Morgunblaðið - 01.06.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 39
Elli sýnir
í Galleríi
List
MYNDLISTARMAÐURINN Erl-
ingur Jón Valgarðsson (Elli) opnar
sýningu í Galleríi List í Skipholti 50d
laugardaginn 3. júní kl. 15. Á sýning-
unni verða málverk og skúlptúrar.
Sýningin nefnist Helga jörð.Um sýn-
inguna segir listamaðurinn: „Jörðin
á skilið virðingu, auðmýkt og aðdá-
un. Gjöfult líf hennar, fegurð, dulúð
og máttur lætur engan ósnortinn. Til
að heiðra hana fyrir gjafir hennar og
líf, og ekki síst að sýna henni auð-
mýkt og virðingu, hef ég unnið mál-
verk og skúlptúra sem sýna tilbrigði
hennar í litum, formum og áferð.“
Elli er fæddur 1961. Hann stund-
aði listnám við Myndlistarskólann á
Akureyri, hjá Rafael Lopes í Falun í
Svíþjóð og við Haraldsboskolan á
sama stað. Elli er búsettur á Akur-
eyri og hefur haldið nokkrar einka-
sýningar þar, sem og í Reykjavík.
Hann hefur einnig tekið þátt í sam-
sýningum bæði hér heima og í Sví-
þjóð. Sýningin er opin virka daga frá
11 til 18, um helgar frá 11 til 17 og
henni lýkur 18. júní.
-----H-*------
Karneval-
stemmning
á Þjóðlaga-
hátíð
ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐIN á Siglufirði
hefst 18. júlí. Framkvæmdastjóri
hátíðarinnar er Gunnsteinn Ólafs-
son tónlistarmaður og segir hann
að á hátíðinni verði ekki aðeins
fyrirlestrar og námskeið heldur
einnig opin dagskrá fyrir áhuga-
hópa.
„I lok hátíðarinnar, helgina 22.
og 23. júlí, gefst áhugahópum víðs
vegar að af landinu tækifæri á að
koma fram í opinni dagskrá. Þar
munu þjóðdansahópar, hljómsveit-
ir og sönghópar koma fram, svo og
kvæðamenn, glímugarpar og aðrir
sem leggja stund á þjóðlega íþrótt.
Hóparnir koma fram vítt og breitt
um bæinn og búast má við að
karnevalstemmning verði allsráð-
andi í bænum og munu tónlistar-
menn og dansar spretta upp fyrir-
varalaust á götum úti.
Innlendir og erlendir listamenn
hafa sýnt hátíðinni mikinn áhuga
og vonast ég til að sem flestir taki
þátt í þessari veislu og er skráning
þegar hafin á heimasíðu Þjóðlaga-
hátíðar sem er www.siglo.is/festi-
val,“ segir Gunnsteinn að lokum.
Astin
blómstrar
á skálda-
kvöldi
ANNAÐ skáldakvöld af
þremur verður í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20 í
Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu á vegum Listahá-
tíðar. Dagskráin nefnist Ástin
blómstrar á skáldakvöldi og
munu að þessu sinni lesa úr
verkum sínum þau Pétur
Gunnarsson, Elísabet Kristín
Jökulsdóttir, Kristín Ómars-
dóttir, Sigurður Pálsson og
Ingibjörg Haraldsdóttir. Þá
mun Tinna Gunnlaugsdóttir
leikkona lesa ljóð eftir
Theodóru Thoroddsen, Ólöfu
á Hlöðum og Huldu. Kynnir
er Hrafn Jökulsson. Dagskrá-
in stendur í um það bil
klukkustund og er aðgangur
ókeypis.
Edda Heiðrún Backman og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir í Hægan
Elektra.
Síðustu sýningar
Borgarleikhúsið
Hægan Elektra
Sýningum á leikritinu Hægan El-
ektra eftir Hrafnhildi Hagalínfer
senn að ljúka og verða síðustu sýn-
ingar laugardaginn 3. júní og
sunnudaginn 4. júní. Sýningarnar
eru á Litla sviðinu.
Það eru þær Edda Heiðrún
Backman og Steinunn Óli'na Þor-
steinsdóttir sem fara með hlutverk
mæðgna, sem báðar eru leikkonur.
Þær eru staddar á óræðum stað á
óræðri stund og endurlifa leiksýn-
ingu sem þær léku eitt sinn saman,
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Þriðja hlutverkið í sýningunni er
leikið af Atla Rafni Sigurðarsyni.
Hægan Elektra er á dagskrá
Menningarborgar 2000.
Karlakór-
inn Heim-
ir á Snæ-
fellsnesi
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði heldur tónleika í
Félagsheimilinu Klifi í Ólafs-
vík föstudagskvöldið 3. júní kl.
21. Kórinn heldur tvenna tón-
leika á laugardaginn; þá fyrri
í íþróttahúsinu í Laugagerðis-
skóla kl. 16 og hina síðari í
Stykkishólmskirkju kl. 21.
Á söngskrá kórsins eru m.a.
íslensk lög, óperukórar, rúss-
nesk þjóðlög, Vínarvalsar, létt
lög og lagasyrpur. Söngstjóri
er Stefán R. Gíslason og und-
irleikarar Thomas Higgerson,
Jón St. Gíslason og Guðmund-
ur Ragnarsson. Einsöngvarar
með kórnum eru Einar Hall-
dórsson og Álftagerðisbræð-
ur.
Kórinn leggur í ferð til
Þýskalands og kemur fram
ásamt fleiri íslenskum lista-
mönnum á heimssýningunni
EXPO 2000 í Hannover 30.
ágúst.
Sýningu
lýkur
Gallerí Fold, Rauðarársti'g
Afmælissýningu Tryggva Ólafs-
sonar lýkur á sunnudag. Á sýning-
unni eru 34 ný akrýlmálverk.
Gallerí Fold er opið virka daga
frá 10-18, laugardaga frá 10-17
og sunnudaga frá 14-17.
f allt sumar
1 MÁLNINGARDAGAR
Vidurkennd vörumerki
Irniitn
SKIN10
4 Ltr.
Verð íirá kr.
1.990.-
PLUS10
4 Ltr.
5 Verðfrákr.
1.990.-
STEINTEX
4 Ltr.
Verð frá kr.
2.850.-
10 Ltr.
Verð frá kr.
6.695.-
Yiðarvöm
KJ0RVARI
4 Ltr.
Verðfrákr.
2.758.-
Taklð
Við reiknum
Grensasvegi 18 s: 581 2444
Myndbönd í LÍ
Á SÝNINGUNNI Nýr heimur -
stafrænar sýnir er sýnt úrval ís-
lenskra og erlendra myndbands-
verka í sal 2.
Á sýningunni eru verk eftir marga
af þeim listamönnum, sem mótað
hafa þessa ungu listgrein á síðustu
áratugum. Neðangreind verk eftir-
talinna listamanna verða sýnd næstu
daga kl. 12 og 15.
I dag, fimmtudag, verða sýnd verk
eftir Peter Roehr: Filmmontagen
1-7,1965.
Peter Roehr 1944-1968. Fæddist í
Lauenburg, Pommem í Þýskalandi
og lést í Frankfurt/Main tæplega 24
ára að aldri. Haldnar hafa verið
fjölmargar sérsýningar á verkum
hans, m.a. í Stadtisches Museum
Leverkusen 1971; Kunsthalle Túb-
ingen, Stedelijk Van Abbemuseum,
Eindhoven og Frankfurter Kunst-
verein 1977; Kunstmuseum Luzern
og Museum of Modem Art, Oxford
1978, og Paul Maenz, Köln 1971-76,
1981,1985 og 1988.
Eftir Klaus Rinke verður sýnt
verkið: Wasser Holen, 1970.
Klaus Rinke er fæddur í Watten-
scheid í Þýskalandi 1939. Stundaði
nám við Folkwang-Schule í Essen-
Werden, Þýskalaridl Prófessor við
Staatliche Kunstakademie í Dússel-
dorf.
Eftrn Egon Bunne verða sýnd
verkin Fleischer und Frau, 1985, Ir-
onland, 1986, og Hank Bull/Eric
Metacalfe: Sax Islands, 1984.
Á morgun, föstudag, verða sýnd
verk eftir Richard Serra: Hand
catching lead, 1968/69.
Richard Serra fæddist 1939 í San
Francisco, Bandaríkjunum. Stund-
aði nám við University of California
1957-61 og við Yale University
School of Art and Architecture í New
Haven 1961-64. Bjó í París og á ít-
alíu 1964-66, en settist þá að í New
York þar sem hann býr enn. Hefur
unnið ýmis stór útilistaverk og lands-
lagsverk frá 1970-71. Verk hans em
víða um heim, t.d. Áfangar í Viðey.
Eftir Douglas Davis verða sýnd
verkin Studies in myself, 1973 og
Studies in Black and White, 1971.
Douglas Davis er fæddur 1933.
Stundaði nám við American Univeri-
ty (BA) og Rutgers University (MA).
Hefur skipað mikilvægan sess í sam-
tímalist frá 1970 og telst einn af
frumkvöðlum myndbandalistar á átt-
unda áratugnum. Davis hefur kennt
við fjölmarga háskóla, skrifað bækur
og flutt fyrirlestra. Hefur hlotið við-
urkenningar frá National En-
dowment for the Arts, Rockefeller
Foundation og DAAD. Hefur m.a.
haldið sérsýningar í Centre Georges
Pompidou, París; Metropolitan Mu-
seum í New York; Everson Museum
of Art, Syracuse og á Kjarvalsstöð-
um.
Byggingaplatan WD1M)(£®
sem allir hafa beðið eftir
VIROC*byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
VIROC*byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROC*byggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIRQC® byggingaplatan
er umhverfisvaen
VIROC*byggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
PÞ
&CO
Leitið frekari upplýsinga
h.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚU 29 S: 5S3 8640 4 568 6100
ANTIK
Frábært úrval af ALVÖRU fornhiísgögmjm á góðu verði:
Borðstofuborð, stólar, skatthol, fataskápar og margt fl.
Islantik-Sjónarhóll
Hólshrauni 5, 220 Hafnarfirði, sími 565 5656
Fyrir aftan Fjarðarkaup - Oplð alla helgina - WWW.islantik.COni
skoðið heimasíðu okkar
Þú þarft ekki einu sinni
skæri til að stytta þær
Convertible buxur
Þú bara rennir skálmunum af og á allt eftir þörfum.
100% bómull, léttar og þægilegar. Kr. 5.990.-
►Columbia
Sportswcar Company, l^. ÍE T l
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
Skeifunni 19-S. 5681717
Opiö mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14