Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þróa hugbúnað fyrir raf-
rænar sendingar lyfseðla
Fyrirtækið Doc.is hefur hannað hug-
búnað sem er í senn rafræn sending lyf-
seðla, upplýsingaveita fyrir lækna og
gagnagrunnur heilbrigðisyfirvalda.
Guðjón Guðmundsson ræddi við
forsvarsmenn fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Þorkell
Forsprakkar Doc.is að störfum. F.v.: Guðbrandur Þorkelsson, Torfi
Rafn Halldórsson og Tómas Hermannsson.
Greiðslur Tryggingastofnunar til apóteka
fyrir lyf 1991-1998 og áætlun um aukningu
þeirra útgjalda fram til ársins 2007
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007
ePREF hugbúnaður Doc.is hefur
verið í þróun í eitt ár í samstarfi við
Landlæknisembættið, Trygginga-
stofnun ríkisins og Heilbrigðis-
stofnun Húsavíkur. Hugbúnaðurinn
kemur á markað á næsta ári. Doc.is
var stofnað af þeim Tómasi Her-
mannssyni fjármálastjóra, Torfa
Rafni Halldórssyni lyfjafræðingi og
Guðbrandi Þorkelssyni tölvunar-
fræðingi. Fljótlega bættust í hópinn
þrír forritarar og lyfjafræðingur en
í dag eru starfsmennimir orðnir
níu, sex forritarar, tveir lyfjafræð-
ingar og Tómas fjármálastjóri.
Doc.is er að stærstum hluta í eigu
starfsmanna en Landssími íslands
á einnig 30% hlut í fyrirtækinu.
Með ePREF hugbúnaðinum verður
til tölvukerfi sem felur í sér raf-
ræna sendingu lyfseðla frá lækni til
lyfjaverslunar með auknu öryggi og
tímaspamaði fyrir lækna, apótek og
sjúklinga, ásamt viðamikilli upplýs-
ingaöflun fyrir heilbrigðisyfirvöld
og opinberar stofnanir.
í þeim hluta kerfisins sem snýr
að læknum er jafnframt fólgin upp-
lýsingaveita um lyf fyrir læknana,
þar sem bæði er að finna faglegar
og hagnýtar upplýsingar um lyf
sem verið er að ávísa, s.s. eigin-
leikalýsingar, pakkningastærðir og
lyfjaverð. Guðbrandur Þorkelsson
bendir á að nýlegar rannsóknir í
Bandaríkjunum hafi leitt í ljós að
læknar eyði að meðaltali 10 mínút-
um á hvern sjúkling. Á þessum
tíma hafi þeir einfaldlega ekki tíma
til þess að leita uppi upplýsingar
um lyf í skrám eða mismunandi
gagnagmnnum. ePref veiti þeim
hins vegar upplýsingamar sem sóst
er eftir um leið og unnið er með
sjúklinginn.
Þá nefnir Torfi Rafn Halldórsson
að kerfið bjóði læknum upp á að
skoða með mjög einföldum hætti
þau lyf sem koma til greina við
meðhöndlun á þeim sjúkdómi sem
verið er að fást við hverju sinni.
Hann tekur dæmi um meðferð við
þunglyndi með lyfjum af flokki
SSRI-lyfja. Læknir sem velur
SSRI-lyf, t.d. Fontex, fær uppgefin
öll önnur SSRI-lyf sem fáanleg era
og verka með sama hætti. Læknir
getur strax skoðað faglegar upp-
lýsingar um lyfin, s.s. aukaverkanir,
og hagnýtar upplýsingar eins og
tegund lyfjaforma og verð á mis-
munandi meðferðum.
Þeir hjá Doc.is telja að með því
að færa læknum aðgang að slíkum
upplýsingum verði lyfjameðferðir
markvissari og e.t.v. í sumum tilfell-
um ódýrari fyrir sjúklinga.
Öryggisþættirair
Rík áhersla hefur verið lögð í
hönnun kerfisins á öryggisforrit
sem era sjálfvirk og hggja á bak við
sjálft kerfið. Þau gefa lækni strax
til kynna ef lyfseðilinn er útfylltur
með óvenjulegum hætti, t.d. óvenju-
legri skammtagjöf eða skammtagjöf
sem hentar ekki tilteknum sjúklingi
vegna einhverra annarra sjúkdóma
sem hann er haldinn. Kerfið veitir
lækni einnig sjálfvirkt upplýsingar
um milliverkun og alvarleika verk-
unar milli ólíkra lyfja sem fara ekki
vel saman. Kerfið tengist m.ö.o.
og nýtir sér sjúkraskrárkerfi, t.d.
Sögu, sem er í notkun á nærri öll-
um heilsugæslustöðum landsins, en
getur einnig tengst öðrum sjúkra-
skrárkerfum.
Þá er lyfjasaga sjúklingsins einn-
ig inni í kerfinu og hvort tveggja er
aðgengilegt lækninum á tölvuskján-
um um leið og hann ávísar lyfjum á
viðkomandi sjúkling. Einnig grípa
öryggisforritin inn í ef t.d. gleymist
að gefa upp notkunarleiðbeiningar
og koma þau þá í veg fyrir að hægt
sé að senda lyfseðilinn.
Annar hlutinn snýr að landlækni
því um leið og læknir sendir raf-
rænan lyfseðil í lyfjabúð fær land-
læknir sendar sömu upplýsingar og
það byggist sjálfvirkt upp gagna-
grannur um lyfjanotkun hjá em-
bættinu.
Þessar upplýsingar hefur land-
læknir ekki fengið með skipulegum
hætti áður. Þarna verður til öflugt
rannsóknartæki fyrir landlækni þar
sem hann getur íylgst með, svo
dæmi sé tekið, kampýlósýkingum,
hvar þær stinga sér niður, hverjir
sýkjast, hverjir meðhöndla sjúk-
linga og hvaða lyf era notuð.
Landlæknir hefur líka tækifæri
til að fylgjast með lyfjagjöf og grípa
strax inn í ef eitthvað athugavert á
sér stað. Auðveldara verður t.a.m.
að hafa eftirlit með sjúklingum sem
flakka á milli lækna í þeim tilgangi
að misnota lyf eins og verkjalyf eða
önnur ávanabindandi lyf.
Þriðji hluti kerfisins er, að mati
Doc.is-manna, hagræði fyrir alla
sem nota kerfið. Kerfið sparar
læknum mikinn tíma og dregur úr
hættu á mistökum við ávísun lyfja.
Lyfseðlar koma fullbúnir í tölvu-
kerfi apóteka sem sparar apótekum
vinnu.
Með þessu móti verður óþarfi
fyrir lyfjafræðinga að hafa fyrir því
að hringja í lækni sem ávísar lyijum
til að leita nánari skýringa á lyf-
seðli, t.d. vegna erfiðleika við lestur
handskriftar eða ónógra upplýsinga
á lyfseðli. Umfram allt stuðlar kerf-
ið þó að öryggari lyfjameðferð fyrir
sjúklinga enda dregur kerfið úr lík-
um á rangri lyfjaávísun og mistök-
um í apótekum.
Tekið tillit |
til breyti-
leika í
erfðaefni
mannsins
DOC.IS-MENN segja öryggishluta |;
kerfisins ekki síst mikilvægan. Þeir
benda á að aukaverkanir lyfja séu
íjórða algengasta dánarorsök í
Bandaríkjunum. Dauðsföll af þessum
sökum era þar um 100 þúsund á ári og
auk þess era um ein og hálf milljón
sjúkrahúsinnlagna á ári raktar til
aukaverkana lyfja.
Þá víkur sögu að þeim þætti ePref- L
kerfisins sem ekki er enn til staðar en
Doc.is-menn gera ráð íyrir í nánustu |;
framtíð. Torfi Rafn Halldórsson lyfja- |j
fræðingur og einn stofnenda Doc.is
bendir á að þótt aukaverkanir lyfja
eigi sök á svo mörgum dauðsfóllum sé
það ekki beinlínis vegna rangrar
lyfjameðferðar heldur sé hér um
erfðafræðilegan vanda sjúklinga að
ræða sem læknir getur ekki alltaf haft
vitneskju um.
Hann segir að það sem talið er ráða
mestu um framgang framrannsókna
lyfja í lok þessa áratugar sé ný fræði- L
grein innan lyfjafræðinnar sem nefn- |j
ist lyfjaerfðafræði. í lyfjaerfðafræði
er lögð áhersla á að finna þau gen sem
hafa áhrif á verkun lyfja. Þegar ein-
staklingur sýnir viðbrögð við lyfi sem
teljast óeðlileg, fær aukaverkanir eða
óásættanlega verkun af lyfi, getur
ástæðan legið í smávægilegum
breytileika í röðun niturbasagens sem
leiðir til shkra frávika í lyfjaverkun.
Torfi Rafn segir að með hjálp lyfja-
erfðafræði sé talið að innan fimm ára
verði hægt með tiltölulega einföldu
prófi hjá heimilislækni að sjá hvort og
hversu miklar líkur era á að einstak-
lingur fái aukaverkanir af tilteknu lyfi
og unnt verði að taka tillit til slíkra
niðurstaðna áður en meðferð er hafin.
Með slfioim prófum verður hægt að
fækka óþarfa dauðsföllum og draga
úr kostnaði heilbrigðiskerfisins vegna
innlagna af völdum aukaverkana lyfja
sem raktar era til arfbundinna þátta. jjj
Hann segir að nú sé mikil vinna lögð í ||
að finna og skrá genabreytileika í
erfðaefninu sem hafa áhrif á virkni og m
verkun lyfja. Líklegt sé að innan fárra
ára verði farið að taka mið af gena-
mengi sjúklinga jafnt við val á lyfja-
meðferð og í framrannsóknum á lyfj-
um.
Markmið lyfjaerfðafræðinnar sé að
uppgötva breytileika í genum milli
einstaklinga sem útskýri þessi frávik
á lyfjaverkunum.
ePref-kerfið verður uppbyggt til að
taka við og geyma upplýsingar sem 1
tengjast lyfjaerfðafræði og þar með *
gæti orðið veraleg fækkun á alvarleg-
um aukaverkunum lyfja þegar sá
þáttur kerfisins verður kominn í
gagnið.
Oflugt rannsóknartæki
á sviði lyfjafaraldsfræði
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ er
einn af samstarfsaðilum Doc.is um
gerð hugbúnaðarins ePref. Matt-
hías Halldórsson, aðstoðarland-
læknir, segir að óhætt sé að tala um
viss tímamót þegar forritið kemur á
markað. Fram að þessu hefur em-
bættið safnað lyfjaupplýsingum á
disklinga frá lyfjaverslununum, en
til stendur að fá upplýsingar beint á
rafrænu formi. Með ePref gefst
kostur á uppbyggingu gagnagranns
um lyfjanotkun með leitarmöguleik-
um og þannig verður til innan em-
bættisins öflugt rannsóknartæki á
sviði lyfjafaraldsfræði.
„Ég get nefnt sem dæmi í þessu
sambandi að núna fengist ekki með
góðu mati svar við þeirri fullyrðingu
sem heyrst hefur að 10% allra ungl-
inga noti svefnlyf. Þær upplýsingar
liggja ekki á lausu. En með þessu
tæki sem er verið að hanna verður
það hægt,“ segir Matthías.
Eftirlit er nauðsynlegt
Hann segir að innkaupatölur segi
ekki alla söguna um lyfjanotkun í
landinu og embættið þurfi að geta
greint notkunina eftir aldri, kyni,
búsetu og öðram atriðum. Með því
móti náist fram ýtarlegri og ná-
kvæmari upplýsingar.
Jafnframt gefur hugbúnaðurinn
kost á gæðaeftirliti við lyfjagjöf.
„Við þurfum líka að hafa yfírlit
yfir það hvernig læknar ávísa lyfj-
um og einstaka læknar era vissu-
lega undir meira eftirliti en aðrir.
Einnig þarf að fylgjast með lyfja-
gjöf til einstaklinga sem fara á milli
lækna. Við viljum ekki ofgera svona
eftirliti en það er nauðsynlegt upp
að vissu marki og það er hlutverk
Landlæknisembættisins að sinna
því.“ Rannsóknir af þessu tagi era
sérstakt fag innan læknisfræðinnar
og kallast pharmacoepidemiologia,
eða lyfjafaraldsfræði, og fjallar um
hvernig lyf dreifast í þjóðfélaginu
og af hvaða
ástæðum þau era
tekin. „Þetta yrði
að mínu mati
mjög mikilvægt
tæki til þess að
fylgja þessu eft-
ir,“ segir Matt-
hías.
Landlæknis-
embættið hefur
fengið reglulega
frá Lyfjaeftirliti Ríkisins gagna-
grunn yfir svokölluð eftirritunar-
skyld lyf, sem eru hættulegustu og
mest ávanabindandi lyfin. Matthías
segir að full ástæða sé til þess að
embættið fylgist með notkun ann-
arra lyfja, t.d. róandi lyfja og nýju
þunglyndislyfjanna.
Einnig sé mjög áhugavert að
fylgjast nánar með dreifingu sýkla-
lyfja því af og til komi upp ónæmar
bakteríur, hugsanlega vegna of-
notkunar sýklalyfja. „Með nýja
kerfinu er hægt að halda uppi slíku
eftirliti. Það er þó ekki þar með sagt
að alltaf sé um ranga lyfjagjöf að
ræða heldur verður embættið í
sumum tilvikum að leita skýringa."
Kerfíð einfalt í notkun
Matthías segir að huga verði vel
að persónuvernd við notkun hug-
búnaðarins. Eins og fram kemur
annars staðar hér á síðunni stefnir í
aðLyfjaeftirlitið og Tryggingastofn-
un nýti sér einnig ePref. Matthías
segir að mikilvægt sé að gæta að því
að þessir aðilar fái hver um sig að-
eins þær upplýsingar sem þeim ber
að fá og farið verði í einu og öllu eft-
ir reglum Tölvunefndar. Landlækn-
isembættið er einmitt í samstarfi
við Tölvunefnd um þetta mál og er
að svara fyrirspurnum hennar um
að hve miklu leyti ástæða sé til þess
að fara inn í þessi gögn.
Matthías segir að Doc.is hafi
kynnt Landlæknisembættinu hug-
myndina og embættið hafi, ásamt
hinum stofnununum, komið með
ábendingar um hvernig æskilegast
væri að haga málum. „Stærsti kost-
urinn við þetta kerfi frá okkar sjón-
armiði er að það verður einfalt í
notkun fyrir þá sem eiga að sinna
eftirliti, sem samkvæmt lögum er
Landlæknisembættið. Þetta er
handhægur gagnagrannur sem
verður samt að vera mjög vel varð-
veittur. Það eiga ekki allir að kom-
ast í hann sem vilja heldur aðeins
þeir sem þurfa og hafa heimild til
þess samkvæmt lögum og reglum.“
Matthías segir að kerfið ætti
einnig að gagnast læknum með því
að gefa þeim upplýsingar um hvern-
ig þeir ávísa lyfjum í samanburði við
aðra lækna.
Matthías
Halldórsson