Morgunblaðið - 01.06.2000, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
JltagttiiHftfeifr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VIÐ V ÖRUN ARORÐ
LJOST er af þeim upplýsingum, sem fram komu á
blaðamannafundi Geirs H. Haarde fjármálaráð-
herra í fyrradag, að staða ríkissjóðs er enn sterkari en
gert hafði verið ráð fyrir og var þó fyrirsjáanlegt að
verulegur afgangur yrði á ríkissjóði á þessu ári.
Fjármálaráðherra skýrði frá því, að lánsfjárafgangur
ríkissjóðs mundi nema um 28 milljörðum á árinu og
áformað væri að verja um 22 milljörðum króna til þess að
greiða niður innlendar skuldir og 5 milljarðar yrðu
greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Það er að sjálfsögðu ánægjulegt að afkoma ríkissjóðs
skuli vera svo góð og að skuldir greiðist svo hratt niður
sem raun ber vitni. Auk þess að innlendar skuldir verða
lækkaðar verða erlendar skuldir greiddar niður eftir því,
sem svigrúm leyfir, eins og fjármálaráðherra orðaði það.
Vafalaust munu einhverjir segja sem svo, að hinn mikli
afgangur ríkissjóðs á þessu ári endurspegli allt of mikla
neyzlu í landinu og skuldasöfnun á öðrum vígstöðvum,
m.a. heimilunum. Það er nokkuð til í því. Þannig lýsir
OECD áhyggjum yfir þróun efnahagsmála okkar og seg-
ir m.a. í nýrri skýrslu um stöðuna hér:
„Hætta hefur aukizt á að skyndilega muni þurfa að
draga saman í efnahagslífinu til að minnka verðbólgu og
ná henni niður á sama stig og erlendis. Nýlegir launa-
samningar eru hærri en svo, að þeir samræmist stöðugu
verðlagi, og hætta er á launaskriði. Auk þess er mikil
aukning í útlánum banka og þar með aukast líkur á
harkalegri lendingu ef vextir eru hækkaðir.“
OECD segir líka, að íslenzka ríkið verði að auka aðhald
í eigin fjármálum og að vextir verði að hækka. Stofnunin
spáir því að á miðju næsta ári muni stýrivextir hafa
hækkað í 12% úr rúmlega 10% nú. Ljóst er að OECD tel-
ur, að ríkissjóður eigi að takmarka eigin útgjöld en
greiða þess í stað niður enn meira af skuldum.
í samtali við Morgunblaðið í gær vildi fjármála-
ráðherra ekki gera mikið úr þessum athugasemdum
OECD og telur þær ekki til marks um, að stofnunin sé að
draga upp dökka mynd af íslenzku efnahagslífi.
Það skiptir miklu máli fyrir efnahagslíf okkar hver
þróunin er í öðrum löndum. I þeim efnum er ástæða til
bjartsýni ef marka má skýrslu OECD. Stofnunin spáir
því, að hagvöxtur í heiminum verði rúm 4% á þessu ári og
litlu minni á næsta ári. OECD telur einnig, að efnahagur
heimsins hafi batnað frá því að efnahagskreppan gekk
yfir Asíu fyrir nokkrum árum. Stofnunin telur líka, að at-
vinnuleysi fari minnkandi á evrusvæðinu, hagvöxtur
verði þar 3,5% í ár og 3,3% á næsta ári, sem er veruleg
aukning frá síðasta ári. Þá telur OECD, að hagvöxtur í
Bandaríkjunum verði 4,9% í ár en minnki í 3% á næsta
ári. Efnahagslíf Bandaríkjanna hefur komið mönnum á
óvart ár eftir ár og ekkert útilokað að það eigi eftir að
endurtaka sig.
Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta,
sem hér var á ferð fyrir nokkrum dögum, var í ræðu sinni
á fundi Brezk-íslenzka verzlunarráðsins mjög bjartsýnn
á þróun efnahagsmála í evrulöndunum.
Þetta þýðir, að ástand efnahagsmála er ýmist gott eða
batnandi í helztu viðskiptalöndum okkar. Það stuðlar að
áframhaldandi góðæri hér.
Á næstunni má búast við því, að Hafrannsóknastofnun
leggi fram skýrslu um ástand fiskistofna og geri tillögur
um kvótann á næsta fiskveiðiári. Það skiptir auðvitað
máli fyrir framvindu mála næstu misserin hverjar þær
tillögur verða. Bakslag í uppbyggingu fiskistofna mundi
draga úr þeirri miklu bjartsýni, sem hér hefur ríkt, en
það er auðvitað spurning, hvort það gæti ekki haft holl
áhrif á efnahagslífið að eitthvað dragi úr þeirri bjartsýni.
En í öllum meginatriðum stendur efnahagslíf þjóðar-
innar traustum fótum. Það er mikill kraftur í atvinnu-
lífinu sjálfu, bæði sjávarútvegi, ferðamannaþjónustu,
hugbúnaðariðnaði og öðrum atvinnugreinum. Hér er
ekkert atvinnuleysi, sem orð er á gerandi. Viðskiptahall-
inn er hins vegar of mikill og verðbólguþróunin áhyggju-
efni.
Við eigum hins vegar að hafa alla burði til að takast á
við þau vandamál. Við búum yfir meiri þekkingu á gang-
verki efnahagslífsins en áður og eigum mikinn fjölda vel
menntaðra manna, sem kunna vel til verka á þessu sviði.
I samtalinu við Morgunblaðið í gær sagði Geir H.
Haarde: „... ég tel, að kjarninn í OECD-skýrslunni sé sá,
að efnahagsástandið á íslandi sé gott. Þarna eru þó
ákveðin viðvörunarorð, sem við tökum að sjálfsögðu al-
varlega.“
Gerhard Schröder heimsækir íslenska skálan
Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri, formaður verkefnisstjórnar um þátttöku íslands í heimssýningunni, s
grímssyni utanrfkisráðherra og konu hans, Sigurjónu Sigurðardóttur. Sendiherrahjónin, Ingimundur Sigfússon og V
Heimssýn-
ingin opnuð
almenningi
Heimssýningin Expo 2000 er hafín með öllum
sínum undrum og stórmerkjum. Pétur
Blöndal fylgdist með setningarræðu
Gerhards Schröders, opnun íslenska skálans
og því sem fyrir augu bar.
HEIMSSÝNINGIN Expo
2000, sem haldin er í
Hannover í Þýskalandi,
hefst í dag við formlega at-
höfn þegar Johannes Rau forseti
Þýskalands klippir á borða og almenn-
ingi verður veittur aðgangur að 160
hektörum af sýningum þjóða og al-
þjóðastofnana, auk fjölbreytilegrar af-
þreyingar. Áætlað er að boðið verði
upp á um 15 þúsund menningarvið-
burði og uppákomur þar til yfir lýkur,
31. október.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra opnar íslenska skálann fyrir al-
menningi í dag og býður gesti vel-
komna. Þá mætir Gerhard Schröder
kanslari í heimsókn í íslenska skálann
um hádegisbilið, en hann heimsækir
aðeins örfáar af þeim þjóðum, sem
taka þátt í sýningunni.
Schröder lýsti heimssýninguna
setta í hátíðarkvöldverði í gær. Talaði
hann um mikilvægi þess að eyða tor-
tryggni þjóða í milli og búa í haginn
fyrir auldð samstarf. „Við verðum að
nota tækifærið til að lifa saman og
verðum að einsetja okkur að læra
hvert af öðru.“ Þá sagði hann það mik-
ilvægt fyrir Þjóðverja, 55 árum eftir
lok síðari heimsstyrjaldarinnar og tíu
árum eftir sameiningu Þýskalands, að
geta loks sýnt opið hugarfar og gest-
risni sína í verki.
Islenski skálinn opnaður
íslenski skálinn á heimssýningunni
var opnaður boðsgestum í gær og voru
margir af þeim sem skipulögðu þátt-
töku Islands viðstaddir. Það kom fram
í máli Sverris Hauks Gunnlaugssonar,
ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneyt-
inu og formanns verkefnisstjórnarinn-
ar, sem skipulagði þátttöku Islands í
Expo 2000, að þakklæti væri honum
efst í huga til allra þeirra sem hefðu
lagt hönd á plóg.
Á meðal viðstaddra voru sendi-
herrahjónin, Ingimundur Sigfússon
og Valgerður Valsdóttir, ræðismenn
Islands, Sigríður Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri íslenska skálans, full-
trúar nokkurra þeirra fjölmörgu fyr-
í lok kynningarmyndar um ísland
sem sýnd er í brunni á gólfi ís-
lenska sýningarskálans birtist
þessi stóra mynd af landinu.
irtækja sem stutt hafa þátttöku
Islands, hönnuður skálans, Árni Páll
Jóhannsson, ásamt fulltrúum þýsku
arkitektastofunnar Akzente, sem voru
„kontaktarkitektar" í Þýskalandi, og
fleirum sem borið hafa hitann og
þungann af uppsetningu íslensku sýn-
ingarinnar.
I ræðu af þessu tilefni sagði Halldór
Ásgrímsson viðeigandi að mannkynið,
náttúran og tæknin yrðu í brennidepli
á heimssýningunni. Þessi hugtök
hefðu sérstaka þýðingu fyrir hið litla
samfélag á íslandi, þar sem hver ein-
staklingui’ skipti máli, náttúran spilaði
stórt hlutverk í þjóðernisvitundinni og
tækniiðnaðurinn á Islandi stæði í
blóma.
Þjóðinni til sóma
„Mér líst afar vel á þetta allt sam-
an,“ sagði Halldór Ásgrímsson í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég tel að það
hafi tekist miklu betur til en ég hafði
þorað að vona. Við byrjuðum að tala
Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmd
Ámi Páll Jóhannsson hönnuðui
um þetta fyrir fjórtán mánuðum og
það lá alveg Ijóst fyrir að við gátum
ekki haft úr miklum fjármunum að
moða. Miðað við það tel ég að það hafi
tekist afskaplega vel til.“
Aðspurður hvaða þýðingu þátttaka
íslands í heimssýningunni hafi, svarar
hann: „Þýskaland er okkar stærsta
viðskiptaland og flestir ferðamenn
koma þaðan til íslands. Auk þess taka
á annað hundrað þjóðir þátt í sýning-
unni; það kom ekki annað til greina en
að fslendingar yrðu þeirra á meðal.
Ég er alveg viss um að þessi skáli og
það sem hér fer fram mun vekja at-
hygli á íslandi, auka áhuga Þjóðverja
á því sem íslenskt er. Þetta mun draga
að fjölmiðla og verða góð íslands-
kynning. Hvort það er hægt að meta í
krónum og aurum ætla ég ekki að full-
yrða. Það leiðir tíminn í ljós. En ég er
þeirrar skoðunar að það sem hér er, sé
íslensku þjóðinni til sóma.“
„Þetta er mikill léttir,“ svarar Árni
Páll Jóhannsson aðspurður. „Það er
mikið erfiði að baki, - þref, þjark, þras
og vandræði," heldur hann áfram. „ Jú,
ég er ánægður og Guð gaf okkur gott
veður þannig að vatnið fýkur ekki yfir
allt. En við erum búin að ákveða hvað
skálinn heitir þegar illa viðrar. Það er
nefnilega frægt fyrirbæri í Þýskalandi
sem heitir Íslandstíð og það eru lægð-
ir frá íslandi. Ef það blæs, þá blæs, og
allir fá forsmekkinn af íslandi,“ segir
hann og kímir. „Það verður enginn
verri af því að vökna.“