Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fallist á Fljótsdals- línu með skilyrðum SKIPULAGSSTJ ÓRI ríkisins hefur fallist á íyrirhugaða lagn- ingu Fljótsdalslína 3 og 4 frá Fljótsdal til Reyðarfjarðar eins og henni er lýst í frummats- skýrslu Landsvirkjunar. Setur hann þó ákveðin skilyrði fyrir framkvæmdinni. Landsvirkjun hyggst leggja tvær 400 kV háspennulínur, Fljótsdalslínur 3 og 4, frá fyrir- hugaðri virkjun í Fljótsdal að fyr- irhuguðu álveri í Reyðarfirði. Línumar eru 53 og 54 kílómetra langar og liggja að mestu sam- síða. Á löngum köflum liggja þær með eldri háspennulínum. Ekki raunhæft að grafa í jörð Frá því byijað var að undirbúa framkvæmdina hafa orðið breyt- ingar á áformum um álver og þar með áhrif á raforkuþörf. Fram kemur að fyrsti áfangi álvers með 240 þúsund tonna fram- leiðslugetu á ári þurfi 400 kV rekstrarspennu frá upphafi. Fram kemur í úrskurði skipu- lagsstjóra um frummatsskýrslu Landsvirkjunar að Fljótsdalslín- ur 3 og 4 eru mjög umfangsmikil mannvirki sem óhjákvæmilega hafa umtalsverð sjónræn áhrif í för með sér þrátt fyrir viðleitni framkvæmdaaðila til að draga úr þeim. Til þess að draga að ein- hverju marki úr sjónrænum áhrifum af háspennuh'num væri að mati skipulagsstjóra ekki ann- ar kostur í stöðunni en að grafa línurnar í jörð á löngum köflum. Telur hann að sá kostur sé langt frá því að vera raunhæfur vegna kostnaðar og þess rasks sem hann hefur í för með sér. Fellst skipulagsstjóri á fram- kvæmdina með nokkrum skilyrð- um. Meðal annars krefst hann þess að Kröflulína verði færð á kafla og að staðsetningu Fljóts- dalslínu 3 og 4 í Fljótsdal og yfir Gilsárgil verði hagað þannig að hún valdi sem minnstum sjón- rænum áhrifum. Kæra má úrskurð skipulags- stjóra til umhverfisráðherra og rennur kærufrestur út 5. júlí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík gera samning um kennslu til þriggja ára Morgunblaðið/Ásdís Samninginn undirrituðu (f.v.) Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra, Guð- finna S. Bjarnadóttir rektor og Sverrir Sverrisson, formaður háskólaráðs. Miðað við að nemend- ur verði 900 árið 2003 MENNTAMÁLARÁÐHERRA Björn Bjamason, fjármálaráðherra Geir H. Haarde, Guðfinna S. Bjarna- dóttir, rektor Háskólans í Reykjavík og Sverrir Sverrirsson, formaður há- skólaráðs, undirrituðu í gær í fyrsta skipti sérstakan samning um kennslu til fyrsta háskólaprófs á sviði viðskiptafræða og tölvunarfræða við Háskólann í Reykjavík, ásamt yfir- lýsingu um rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunai’verkefni við skólann. Samningurinn, sem unnið hefur verið að í eitt ár, tekur til fjárveitinga til reksturs Háskólans í Reykjavík vegna kennslu og um fjárhagsleg samskipti í samræmi við lög um há- skóla. Með undirritun hans hafa samningsaðilar markað skýra um- gjörð til þriggja ára um samskipti yf- irvalda menntamála og Háskólans í Reykjavík, en gert er ráð fyrir að nemendum í skólanum fjölgi að há- marki um 500 árið 2000 í 900 árið 2003. Tilgangur samningsins er að tryggja rekstrargrundvöll skólans þannig að hann sé svipaður og þeirra skóla sem bjóða sambærilegt nám. Fjárlög ársins 2000 byggjast á áætl- un Háskólans í Reykjavík um nem- endafjölda og dreifingu kostnaðar við nám. Framlag ríkisins vegna kennslu er samkvæmt samningnum áætlað um 212 milljónir árið 2000. Samningurinn byggist á reglum um fjárveitingar til háskóla, en þær gera ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði hverjum háskóla, sem semur við menntamálaráðuneytið, árlegt fram- lag, nemendaframlag, vegna sér- hvers nemanda sem stundar nám til viðurkenndra námsloka. Fullt nám eru 30 einingar á námsári. Nemenda- framlagi er ætlað að standa undir öll- um venjulegum kostnaði vegna kennsluþáttarins í rekstri skólans, m.a. kennslu, þjónustu, búnaði og annarri aðstöðu sem nemendum og starfsmönnum skólans er látin í té vegna náms og kennslu. Samhliða undirritun samnings um kennslu var gefin út yfirlýsing um rannsóknar-, þróunar- og nýsköpun- arverkefni í Háskólanum í Reykjavík. Gáfu skildi á víkinga- skipið Is- lending 50 NEMENDUR úr Iðnskóla Hafnarfjarðar hafa smi'ðað skildi sem þeir hafa afhent Gunnari Marel Eggertssyni, skipstjóra vikingaskipsins Islendings. Skild- irnir prýða skipið á ferð þess yfir Atlantshafið til New York. Nem- endurnir smíðuðu skildina, sem eru í anda smíðavinnu víking- anna, í sjálfboðavinnu undir handleiðslu kennara síns, Ástþórs Ragnarssonar. Siglingin hefst frá Reykjavík 17. júní næstkomandi og er ráð- gert að henni ljúki 5. október í New York. Undirbúningsvinnu er nær lokið. Siglingin er farin til þess að minnast landafunda Leifs Eirikssonar fyrir eitt þúsund ár- um. Fulltrúar um 20 bandarískra og kanadískra fjölmiðla hafa boð- að komu sína hingað 17. júní til að flytja fréttir af brottför skips- ins. Víkingaskipið íslendingur við landfestar í Reykjavíkurhöfn. Morgunblaðið/Þorkell Tæknifræðingafélag Islands fagnar fjörutíu ára afmæli um þessar mundir TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAG ís- lands heldur upp á fjörutíu ára af- mæli sitt á Hótel Sögu næstkom- andi laugardag en félagið var stofnað 6. júlí 1960. Á undan afmælishátíðinni mun Sturla Böð- varsson samgönguráðherra, sem sjálfur er tæknifræðingur, opna sérstaka sögusýningu þar sem far- ið er yfir sögu tæknifræðinnar hér á íslandi og sögu TFÍ undanfarin fjörutíu ár. Jóhannes Benediktsson, formað- ur TFÍ, sagðist í samtali við Morg- unblaðið eiga von á um 300 gestum í afmælishátíðina á Hótel Sögu og verður þeirra á meðal hópur er- lendra gesta sem hér er staddur en um helgina er haldinn hér á landi árlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra tæknifræðinga- félaganna á Norðurlöndum. í tilefni afmælisins er einnig meiningin að gefa út sögu tækni- fræðinnar á íslandi og hefur Guð- mundur Magnússon sagnfræðing- ur og forstöðumaður Pjóðmenn- ingarhúss undanfarin misseri unnið að því verkefni. Bókin verð- ur hluti af iðnsögu íslendinga og segir Jóhannes stefnt að útgáfu hennar í haust. Loks verður haldin sérstök ráð- stefna næstkomandi mánudag og þriðjudag í tengslum við afmæli TFI en þar mun verk- og tækni- fræðinám á nýju árhundraði verða skoðað ofan í kjölinn með aðstoð Hafa náð fullum sátt- um við verkfræðinga erlendra sérfræðinga. Á fjór- tánda hundrað íslendinga hafa lokið tæknifræðinámi en þar af eru um átta hundruð þeirra meðlimir í TFÍ nú. Stofnfélag- ar voru 37 en tildrög þess að ákveðið var að stofna félag tæknifræðinga á íslandi voru deilur sem staðið höfðu við verkfræðinga um viðurkenn- ingu þess tæknináms sem hóp- ur manna hafði sótt sér á er- lendri grundu. Að sögn Bernharðs Hannes- sonar, sem var einn af stofn- endum TFÍ, höfðu verkfræð- ingar ekki viljað viðurkenna þá sem komu að utan með tækni- fræðimenntunina og vildu að þeir yrðu kallaðir iðnfræðingar. Það starfsheiti hafði hins vegar verið notað m.a. um þá sem að- eins höfðu lokið iðnskólanámi og Bernharður og félagar töldu sig einfaldlega hafa próf- skírteini upp á jafngildi verk- frasðimenntunar. Ákváðu þeir að stofna nýtt Morgunblaðið/Ásdís Bernharður Hannesson og Jó- hannes Benediktsson. félag til að berjast fyrir rétt- indum sínum og lögðu þeir Halldór Halldórsson málfræð- ingur og Árni Böðvarsson ís- lenskufræðingur þeim til nýtt starfsheiti, þ.e. tæknifræð- ingaheitið. Urðu svo þáttaskil hvað þessar deilur varðar með lögum um starfsheiti sem sett voru 1963. Mikil áhersla lögð á menntunarmál félagsmanna Tæknifræðingafélagið lagði þegar í byrjun mikla áherslu á menntun félagsmanna sinna og stóð fyrir undirbúnings- námskeiðum 1962 og 63 fyrir þá sem hugðust fara utan í tæknifræðinám. Þessi nám- skeið reyndust hins vegar upphafið að öðru og meira, þ.e. stofnun Tækniskóla ís- lands árið 1964. Tæknifræði við Tækniskól- ann er þriggja og hálfs árs nám, að sögn Jóhannesar, og var námið í upphafi hugsað sem framhaldsnám fyrir iðnaðarmenn. Reglan í dag er sú að til að hljóta inngöngu í skólann þurfa menn a.m.k. tveggja ára starfsreynslu í iðngrein. Verkfræðinám við Há- skóla íslands kallar hins vegar einungis á stúdentspróf og segir Jóhannes helsta muninn á verk- fræðinámi og tæknifræðinámi þann að í verkfræðinni sé lögð meiri áhersla á hinn fræðilega þátt. Auk þess sem þegar hefur verið getið var Tæknifræðingafélag Is- lands ásamt Verkfræðingafélagi íslands frumkvöðull að því að Endurmenntunarstofnun Háskól- ans var komið á fót fyrir um tut- tugu árum síðar. Lætur Jóhannes þess getið að félagið sé nú aðili að undirbúningshópi að stofnun og rekstri Tækniháskóla. Er gert ráð fyrir að hann hefji starfsemi haustið 2001. Tæknifræðingar og verkfræð- ingar hafa fyrir margt löngu náð fullum sáttum að sögn þeirra Jó- hannesar og Bernharðs og njóta þeir í dag sömu starfsréttinda samkvæmt lögum. „Við rekum sameiginlega skrifstofu með þeim í dag og höfum haft sameiginlegan framkvæmdastjóra undanfarin fimm ár,“ segir Jóhannes og bætir því við að kannanir hafi sýnt að meirihluti sé fyrir því í báðum fé- lögunum að sameina þau í eitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.