Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 62
62
?—
FIMMTUDAGUR 1. JUNI 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Villtir laxastofna skapa mikil-
vægar tekjur fyrir 1860 lögbýli
VILLTIR laxastofn-
ar skapa mikilvægar
tekjur fyrir 1860 lög-
býli. Hugmyndir hafa
komið fram um að reisa
á íslandi risastórar
laxeldisstöðvar íyrir
norska laxastofna. Eftir
mikil vandamál samfara
laxeldi í Noregi á und-
anfomum áram hefur
iðnaðinum þar verið
settar margvíslegar
nýjar skorður í Ijósi
reynslu og ekki fást þar
leyfi fyrir ofurstöðvar af
þessu tagi. Fjárfestar
leita því nýrra svæða og
virðast renna hýni auga
til íslands. Eðlilegt er að íslendingar
meti þau áhrif sem eldi á norskum
laxastofnum kynnu að hafa hér á
landi með hliðsjón af árangri Norð-
manna og geri allar þær varúðarráð-
stafanir sem nauðsynlegar eru taldar.
Landbúnaðarráðherra hefur ný-
lega hafnað umsóknum um fiskeldi á
ýmsum stöðum við landið en hefur nú
heimilað rannsókn á slíku ferli með
norskan stofn við Kvíguvoga. Þetta er
í samræmi við gildandi reglugerð um
flutning og sleppingar laxfiska en að-
eins í vísindalegum tilgangi er heimilt
að framkvæma slíkar tilraunir en
ekki í viðskiptalegum tilgangi. Gert
er ráð fyrir að víðtæk sátt verði um
þessa ákvörðun ráðherra, hún verði í
meginatriðum einskorðuð við rann-
sóknarþáttinn innan skynsamlegra
magnmarka, umgjörðin undir ná-
kvæmu eftirliti og niðurstöður rann-
sókna kynntar öllum hagsmunaað-
ilum.
Mikilvægt er að allir átti sig á að
kostnaður við rannsóknir, umhverfis-
mat, eftirlit og varúðarþætti er um-
talsverður. Ef íslendingar ætla sér
stóran hlut í fiskeldi framtíðarinnar
er nauðsynlegt að gera sér strax
grein fyrir hundruð milljóna króna
árlegum kostnaði við slíkt sem skatt-
greiðendur verða að taka á sig en
undirbúningur, öryggi og árlegt eftir-
lit þurfa að vera með þeim hætti að
ekki skaði villta laxastofna og að
ómenguð náttúra verði áfram tryggð.
Fiskeldi í Noregi er
talið ein helsta ástæðan
fyrir því að um þriðj-
ungur af öllum villtum
laxastofnum þar í landi
er horftnn. Gróft mat á
stöðu villtra laxastofna í
Noregi bendir til þess
að flestir eftirlifandi
stofnar þar séu einnig í
útrýmingarhættu.
Svipaða sögu er að
segja frá öðrum ná-
grannalöndum þar sem
fiskeldi er stundað í
stórum stíl. M.a. má
Orri nefna vesturströnd
Vigfússon Skotlands þar sem um-
hverfinu svipar um
margt til Austfjarða. Lúsafaraldur,
sjúkdómar og mengun hafa magnast
á þessum stöðum. I átta af 36 veiðiám
á vesturströnd Skotlands hefur lax og
silungur horfíð með öllu. Á Irlandi er
ástandið svipað, sérstaklega er varð-
ar fræga sjóbirtingsstofna. Víða hafa
risið harðar deilur og málaferli
standa yfir.
Helmingur sjávarafla Noregs er nú
Gróft mat NASF á stöðu og þróun
villtra laxastofna í Noregi júnM999
í þeim tilvikum þar sem það er hægt er farið eftir skýrslum Alþjóða hafrannsóknaráðsins, ICES, um
laxastofnana, þar á meðal nýjasta framlaginu, ICES CM 1999 ACFM:14.1 sumum tilvikum er aðlögun
byggð á viðbótarupplýsingum úr staðbundnum heimildum. Ljóst er að ICES kann síðar að lagfæra sumar
af niðurstöðum sínum en lokagreining er á ábyrgð NASF. Sumir telja nákvæmni tilgáta hafa aukist á
síðustu árum. Hlutfall eins árs lax í sjó og laxa sem eru tvö eða fleiri ár I sjó hefur verið tekið til greina.
■ Afli er byggður á skýrslu vinnuhóps ICES um Atlantshafslax, ICES CM1999 ACFM:14. Meðalþyngd
laxins er talin 3,5 kg. Um óskráðan afla vísast til ICES CM1999 ACFM:14, viðauka 8E. Flökkulaxafjöldi
er byggður á ICES CM 1999 ACFM:14, töflum 3.37.2. og töflu 3.37.3. Nýtingarhlutfall er byggt
á ICES CM 1999 ACFM:14.
■ Hlutfall lax sem sleppt er úr eldisstöðvum er byggt á ICES CM 1999 ACFM:14, viðauka 4. Norska
laxaskýrslan (Norges offentlige utredninger 1999:9), kafli 9.7.2., hefur verið höfð til hliðsjónar og
mat hennar á fjölda sjógenginna seiða (villtra og úr eldisstöðvum). Að mati Konunglegu nefndarinnar
er fjöldi þeirra talinn um sex milljónir árið 1985 en um 2,6 - 3,6 milljónir á síðustu árum. Tekið hefur
verið tillit til þess álits nefndarinnar að heildarfjöldinn kunni að hafa verið ofmetinn nokkuð.
Vilji íslendingar hasla
sér völl á sviði laxeldis
í sjókvíum, segir Orri
Vigfússon, er nauðsyn-
legt að allir geri sér
grein fyrir áhættunni
sem í því felst.
talinn vera eldisfiskur og á heims-
mörkuðum geta Norðmenn ekki leng-
ur státað af villtum fiski úr ómenguðu
umhverfi. Aftur á móti er ímynd ís-
lensks sjávarfangs sterk og jákvæð
og neytendur á heimsmörkuðum
greiða hærra og hærra verð fyrir
villtan íslenskan fisk.
Fréttir af nýlegum ummælum ut-
anríkisráðherra um að ekkert sé því
til fyrirstöðu að leyfa risaeldi á Aust-
fjörðum komu því á óvart. Líklegt er
að hann hafi hvorki áttað sig á þeirri
ákvörðun landbúnaðarráðherra að
leyfa aðeins afmarkaða tilraun á með-
an vísindarannsóknin stendur yfir né
heldur á því að þetta gæti skaðað
ímynd íslensks sjávarútvegs.
Ummæli utanríkisráðherra hafa
valdið óróleika í þeim landbúnaðar-
héruðum á íslandi sem byggja afi
komu sína á villtum laxastofnum. í
nýlegri B.Sc. ritgerð Valdimars Ár-
mann í výðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands um þjóðhagslegt
gildi laxveiða á íslandi kemur fram að
1860 lögbýli á íslandi hafi tekjur af
laxveiðihlunnindum. Erfitt er að
finna auðlind í íslenskum landbúnaði
sem leggur jafnmikið af mörkum til
að halda uppi blómlegum og sjálfbær-
um byggðum í sveitum landsins án
styrkja og afskipta ríkisvaldsins.
Utanríkisráðherra fer með forræði
íslands í NASCO þar sem rædd er
samhæfing á vemdun villtra laxa-
stofna. Láðst hefur að færa þennan
málaflokk í hendur landbúnaðarráð-
herra - þar sem hann á heima - svo
saman fari forræði og ábyrgð og því
er enn meiri ástæða fyrir hagsmuna-
aðila, eigendur umræddra lögbýla, að
hafa áhyggjur af framvindu mála. í
öllum öðrum löndum fer viðkomandi
fagráðuneyti með málefni af þessu
tagi og tryggir faglega umfjöllun.
Villtir laxastofnar skila í dag millj-
örðum króna í tekjur fyrir íslenska
hagkerfið og áhrif þeirra á náttúru-
ímynd landsins verða vart ofrnetin. Af
hveiju að taka óþarfa áhættu sem
stefnir náttúrulegum auðlindum í
tvísýnu? Fiskeldi var reynt á níunda
áratugnum með miklum taprekstri,
e.t.v. 8-10 milljarða. Ólíklegt er að
íslenskir bankar vilji aftur láta reyna
á afskriftalukkuna. Þá hefur íslensk
veðrátta ekkert breyst en hún eyði-
lagði meira og minna allar eldiskvíar í
Straumsvík, Vogum, Hvalfirði og
Vestmannaeyjum.
í stað þess að verja fé til að vemda
búsvæði og auðga villta laxastofna
þurfa eigendur lögbýla með laxveiði-
hlunnindi að standa í kostnaðarsamri
vamarbaráttu. Áreiti frá „óvinveitt-
um öflum“ er sífellt að aukast. Vilji ís-
lendingar hasla sér völl á sviði laxeld-
is í sjókvíum er nauðsynlegt að allir
geri sér grein fyrir áhættunni sem í
því felst. Imynd íslensks sjávarútvegs
gæti verið í mikilli hættu sem og sjálf-
bæmi villtra laxastofna. Ekki er verið
að spá því hér að hvergi finnist leiðir í
framtíðinni til að svo verði ekki en þá
þarf að tryggja umtalsverða fjármuni
í undirbúning, rannsóknir og varúð-
arráðstafanir. Væri ekki þeim pen-
ingum betur varið til að styrkja enn
frekar villtu laxastofnana, auka
tekjur viðkomandi lögbýla og fjölga
störfum? Umfram allt, áður en farið
verður af stað, þarf skipulagið og að-
ferðafræðin að vera í lagi. Það skortir
mikið á að svo sé nú.
Höfundur er formaður NASF,
Vemdarsjóðs villtra laxastofna.
Lát engan líta
smáum augum
á elli þína
;Ifjj'J'fJJj'
- barnið þitt
á skilið það besta
• Engin aukaefni.
Enginn viðbættur sykur.
Eins og heimatilbúinn matur.
Fyrir börn á öllum aldri.
Gott og spennandi hráefni.
P
Bragð náttúrunnar
- og ekkert annað
ÞÚ sem kominn ert á
efri ár og berð reynslu
ævinnar á bakinu.
Láttu engan líta smá-
um augum á elli þína.
Þú sem einn býrð að
þinni reynslu. Þú sem
einn getur miðlað henni
til komandi kynslóða.
Þú hefur svo óendan-
lega mikið að gefa,
segja frá og miðla.
Þú einn kannt svo
margar sögur af liðnum
atburðum. Þú einn hef-
ur það sjónarhorn á at-
burði liðins tíma sem
enginn annar kann að
hafa eða hefur upplifað
á sama hátt og þú.
Þú sem einn getur á þinn sérstaka
hátt miðlað af reynslu þinni, sagt
þínar sérstöku sögur, sýnt þína mik-
ilvægu umhyggju, kærleika og ást.
Allt á þinn þinn hátt. Á þann hátt
sem þér er gefið. Það kemur enginn
í þinn stað. Hinir yngri þurfa á þér
að halda. Lát engan, aldrei nokkurn
tíma, líta smáum augum á elli þína,
ævi og reynslu. Því þú ert sérstakur.
Einstakt eintak. Hefur svo miklu að
miðla og mikið að gefa. Þú ert ekki
úreltur og láttu ekki telja þér trú
um að svo sé.
Þú ert
einstakt eintak
Veröldin væri ekki söm ef þú
hefðir ekki verið. Hún væri svo
miklu fátækari án þinnar dýrmætu
og einstæðu reynslu, án þinna upp-
lifana, sem þú þarft að miðla hinum
ungu.
Þú sem hefur unnið og stritað í
áratugi. Þú sem hefur byggt upp
þetta þjóðfélag og greitt þína skatta
og skyldur. Þú sem hefur byggt upp
hverfin í borginni, alið upp börnin
og líklega gætt barnabarna og jafn-
vel barnabarnabarna. Hvar væri
þjóðfélag okkar hefði þinna dýr-
mætu krafta og þjón-
ustu ekki notið við?
Miðlaðu komandi
kynslóðum af reynslu
þinni. Segðu sögurnar
þínar og kenndu bæn-
irnar sem þér vora
kenndar á ungum dög-
um þínum.
Líttu upp, vertu
hughraustur
Lát engan líta smá-
um augum á elli þína.
Líttu upp, vertu hug-
hraustur og glaður. Þú
Sigurbjöm ert skapaður og elsk-
Þorkelsson aður af Guði og þín
bíða laun. Líf um eilífð
vegna Jesú, sem sætt hefur heiminn
við Guð og frelsað þig frá synd og
Hinir yngri þurfa
á þér að halda, segir
Sigurbjörn Þorkelsson.
Lát engan, aldrei nokk-
urn tíma, líta smáum
augum á elli þína, ævi
og reynslu.
dauða. Leyfðu honum að leiða þig
inn til lífsins eilífa sem hann hefur
fyrirbúið þér vegna fórnar sinnar,
fyrir þig af elsku til þín. Hann tekur
á móti þér. Þú getur treyst honum.
Þú getur öruggur hvílt í hans bless-
aða náðarfaðmi. Vegna hans átt þú
lífið framundan. Lífið eilífa, sem
hann vill gefa þér.
Höfundur fæst við ritstörf og er
framkvæmdastjóri KFUM og KFUK
l Reykjavík.