Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JUNI 2000
FRETTIR
Námskeið Opins
háskóla um bókmenn-
ingu og þjóðmenningu
Á VEGUM Opins háskóla, menning-
arborgarverkefnis Háskóla Islands,
verður dagana 5., 7. og 8. júní nk. kl.
17.15-19 haldið námskeið undir yfir-
skriftinni Bókmenning og þjóð-
menning - Opin Arnastofnun. Nám-
skeiðið verður haldið í Odda, stofu
101.
Á námskeiðinu verður fjallað um
íslensku miðaldahandritin; bóka-
gerð og bókband, blek, ritfbng og
lýsingar (myndskreytingar) og upp-
haf íslenskrar skriftar og þróun
hennar í stórum dráttum fram á 19.
öld borin saman við skriftarþróun
annars staðar í Evrópu. Hugað verð-
ur að því fjölskrúðuga efni sem leyn-
ist í íslenskum miðaldahandritum og
litið á hvernig skrifarar og ritetjórar
völdu saman texta í bækur. í þessu
skyni verður farið ítarlega í efni og
byggingu fáeinna handrita, rýnt í
forsendur efnisvalsins og þess
freistað að sýna þann mun sem verð-
ur á bókunum eftir því hverjum þær
eru ætlaðar. Þá verður einnig sagt
frá söfnun og skráningu þjóðhátta-
lýsinga, sagna, kvæða og þjóðlaga á
vegum Árnastofnunar undanfarin
fjörutíu ár, bæði hér heima og á
meðal landa í vesturheimi, gerð
grein fyrir fjölbreytileika efnisins og
leikin nokkur dæmi úr hinu tvö þús-
und klukkutíma hljóðsafni stofnun-
arinnar.
Þátttakendum námskeiðsins mun
standa til boða að skoða handrita-
sýningu Árnastofnunar sem opnuð
verður 1. júní nk. Sýningin ber yfir-
skriftina Kristnitaka og Vínlands-
ferðir í elstu heimildum. Stofnun
Arna Magnússonar á íslandi varð-
veitir allar mikilvægustu ritaðar
frumheimildir sem til eru um
kristnitökuna á íslandi og ferðir
norrænna manna til Vesturheims. Á
Þorláksvaka
um helgina
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
j ÞORLÁKSVAKA er orðinn fastur
Í* liður í sumarkomunni í Þorlákshöfn
og nági’enni. Lúðrasveit Þorláks-
hafnar hefur staðið fyrir hátíðahöld-
unum síðan 1988.
Að þessu sinni verður vakan með
nokkuð öðru og veglegra sniði. Sveit-
arfélagið Ölfus og Reykjavík -
menningarborg 2000 koma inn með
beinni þátttöku ásamt því að dag-
skráin mun tengjast sjómannadags-
dagskránni. Dagskráin hefst föstu-
| daginn 2. júní og þá mun Blúsband
Andreu Gylfadóttur leika ásamt
I Dixieland hljómsveit Árna ísleifs. Á
laugardag hefst dagskráin kl. 13:00
með skrúðgöngu frá grunnskólanum
að skrúðgarðinum. Þar verður fjöl-
breytt dagskrá fyrir alla aldui’shópa,
m.a. koma leikarar úr Ávaxtakörf-
unni og flytja atriði úr leikritinu.
Ásta úr „Stundinni okkai'" kemur í
heimsókn með Lóu ókurteisu. Kórar
syngja og margt fleira. Um kvöldið
| verður unglingadansleikur þar sem
I hljómsveitin Buttercup heldur uppi
I fjörinu.
Hefðbundin sjómannadagsdag-
skrá verður svo á sunnudeginum,
þar má nefna keppni í handflökun,
lyftararallí og fleira. Endað verður á
grillveislu í skrúðgarðinum kl. 19:00.
Reiðnám-
skeið í Viðey
LAXNES Hestaleiga starfrækir
I Reiðskólann í Viðey í sumar. í boði
" verða 10 daga reiðnámskeið í sumar
°g byrjar fyrsta námskeiðið 5. júní.
Haldin verða 2 námskeið á dag í júní
og ágúst en 1 á dag í júlí. Fyrri nám-
skeiðin byrja klukkan 9 en þau seinni
klukkan 13. Farið er út í Viðey með
Viðeyjarferjunni og verður bömun-
um kennt allt um hesta samhliða
leikjum, fjöruferð og fræðslu um
dýralíf á eyjunni og endar svo nám-
skeiðið á ratleik þar sem börnin leita
að fjársjóði á hestbaki. Eftir fjár-
' sjóðsleitina verður haldin grillveisla.
sýningunni verða handrit sem
geyma þessar frásagnir og eru und-
irstaða þess að á árinu er þúsund ára
minningu þessara tveggja merku at-
burða haldið víða á lofti með eftir-
minnilegum hætti. Sögð verður saga
handritanna og textanna sem þau
varðveita og skyggnst inn í þann
heim sem að baki þeirra býr.
Fyrirlesarar á námskeiðinu
verða: Sigurgeir Steingrímsson
handritafræðingur, Guðvarður Már
Gunnlaugsson handritafræðingur,
Guðrún Nordal íslenskufræðingur,
Sverrir Tómasson miðaldafræðing-
ur og Rósa Þorsteinsdóttir þjóð-
fræðingur.
Námskeið Opins háskóla eru öll-
um opin endurgjaldslaust, en þátt-
takendur verða að skrá sig hjá End-
urmenntunarstofnun Háskóla
íslands í síma 525 4923.
Umhverfísmál
rædd hjá Sam-
fylkingunni
SÍÐASTA laugardagskaffi Kjör-
dæmisfélags Samfylkingarinnar í
Reykjavík á þessum vetri verður
laugardaginn 3. júní kl. 11 á Sóloni
íslandus. Umhverfismál verða til
umræðu og verður frummælandi
Björn Guðbrandur Jónsson, líffræð-
ingur og framkvæmdastjóri samtak-
anna Gróður fyrir fólk í landnámi
Ingólfs. Bjöm nefnir innlegg sitt:
Sjálfbær þróun - hvað er það? Bjöm
Guðbrandur hefur víðtæka reynslu
og menntun á sviði umhverfismála.
Fundurinn er öllum opinn.
Samkeppni
um framtíðina
SAMBAND ungra framsóknar-
manna stendur fyrir keppni um
framtíðina fyrir ungt fólk í sumar.
Keppendum er ætlað að skila inn
hugleiðingum á rituðu máli sem
tengjast framtíðinni með einhverj-
um hætti, t.d. í formi ljóðs, smá-
sögu eða ritgerðar.
Skilafrestur er til 15. júní nk. og
er ferðaúttekt að upphæð kr.
50.000 í verðlaun fyrir sigurvegar-
ann.
í dómnefnd keppninnar sitja
þau Þráinn Bertelsson, Jónína
Bjartmarz og Kári Bjamason.
Keppendur skulu senda framlag
sitt bréfleiðis á skrifstofu Fram-
sóknarflokksins, Hverfisgötu 33,
101 Reykjavík, merkt: „Framtíð-
in“. Nafn höfundar skal fylgja með
í lokuðu umslagi.
Úrslit verða tilkynnt á þingi
SUF, sem haldið er að Hólum í
Hjaltadal í Skagafirði helgina 23.-
25. júní nk. Nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Framsóknar-
flokksins.
Hringferð SUF
Fulltrúar SUF fara hringinn í
kringum landið dagana 31. maí til
4. júní.
Tilgangur ferðarinnar er að
vekja athygli á samkeppni um
framtíðina og þingi SUF og hitta
unga framsóknarmenn að máli um
allt land. Meðal viðkomustaða eru:
Borgarnes, Hólmavík, Súðavík,
ísafjarðarbær, Hvammstangi,
Blönduós, Sauðárkrókur, Akur-
eyri, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðis-
fjörður, Fjarðarbyggð, Fáskrúðs-
fjörður, Stöðvarfjörður, Breið-
dalsvík, Djúpivogur, Homafjörður,
Kirkjubæjarklaustur, Vík, Hvols-
völlur, Hella, Selfoss og Hvera-
gerði.
gleraugnasyning
/. a. E ye works
föstudag qcj laugardag
— sjáðu —
Komdu og sjáðu
Laugavegi 40, sími 561 0075
JWPS
----—----
í
EXIT
—
L
——.—--
í
«0
1
o
a
o)
o
O)
0)
e
o
8)
t
Laugavegur 97
Opið laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-17
seljum beint af lager
verð sem þú hefur aldrei séð áður