Morgunblaðið - 01.06.2000, Page 78
78 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Gáfu reiðhjólahjálma
FÉLAGAR úr Kiwanisklúbbnum
Kötlu mættu í Laugarnesskóla
nýlega til að gefa 7 ára nemend-
um skólans, 65 að tölu, reiðhjóla-
hjálma og hjólaveifur. Hjálmarnir
voru Atlas Hardtop öryggihjálm-
ar sem börnin tóku við úr hönd-
um kiwanisfélaganna, prúð og
frjálsleg í fasi. Kiwanisklúbbur-
inn Katia vill færa Sláturfélagi
Suðurlands, Vátryggingafélagi fs-
lands hf. og Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni ehf. sérstakar
þakkir fyrir aðstoð við íjármögn-
un þessa verkefnis, segir í frétta-
tilkynningu.
Sjómanna-
dagsblað Vest-
mannaeyja
komið út
SJÓMANNADAGSRÁÐ Vest-
mannaeyja hefur gefið úr Sjómanna-
dagsblaðið árið 2000.
I blaðinu er m.a. fjallað um Þjóð-
verja á Islandsmiðum, raktar skipa-
- komur til Vestmannaeyja á síðasta
ári, fjallað um útgerð Helga Bene-
diktssonar, starf vélstjómarbrautar
Framhaldskólans í Vestmannaeyj-
um kynnt. Rætt er við skipamynda-
safnarann Jóhann Bjarnason, fjallað
um sjómannadaginn 1999 og raktar
breytingar á fiskiskipaflota Eyja-
manna. Fjöldi ljósmynda prýðir
blaðið.
Ritstjóri er Friðrik Ásmundsson.
Forsíðu blaðsins prýðir vatnslita-
mynd eftir Gunnar Þór Friðriksson,
skipstjóra á Hafemi VE.
Kaffifundur um
umhverfismál
SAMFYLKINGIN í Reykjavík hef-
ur staðið fyrir kaffifundum fyrsta
laugardag hvers mánaðar í vetur.
Tekið hefur verið fyrir sérstakt um-
ræðuefni hveiju sinni, með stuttum
framsöguerindum og óformlegu
spjalli um málefnin á eftir.
Síðasta laugardagskaffið á þessum
vetri verður nk. laugardag, 3. júní, kl.
11 á kaffihúsinu Sóloni íslandusi.
Umræðuefnið í þetta sinn verður
umhverfismál ogþað er Bjöm
Guðbrandur Jónsson, líffræðingur
og framkvæmdastjóri samtakanna
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs,
sem hefur framsögu.
Baráttan gegn
illgresinu
B ARÁTTAN gegn illgresinu er yfir-
skrift á námskeiði, sem Garðyrkju-
skóli ríkisins, Reykjum í Olfusi,
heldur fyrir almenning í húsakynn-
um skólans laugardaginn 3. júní frá
kl. 13 til 17.
Á námskeiðinu verður fjallað um
helstu tegundir illgresis og aðferðir
til að halda því í skefjum. Þá verður
fjallað um ýmsar þekjuaðferðir til
að koma í veg fyrir illgresi.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða Baldur Gunnlaugsson, garð-
yrkjustjóri útisvæða Garðyrkju-
skólans, og Gunnþór Guðfinnsson,
garðyrkjustjóri útimatjurta.
Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá endurmenntunarstjóra
skólans.
Vorsýningar í
leikskolum
Hafnarfjarðar
VORSÝNINGAR verða haldnar í
leikskólum Hafnarfjarðar 3. júní nk.
m.a. á verkum bamanna frá þvi í vet-
ur. Opið verður á mismunandi tím-
um í leikskólunum.
Leikskólar sem hafa opið frá kl. 11
til 13 em Amarberg/Hraunkot við
Flatahraun, Hlíðarendi, Úthlíð 1,
Hörðuvellir v/ Hörðuvelli, Norður-
berg, Norðurvangi 15b, Kató, Hh'ð-
arbraut 10 og Smáralundur, Smára-
barði 1.
Leikskólar sem hafaopið frá kl. 12
til 14 em Álfaberg, Álfaskeiði 16,
Hlíðarberg, Hlíðarbergi 1, Hvamm-
ur, Staðarhvammi 23, Vesturkot,
Miklaholti 1 og Víðivellir, Miðvangi
39.
Fundur
Tourette sam-
taka á Islandi
TOURETTE samtökin á íslandi
halda fund fyrir foreldra barna sem
em með Tourette-heilkenni í kvöld
kl. 20.30 á Tryggvagötu 26,4. hæð.
Þessir fundir em haldnir mánað-
arlega fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar. Þar gefst foreldmm tækifæri
til að spjalla saman yfir kaffibolla
um málefni bama sinna.
Leiðrétt
Rangt nafn í fyrirsögn
í fyrirsögn um styrk, sem Katrín
Sigurðardóttir hlaut úr Listasjóði
Guðmundu S. Kristinsdóttur, var
nafn Guðmundu ekki rétt. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Rangur opnunartimi
Upplýsingar um opnunartíma
Sparverslunar.is sem birtur var á
neytendasíðu fyrir viku, var rangur.
Verslunin er opin frá kl.ll til 20
virka daga, frá kl.10 til 18 á
laugardögum og frá kl.12-18 á
sunnudögum. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Húsnæðis
leitað
VE LVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
,Á sl. ári heimsótti ég Is-
land í fyrsta skipti og eyjan
ykkar hafði mikil áhrif á
mig. Ekki aðeins faliega
landslagið, gestrisna fólkið,
heldur einnig tónlist
Bubba. Hafið þið nokkum
tímann upplifað hvernig
það er að að geta ekki skilið
eða talað við fólk og að geta
ekki tjáð sig vegna tungu-
málaerfiðleika? Það gerðist
hjá mér í síðustu viku þegar
ég fór á tónleika hjá Bubba.
Eg hef mikinn áhuga á að
læra meira um Island, Is-
lendinga og menningu
landsins. Þess vegna ákvað
ég að læra tungumálið.
Frá 16. október til 12.
nóvember mun ég sækja
tungumálanámskeið hjá
Fullorðinsfræðslunni,
Gerðubergi 1, Reykjavík,
og þarfnast ég húsnæðis
þann tíma. Ég leita að fjöl-
skyldu sem vill taka mig í
fæði og húsnæði í einn mán-
uð gegn greiðslu. Ég vil
helst búa hjá íslenskri fjöl-
skyldu og fá að taka þátt í
daglegu lífi hennar en þar
sem ég hef litla kunnáttu í
íslensku er nauðsynlegt að
einhver fjölskyldumeðlim-
ur tali einhverja ensku. Ég
get útvegað meðmæli frá ís-
lenskri fjölskyldu ef óskað
er.
En hver er ég? Ég er hol-
lensk kona, 31 árs gömul og
vinn hjá hollenska landbún-
aðarráðunej'tinu. Er ein-
hver sem hefur áhuga á að
hýsa konu frá Hollandi sem
hefur fengið ást á landinu?
Ef svo er vinsamlega hafið
samband við:
Margot Backx,
Gouderakstraat 43,
5043 LM Tilburg,
The Netherlands
eða sendið mér póst á
netfangið: M.Backx®-
worldonline.nl
Álver á Reyðarfirði
ÞAÐ er verið að tala um
Akranes og Selfoss sem
jaðarbyggðir út frá Reykja-
vík. Þetta stafar af þensl-
unni á höfuðborgarsvæð-
inu, ekki vegna þess að
álver var reist á Grundar-
tanga. Ekkert álver var
reist á Selfossi eða í ná-
grenni. Þessi þensla stafar
einungis vegna fólksflótt-
ans af landsbyggðinni.
Stórt álver á Reyðarfirði
mun ekki bjarga byggð á
Austurlandi. A ráðstefnu
sem haldin var á Reyðar-
firði var sagt að væri byggð
undir fimm þúsund íbúum
myndi ekki borga sig að
halda þeirri byggð á við-
komandi svæði. Svo er það
stóra spurningin hvort ál-
ver á Reyðarfirði stenst
umhverfismat. Hjörleifur
Guttormsson hefur varað
við stóriðju á Austurlandi af
þeirri stærðargráðu sem
menn hafa verið að ræða
um. Ég tek undir með Hjör-
leifi að það er varhugavert
að reisa álver af þeirri
stærðargráðu sem menn
ráðgera. Nú er komin sú
staða að það vantar vinnu-
afl á Stór-Reykjavíkur-
svæðið, en út á landsbyggð-
inni þurfa menn helst að
fækka störfum. Þegar
fiskvinnslan verður meira
og meira tæknivædd þarf
færra starfsfólk, þar af leið-
andi fækkar á landsbyggð-
inni. Stjórnvöld hafa ósköp
h'tið gert til þess að snúa
þessari þróun við. Álver eitt
og sér af hóflegri stærð
bjargar ekki fólksflóttanum
frá Austfjörðum.
Gunnar G.
Bjartmarsson.
Þakkir til Málara-
meistarans í Síðumúla
ÉG fór í Málarameistarann
í Síðumúla í fyrsta skipti
núna fyrir stuttu. Þar fékk
ég alveg toppþjónustu og
vörur á frábæru verði. Ég á
örugglega eftir að versla
þarna oft. Þjónustan þarna
er alveg til fyrirmyndar og
starfsfólkið alveg einstakt.
Hafið mínar bestu þakkir
fyrir frábæra þjónustu.
Hafliði Helgason.
Smá
athugasemd
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma með smá athuga-
semd. Henni eins og mörg-
um öðrum finnst þátturinn
hans Guðna Kolbeinssonar,
Málfarsmínútan á Rás 1,
allt of stuttur. Einnig finnst
henni fólk nota allt of mikið
orðin haus og lappir, í stað-
inn fyrir höfuð og fætur.
Þetta særir málkennd
margra og þó kannski sér-
staklega þeirra sem eru að
kenna ungum börnum rétt
mál.
Tapad/fundið
Píptæki tapaðist í
Mosfellsbæ
PÍPTÆKI tapaðist á leið-
inni frá Amartanga upp
Langatanga í Mosfellsbæ
föstudaginn 26. maí sl.
Fundarlaun. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
698-7175.
Fjólublá lyklakippa
fannst í Breiðholti
LYKLAKIPPA fannst fyr-
ir utan Réttarbakka 9 í
Breiðholti. Lyklakippan er
fjólublár tuskuhundur með
einum húslykh á. Upplýs-
ingar í síma 557-3399.
IVÍjúk svört leðurtaska
hvarf úr bíl við
Kringluna
MJÚK svört leðurtaska
hvarf úr bíl fyrir utan
Kringluna fimmtudaginn
25. maí sl. milli kl. 18-19.
Taskan er af gerðinrii
Kenneth Cole. í töskunni
var disklingur, sem er eig-
andanum afar kær. Upplýs-
ingar í síma 897-1122.
Dýrahald
Kolsvartur kettlingur
hvarf að heiman
KOLSVARTUR átta mán-
aða kettlingur hvarf frá
Hagamel 26 fóstudags-
kvöldið 26. maí sl. Hann er
með fjólubláa ól. Hann var
nýfarinn að fara út. Ef ein-
hver hefur orðið hans var er
sá hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 552-9901 eða 694-6873.
SKAK
Ilmsjón Ilelgi Áss
Grélarsson
SIGURVEGARI A-flokks
minningarmóts Steins, of-
urstórmeistarinn Vassilji
Ivansjúk frá Úkraínu
(2.709), hafði hvítt í með-
fylgjandi stöðu gegn fyrr-
um samlanda sínum, slóv-
enska stórmeistaranum
Alexander Beljavski
(2.640). 36. e5! Rf4 Sorgleg
nauðsyn þar sem eftir 36.
- Rxe5 verður svartur mát
með 37. Hf8!+ - Bxf8 38.
Hxf8. 37. Rxf4 - gxf4 38.
e6! - Hd8 39. Hxf4 - Bb7
40. Hg4! - Hf8 41. Hxf8+
og svartur gafst upp þar
sem hann tapar liði bæði
eftir 41. - Hxf8 42. Rxd6 -
Víkverji skrifar...
I SÍÐUSTU viku afhenti fulltrúi
íslands skjöl í New York sem fólu
í sér fullgildingu íslands á alþjóðlega
sakamáladómstólnum, sem áformað
er að taki til starfa í Haag í Hollandi.
ísland er tíunda ríkið til að gerast
aðili að dómstólnum, en hann tekur
ekki til starfa fyrr en 60 ríki hafa
fullgilt hann. Stofnun þessa dómstóls
er án ef með því merkasta sem gerst
hefur í mannréttindamálum í heim-
inum. Barátta fyrir stofnun hans
hefur staðið í 50 ár og nú loks sér
vonandi fyrir endann á henni.
AUgóð samstaða hefur tekist um
stofnun alþjóða sakamáladómstóls-
ins, en það ber þó nokkurn skugga á
að Bandaríkin hafa ekki viljað styðja
hann heldur hafa þvert á móti reynt
að koma í veg fyrir stofnun hans eða
setja reglur sem eru fallnar til að
draga úr valdi hans. Það vekur eðli-
lega nokkra furðu að Bandaríkja-
menn, sem oft hafa verið í fylkingar-
bijósti þeirra sem barist hafa fyrir
mannréttindum í heiminum, skuli
ekki styðja þetta mikla mannrétt-
indamál.
Bandaríkjastjórn hefur fært þau
rök fyrir afstöðu sinni að hún geti
ekki fallist á stofnun dómstóls sem
hugsanlega hafi vald til að dæma
bandaríska hermenn í stríði utan
Bandaríkjanna. Einhver kann að
spyrja af hverju Bandaríkjamenn
óttast að hermenn þeirra fremji
glæpaverk sem falla undir valdsvið
dómstólsins, en því er til að svara að
margt gerist í stríði og líklega hefði
verið hægt að draga bandaríska her-
menn í Víetnam til ábyrgðar fyrir at-
burði sem gerðust þar ef dómstóllinn
hefði verið farinn að starfa meðan
Víetnamstríðið stóð yfir.
x x x
IGÆR var alþjóðlegur tóbaks-
varnardagur, en honum er ætlað
að minna fólk á skaðsemi tóbaks og
vera því hvatning til að hætta að
reykja. Hér á landi hefur dagurinn
stundum verið kallaður „reyklausi
dagurinn", en hann hefur þó aldrei
verið reyklaus. Vonandi er þó eitt-
hvað minna um reykingar á þessum
degi en öðrum dögum ársins.
Á seinni árum hefur sífellt verið að
koma betur í Jjós hvað reykingar eru
skaðlegar heilsu manna. Til viðbótar
kosta þær reykingamanninn heil-
mikil útgjöld. Þá eru ónefnd áhrifin
sem reyingar hafa á útlit þeirra sem
reykja og lykt.
Víkverji hefur aldrei reykt og á
erfitt með að skilja hvers vegna fólk
gerir það. Fyrir skömmu rakst hann
á tvær ungar fallegar stúlkur sem
greinilega voru að byrja að reykja.
Þær virtust vera í óttalegu basli við
að sannfæra sig um að þetta væri
gott því að þær voru sífellt að
hrækja; væntanlega vegna þess að
þær voru með eitthvert óbragð í
munninum. Það er hálf einkennilegt
að fólk skuli leggja á sig erfiði til að
venja sig á þennan ósið, sérstaklega í
ljósi þess að sama fólk leggur síðan
yfirleitt á sig enn meira erfiða við að
hætta að reykja.
XXX
BANDARÍKJAMENN eru oft
tregir til að gerast aðilar að al-
þjóðlegum samningum, eu í þessu
máli ættu þeir að gera sér grein fyrir
hve mikið framfaraskref er verið að
stíga. Með stofnun dómstólsins fá
þeir sem standa að glæpaverkum,
eins og hópmorðum og stríðsglæp-
um, þau skilaboð að þeir geti ekki
verið öruggir um að komast upp með
glæpi sína. Gefin verður út hand-
tökuskipun á þá og glæpir þeirra
verða rannsakaðir og dæmt í þeim á
grundvelli sannana. Það hiýtur að
vera talsvert á sig leggjandi til að
koma slíku til leiðar.
í Bandaríkjunum hefur að undan-
förnu verið mikil umræða um ástand
mannréttindamála í Kína og Banda-
ríkjamenn hafa deilt um hvaða leið
sé vænlegust til að stuðla að því að
þar þokist mál til betri vegar. Þess
vegna er andstaða Bandaríkjamanna
við alþjóðlega sakamáladómstólinn
hálf ömurleg. Stundum verða menn
að leggja sjálfir eitthvað á sig til að
ná fram góðum málum.