Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 53 BALDUR SVEINSSON + Baldur Sveins- son, kennari, fæddist í Reykjavík 4. apríl 1929. Hann andaðist á heiniili sínu, Skipasundi 59 í Reykjavík, 25. maí síðastliðinn. Foreldr- ar Baldurs voru Sveinn Gunnlaugs- son skólastjóri, f. 17. maí 1889, d. 3. maí 1981, og Sigríður Oddný Benedikts- dóttir, húsmóðir, f. 12. ágúst 1888, d. 6. mars 1957. Systkini hans voru Aðalheiður Ragna, f. 29. október 1911, d. 2. júní 1980, og Gunnlaugur Haukur, f. 11. septem- ber 1913, d. 31. mars 1969. Upj)- eldisbróðir Baldurs var Eggert 01- afur Jóhannsson, f. 15. janúar 1925, d. 13. júní 1992. Baldur gekk að eiga Erlu Mar- gréti Ásgeirsdóttur, verslunarkonu, 13. maí 1950. Ilún fæddist á Flateyri 29. október 1928. Foreldrar Erlu voru Ásgeir Guðnason verslunarmaður og Jensína Eiríksdóttir húsmóðir. Baldur og Erla eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Hilmar, f. 9. júní 1952, lögmað- ur. Sambýliskona hans er Guðrún Nanna Guðmun- dsdóttir kennari, f. 10. mars 1953. Dóttir Hilmars og Hrafnhildar Skúladóttur er Anna Rut, f. 26. nóvember 1984. Stjúp- börn hans eru íris, f. 27. október 1974, og Egill, f. 2. maí 1980. 2) Sigríður Lillý, f. 8. júní 1954, skrif- stofustjóri, gift Skúla Bjarnasyni, lögmanni, f. 15 desembcr 1953. Börn þeirra eru Erla, f. 27. apríl 1975, Helga Margrét, f. 10. maí 1979, og Benedikt, f. 20. júlí 1984. 3) Sveinn Ásgeir, f. 21. júlí 1956, rafvirki, kvæntur Eddu Gunnars- dóttur, verslunarkonu, f. 19. ágúst 1957. Börn þeirra eru Hildur, f. 22. apríl 1981, Ragna, f. 4. febrúar 1986, og Sævar, f. 17. janúar 1989. Baldur bjó fyrstu æviárin í Flat- ey á Breiðafírði en flutti ásamt for- eldrum sínum til Flateyrar. Þaðan flutti hann til Reykjavíkur árið 1959. Baldur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands árið 1949 og stundaði kennslu til vors 1999, lengst af í Hlíðaskóla í Reykjavík. Baldur var virkur í ýmsum fé- lagsstörfum á Flateyri og sat með- al annars í hreppsnefnd. Hann lét félags- og kjaramál kennara sig miklu varða, starfaði í bræðrafé- lagi og sóknarnefnd Langholts- kirkju og tók virkan þátt í félags- starfi Frímúrara. Útför Baldurs verður gerð frá Langholtskirkju föstudaginn 2. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ég minnist þín - Baldur Sveins- son, tengdapabbi. I auðmýkt vel ég mér að skrifa til þín þótt ég viti að þú nemir þessi skrif ekki nema sem strauma frá hjarta mínu til hins óendanlega og guðdómlega þar sem þú nú friðsæll og hvíldur skrifar áfram af snilld og miðlar fróðleik eins og þér var ein- umlagið. Úr fallegu stofunni í Skipasund- inu á ég margar ljúfar minningar um þig segjandi frá, skemmtilegar og ótrúlegar sögur af mönnum og málefnum og ég dáðist í huga mér að minni þínu. Síðan var pólitíkin aðeins tekin fyrir og ýmsar maka- lausar og heimskulegar ákvarðanir sem teknar höfðu verið úti í bæjar- lífinu sem við áttum ekki orð yfir og við gátum alltaf verið sammála um aðrar lausnir sem voru happasælli að okkar mati. Það var alltaf gaman að spjalla við þig og aldrei kom maður þar að tómum kofunum. Nú kveð ég þessar stundir með trega og reyni að vera eins og þú, að muna nú sögurnar. Alltaf og undantekningarlaust munduð þið, þú og Erla, eftir af- mælisdögum og tyllidögum okkar hjóna og barnanna, síminn hringdi að morgni og hamingjuóskir frá ykkur báðum, seinni partinn komuð þið keyrandi á rólegu nótunum en óaðfinnanlega uppáklædd og færð- uð höfðinglegar gjafir börnunum til óblandinnar ánægju. Ég minnist jólanna, sem betur fer ljóstraðir þú upp leyniuppskrift- inni að jólasvínalærinu um síðustu jól, uppskrift sem þú hefur lúrt á í tugi ára sama hversu hart var að þér gengið úr öllum áttum. Nú er næsta karllegg mögulegt að halda heiðri þínum í eldamennskunni á jólunum og tryggt verður að sá þar- næsti geri það líka. Þú og elskulega konan þín, hún Erla, voruð fyrir mér ávallt sem eitt, hún dáðist að þér þegar þú klæddist kjólfötunum og fórst með hana á glæsilega dansleiki og systrakvöld í Frímúrarahöllinni, hún sagði alltaf eftir á: „Þið hefðuð átt að heyra hvað hann hélt frá- bæra ræðu og stjórnaði veislunni af ÁSGEIR ÁSGEIRSSON + Ásgeir Ásgeirs- son var fæddur í Kópavogi 6. febrúar 1962 og ólst hann þar upp. Hann lést 24. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ásgeir Gislason skip- stjóri og Hildur Ein- arsdóttir _ Frímann. Systkini Ásgeirs eru: Jón Ásgeirsson, Gísli Ásgeirsson, Brynja Ásgeirsdóttir, Sig- ríður Ásgeirsdóttir og Kristín Ásgeirs- dóttir. Ásgeir lætur eftir sig eina dótt- ur, Hildi Sunnu Ásgeirsdóttur. Útför Ásgeirs fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði fostudag- inn 2. júní og hefst athöfnin klukkan 15. Kom, huggari, mig hugga þú, kom hönd og bind um sárin, kom dögg og svala sálu nú, komsólogþerratárin, kom hjartans heilsulind, kom heilög fyrirmynd, komljósoglýstumér, komlífogævinþver, kom eilífð bak við árin. (V. Briem.) Elsku pabbi minn, mér þykir vænt um þig. Þín elskulega dóttir, Hildur Sunna. Elsku Ásgeir minn, mig langar til að kveðja þig með örfáum orðum. Það er svo stutt síðan þú sast hér í stofunni hjá okkur Edda og við átt- um svo gott spjall saman um gömlu dagana og hvernig gengið hefði hjá þér. Þú sast á móti mér og straukst nýjasta fjölskyldumeðlimnum, hon- um Tígra, og talaðir um hvað hann væri nú fríður köttur, dæmigert fyrir þig enda svo mikill dýravinur. Minningarnar hrannast upp og verða geymdar sem dýrgriph- enda varstu einstak- lega yndislegur og góð- ur bróðir og góður frændi strákanna minna. Þú varst líka svo frábær faðir og er missir henner Hildar Sunnu mikill. Við systkinin sem eftir lif- um reynum að hugga hvort annað í sorginni og höldum minningu þinni á lofti, elsku Ásgeir. Við hugg- um okkur við orð hans Sindra míns sem sagði: „Mamma, kannski líður honum Ásgeiri frænda bara betur hjá Guði.“ Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig, kæri bróðir, og ég vona að þér líði vel hvar sem þú ert. Ég sendi þér bænina sem við bæði kunnum svo vel. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta migvið það sem ég fæ ekki breytt Kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Þín systir, Kristín. Nú fel ég allt mitt í hendur Guðs: vonbrigðþsorgogsöknuð vegna þess sem að baki er. Ahyggjur allar og kvíða vegna þess sem framundan er. Alla gleði, alla gæfu, alladrauma,allarvonir, allafegurð, ástogfrið sem ég þrái og ég nýt, það fel ég þér. Verkefni öll, skyldur, störf, fullnað og framið og einnig allt sem ólokið er, leið það allt til góðra lykta, til heilla mér og öðrum til góðs og gæfu. Ástvinimínaogallt sem mér er hjartfólgið fel ég þér. Lækna, reis upp, gjör heilt. Bætogblessaallt. Allt sem var mér illa gert, allt sem ég hef brotið, vanrækslu alla, synd, fyrirgef það allt og lækna. Allt það þekkir þú, ekkert er þér hulið, Drottinn minn og Guð minn, tak það allt að þér, mig og allt mitt, nú og allar stundir í Jesú nafni. Amen. Elsku Geiri okkai’. Minning þín lif- ir í hjarta okkar allra. Takk fyrir all- ar góðu stundirnar. Elsku Sigga, Gísli, Kristín, Eddi og börn, við vott- um ykkur innilega samúð á þessari erfiðu stund. Ólöf og börn. Þegar éjg var lítil stúlka bjó ég úti í Svíþjóð. Eg fékk oft að fara til ís- lands í jóla- og sumarfríum til þess að vera hjá afa og ömmu á Sunnubraut 42 í Kópavoginum. Föðurfólkið mitt bjó í sömu götu, á Sunnubraut 44, þannig að það vai’ stutt fyrir mig að heimsækjaþau. Þegar ég nú minnist Ásgeirs frænda míns, sem var nokkrum ár- um eldri en ég, rifjast upp fyrir mér minningabrotin frá þeim tíma þegar amma var að leggja kapal í eldhúsinu og bauð upp á ristaðar samlokur, Ki-istín frænka að teikna og Ásgeir frændi úti á plani að dunda sér í bíla- viðgerðum. Ásgeir afi setti oft pening í vasa minn að lokinni Islandsdvöl- inni og sagði mér að kaupa mér eitt- hvað á leiðinni heim til Svíþjóðar. Minningin mín um Ásgeir er að hann var alltaf góður við frænku sína. Það hefur líka oft verið sagt við mig að Ásgeir frændi væri að mörgu leyti líkur pabba mínum. Megir þú hvíla í friði, Ásgeir frændi. Guð gefi Kristínu, Gísla og Siggu styrk í þeirra miklu sorg. Brynhildur Jónsdóttir. skörungsskap.“ Sól í sinni og skugga inni á milli, þá áttuð þið allt- af hjarta hvort annars enda náðuð þið þeim áfanga núna 13. maí að eiga gullbrúðkaup. Þú bjóst yfir þeim hæfileika að ná vel til barna og unglinga, þau eru ófá sem þú studdir og ýttir út á farsælli brautir en þau upphaflega ætluðu, villtir unglingar voru ekki vandamál hjá þér, þeir urðu bara venjulegir hjá þér því þú tókst þeim eins og þeir voru þegar þú hafðir leyft þeim að rasa út. Börnin okkar nutu ástúðar þinn- ar og umhyggju sem verður aldrei úr minni þeirra tekið. Frá upphafi okkar kynna og alla tíð síðan reyndist þú mér hlýr og elskulegur tengdafaðir og ég mun ávallt geyma minningu þína þannig í hjarta mínu. Elsku hjartans Erla mín, Guð mun lýsa þér veginn og varðveita þig- Edda. Ég trúi ekki ennþá að þú sért dá- inn, elsku afi minn. Ég á svo marg- ar góðar minningar um þig sem ég mun aldrei gleyma. Til dæmis þeg- ar þú fórst með mig og hin barna- börnin á jólaböll þegar við vorum lítil. Okkur fannst það svo gaman og ætluðum aldrei að hætta að dansa og syngja. Svo fórum við heim til þín og ömmu og fengum pizzu og gistum svo yfir nóttina. Þú varst alltaf svo góður og mér leið svo vel nálægt þér. Mér þótti alltaf svo gaman að heimsækja þig og ömmu. Það var svo notalegt að sitja inni í stofu og spjalla saman og borða góðu kökurnar sem amma var búin að baka handa okkur. Ég sakna þín mikið, eins og allir aðrir sem þekktu þig, en ég veit að þér líður vel og ég þakka Guði fyrir að hafa átt þig að. Þakka þér fyrir allt, afi minn, og góður Guð blessi þig. Anna Rut. Elsku afi. Við andlát þitt rifjast upp margar góðar stundir og hlýja þín í okkar garð. Við munum hvað þú sýndir skólagöngu okkar alltaf mikinn áhuga; við munum leiðangrana til að kaupa skriffæri fyrir skólann á haustin og símtölin þar sem við til- kynntum þér samviskusamlega um námsárangur að lokinni hverri ein- kunnaafhendingu. Við munum jólin; þig stoltan skera fyrstu sneiðarnar af sænska svínalærinu hvern jóla- dag og jólaböllin í Frímúrarahús- inu. Við munum næturnar sem við fengum að gista hjá ykkur ömmu; þegar við fengum snakk, þykka sneið af sandköku og bæn fyrir svefninn. Við munum að þú kynntir pkkur heimsbókmenntirnar, allt frá íslendingasögunum til Zorro og Andrésar Andar. Við munum allar afmæliskveðjurnar og töfrabrögðin í afmælisveislunum þar sem þú varst hrókur alls fagnaðar. Við munum hvað þér þótti gott að fá þér skyr með rjóma og sykri, eða bara rjóma og sykur með smá skyri. Við munum hlýja og þétta faðmlagið þitt. Þessar minningar geymum við og varðveitum. Erla, Helga og Benedikt. • F/eírf minningargreinar um Baldur Sveinsson bíða birting- ar og munu birtast íblaðinu næstu daga. Varanleg minning er meitlub ístein. al S.HELGASONHF STEINSMIÐJA Skemmuvegi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI GÍSLASON frá Helgafelli, Fellahreppi, lést á Sjúkrahúsinu Egilsstöðum laugardaginn 27. maí. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugar- daginn 3. júní kl. 14.00. Hólmfríður Helgadóttir, Bragi Gunnlaugsson, Gtsli Helgason, Björn Helgason, Anna Sigríður Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR Ijósmóðir frá Bæ, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, þriðjudaginn 30. maí. Snorri R. Jóhannesson, Guðrún Hafliðadóttir, Jóhann G. Jóhannesson, Sóley Sveinsdóttir, Kristjana G. Jóhannesdóttir, Hjalti Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.