Morgunblaðið - 01.06.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 11
FRÉTTIR
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
Ólíklegt að loftræstikerfí
flugvéla beri út smit
HARALDUR Briem sóttvarna-
læknir hefur nú til athugunar hvort
hugsanlegt sé að flugfarþegar geti
smitast af sjúkdómum vegna bakt-
ería eða veira sem dreifist um far-
þegarými í loftræstikerfum flug-
véla. Hann segir þó allar athuganir
sem hann hafi kynnt sér benda til
þess að mjög ólíklegt sé að smit geti
borist í fólk um loftræstikerfi flug-
véla, sem séu búin síum sem komi í
veg fyrir það. Mun rneiri líkur séu á
því að farþegar geti smitast ef þeir
sitja nálægt smituðum einstaklingi
í flugi jafnvel þó nokkrar sætaraðir
skilji á milli.
Mikil umræða hefur farið fram
erlendis um hvort hugsanlegt sé að
smit geti borist um loftræstikerfi
flugvéla en andrúmsloft í farþega-
rými er ekki endurnýjað nema að
hluta til meðan á flugi stendur
vegna kostnaðar við að hita upp
kalt loft sem tekið er inn um hreyila
flugvélarinnar Er loftið í farþega-
rýminu því á stöðugri hringrás um
loftræstikerfi vélarinnar.
Birt var viðamikil úttekt í breska
blaðinu The Sunday Times fyrir
nokkrum vikum þar sem fullyrt var
að ýmis dæmi væru um að farþegar
hefðu sýkst af sjúkdómum um borð
í farþegaflugvélum og að smitleiðin
hefði verið í gegnum loftræstikerfi
vélanna. Er því haldið fram að
þrátt fyrir að talsmenn flugfélaga
fullyrði að síur í loftræstikerfum
flugvéla komi í veg fyrir að sjúk-
dómar geti dreifst um þau, hafi nýj-
ar rannsóknir leitt í Ijós að þær séu
oft á tíðum þaktar myglu og
sveppagróðri. Staðfest hafi verið að
fólk hafi jafnvel sýkst af alvarleg-
um sjúkdómum á borð við berkla
þar sem viðkomandi hafi setið allt
að 30 sætaröðum frá hinum smit-
aða einstaklingi.
„Ég hef verið að afla mér ítar-
legra gagna um þessi loftræstikerfi
en af því sem ég hef séð er talið að
loftræstikerfin séu ekki líkleg til að
breiða út smit. Það er frekar um
það að ræða að þeir Sem eru í nám-
unda við einhvern smitaðan í flug-
vél, við hlið hans eða nokkrum
sætaröðum frá, geti verið í hættu.
Það er hins vegar ekki talið líklegt
að loftræstikerfin beri bakteríur
um,“ segir Haraldur Briem.
Hann vitnar m.a. í norska úttekt
sem gerð hefur verið vegna sótt-
varnaráðstafana á Gardemoenflug-
velli við Osló og segir að niðurstaða
hennar sé sú að loftræstikerfin
væru ólíklegur dreifingarþáttur
smitsjúkdóma í flugvélum.
„Flugvélar eru eins og hver önn-
ur farartæki, t.d. rútubílar, þar sem
fólk situr lengi saman og í langflugi
aukast auðvitað smitlíkurnar þegar
menn eru lengi í námunda hver við
annan,“ segir hann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Jóhannes Jónsson dósent og Guðmundur Heiðar Gunnarsson, sem
fékk nýsköpunarverðlaun Tækniþróunar 2000.
N ýsköpunarverðlaun
tækniþróunar veitt
NYSKOPUNARVERÐLAUN Tækni-
þróunar voru veitt sl. þriðjudag Guð-
mundi Heiðari Gunnarssyni fyrir
verkefni, sem snýst um þróun að-
ferðar til að mynda DNA-sameindir
með sértækar skemmdir af völdum
útfjólublái'rar geislunar. Styi'kurinn
nemur 300 þúsund krónum. Leið-
beinandi Guðmundar Heiðars er Jón
Jóhannes Jónsson. Guðmundur G.
Haraldsson, varaformaður háskóla-
ráðs, afhenti styrkinn.
Tilgangur verðlaunanna er að
vekja athygli bæði innan Háskóla ís-
lands og í samfélaginu á hagnýtum
verkefnum innan háskólans. Atta
verkefni bárust í keppnina að þcssu
sinni og varð verkefni Guðmundar
Heiðars hlutskarpast. Grunnhug-
mynd verkefnisins er að bæta að-
ferðir við erfðarannsóknir, en jafn-
framt gætu þær aðferðir nýst við
krabbameinsrannsóknir. í fram-
haldinu munu stjóm Tækniþróunar
og Rannsóknaþjónusta Háskóla fs-
lands vinna áfram með vinningshöf-
um að fjármögnun og þróun verk-
efnisins.
Við erum í okkar árlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bílum.
Við verðum á Norðurlandi vestra um helgina. Nýttu tækifæríð. Komdu og prófaðu bíla af bestu gerð.
Norðurland vestra
Laugardaginn 3. júnf
Bensínstöðin, Siglufirði kl. 12-14
Bifreiðaverkstæðið Áki
Sæmundargötu íB, Sauðárkróki kl. 15:30-18
Sunnudaginn 4. júnf
Esso skálinn, Blönduósi kl. 13-15
Bensínstöðin, Skagaströnd kl. 15:30-17
Allar nánari upplýsingar: Bifreiðaverkstæðið Áki, sími 453 5141
Land Rover Discovery
Land Rover Defender
Land Rover Freelander
BMW Compact
Renault Scénic
Renault Laguna
Renault Mégane Break
Renault Mégane Classic
Hyundai Starex
Hyundai Accent
Hyundai Sonata