- ur Daníelsson rithöfundur í Hús- inu. Hann léði Halldóri Laxness Assistentahúsið árið 1945 og þar skrifaði Laxness Ejdur í Kaupin- hafn, sem er hluti Islandsklukk- Stúdentar brautskráðir frá Laug’arvatni MENNTASKÓLANUM að Laugar- vatni var slitið í 47. sinn laugardag- inn 27. maí. Að þessu sinni brautskráðust 29 stúdentar frá skólanum: 17 úr mála- deild og 12 úr náttúrufræðideild. Hæstu einkunn á stúdentsprófi að þessu sinni hlaut Elísabet Halldórs- dóttir úr Hveragerði, einkunnina 8,90, en einnig náðu þau Kristín Rós Kjartansdóttir frá Hjallanesi í Landsveit, Bjarki Þór Haraldsson frá Búðarhóli í A-Landeyjum og Oddur Jóhannsson frá Mjóanesi í Þingvallasveit mjög góðum árangri. Skólameistari kom víða við í ræðu sinni og fjallaði m.a. um tilraun skól- ans til að bregðast við sívaxandi brottfalli nemenda á fyrsta ári. Taldi hann viðleitni skólans til þess hafa ALLIR MTD SLATTUTRAKTORAR MEÐ15% AFSL. Fjöldiverð-ogstærðarflokka! ji|JjfillHlivlfilIlB Verð áðurkr. 199.700,- MTD MTHB 48L 5 hp B&S bensínmótor. Sláttubreidd 50 sm. 80 Ittra safnkassi. Fyrir stærri lóðir. Faxafeni 14. Sími 568 5580. Opið mán. - fös. 9 - skilað góðum árangri, sem sýndi sig í því að talsvert hærra hlutfall nem- enda í 1. bekk hefði náð tilskildum árangri en undanfarin ár. Þá fjallaði skólameistaiá um undir- búning að stofnun íþróttabrautar við skólann næsta vetur. Nefnd kennara við menntaskólann og íþróttaskor Kennaraháskóla íslands hefur unnið að undirbúningi hinnar nýju brautar og nú liggur fyrir að þetta nám verð- ur í boði næsta vetur. íþróttabrautin er þriggja ára starfsnámsbraut. Nemendur brautarinnar geta, að loknu þriggja ára námi, bætt við fjórða árinu í bóklegum greinum og þannig lokið stúdentsprófi. Skólameistari fór nokkrum orðum um þau uppeldisáhrif sem heimavist hefur, en skólinn er nánast hreinn heimavistarskóli, sem skapar honum töluverða sérstöðu. Þessi hópur aldamótastúdenta frá Menntaskólanum að Laugarvatni er sá þrítugasti sem Kristinn Krist- mundsson skólameistari útskrifar. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Hrafnhildur Hagah'n Guðmundsdóttir leikskáld og Pétur Jónasson gít- arleikari að loknum upplestri og tónlistarflutningi. Stórastofa fær nýtt hlutverk Bolungarvík - Það var þéttsetinn bekkurinn í Stórustofu að Holtastíg 9 í Bolungarvík kvöld eitt nýlega er Hrafnhildur Hagalín Guðmun- dsdóttir leikskáld og Pétur Jónasson gítarleikari fluttu ljóð og tónlist eftir íslenska höfunda. Þessi stund í Stórustofu var liður í viðamikilli lista- og menningardagskrá í Bol- ungarvík. Listafólkinu var mjög vel tekið af þeim 33 gestum sem komust fyrir í Stórustofu og voru í mikilli nálægð við listafólkið í einföldu umhverfi. í húsinu að Holtastíg 9 bjuggu afi og amma Hrafnhildar Hagalín, þau Ingibjörg Guðfinnsdóttir og Páll Sól- mundsson, en Hrafnhildur er sem kunnugt er dóttir þeirra hjóna og leikara Sigríðar Hagalín og Guð- mundar Pálssonar. Páll afi Hrafnhildar lést árið sem hún fæddist en á unglingsárum sín- um dvaldi hún oft hjá ömmu sinni á Holtasíg á sumrin og vann í frysti- húsinu þar sem þær unnu hlið við hlið hún og amma hennar. Á árum áður var byggt við húsið að þess tíma mælikvarða glæsileg og rúmgóð stofa sem síðar var alltaf kölluð Stórastofa þar sem hún var stofa númer tvö í húsinu og mun stærri en sú fyrri. Aðstaða fyrir fræðimenn Þau Hrafnhildur og Pétur hafa verið að gera á húsinu lagfæringar °g hyggjast dvelja þar annað veifið og jafnframt skapa því nýtt hlutverk með því að bjóða öðrum lista- og fræðimönnum afnot af því til að sinna sinni listsköpun og fræðivinnu í kyrrlátu umhverfi. Er fréttaritari Morgunblaðsins hitti þau í Stórustofu þar sem þau voru að undirbúa sig fyrir dagskrána um kvöldið, kvaðst Pétur auðvitað ekki hafa sömu rætur hérna fyrir vestan og Hrafnhildur, „en ég finn að það er einstaklega gott andrúmsloft hér og mikil kyrrð. Þó er öll þjónusta innan seilingar og ferðalag hingað þarf ekki að taka nema 40 mínútur með flugi frá höfuðborginni." Hrafnhildur sagði að auk þess sem hún ætti góðar minningar úr húsinu þá ætti það langa og merka sögu, t.d. hefðu verið haldin svokölluð „hjóna- böll“ í stofunni og um tíma hefði lyfjasalan í þorpinu farið fram í eld- húsinu. „Það stefnir því í að við mun- um slá upp dansleikjum í Stórustofu í framtíðinni,“ segir Hrafnhildur og bendir með glettni á 25 fermetra gólfpláss stofunnar. „Þá er heldur ekki langt í lyfjasöluna, a.m.k. er gamla lúgan ennþá á eldhúshurðinni. Okkur finnst skemmtilegt að stíga fyrsta skrefið í þá átt að opna húsið fyrir þessari starfsemi með dag- skránni og vonumst til að það komi til með að nýtast sem mest í framtíð- inni,“ sagði Hrafnhildur Hagalín um leið og hún fór að hjálpa Pétri og Sof- fíu Vagnsdóttur, frænku sinni, skóla- stjóra Tónlistarskólans, og aðal- skipuleggjanda listavikunnar, að raða stólunum í Stórustofu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.