Morgunblaðið - 01.06.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000 47
m í dag
Morgunblaðið/Kristinn
ikýrir eitthvað út fyrir Halldóri Ás-
algerður Yalsdóttir, fylgjast með.
astjóri íslenska sýningarskálans, og
' fyrir framan Islandsskálann.
Það verður að teljast munaður fyrir
aðstandendur íslenska skálans að ná
gestaopnun í gær. Flestar sýningarn-
ar voru fjarri því að vera tilbúnar og
það var því eins og vin í eyðimörkinni,
þegar komið var að íslenska skálan-
um, sem sker sig úr hvað hönnun
varðar, eins og ísjaki í jökulhlaupi.
Þegar blaðamaður mætir á staðinn
verður honum þegar ljóst að hönnun
skálans er eftirtektarverð, enda er
hugmyndin tær, í bókstaflegri merk-
ingu þess orðs, og útfærslan einföld,
fnjmleg og stílhrein.
Þegar blaðamaður gekk um sýning-
arsvæðið á hádegi í gær var ekki að
sjá að heimssýning væri að hefjast
innan sólarhrings. Allsstaðar voru
iðnaðarmenn að störfum við hálfklár-
aða sýningarbása og ráðlegt var að
taka með sér nesti, því aðeins var boð-
ið upp á hamar í verkfæratösku, með
kítti, málningu og nöglum. En síðustu
stundirnar fyrir stóropnanir eru jafn-
an viðburðaríkar og það er þá sem
kraftaverkin gerast.
Engin ástæða er til að ætla annað
en að afraksturinn verði eins og til var
sáð. Þýskir fjölmiðlar, sem gagnrýndu
sumir hverjir undirbúninginn harð-
lega íýrir tveimur árum, keppast við
að hlaða lofi á sýninguna. Þar á meðal
er Spiegel, sem spáir því að sýningin
eigi sannarlega eftir að laða að gríðar-
legan fjölda gesta, og Focus, sem fjall-
ar um hana undir yfirskriftinni: „Sýn-
ing í heimsklassa.“
Margmiðlunarsýning í Geysisstofu opnuð á laugardag
Fræðsla og' skemmtun
með öllum skilningarvitum
Nota verður öll skynfæri
til að nema ýmsa fræðslu
sem tæknibrellur gera
mögulega á margmiðlun-
arsýningu sem komið
hefur verið upp í nýrri
Geysisstofu. Jóhannes
Tómasson fýlgdist með
gangi mála þar í veður-
blíðu í gær og Ásdfs Ás-
geirsdóttir myndaði.
VIÐ Geysi í Haukadal í
Biskupstungum verður ný
Geysisstofa með fræða-
setri og sérhannaðri
margmiðlunarsýningu opnuð næst-
komandi laugardag. Auk þess verður
verslunin stækkuð verulega. Hjónin
Sigríður Vilhjálmsdóttir og Már Sig-
urðsson hafa byggt upp og rekið
ferðaþjónustu við Geysi um árabil og
sagði Már í samtali við Morgunblaðið
í gær að lokaáfanga væri náð með
Geysisstofu.
Hönnuðir, sérfræðingar, iðnaðar-
menn og aðrir sem koma við sögu
voru hver um annan þveran við iðju
sína á lokasprettinum í gær en menn
voru bjartsýnir á að allt yrði til reiðu
kl. 16 á laugardag þegar dyrum verð-
ur lokið upp. Forseta íslands hefur
verið boðið að vera viðstaddur svo og
þingmönnum og ráðherrum og þeim
sem starfa við ferðaþjónustu.
Sex ára meðganga
„Ég fékk hugmyndina fyrir einum
sex árum en hún gengur út á að
menn geti sótt sér fræðslu um nátt-
úruna, ekki aðeins hverasvæðið og
næsta umhverfi hér, heldur almennt
um náttúru landsins áður en þeir
skoða sig nánar um á staðnum,“ seg-
ir Már Sigurðsson sem kveðst hafa
verið svo heppinn að fá Guðmund
Jónsson arkitekt, sem starfar í Nor-
egi, til að hanna sýninguna í Geysis-
stofu. Innréttingar í versluninni eru
úr timbri og á eins konar baðstofu-
lofti er veitt innsýn í gamla tímann á
sérstöku safni þar sem getur að líta
bæði áhöld og dýr.
„Ég vil kalla þetta margmiðlunar-
sýningu því þetta er annað og meira
en venjulegt safn,“ segir Guðmundur
þegar stund gefst milli stríða þar
sem hann var að ræða útfærslur á
frágangi á ýmsum atriðum við sam-
starfsmenn sína.
„Við notum tæknina til að skapa
hér eldgos, hraunstrauma, jarð-
skjálfta; hér geta menn gengið um
íshelli og fundið kuldann og séð
norðurljós og þannig finna menn
með sjón, heyrn og tilfinningum
hvernig náttúran er og við höfðum
því til allra skilningarvita. Þarna
verður líka fjallkonan, sem Þórunn
Lárusdóttir gæðir persónu sinni, og
farið verður með texta sem Thor Vil-
hjálmsson hefur tekið saman.“
Ekki auðvelt verkefni
Guðmundur sagði verkefnið ekki
beint auðvelt en hann býr að tals-
verðri reynslu á þessu sviði þar sem
hann hefur síðustu misseri sett upp
og hannað margs konar sýningar í
Noregi. Sagði hann verkið unnið hér
á um fjórum mánuðum en best hefði
verið að fá heilt ár til þess. Síðustu
daga hafa Guðmundur og liðsmenn
hans verið að kljást við ýmsar tækni-
útfærslur og tilraunir sem hann
kvaðst kannski hefðu leyst á annan
veg ef tími gæfist. En hann var sann-
færður um að allt yrði til reiðu á
laugardag og hann sagði framtak
Más einstakt, einkaaðilar hefðu ekki
sett upp svo viðamikla sýningu.
Hann sagði ferðamenn gera sífellt
Nýja húsið við Geysi gerir það kleift að stækka verslunina og auka þjónustu við ferðamenn.
Morgunblaðið/Ásdís Már Sigurðsson er hugmyndasmiður að nýrri Geysis-
Guðmundur Jónsson arkitekt hannaði margmiðlunar- stofu þar sem fram á að fara margháttuð
sýninguna. fræðslustarfsemi.
meiri kröfur um vandaða og aðgengi-
lega fræðslu og hér væri reynt að
verða við þeim kröfum ásamt því að
gera framsetninguna skemmtilega
með tæknibrellum.
Eins og fyrr segir á Guðmundur •
allan veg og vanda af hugmynd og
hönnun sýningarinnar og hefur hann
síðustu daga og vikur haft her iðnað-
armanna og tæknimanna til að setja
hana upp. Hefur hann komið til
landsins öðru hverju frá áramótum
en þess á milli verið í tölvu- og síma-
sambandi við sína menn. Auk arki-
tekta- og hönnunarstarfa flytur Guð-
mundur reglulega fyrirlestra í fagi
sínu og er prófdómari og kvað hann
slík akademísk verkefni mjög verð-
mæt meðfram venjubundnum störf-
um arkitektsins.
Ekki vildi Már upplýsa hversu
mikil fjárfestingin væri í hinni nýju
Geysisstofu að öllu meðtöldu en hann
nefndi sem dæmi að hljóðkerfi .
margmiðlunarsýningarinnar kostaði
um 7 milljónir króna. Alls er húsið
liðlega þúsund fermetrar og er arki-
tekt þess Erlendur Magnússon sem
hefur einnig annast tréskurð sem sjá
má í versluninni. Oddur Hermanns-
son landslagsarkitekt annaðist
skipulag utan dyra.
Ætlunin er að hafa fræðasetrið op-
ið allt árið og segir Már hugmyndina
að bjóða skólafólki aðgang m.a.
vegna þemaverkefna sinna. Að-
gangseyrir að fræðasetrinu verður
300 kr.
„Ég vona að þetta verði lyftistöng -*
fyrir ferðaþjónustuna. Við erum vel í
sveit sett sem jaðarmiðstöð fyrir
miðhálendið og hér verður upplýs-
ingafulltrúi uppsveita Árnessýslu
með aðsetur og hér verður hægt að
fá upplýsingar um veður og færð,“
segir Már að lokum og er honum þar
með sleppt í lokasprett undirbún-
Lokafrágangur stóð yfir í gær fyrir opnunarhátíð síðdegis á laugardag. ingsins. JT