Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Flytjandinn verður
að treysta innsæi sínu
Morgunblaðið/Jim Smart
FINNSKI píanóleikarinn Olli
Mustonen hefur löngu skipað
sér á sess með helstu tónhst-
armönnum seinni ára fyrir
upptökur sínar, tónleikahald
og tónsmíðar, þó hann sé ekki
nema rétt kominn á fertugs-
aldurinn. Mustonen hefur
vakið athygli fyiir íramúr-
skarandi tækni sína og sér-
stæða túlkun, hvort sem er á
plasti eða sviði og á köflum
verið umdeildur þó enginn
frýi honum hæíileika.
Olli Mustonen er úr tónlist-
arfjölskyldu að því hann segir
sjálfur, faðir hans er stærð-
fræðingur en lék á fiðlu sér til
skemmtunar og systir hans
Elina er þekktur semballeik-
ari. Hann segist enda farið að
spila á sembal systur sinnar
sem smá patti, en foreldrun-
um hafi þótt nóg að hafa einn
semballeikara í fjölskyldunni
og því keypt handa honum
píanó.
Leggur mikla áherslu á að geta
lifað eðlilegu fjölskyldulífí
Það orð fer af fremstu konsert-
píanistum að þeir séu sérkennilegir í
fasi og blandi lítt geði við annað fólk
en Mustonen, sem einkar geðugur og
blátt áfram, segir að því sé alls ekki
svo farið með sig. „Það vekur svo
gríðarmargt hjá mér áhuga annað en
tónlistin þó hún sé einn mikilvægasti
hluti lífs míns. Ég legg mikla áherslu
á að geta lifað sem eðlilegustu fjöl-
skyldulífi, en hef líka gaman af svo
mörgu öðru, vísindum, stærðfræði,
stjómmálum og svo má telja. Ég er
sífellt að lesa mér til um ólíklegustu
hluti enda er svo margt í umhverfi
okkar sem er áhugavert og spenn-
andi. Það kallar vissulega á ákveðna
einangrun að vera sífellt á ferðinni,
en sú einangrun þarf ekki að vera
meiri en menn vilja sjálfir."
Kann vel að meta
orðið tónlistarmaður
Líkt og svo margir framúrskar-
andi hljóðfæraleikai-ar hefiu- Olli
Mustonen talsvert fengist við tón-
smíðar og segist gjarnan vilja gera
meira af því. „Ég kann vel að meta
orðið tónlistarmaður og vil heldur
vera það en bara píanóleikari. Flestir
helstu hljóðfæraleikarar sögunnar
fengust við margt annað en hljóð-
færaleik, hvort sem það var tónsmíð-
ar, hljómsveitarstjóm, útsetningar
eða útgáfu á tónlist. Ég byrjaði
snemma að semja tónlist og vil gjam-
an gera meira af því, ætla reyndar
ekki að leika á neinum tónleikum i
sumar til að hafa tíma til að sinna
tónsmíðum," segir Mustonnen og
bætir við að hann hyggist búa svo um
hnútana að hann spili ekki á sumrin
en semji tónlist í þess stað. Aðspurð-
ur hvort það verði ekki til þess að tón-
verk hans verði yfirtleitt sumarleg og
létt fyrir vikið skellir hann uppúr og
segir að menn verði bara að sjá til.
Flytjandi verður að
treysta innsæi sínu
Eins og getið er hefur Olli Must-
onen verið umdeildur á köflum fyrir
túlkun sína á ýmsum tónverkum.
Hann segist ekki taka slíka gagnrýni
nærri sér, hafi það fyrir sið reyndar
að lesa aldrei gagnrýni, enda skipti
það eitt máli að hann sé að gera það
sem honum þyki réttast. „Mér finnst
erfitt að tala um sjálfan mig í þessu
sambandi, enda hef ég ekki þá fjar-
lægð sem þarf, en margir ágætir
kollegar mínir og vinir hafa kannski
fengið bágt fyrir að fara sem næst því
sem tónskáld hefur mælt fyrir um en
þeir hafa þá rekist á viðtekna túlkun
sem aðrir tónlistarmenn hafa gert
fræga. Það er líka svo margt sem
ekki er hægt að koma til skila með
hefðbundinni nótnaskrift og má líkja
við að ætla að skrifa pí; ef menn
reyna að skrifa hvert smáatriði niður
verður niðurstaðan frumskógur sem
ekki er fyrir nokkurn mann að greina
úr. Flytjandi verður að lesa á milli
línanna og treysta innsæi sínu,“ segir
Mustonen og bætir við að hann verði
til að mynda að láta sér það vel líka að
menn líti tónverk hans sínum augum.
„Ég skipti mér ekki af því þegar
menn eru að flytja mín verk. Ég er
ævinlega boðinn og búinn að greiða
úr misskilningi og hjálpa til sé eftir
því leitað en þetta er eins og börnin
manns; maður verður að geta sleppt
af þeim hendinni og leyfa þeim að
standa á eigin fótum.“
Leitast við að kynna
sjaldheyrð verk
Olli Mustonen byrjaði útgáfuferil
sinn á diski þar sem hann lék verk
eftir Charles Valentin Alkan og Dim-
itri Sjostakovitsj og segist reyndar
telja það hlutverk sitt að kynna verk
sem menn hefðu ekki annars heyrt,
gjarnan í bland við eitthvað sem fleiri
þekkja, enda hafi svo mikið af stór-
kostlegri tónlist verið samið fyrir
píanóið sem hlustendur þyrftu að
komast í tæri við. Á tónleikadagskrá
Mustonens í kvöld er líka að finna
verk sem ekki eru oft leikin opinber-
lega innan um þekktari verk, til að
mynda bagatellur Beethovens, rondó
ópus 129 og fantasíu ópus 77, en einn-
ig hyggst hann leika tilbrigði og fúgu
við stef eftir Hándel eftir Johannes
Brahms. Mustonen segist ævinlega
hafa haft sérstakt dálæti á Beet-
hoven og telji að allt of mikið af verk-
um hans sé ekki flutt eins og vert
væri. Einnig segist hann hafa haldið
upp á tilbrigði Brahms frá því hann
var ungur maður og þannig hafi hann
leikið þau í sífellu fimmtán ára gamall
píanónemi og fengi seint leið á.
Sértilboð til
Barcelona
með Heimsferðum
frá kr. 22.500
7. og 14. júní
Beini fiug afia
miðvífeudaga
Heimsferðir tryggja þér lægsta verðið
til Barcelona í sumar með beinu flugi
alla miðvikudaga í sumar. Þú getur
valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl eða flug
og hótel, en við bjóðum fjölda góðra hótela í hjarta Barcelona á frá-
bæru verði. Tryggðu þér lága verðið meðan enn er laust.
Verð kr.
22.500
Verð kr.
39.990
Flugsæti, fram og til baka,
m.v. hjón með 2 börn.
Skattar kr. 2.460 ekki innifaldir.
Bömkr. 1.820.
Verð kr.
27.500
Flug, gisting í viku og skattar á hótel
Paralell, 7. júní.
HEIMSFERÐIR
Flugsæti fram og til baka fyrir fullorðinn.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
„Ef þú giftist,
ef þú bara
giftist...“
LEIKLIST
Kaffileikhúsið
BANNAÐ AÐ BLÓTA
f BRÚÐARKJÓL
Höfundur: Gerður Kristný. Leik-
stjóri: Ingunn Ásdísardóttir. Leik-
ari: Nanna Kristín Magnúsdóttir.
Leikmynd og búningar: Rannveig
Gylfadóttir. Förðun og hárgreiðsla:
Frfða M. Harðardóttir. Lýsing:
Stefán Hallur Stefánsson og Kol-
brún Ósk Skaftadóttir. Sýningar-
sljóri: Kolbrún Ósk Skaftadóttir.
NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI
Kaffileikhússins hleypti í gær af
stokkunum einleikjaröðinni „I öðr-
um heimi. . .“ með frumsýningu á
nýjum einleik eftir Gerði
Kristnýju. „Bannað að blóta í
brúðarkjól“ er sá fyrsti í röð fimm
til sex nýrra einleikja sem gestir
Kaffileikhússins geta vænst að sjá
þar á komandi leikári og ber að
fagna þessu framtaki fram-
kvæmdastjórans. Einleiksformið
hentar einkar vel í lítið og tak-
markað rými leikhússins, nálægð
leikarans við áhorfendur er mikil
og gagnvirkt samband leikara og
áhorfenda getur orðið bæði sterkt
og skemmtilegt, þegar vel tekst til.
Mikið mæðir á leikaranum, eðli
málsins samkvæmt er hann einn á
sviðinu allan tímann, leikverkið
stendur og fellur með frammistöðu
hans í leik og textaflutningi, og
einn ber hann ábyrgð á að ná fyrr-
nefndu sambandi við áhorfendur.
Frumsýningin í gær var vel
heppnuð hvað þetta snertir; ein-
leikarinn Nanna Kristín Magnús-
dóttir náði strax vel til áhorfenda
og fékk þá í lið með sér við að
skapa afslappað andrúmsloft um
leið og hún skemmti þeim með
sögum og viðbrögðum sínum við
þeim fáránlegu aðstæðum sem hún
var lent í.
Fáir vildu eflaust lenda í þeirri
aðstöðu að vera án maka síns í eig-
in brúðkaupsveislu og þurfa þar að
skemmta bláókunnugu fólki. Þann-
ig eru aðstæður brúðarinnar Elsu,
sem telur gestina vera ættingja
eiginmannsins og reynir því að
„halda þeim uppi á snakki“ meðan
hún bíður eftir að fjölskylda sín
komi í veisluna, svo ekki sé talað
um sjálfan brúðgumann. Tíminn
frá því að Elsa kemur til veislu og
þar til hún uppgötvar að það er
hún sjálf sem hefur farið húsavillt
er tími leiksins og á þeim tíma fær
áhorfandi nokkra innsýn í einkalíf
Kristinn
og Jónas í
Salnum
SÖNGTÓNLEIKAR þeirra
Kristins Sigmundssonar og
Jónasar Ingimundarsonar sem
vera áttu í Salnum í Kópavogi
þann 28. janúar síðastliðinn, en
féllu niður vegna veikinda,
verða haldnir í Salnum þriðju-
dagskvöldið 13. júní næstkom-
andi kl. 20:30. Almenn miða-
sala á tónleikana hefst í
Salnum miðvikudaginn 5. júní
kl. 13:00.
Á efnisskránni eru ítalskar
antiche aríur, sönglög eftir
Hugo Wolf og Árna Thor-
steinsson og óperuaríur eftir
Tchaikovsky, Rossini, Don-
izetti og Verdi.
Morgunblaðið/Golli
„Einleikarinn Nanna Kristín
Magnúsdóttir náði strax vel til
áhorfenda og fékk þá í lið með
sér við að skapa afslappað and-
rúmsloft,“ segir meðal annars í
dúmnum.
hins nýgifta pars, í gegnum frá-
sagnir og hugleiðingar hinnar ný-
giftu brúðar. Sú snögga innsýn var
kómísk þegar best lét, en hroll-
vekjandi þegar verst lét!
Hugmyndin að þessu verki er
ágæt, þótt ef til vill finnist sumum
erfitt að samþykkja hversu lengi
brúðurin er að átta sig á mistökum
sínum. Gerður Kristný vinnur vel
úr hugmyndinni; hún skrifar texta
sem stendur föstum rótum í ís-
lenskum samtíma eins og hann
blasir líklega við þeirri kynslóð
sem nú er að komast á giftingar-
aldurinn. Verkið er frumraun
Gerðar Kristnýjar á sviði leikrit-
unar og má vissulega merkja það
af misjöfnum gæðum þess; en text-
inn sveiflaðist frá því að vera af-
bragðsgóður og fljúgandi fyndinn,
niður í hálfgerða flatneskju á
köflum. Ljóð og sögur Gerðar
Kristnýjar einkennast af hæglát-
um en kaldhömruðum húmor og
skemmtilegri íroníu og svipaður
stíll einkennir þennan leiktexta
hennar - hann ber sterk höfundar-
einkenni Gerðar Kristnýjar. Þótt
textinn væri á köflum langdreginn
og ekki mjög fleygur, var hann
ljómandi fínn á sínum bestu
sprettum og gefur tilefni til að
vænta að Gerður Kristný geti vax-
ið innan þessa textaforms ekki síð-
ur en þeirra sem hún hefur áður
fengist við.
Ingunn Ásdísardóttir stýrir
Nönnu Kristínu af fagmennsku um
hið takmarkaða rými Kaffileik-
hússins og á vafalaust mikinn þátt
í því skemmtilega samspili sem
Nanna Kristín náði við áhorfend-
ur. Leikið er í miðju rými hússins
og áhorfendur sitja allt um kring
og vel tókst að gæta þess að allir
nytu leiksins sem best - og sæju
leikkonuna frá öllum hliðum.
í heild var þetta góð byrjun á
spennandi leiklistarverkefni Kaffi-
leikhússins og sýningin minnti á
hversu skemmtilegt þetta fremur
vanrækta form leiklistarinnar -
einleikurinn - getur verið þegar
vel tekst til.
Soffía Auður Birgisdóttir