Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Lazio leggur upp í kosningabaráttuna Rick Lazio er lítt þekktur þingmaður í Banda- ríkjunum og hefur nú verið útnefndur fram- bjóðandi Repúblikanaflokksins í kosningum til öldungadeildarínnar í stað Rudolphs Guili- anis. Lazo etur kappi við forsetafrúna og virð- ist njóta vinsælda meðal kjósenda, þótt sumir fréttaskýrendur segi afstöðu hans til mikil- vægra málefna vera vægast sagt óljósa. Buffalo, New York. The Washington Post, L.A. Times, AFP. AP Rick Lazio og eiginkona hans, Patricia, veifa til stuðningsmanna sinna á fundinum í Buffalo þar sem Lazio tók við útnefningu Repúblíkana- flokksins sem frambjóðandi til öldungadeildarinnar. AP Hillary Rodham Clinton áritar veggspjald fyrir stuðningsmenn sína eft- ir að hún hafði tekið við útnefningu Demókrataflokksins sem frambjóð- andi til öldungadeildarinnar. ið þessi ungi, tiltölulega óþekkti þing- RICK Lazio var vígreifur þegar hann tók opinberlega við útnefningu Repúblikanaflokksins í Bandaríkjun- um sem frambjóðandi flokksins í New York-ríki til öldungadeildar þingsins. Andstæðingur hans er Hillary Rod- ham Clinton, eiginkona Bandaríkja- forseta. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana hefur Lazio saxað verulega á forskot Hillary. Frambjóðandinn og eiginkona hans, Patrieia, gengu inn í blöðrum skreyttan sal á Hyatt-hótelinu í Buffalo síðastliðinn þriðjudag og var fagnað með lófataki af repúblikönum sem virtust fullkomlega sigui’vissir. Taktfost tónlist úr kvikmyndinni Rocky hljómaði undir og átti að minna á að Lazio ætti í höggi við Golíat. Frambjóðandinn Lazio er 42 ára. Þegai- Rudolph Giuliani, borgarstjóri í New York, hætti af heilsufarsástæð- um við framboð sitt til öldungadeild- arinnar fyrir nokkru, gafst Lazio tækifæri. Hann er þingmaður frá Long Island og í ræðu sinni á þriðju- dag ítrekaði hann að hann væri upp- runninn í New York-ríki, en andstæð- ingur sinn ekki. Þetta er nú þegar orðið einn meginþátturinn í kosninga- baráttu Lazios. „Komiði bara“ „Ég á undir högg að sækja í þessari kosningabaráttu,“ sagði Lazio. „And- stæðingur minn er fjársterkari og þekktari. Hún kemur hingað til New York með stuðningi allra sérhags- munasamtaka vinstrisinna, frá Wash- ington til Hollywood. En eins og ég hef áður sagt: Komiði bara.“ Hvorld Lazio né George Pataki, ríkisstjóri í New York, sem útnefndi hann, nefndu nafnið Hillary svo mildð sem einu sinni. Lazio er rómversk-kaþólskur og af ítölsku bergi brotinn. Hann hefur sagt, að áhugi sinn á stjómmálum hafi kviknað í fjölskyldufyrirtækinu. Faðir hans, Anthony, átti litla bíla- varahlutaverslun en helsta áhugamál hans var pólitík og hann bauðst stundum til að fara á flugvöllinn og sækja frambjóðendur sem voru að koma á framboðsfundi á Long Island. Rick fékk að fara með pabba sínum. Einu sinni, upp úr 1970, fór Anthony að sækja frambjóðanda sem var að koma frá Kaliforníu. Sá hét Ronald Reagan. „Fylginn sér“ í menntaskóla stundaði Lazio íþróttir og spilaði á gítar í rokkhljóm- sveit. Síðan lá leið hans í Vassar College, sem er virt háskólastofnun í New York-ríki. „Ég varð alls ekki hissa þegar hann fór að koma fram á sjónarsviðið í stjórnmálum í New York,“ sagði rektor skólans, Colton Johnson, sem minnist Lazios sem viðkunnanlegs nemanda er „kunni að að koma fyrir sig orði og var fylginn sér.“ Frá Vassar hélt Lazio til laganáms við American-háskólann í Wash- ington, og starfaði síðan sem sak- sóknari í Suffolk-sýslu. Hann var kjörinn á þing sýslunnar 1989 og þremur árum síðar tókst honum að ná kjöri til fulltrúadeildar Bandaríkja- þings. Fréttaskýrendur eru margir hveij- ir jákvæðir um möguleika Lazios á sigri. „Hillary er gífurlega óvinsæl meðal tiltekinna hópa kjósenda, mið- að við að hún er forsetafrú,“ sagði stjómmálaskýrandinn Joseph Merc- urio. „Rudy Giuliani var líka óvinsæll víða. Nú er kominn fram á sjónarsvið- maður sem kemur vel fyrir og þa er allt gerbreytt." Lítill munur Lazio nýtur þó minna fylgis en Hillary, samkvæmt skoðanakönnun- um, en segja má að munurinn á þeim sé ekki ýkja mikill, sérstaklega í Ijósi þess hve stutt er síðan kunnugt varð um framboð Lazios. Þegar tæp vika var liðin frá því að hann kom í stað Guilianis kváðust um 46% líklegra kjósenda styðja forsetafrúna, en 43% Lazio. Guiliani var ekki viðstaddur út- nefningu Lazios í Buffalo á þriðjudag- inn, en hefur lýst því yfir að hann muni styðja frambjóðandann bæði pólitískt og við fjáröflun. Lazio hóf ræðu sína í Buffalo með því að þakka Guiliani. Fréttaskýrendur segja að þegar skipt var um frambjóðanda hafi enn- fremur orðið breyting á baráttunni. Hillary og Guiliani einbeittu sér að því að gagnrýna persónu hvort ann- ars, en Hillary og Lazio einbeita sér að því að gagnrýna stjómmálaskoð- anir hvort annars. Lazio segir hana vera vinstrisinna og vilja stóra og umfangsmikla ríkis- stjóm, en Hillary segir Lazio vera I repúblikana af sömu sort og Newt | Gingrich, fyrrverandi leiðtoga meiri- hlutans á þinginu. Gaman að greiða atkvæði En hver er Rick Lazio í raun og vera? Dálkahöfundur bandaríska dagblaðsins Newsdayvar ekki viss og þóttist sjá Lazio beggja vegna borðs- ins í ýmsum deilumálum í bandarísku þjóðfélagi. Til að eiga möguleika á [ sigri í New York-ríki þurfi Lazio nauðsynlega stuðning þeirra sem séu j hlynntir rétti kvenna til fóstureyð- ' inga og hafi því tekið sér stöðu í þeirra hópi. En svo megi líka sjá hann styðja heitustu baráttumál helstu samtaka þeirra sem era andvígir fóst- ureyðingum, National Right to Life Committee. Dálkahöfundurinn segir afstöðu Lazios til fóstureyðinga óljósa og tví- ræða. Hann segist hlynntur réttinum til fóstureyðingar með þeini undan- tekningu að hann myndi banna hana þegar um væri að ræða fóstur sem komið væri langt á leið. Hann sé and- vígur því að fátækar konur sem ekki hafi efni á fóstureyðingu fái greitt úr almannatryggingasjóðum til að geta gengist undir slíka aðgerð. Þá sé síst auðveldara að átta sig á afstöðu Lazios til hertrar byssu- löggjafar. Svo virðist sem honum finnist afskaplega gaman að greiða k atkvæði um byssulöggjöf - svo oí- | boðslega gaman að hann hafi greitt | atkvæði bæði með og á móti þegar * þingið hafi á síðasta ári tekið fyrir til- lögur sem áttu að loka götum í reglu- gerðum er gerðu fólki mögulegt að kaupa sér byssur á byssusýningum án þess að þurfa að gangast undir sakavottorðskönnun. Hrasaði og datt Við útnefninguna í Buffalo á þriðju- daginn örlaði þó hvergi á svona gagn- I rýnisröddum, enda þar saman komn- j ir repúblikanar sem vilja standa f sameinaðir að baki sínum manni. Pat- aki kvaðst líka sannfærður um að kjósendur myndu taka í sama streng þegar þeir fengju að kynnast Lazio. „Þeir munu heillast af honum. Þefr munu heillast af framtíðarsýn hans. Þeir munu heillast af kröftum hans.“ En hver ræðumaðurinn á fætur öðr- um virtist viðurkenna með óbeinum hætti að Lazio ætti undir högg að sækja í kosningabaráttunni og lýsti j honum sem „snöggum upp á lagið“, P ungum og myndarlegum. En hann hafði hrasað daginn áður, í bókstaflegum skilningi, og efri vörin á honum var bólgin og samansaumuð. Það var í skrúðgöngu daginn áður sem hann hrasaði og datt á gangstétt með þeim afleiðingum að sauma þurfti nokkur spor í vörina. Við út- nefninguna reyndi hann að gera grín að eigin klaufaskap og sagðist eiga ýmislegt óuppgert við gangstéttina I sem hefði kýlt sig. Um 1.000 manns sýkjast vegna mengunar í vatnsbdli í Kanada Allt að níu látnir af völd- um saurgerlamengunar Toronto. Reuters, AP. ALLT að níu manns hafa dáið af völdum saurgerlamengunar í vatns- bóli bæjarins Walkerton í Kanada, að sögn yfirvalda í Ontario í gær. Talið er að saurgerlamir hafi borist í vatnsbólið með afrennsli frá bújörð- um og þingmenn stjómarandstöð- unnar í Ontario hafa krafist þess að settar verði strangari reglur til að koma í veg fyrir slíka mengun. Hermt er að starfsmenn vatnsveitu Walkerton hafi vitað af menguninni í vatnsbólinu fyrir hálfum mánuði en ekki varað við henni fyrr en um 1.000 af 5.000 íbúum bæjarins höfðu sýkst. Yfirvöld sögðu í gær að mengunin hefði kostað sjö manns lífið en gran- ur leikur á að tveir til viðbótar hafi dáið af völdum saurgerlasýkingar- innar. Rúmlega tuttugu manns era enn á sjúkrahúsi, flestir vegna nýrnabilunar eða annarra einkenna sýkingarinnar. Aldraður maður og þrjú ung böm vora sögð í lífshættu. Talið er að hættulegt afbrigði saurgerla hafi borist í vatnsbólið með afrennsli frá bújörðum í úrhelli og flóðum 12. maí. Ekki er hægt að lækna þá sem sýktust með sýklalyfj- um. Létu hjá Iíða að vara við menguninni Murray McQuigge, læknir og heil- brigðisfulltrúi Walkerton, hélt þvi fram að starfsmenn vatnsveitunnar hefðu vitað af menguninni frá 18. maí en látið hjá líða að vara íbúana við því að drekka vatnið. Mikil reiði er meðal bæjarbúa vegna málsins og ásakanir heilbrigðisfulltrúans fengu svo á framkvæmdastjóra vatnsveit- unnar, Stan Koebel, að hann var í felum þar til í fyrradag. „Hann er niðurbrotinn vegna dauðsfallanna og ásakana um að honum eða einhverj- um öðram sé um að kenna,“ sagði lögfræðingur hans. Hermt er að Koebel hafi viður- kennt að hafa vitað af menguninni í vatnsbólinu frá 18. maí en ekki skýrt yfirvöldum bæjarins og heilbrigðis- kerfisins frá henni. Viðvaranir hunsaðar Dan Newman, umhverfisráðherra Ontario, hefur viðurkennt að heil- brigðisfulltrúi Walkerton hafi bent honum á mengunarhættu í vatnsból- um fylkisins í janúar og apríl. Ráð- herrann lét þó hjá líða að skýra heil- brigðisyfirvöldum frá hættunni eins og reglur umhverfisráðuneytisins kveða á um. Howard Hampton, leiðtogi eins af stjórnarandstöðuflokkunum í Ontar- io, sakaði stjórn fylkisins um að hafa hunsað viðvaranir heilbrigðisfulltrúa Walkerton um að vatnsbólum stafaði íbúar Walkerton í Kanada bíða eftir Mike Harris, forsætisráðherra Ontario, við ráðhús bæjarins til að krefja hann svara við því hvers vegna ekki var varað við saurgerlamengun í vatnsbóli bæjarins sem hefur kostað allt að níu manns lifið. hætta af afrennsli frá bújörðunum. Hann vitnaði í bréf sem heilbrigðis- fulltrúinn skrifaði fyrir hálfu ári til að vara við því að sýklar, sem væra ónæmir fyrir lyfjum, gætu borist í vatnsból fylkisins frá bújörðum. Lögreglan í Ontario og umhverfis- ráðuneytið hafa hafið rannsókn á meriguninni. , Á meðal einkenna sýkingarinnar eru mikill hiti, alvarlegur krampi, bráður niðurgangur og uppköst, auk nýrnabilunar sem getur dregið fólk til dauða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.