Morgunblaðið - 01.06.2000, Síða 84
84 FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til O
■ ALÞÝÐUHÚSIÐ, Vestmannaeyj-
um: Hljómsveitin Dans á rósum leik-
ur á árlegum sjómannadansleik
laugardagskvöld.
■ ALFOSS FÖT BEZT: Svasil spilar
„Hot Afro-Beat“ fostudags- og laug-
ardagskvöld.
■ ÁSLÁKUR, Mosfellsbæ: Hljóm-
sveitin Vírus sér um fjörið föstudags-
og laugardagskvöld. Okeypis að-
gangm-. 20 ára aldurstakmark.
■ BREIÐIN, Akranesi: Selma
Björns ásamt hljómsveit og Tod-
mobile leika laugardagskvöld.
t ■ BROADWAY: Sjómannadagshóf -
Kvöldverður og Bee Gees sýningin
fóstudagskvöld frá kl. 18 til 3. Ýmis
skemmtiatriði. Danssveit Gunnars
Þórðarsonar ásamt söngstjörnum
Broadway leika fyrir dansi. Sjó-
mannadagshóf - Bee Gees sýningin
laugardagskvöld kl. 18 til 3. 62. af-
mælishóf Sjómannadagsins. Guð-
mundur Hallvarðsson formaður sjó-
mannadagsráðs setur _ hófið.
Sjávarútvegsráðherra, Ai-ni M.
Mathiesen, flytur ávarp. Bee Gees
sýningin, dansatriði, verðlaunaaf-
hending og fleira. Danshljómsveit
Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir
dansi.
■ BÆJARBARINN ÓLAFSVÍK:
Diskótekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur leikm- laugardags-
s kvöld. Reykur, þoka, ljósadýrð og
skemmtilegasta tónlistin síðustu 50
ára. Miðaverð 500 kr.
■ CAFÉ AMSTERDAM: Dj. Birdy
sér um tónlistina fram eftir morgni
fostudags- og laugardagskvöld.
■ CAFE ROMANCE: Lifandi tónlist
öll kvöld. Fredrick Gamarith er kom-
inn í 2. sinn til landsins til þess að
skemmta gestum á Café Romance og
Café Operu alla daga nema mánu-
daga, frá kl 20 - 01 virka dagaog 21 -
03 um helgar.Verið velkominn.
■ CATALINA, Hamraborg: Það eru
Bara tveir sem leika um helgina
fóstudags- og laugardagskvöld.
■ DUGGAN, Þorlákshöfn: Heiðurs-
menn og Kolbrún leika fóstudags- og
laugardagskvöld.
■ EGILSBÚÐ, Neskaupstað:
Tommi Tomm og Milli ásamt Pétri
„Jesús“ á bamum frá kl. 23-03 fostu-
dagskvöld. Miðaverð 800 kr. Heima-
menn leika frá kl. 23-3 laugardags-
kvöld. Miðaverð 1. 200 kr. 18 ára
aldurstakmark. Sjómannadansleikur
sunnudagskvöld. Matur, stórsýning,
dansleikur. Miðaverð 4. 300 kr. Hús-
ið opnar kl. 19. 30, borðhald hefst kl.
20. Björgvin Halldórsson, Sigga
Beinteins og Grétar Örvars með
blöndu af sínum bestu lögum í gegn-
um tíðina. Almennur dansleikur með
BSG að loknu borðhaldi9 til kl. 3.18
ára aldurtakmark. Miðaverð 1. 500 á
dansleikinn.
■ EYRIN, Isafirði: Hljómsveitin
Sixties leikur á sjómannaballi sunnu-
dagskvöld.
■ FÉLAGSLUNDUR, Reyðarfirði:
Pétur & Gargið laugardagskvöld.
Hljómsveitina skipa: Pétur Wige-
lund Kristjánsson, Jón Ólafsson,
Tryggvi Hubner og Björgvin Ploder.
■ FJARAN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin 8-villt leikur laugar-
dagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG: 80’ pró-
gramið á hreinu með hljómsveitinni
Riff Reddhead fimmtudagskvöld til
01:00. Hljómsveitina skipa: Rakel
Magnúsdóttir, söngur, Daði Georgs-
son, flygill, Jón Örvar Bjarnason,
bassi, Sævar Th. Helgason, slag-
harpa og Páll Sveinnon, húðir og
málmgjöll. Buttercup leikur með
nýtt efni föstudagskvöld. Atóm 5
leikur sunnudagskvöld. Fustamir og
Geir Ólafs leika mánudagskvöld.
Hljómsveitin Url leikur fyrir gesti
þriðjudagskvöld.
■ GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Gunnar Páll leikur allar helgar kl.
19:15 til 23:00. Tónlistarmaðurinn
Gunnar Páll leikur og syngur öll
fimmtudags-, fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Gunnar leikur hugljúfa
og rómantíska tónlist. Allir velkomn-
ir.
■ GULLÖLDIN: Hljómsveitin Sælu-
sveitin leikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld. Ókeypis aðgangur. Til-
boð á öli til kl. 23.30 öll kvöld. Boltinn
á breiðtjaldinu.
■ HAFURBJÖRNINN GRINDA-
VTK: Hljómsveitin Hafrót leikur
föstudagskvöld.
■ HITT HÚSIÐ : Hljómsveitin Mín-
us leikur laugardagskvöld kl. 21:00.
Hljómsveitin hefur ekki komið fram í
3 mánuði en hafa verið að nota tím-
ann vel og verða með slatta af nýju
efni. Hljómsveitinni til aðstoðar
verður hfjómsveitin Klink. Ókeypis
aðgangur.
■ HREÐA VATN SSKÁLI: Hljóm-
sveitin Þotuliðið leikur laugardags-
kvöld.
■ INGÓLFSKAFFI, Ölfusi: Hljóm-
sveitin Blístró leikur laugardags-
kvöld.
■ KAFFIREYKJAVÍK: Jazz - Jazz -
og meiri Jazz fimmtudagskvöld kl.
22:00 til 01:00. Siguður Flosason,
Þórir Baldurs og Jóhann Hjörleifs-
son leika.Frítt inn.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ: Klúbbur
Listahátíðar laugardagskvöld kl. 21.
Það er list að vera ljótur! í kvöld
heldur klúbburinn ljótufatapartí,
sem stýrt er af Ragnheiði Gestsdótt-
ur, mannfræðingi og trúð og Sigríði
Nönnu Heimisdóttur, kennara og
trúð. Fram koma Tema Teater, dj.
Islandica, dj. Plebbi og Þverröndótt-
ir. Karíjóki og verðlaunaafhending
fyi-ir ljótasta klæðnaðinn.
■ KNUDSEN, Stykkishólmi: Hljóm-
sveitin Stykk spilar föstudags- og
laugardagskvöld. Þess má geta að
veitingastaðurinn var að opna aftur
eftir viðgerðir.
■ KRAMHÚSIÐ: Danskvöld Tangó-
félagsins fóstudagskvöld kl. 21 til
23:30. Danskvöld fyrir byrjendur og
lengra komna í argentínskum tangó.
■ KRINGLUKRÁIN: Kringlukráin
föstudagskvöld föstudagskvöld kl.
23:00 til 03:00. Ruth Reginalds,
Maggi Kjai-tans og Villi Guðjóns
skemmta á Ki-inglukránni á fóstu-
dags- og laugardagskvöldið 2 frá kl.
23-3. Sjómanna-kvöld á Kringlu-
kránni sunnudagskvöld kl. Stór-
söngvarinn Ragnar Bjamason ásamt
hljómborðsleikaranum Stefáni Jök-
ulssyni skemmta gestum Ki-inglu-
Irvoovinnov
■ KRISTJÁN IX, Grundarfirði:
Hljómsveitin Sixties leikur fóstu-
dagskvöld.
■ KRISTJÁN X. , Hellu: Diskótekið
og plötusnúðurinn Skugga-Baldur
leikur föstudagskvöld. Reykui', þoka,
ljósadýrð og skemmtilegasta tónlist
síðustu 50 ára. Aðgangur ókeypis.
■ KRÚSIN, ísafírði: Hljómsveitin
Undryð leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Síðasta dansæfingin
á þessari önn laugardagskvöld kl.
21:00. Elsa sér um tónlistina. Allir
velkomnir.
■ NAUST-KRÁIN: Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur fóstu-
dags- og laugardagskvöldkvöld kl. 23
til 3. Sjómannadansleikur og Skag-
firsk sveifla með Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar.
■ NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti kl. 22:00 til 03:00.
Naustið er opið alla daga frá kl. 18.
Stór og góður sérréttaseðill.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6:
Traustispilar blús-tónlist fóstudags-
kvöld. Okeypis aðgangur. Opið til kl.
6. Trausti spilar blús-tónlist laugar-
dagskvöld. Okeypis aðgangur. Opið
tilkl. 6.
■ NÆSTI BAR: Andrés Þór Gunn-
laugsson gítarleikari ásamt Þóru
Þórisdóttur söngkonu leika miðviku-
dagskvöld kl. 22:00 til 01:00. Frítt
inn.
■ NÆTURGALINN: Hljómsveit
Hjördísar Geirsdóttur leikur föstu-
dagskvöld. Aii Jónsson og Úlfar
Sigmarsson leika laugardagskvöld.
Opið frá kl. 22 til 3.
■ ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Miðaldarmenn leika föstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ ORMURINN, Egilsstöðum
Okeypis aðgangur. Villi Velvet er
kominn aftur og slær á strengi frá
miðnætti fóstudagskvöld.: Diskótek,
alltaf það ferskasta í tónlist laugar-
dagskvöld. Ókeypis aðgangur.
■ PÉTURSPÖBB: Rúnar Þór leikur
til kl. 3 föstudags- og laugardags-
kvöld. Beinar útsendingar í boltan-
um.
■ PIZZA 67, Eskifirði: Siggi Þor-
bergs sér um tónlistina föstudags-
kvöld. Frítt inn alla nóttina. Tommi
Tomm og Milli ásamt Pétri „Jesús“
leika laugardagskvöld. Miðaverð 800
kr. 2-1 milli kl. 23 og 24.
■ RAUÐA LJÓNIÐ: Skarphéðinn
þór og Mjöll Hólm skemmta fóstu-
dags- og laugardags- og sunnudags-
kvöld.
■ RÉTTIN, Úthlíð: Hljómsveitin í
svörtum fótum spilar laugardags-
kvöld.
■ SKU GGABARINN: Nökkvi ogÁki
sjá um tónlistina fóstudags- og laug-
ardasgskvöld. Húsið opnar kl. 23.
Aldurstakmark 22 ár og snyrtilegur
klæðnaður. 500 kr inn eftir kl. 24.500
kr inn eftir kl. 24. Vip partý er í
Gyllta salnum laugai’dagskvöld þar
sem Ingvar Helgason kynnir nýjan
Nissan Almera og verður einn slíkur
í salnum. Partýið byrjar kl. 22 og er
aðeins fyrir boðsgesti.
■ SPORTKAFFI: Dj. Þór Bæring í
búrinu fóstudags- og laugardags-
kvöld.
■ SPOTLIGHT: Sumarpartý föstu-
dags- og laugardagskvöld. Mætum
með strandbúnaðinn, stelpur í bikiní
og strákar í stuttbuxum. Dj. Droopy
sér um tónlistina.
■ SVARTA LOFTIÐ, HelUssandi:
Siggi Hösk og Steini Kristó leika
laugardagskvöld.
■ TYSHEIMILIÐ, Vestmannaeyj-
um: Magnús Eiríksson og KK leika
frá kl. 21 laugardagskvöld. Óþarfi er
að fjölyrða um þessa tónlistarmenn
sem eru löngu þjóðkunnir fyrir lög
sín og ljóð.
■ VALHÖLL, Eskifirði: Pétur &
Gargið leika sunnudagskvöld.
Hljómsveitina skipa: Pétur Wige-
lund Kristjánsson, Jón Ólafsson,
Tryggvi Hubner og Björgvin Ploder.
■ VEITINGAHÚSIÐ 22: Breakbeat
is miðvikudagskvöld kl. 21:00 til
01:00. Fyrsta miðvikudagskvöld í
hverjum á mánuði er breakbeat
kvöld á 2 hæð Veitingahússins 22.
Um tónlistina sjá þeir Addi, Eldar og
Reynir og spinna jazzy drum & bass,
dark, jungle og experimental beat.
18 ára aldurstakmark og aðgangs-
eyrir er 300 kr fyrir kl. 23 og 500 kr
eftir_það.
■ VIKIN, Höfn: Pétur & Gargið
leika föstudagskvöld. Hljómsveitina
skipa:_Pétur Wigelund Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Tryggvi Hubner og
Björgvin Ploder.
■ VIKURBÆR, Bolungarvík:
Hljómsveitin Sixties leikur á sjó-
mannaballi laugardagskvöld.
Bee Gees sýningin er í fullum gangi á Broadway um helgina
Sensitive
,flrir
viðkvæma
húð
ONC
UCH
Hættu að raka á þérfótleggina J
Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsælair One Touch á íslandi í 12 ár.
Svo einfalt er það
Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið
það síðan afmeð rökum þvottaklút.
(Sjá leiðbeiningar.)
Húðin verður mjúk,
ekki hrjúf!
One Touch
er ofnæmisprófað
Margra ára reynsla segir sína sögu!
Fæst í apótekum og stórmörkuðum.
ijulega
ven
Bikini
fyrir
,bikini'
svæði
jg jjr
4 ’ .—wlsk
1
Látbragðsleikarinn Paolo Nani
leikur á Listahátíð.
Paolo Nani
í Salnum á morgun
Bréfíð hans
Paolo Nani
LÁTBRAGÐSLEIKUR er afar sér-
stakt form leiklistar. Þar verður
leikarinn að reiða sig algjörlega á
líkamlega tjáningarhæfni og svip-
brigði því ekki má mæla orð af vör-
um. I höndum færustu látbragðs-
leikara verður þögnin áhrifaríkt
verkfæri þar sem listamaðurinn nær
að fanga áhorfandann inn í hugar-
heim sinn með örlítilli handarhreyf-
ingu eða votti af brosi.
Paolo Nani er einn þessara
manna. Hann er gestur Listahátíðar
og verður leiksýning hans „Bréfið“
frumsýnd í Salnum í Kópavogi á
föstudag.
Nani ólst upp á Ítalíu og byrjaði
um tvítugt að leggja stund á leiklist
með argentískum leikflokki sem átti
leið um heimabæ hans. Nani ílentist í
hópnum og á því tólf ára tímabili sem
hann starfaði með honum fullkomn-
aði hann látbragðstæknina. Frá því
Paolo stofnaði sitt eigið leikfélag hef-
ur hann einbeitt sér að því að virkja
áhorfendur í sýningum sínum og láta
þá taka beinan þátt í því sem gerist á
sviðinu. Verk Nani hafa hlotið fjölda
verðlauna og lof gagnrýnenda sem
og áhorfenda. Meðal vinsælustu og
virtustu verka hans er leikverkið
„Bréfið". Það er mjög sérstakt því
þar er ekki að finna atburðarás í
hreinni merkingu þess orðs, heldur
er endurtekning kjarni sýningarinn-
ar. Sama atriðið er síendurtekið í
mismunandi stíl með gjörólíkum
áherslum svo úr verður einstök og
bráðskemmtileg leikhúsupplifun.
„Bréfið“ höfðar til fólks á öllum
aldri enda hefur verið haft eftir
Nani: „Ég hef leikið fyrir fólk af öllu
tagi. En eitt hef ég lært; þegar við
hlæjum verðum við öll eins. Við
verðum eins og börn, það ljómar af
okkur. Ég elska það þegar við köst-
um af okkur grímunni og hlæjum
saman.“
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.