Morgunblaðið - 07.07.2000, Page 2

Morgunblaðið - 07.07.2000, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR S VR felldi niður ferðir vegna starfsmannaskorts Breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur staðfest Markyiss stjórn á þróun miðborgarinnar Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsijóri og Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra undirrita og staðfesta breytingu á aðalskipulaginu. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra hafa undirritað og staðfest breytingu á aðalskipu- lagi miðborgar Reykjavíkur. Breytingin er hluti af þróunar- áætlun miðborgarinnar og er þetta í fyrsta sinn sem unnið er að því að stýra þróun hennar með mark- vissum hætti. Breytingin er einnig mikilvægur leiðarvísir fyrir þá sem hyggjast fjárfesta eða reka starf- semi í miðborginni. Breytingin felur í sér breytta af- mörkun miðborgarinnar og eru línur skerptar milli miðborgar og íbúðasvæða. Samkvæmt skipulag- inu er miðborginni skipt í þrjú svæði og er settur skýr rammi um hvaða notkun verður heimiluð og í hve miklum mæli innan svæðanna til að stuðla að uppbyggingu versl- unar og æskilegri dreifingu annarrar notkunar. Svæðin þrjú eru Kvosin en þar verður blönduð notkun en engin ein starfsemi önnur en verslun má vera ríkjandi, þ.e. meira en 50% og verður rúmur afgreiðslutími leyfð- ur á hluta svæðisins. Verslunar- svæði eru Laugavegur og Skóla- vörðustígur og verður því svæði skipt í aðal- og hliðarverslunar- svæði. A aðalverslunarsvæðum verður verslun að vera minnst 70% og minnst 50% á hliðarverslunar- svæðum og verður leyfður rúmur afgreiðslutími á hluta svæðisins. Priðja svæðið er atvinnusvæði í kringum Ráðhúsið og Arnarhvál en gert er ráð fyrir viðskiptum, stjórnsýslu og sérfræðiþjónustu á svæðinu. Þar er ekki gert ráð fyrir fleiri íbúðum og verslunum. Sækja verður um leyfi til Borg- arskipulags/byggingafulltrúa ef uppi eru hugmyndir um breytta starfsemi í einstökum húsum. STRÆTISVAGNA Reykjavíkur vantar 8-10 vagnstjóra til sumar- afleysinga, að sögn Lilju Ólafsdóttur forstjóra fyrirtækisins. Síðastliðinn sunnudag varð fyrirtækið að fella nið- ur nokkrar ferðir af þessum sökum. „Þetta er eins og annars staðar í þjóðfélaginu," sagði Lilja um vinnuaf- lsskortinn sem hún segir skýrast af þenslu í þjóðfélaginu og samkeppni um vinnuafl. Hún sagði að um 180 vagnstjórar störfuðu hjá fyrirtækinu og 40-50 væni ráðnir í afleysingar á sumrin. Nú vantaði 8-10 manns til að fylla þann hóp. Hún sagði að sem betur fer hefði mjög lítið þurft að fella niður af ferð- um vegna þessa og það hefði verið lán í óláni að það var aðeins á þeim tímum þegar álag er hvað minnst, þ.e. á sunnudagskvöldi og sunnudags- morgni. Hún sagði að fallið hefðu nið- ur ferðir á leið 4 eftir kvöldmat á sunnudag. Fjórar ferðir hefðu fallið niður á leið 15 á sunnudagsmorgun og ein ferð á leiðum 5,6 og 8. „En við erum að tala um að það séu farnar hundruð ferða á dag. Auðvitað er það mjög slæmt þegar eitthvað gerist sem heftir starfsemina," sagði hún. Hún sagði að reynt hefði verið að festa upp tilkynningar við biðstöðvar um að ferðir féllu niður til að draga úr óþægindum farþega en kvaðst ekki geta fullyrt að slíkt hefði tekist í öll- um tilfellum. Lilja sagði að SVR væri ekki að- eins í samkeppni við önnur fyrirtæki í fólksflutningum um vinnuafl heldur einnig öll fyrirtæki sem standi fyrir verklegum framkvæmdum í landinu. Hún kvaðst vonast til að ástandið ætti eftir að lagast enda væri „kúfurinn hvað hæstur núna“ varðandi fjarveru starfsmanna vegna sumarleyfa. ---------------------- Samningnr ekki fram- lengdur ALLTAF ehf.j sem gefur út tíma- ritið 24/7, og Arvakur hf., útgáfufé- lag Morgunblaðsins, hafa ákveðið að framlengja ekki samning sem félög- in gerðu um prentun og dreifingu tímaritsins 24/7. Tímaritinu hefur verið dreift með Morgunblaðinu vikulega á fimmtu- dögum frá síðastliðnum áramótum. Samningur félaganna sem gerður var til reynslu rann út um síðastliðin mánaðamót. í tilkynningu Alltaf ehf., sem birt- ist í tímaritinu 24/7 í gær, segh' Snorri Jónsson, ritstjóri þess, að 24/7 muni í framtíðinni sjá lands- mönnum fyrir skemmtun og þanka- hvetjandi upplýsingum á öðrum vettvangi. Sjö og fimm ára fangelsi fyrir e-töflusmygl og -sölu 40% fleiri einka- mál þingfest ALLS hafa verið þingfest 8.272 einkamál mánuðina janúar til júní 2000 á átta héraðsdómstólum lands- ins. Er það rúmlega 40% aukning mið- að við sömu mánuði 1999 og 66% aukning miðað við árið 1998. Fjöldi þingfestinga í júnílok er þegar orð- inn meiri en allt árið 1997. Elvar Geirdal Lést við Yatns- fellsvirkjun MAÐURINN sem lést í vinnuslysi í Vatnsfellsvirkjun í fyrradag hét El- var Geirdal. Hann var fæddur 25. desember 1939. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fimm uppkomin börn. ELLEFU menn voru dæmdir í fang- elsi í héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir smygl á um 4.000 e-töflum til landsins og sölu og dreifingu hér- lendis. Þetta er næstþyngsti dómur sem fallið hefur í fikniefnamáli hér á landi. Sá er þyngstan dóminn hlaut var dæmdur í 7 ára fangelsi. Þyngstan dóm fékk Guðmundur Ingi Þórodds- son, sem er 26 ára, eða 7 ára fangelsi en til frádráttar refsingunni dregst 192 daga gæsluvarðhald. Sveinn Ingi Bjarnason, tvítugur, og Ingi Þór Arn- arson, sem er 19 ára, voru dæmdir í 5 ára fangelsi hvor og til frádráttar kemur 180 og 185 daga gæsluvarð- hald þeirra. Fjögurra ára fangelsis- dóm fékk Jón Agúst Garðarsson, sem er tvítugur, en til frádráttar kemur 51 dags gæsluvarðhald. Þriggja ára dóm fékk Anton Kristinn Þórarins- son, sem er 21 árs, og til frádráttar kemur 60 daga gæsluvarðhald. Þá var 17 ára piltur, Þórir Jónsson, dæmdur í tveggja ára fangelsi. Fjórir sakbominganna fengu eins árs fang- elsi og einn 10 mánuði en frestað er því að fullnægja refsingu fjögurra þeirra að öllu leyti eða hluta í þrjú ár gegn almennu skilorði. Þá voru ákærðu dæmdir til greiðslu sektar en að sæta fangelsis- refsingu greiðist hún ekki innan fjög- urra '/ikna frá dómsbirtingu. Guð- mundur Ingi hlaut þriggja milljóna króna sekt en sæti ella 6 mánaða fangelsi, Sveinn Ingi eina milljón króna en ella 3ja mánaða fangelsi, Ingi Þór eina milljón króna en ella 3ja mánaða fangelsi, Jón Ágúst eina milljón króna en ella 3ja mánaða fangelsi og Anton Kristinn 300.000 krónur en ella 45 daga fangelsi. Þá hlutu þrír er stystu dómana fengu 150.000 króna sekt hver en sæti ella 30 daga fangelsi greiði þeir ekki sekt- ina á tilskildum tíma. Ákærðu voru enn fremur dæmdir til að sæta upptöku á 401 töflu af MDMA, 15 skömmtum af lýsergíði og 3,57 grömmum af amfetamíni. Einnig til greiðslu málsvamarlauna verjenda sinna á bilinu 50-500 þús- und króna. E-töflur með DHL til landsins Ákæran var í tveimur liðum, ann- ars vegar vegna innflutnings fíkni- efna frá Hollandi til íslands og sölu- dreifingar hérlendis og hins vegar afhending og sala fíkniefna hérlendis. Grunur vaknaði hjá tollgæslunni 14. desember sl. Sótt hafði verið sending frá Hollandi í hraðflutninga- fyrirtækið DHL sem gæti hafa verið fíkniefni. Sendingin var stíluð á Svein Inga og sagði hann lögreglu að hann hefði sótt hana fyrir Guðmund Inga Þóroddsson. Sendinguna fór hann með í jeppa sem stóð við Húsgagna- höllina á Bíldshöfða. Um þetta leyti höfðu lögreglu borist vísbendingar um það að Guðmundur Ingi væri staddur í Hollandi að kaupa mikið magn af fíkniefnum. Leiddi þetta til umfangsmikillar rannsóknar með símhlerunum, handtökum, leit og varðhaldsúrskurðum. Var lagt hald á 401 e-töflu hjá Þóri Jónssyni sem raktar voru til sendingarinnar. Við aðalmeðferð málsins kom fram að Guðmundur Ingi, Ingi Þór og Sveinn Ingi hefðu gert með sér sam- komulag að þeir tveir síðastnefndu legðu til 600 þúsund kr. og Guðmund- ur Ingi færi út og keypti fyrir pening- ana e-töflur. Helmingurinn af pen- ingunum átti að vera þóknun til Guðmundar Inga. Hann kvaðst hafa keypt 4.000 e-töflur af sölumanni sem hann hitti á götu í Amsterdam og sá maðurinn um að pakka inn fíkniefn- unum og láta senda þau með DHL til íslands. í dómi héraðsdóms segir að sannað sé með skýrslum Guðmundar Inga, Sveins Inga og Inga Þórs að þeir lögðu saman á ráðin um það að flytja inn í ágóðaskyni verulegt magn af e- töflum. Ráðagerð sína framkvæmdu þeir með því að tveir þeir síðarnefndu lögðu fram fé og afhentu Guðmundi Inga til kaupa á fíkniefnunum. Þá þótti dóminum sannað að hann hafi afhent Jóni Ágústi Garðarssyni um 2.000 e-töflur í því skyni að þær yrðu afhentar öðrum mönnum, þ.á m. Þóri Jónssyni. Sannað taldist að Anton Kristinn keypti 688 e-töflur sem ætl- aðar voru til sölu og að hann seldi 344 e-töflur. Sannað þótti að Sveinn Ingi hefði selt 865 e-töflur. Sannað taldist að Ingi Þór hefði selt um 775 e-töflur og telst dreifing efnanna sérstaklega saknæm vegna magns og tegundar þeirra. Brot Guðmundar Inga, Jóns Ágústs og Þóris teljast vera sérstak- lega saknæm vegna magns og teg- undar efnanna. Dómari í málinu var Pétur Guð- geirsson héraðsdómari en fyrir hönd ákæruvaldsins sótti málið Kolbrún Sævarsdóttir, settur ríkissaksóknari. Sérblöð í dag / / BIOBLAÐIÐ ÁFÖSTU #LD CUP Haukur Ingi Guðnason á leið til Groningen/Bl Þýskaland vann kapphlaupið um HM 2206/B2 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.