Morgunblaðið - 01.06.2000, Page 72
72 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
„Að gefa
' Góu rauðan
ullarlagð“
ÞEIR eru margir siðirnir
sem hafa skapast í gegnum
tíðina. Sumir siðir eru svo
gamlir að enginn man leng-
ur hvers vegna þeir mynd-
uðust og jafnvel ekki til-
gang þeirra heldur, en hafa
þá samt í hávegum. Allt
okkar lífsmynstur er mor-
andi í ýmiss konar siðum og
venjum.
Þegar breytingar verða í
lífi okkar, gifting, skírn, ferming,
afmæli, útskrift úr skóla, svo ein-
hver dæmi séu nefnd, höldum við
margskonar vígsluathafnir en
virkni þeirra er einmitt sú að draga
úr áhrifum breytinganna því allar
breytingar eru truflun eða röskun í
lífi einstaklinga og samfélaga. Árs-
tíðabreytingar geta einnig valdið
ákveðnum truflunum í lífi okkar og
við bregðumst líka stundum við
þeim með ákveðnu háttalagi til að
reyna að milda og samsama okkur
breytingunum á sem þægilegastan
máta.
Sem dæmi um slíkt þekkist sá
skemmtilegi siður á norðaustan-
verðu landinu „að gefa Góu rauðan
Iagð“. Það eru yfirleitt konur sem
gefa Góu (sem er fimmti mánuður
vetrar að fornu íslensku tímatali og
hefst 18.-24. febrúar) fyrsta góudag
ullarlagð eða smábandshespu og er
liturinn ávallt rauður. Lagðurinn er
hengdur upp úti á glugga og látinn
hanga þar út góuna en stundum er
lagðinum feykt út í vindinn og er
tilgangurinn sá að blíðka og milda
góuna. Sumir segja að máli skipti í
hvaða átt lagðurinn Qúki því það á
að boða aðalvindstöðuna á góunni.
(Heimild: Saga daganna eftir Áma
Bjömsson.)
Ástæðan fyrir því að lagðurinn á
að vera rauður er að öllum líkind-
um vegna þess að rauður þýddi
líka/ eða vísar í orðið auður, sbr.
rauð jól sem þýðir auð eða snjólaus
jól. Góu er því fórnað
lagðinum í von um að
hún blíðkist og gefi betra
veður en Þorri, karlinn
hennar, býður yfirleitt
uppá. Þessi siður er lík-
ast til mjög gamall því
hann felur í sér ákveðna
fóm til æðri máttarvalda
og vísar þar með frekar í
heiðna trú en kristna.
Maðurinn reynir sífellt
að hafa áhrif á umhverfi sitt með
ýmsu móti og hefur hann komist
nokkuð langt á því sviði í dag. Sú
athöfn að gefa Góu rauðan lagð
gefur viðkomandi ákveðið vald yfir
umhverfi sínu sem felst í voninni
um að geta haft einhver áhrif á
veðrið og von um að maðurinn sé
ekki bara eitthvert fómardýr óvið-
ráðanlegra náttúruafla. Maðurinn
vill halda að hann geti að einhveiju
leyti ráðið örlögum sínum sjálfur.
Siðir sem þessir eru margir og
voru/eru mikilvægir í lífi fólks því
vonin er vald sem hjálpar fólki að
draga fram Iífið við erfiðustu að-
stæður. Því líf án vonar er ekkert
líf.
Júní-mánuði verður því fómaður
þessi hvíti toppur úr Funny-
pelsgarni í von um að hann blíðkist
nú og verði hlýrri fyrir vikið en
bróðir hans maímánuður. Toppur-
inn er einfaldur og fljótprjónaður
og verður hann teygjanlegur þegar
búið er að pijóna hann og einstak-
lega mjúkur og þægilegur. Þannig
hentar hann konum af öllum stærð-
um og gerðum sem vilja heitan júní-
mánuð.
Þið skuluð hins vegar ekkert
vera að hengja hann út á gluggann
(eins og rauða lagðinn), nágranninn
gæti miskilið það kannski, heldur
fara bara í hann og vera sem mest
úti á túni í júní svo skilaboðin verði
skýr og greinileg.
Morgunblaðið/Ásdís
Fyrirsæta Ásta Hannesdóttir. Toppurinn er teygjanlegur og hentar því
konum af öllum stærðum og gerðum sem vilja heitan júnimánuð.
Sumartoppur
Stærðir: XS - S - M - L
Yfirvídd: 78 - 84 - 90 - 96 cm
Sídd: 42-44-46-48 cm
Garn - Funny pelsgarn: upplýs-
ingar 565-4610
Rautt nr. 4109: 3 - 3 - 4 - 4 dokkur
Prjónar nr. 4 og 4,5.
Prjónfesta:
20 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna
nr. 4,5 = 10 cm.
Bakstykki:
Fijið upp 68 - 74 - 80 - 86 lykkjur á
prjón nr. 4 og prjónið 4 prjóna slétt
prjón fram og til baka = tveir garð-
ar. Skiptið yfir á prjóna nr. 4,5 og
haldið áfram með sléttum lykkjum á
réttu og brugðnum á röngunni.
Aukið út eftir tvo prjóna 1 lykkju í
hvorri hlið og sú aukning er endur-
tekin með 5 cm millibili 4 sinnum í
viðbót = 78 - 84 - 90 - 96 lykkjur.
Þegar ílíkin mælist 25 - 26 - 28 - 29
cm er fellt af fyrir handvegi á öðr-
um hverjum prjóni (5, 2,1,1) 5, 2,1,
1,1 (5,2,1,1,1) 6,2,1,1,1 lykkjur á
hvorri hlið = 60- 64 - 70- 74 lykkj-
ur. Pijónið þar til handvegur mæl-
ist 14 - 15 - 15 -16 cm. Þá er komið
að hálsmálinu. Fellið af miðjulykkj-
urnar 22 - 24 - 26 - 26 og prjónið
hvorn hlýra fyrir sig. Fellið áfram 1
lykkju við hálskantinn á hverjum
prjóni 5 sinnum = 14-15-17-19
lykkjur á öxl. Prjónið þar til hand-
vegur mælist 17 - 18 - 18- 19 cm og
fellið af. Prjónið hinn hlýrann eins.
Framstykki:
Fitjið upp og prjónið eins og bak-
stykkið þar til handvegur mælist 8 -
9-9-10 cm. Þá er komið að háls-
málinu. Fellið af miðjulykkjurnar
14 - 16 - 18 - 18 lykkjur og prjónið
hvorn hlýra fyrir sig. Fellið af við
hálskantinn á öðrum hverjum
prjóni 2 lykkjur þrisvar sinnum og
síðan 1 lykkju þar til eftir standa 14
-15 -17 -19 lykkjur. Prjónið þar til
náð er sömu lengd og á bakstykkinu
og fellið af. Prjónið hinn hlýrann á
sama máta.
Frágangur:
Saumið saman axlir og hliðar.
Tónlistarhúsið Ýmir
Tónlist og
framandi
menning á
sumarnám-
skeiðum
BOÐIÐ verður upp á námskeið fyrir
börn á aldrinum 8-12 ára í tónlistar-
húsinu Ymi í sumar, en Karlakór
Reykjavíkur á og rekur húsið í Skóg-
arhlíð 20. Hvert námskeið stendur í
eina viku, allan daginn.
Áhersla verður lögð á tónlist og
hreyfingu ásamt menningu framandi
þjóða. Gáski og gleði mun ríkja á
námskeiðunum sem eru í umsjón
Sólveigar Hauksdóttur og Margrét-
ar Kristínar Blöndal, Möggu Stínu,
sem þekkt er fyrir líflegan tónlistar-
flutning, segir í fréttatilkynningu.
Sjónum mun beint að menningu
og tónlist frá öllum heimshornuni,
Asíu, AfiTku, Suður-Ameríku auk Is-
lands. Gefst bömunum kostur á
skapandi starfi í tengslum við þessi
þemu og í lok hvers námskeiðs er
sýningarhald þar sem afrakstur vik-
unnar er kynntur.
Tónlistarhúsið Ymir er í í Öskju-
hlíðinni og skammt undan er Naut-
hólsvík og Miklatún þangað sem
hægt er að ganga og njóta útivistar
þegar veður er gott.
Skráning og nánari upplýsingar
fást í tónlistarhúsinu Ymi.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
varð 30. maí sl. um kl. 16.30 á gatna-
mótum Grensásvegar og Miklubraut-
ar. Ekið var aftan á bifreiðina ZS-524,
sem er
hvít Renault-fólksbifreið. Tjón-
valdur er talinn hafa verið á blásans-
eraðri sendibifreið eða húsbíl. Hann
yfirgaf vettvanginn án þess að ganga
frá máli sínu.
Eru þeir, sem geta veitt lögreglu
aðstoð við að finna umrædda bifreið,
beðnir um að snúa sér til lögreglunn-
ar í Reykjavík.
A
MITSUBISHI
MITSUBISHI
CRRI5MR
- demantar í umferð